Þjóðviljinn - 08.04.1982, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 08.04.1982, Blaðsíða 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. april 1982 Spjallaö við Harald Sigurðsson, höfund bókarinnar ,,Skíðakappar fyrr og nú” „Viö sem sáum um timatökuna, vorum oftast fleiri en áhorfendurnir.” Myndir — Ari. „Ég hreinlega varð að byrja á þessu” Nokkrum dögum fyrir siðustu jól kom út hjá bókaútgáfunni Skjald- borg á Akureyri bókin i.Skiðakappar fyrr og nú". Þetta er stærsta rit sem gefið hefur verið út um einstaka grein iþrótta á íslensku/ alls 432 bls. prýdd 360 myndum. í bókinni er rakin saga skíðaíþrótta og sagt frá tilgátum um upphaf og þróun íþróttarinnar. Saga skiða iþróttarinnar á islandi er rakin í máli og myndum. Birt er full- komin skrá yfir alla heimsmeistara/ ólympiu- meistara og íslands- meistara skíðaíþrótt- arinnar frá upphafi. Síðast og ekki síst eru frásagnir ríflega 50 islandsmeistara/ sem rif ja upp þátt sinn í sögu islenskrar skíðaíþróttar. Veg og vanda af þessu merka riti, sem er stórmerkilegt fram- lag til íþróttasögu lslendinga, á Haraldur Sigurösson bankafull- trúi á Akureyri, en Haraldur er löngu landsþekktur fyrir áhuga sinn á starfi iþróttahreyfingar- innar. Hann sat um árabil í stjórn Skiðaráðs Akureyrar og átti sæti I stjórn Skiöasambands islands. Þá var Haraldur um tima formaður Knattspyrnu- félags Akureyrar, en siðustu 40 árin hefur Haraldur skipt árinu til helminga. Á veturna er það skiðaiþróttin og á sumrin frjálsar iþróttir. Auk Haraldar rita i bókina þeir Einar B. Pálsson, sem rifjar upp fyrstu landsmót skiðamanna i Reykjavik og Thulemótin, Þorsteinn Einars- son og Hreggviður Jónsson núverandi formaður Skiðasam- bands islands. Blaðamenn Þjóðviljans gerðu sér ferð norður til Akureyrar fyrir skömmu, m.a. til að ræða við Harald Sigurðsson um tilurð þessarar merku bókar, og annað sem að skiðaiþróttinni lýtur. — Tildrögin að þessari bók eru aðallega þau, að félagi minn Svavar Ottesen i Skjaldborg, hvatti mig eindregið til að taka þetta efni saman. Hann vissi að ég átti heilmikið efni til I kjall- aranum um þessa hluti og hafði áhuga á efninu. Við Svavar stóðum um áraraðir saman i fjallinu sem timaverðir og þekktum þarafleiðandi stærstan hluta af þvi fólki sem kemur við sögu skiðaiþróttarinnar sem keppnisiþróttar. Hugmyndin hjá mér var fyrst og fremst sú að skrifa bók sem væri sambland af upplýsinga- bók, handbók og spjalli aftur i timann. Það verður að segjast að ýmislegt sem mig heföi langaö að fá inn i þessa bók, náði ekki þangaö. Til dæmis hafði ég mikinn áhuga á að birta skrá yfir alla Akureyrar-, Siglu- fjaröar-, ólafsfjarðar-, Reykja- vikur-, ísafjarðarmeistara frá upphafi og reyndar viðar af landinu. Þegar til kom þá vant- aöi helst upplýsingar héðan frá Akureyri. Hér er þvi miður ekki til nein skrá yfir skiðameistara bæjarins frá upphafi. Einna bestu upplýsingarnar sem ég fékk voru frá tsafirði; þeir hafa haldiö vel utan um þessi mál. Hins vegar er að finna i bókinni skrá yfir alla heimsmeistara, ólympiumeistara og Islands- meistara frá upphafi, en ef ég man rétt, þá eru taldir upp 101 Islandsmeistari I skiöaiþrótt- um. Það var gifurleg vinna aö útbúa þessar skrár, sérstaklega yfir Islandsmeistarana, þvi það sem til var og menn höföu fyrir satt var oft á margan hátt rangt, og þurfti margra leið- réttinga við. Búinn að safna alla mína ævi Jú, jú mikil ósköp, ég er búinn aö vera að safna þessu efni saman meira og minna alla mina ævi. 1957 skrifaði ég i timaritið „Heima er best” grein ,,Ég safna öllu nema frimerkj- um” — sagði Haraldur, enda vandséð hvar hann hefði ætlað að koma þeim fyrir i kjallaran- um, innan um hið stórmerka, blaða, bóka, timarita, úrklippu, mynt og guð má vita hvaða safn, sem Haraldur heldur til haga. „Ég hcf gaman af að safna þessu vegna þess að það getur alltaf komið einhverjum að gagni.” rntk r ?tí IiPmi '

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.