Þjóðviljinn - 08.04.1982, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 8. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21
í stuttu máli
Frá v.:. Chris Georg frá Bryce Waterhouse og Asgeir Long, fram-
kvæmdastjóri báta- og vélaverslunarinnar Barco f Garöabæ. t baksýn
er einn þeirra báta, sem nú standa tslendingum til boöa. Mynd: —gel.
Barco í Garöabæ: Fimm bátar
komnir og fjórir í nánd
Þaö eru nú um þaö bil þrjú ár siöan fyrsti Napier 36 fiskibáturinn var
sjósettur i Bretlandi. Báturinn vakti þegar óskipta athygli breskra sjó-
manna og hefur skipasmföastööin, Bryce Waterhouse Marine Ltd. vart
annaö eftirspurn siöan. Maurice Napier, kunnur breskur skipahönn-
uöur, teiknaöi bátinn. Er Napier ekki meö öllu ókunnur tslendingum,
þar sem hann hefur teiknaö báta fyrir islenska sjómenn.
A siðasta ári komst á samband milli Barco, báta- og vélaverslunar i
Garðabæ, og Bryce Waterhouse og eru nú konjnir til landsins fimm
Napierbátar og fjórir verða afgreiddir á næstu Inánuðum.
Nú er i smiðum hjá Bryce Waterhouse bátur, sem ætla má aö henti
sérlega vel til rækjuveiða en rækjufloti Islendinga er mjög farinn að
þarfnast endurnýjunar.
Bryce Waterhouse leggja aðal áherslu á hagkvæman rekstur bát-
anna. Trefjaglerskrokkarnir eru svo til viðhaldslausir, ál og gal-
vaniserað stál er allsstaðar þar sem málma er þörf og vélastærðir
miðaðar við hagkvæmni i rekstri. —mhg
Aukin veröi aöstoö viö hafbeit
Undanfarin ár hefur stjórnskipuö nefnd unniö aö endurskoðun á lög-
um um lax- og silungsveiöi. Mun hún nú aö mestu hafa lokiö störfum.
Formannafundur Búnaðarsambands Austur-Húnvetninga beindi þvi
til Búnaðarþings að beita sér fyrir þvi að lagt verði fram á yfirstand-
andi Alþingi, — og afgreitt, — frumvarp, sem byggt væri á þessari
endurskoðun. Jafnframt verði sett i lögin ákvæði um sérstaka aðstoð
viðeinstaka bændur og veiðifélög sem stofna vilja til hafbeitar á laxi.
Búnaðarþing lagði til að orðið yrði við þessum tilmælum.
Nú eru fjórar stofnanir, sem lána tilog/eða styrkja fiskirækt: Fiski-
ræktarsjóður, Byggðasjóður, Stofnlánadeild landbúnaðarins og Fram-
leiðnisjóður landbúnaðarins. Búnaðarþing taldi aö ákveða þyrfti tengsl
eða verkaskiptingu þessara stofnana. Lagði þingið jafnframt áherslu á
að þessi búgrein yrði sem mest i höndum bænda svo hún gæti sem best
gegnt þvi ætlunarverki, að auka fjölbreytni búvöruframleiðslunnar og
leysa aö einhver ju leyti af hólmi eldri búgreinar. — mhg
Tommi færir út kvíarnar
Tómas Tómasson f Tomma-hamborgurum hefur opnaö enn einn veit-
ingastaöinn, Svörtu pönnuna. Meöeigendur Tómasar eru þeir Ulfar
Eysteinsson áöur kokkur I Laugarási og Siguröur Sumarliöason áöur
kokkur hjá Fiugleiöum á Keflavikurflugvelli. Hinn nýi matsölustaöur
er aö Brautarholti 22 á þeim staö sem Hlföarendi var áÖur.
Eigi alls fyrir löngu var blaðamönnum boðið að kynna sér hinn nýja
matsölustaö en þar hefur verið gerbreytt um allar innréttingar frá þvi
að Hliðarendi var starfræktur. Svarta Pannan mun einbeita sér aö til-
tölulega einföldum matseðli, vinveitingar verða ekki til staðar, en sér-
stakur salatbar er opinn öllum matargestum. Barnaherbergi fylgir
matstaðnum, enda lét Tómas svo um mælt að þessi nýi staður væri
einkum kominn á laggirnar með þarfir fjölskyldufólks i huga. Innrétt-
ingar eru stórglæsilegar og mikið i þær lagt. Taldi Tómas aö kostn-
aður við að innrétta staðinn væru u.þ.b. 400 þús. krónur. Starfsmenn
eru 12 talsins.
Athugasemd vegna fréttar
Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi Flugleiða hringdi upp á Þjóðvilja
og vildi gera stutta athugasemd viö frétt sem birtist i Þjóðviljanum
þann 30. mars. Þar var sagt frá björgunarafreki hjúkrunarkonunnar,
Herdisar Kjartansdóttur, og flugfreyjunnar Matthildar Haraldsdóttur
er kona frá Höfn var hætt komin i einni af vélum Flugieiöa. Sveinn
sagði (en frá honum var fréttin komin) að i upplýsingum þeim sem
hann veitti blaöamanni hefðu honum láðst að geta þess, að hjúkrunar-
konan, Herdis Kjartansdóttir, hefði haft umsjón meö lifgunartilraun-
um. Þvi hefði hlutur Herdisar virkaö minni i fréttinni, en hið rétta, vildi
Sveinn taka fram, var að báðar unnu þær mikið afrek i vélinni og ættu
verðugt hrós skilið. — hól.
Gleymd skáldsaga frá síöustu öld
Bókavaröan, forlag og bókaverslun I Kcykjavik, hefur gefið út i ljós-
prentun nokkur eldri islensk rit, iitt þekkt og fágæt, sem talin eru um
margt eiga erindi viö samtfmann.
Hin nýjasta þessara bóka er stutt skáldverk: Bræðurnir i Perludaln-
um. Litil frásaga. Útgefandi (höfundur): Sv.St. (Sveinbjörn Stefáns-
son). Prentuð áriö 1890 i Fjelagsprentsmiðjunni i Reykjavik.
Islenskar skáldsögur útgefnar fyrir siðustu aldamót skipta ekki
mörgum tugum. Hinsvegar hafa þúsundir skáldverka verið prentaðar
á þessari öld. Höfundur meöfylgjandi skáldverks er með öllu óþekktur
og hans er hvergi getiö I neinni bókmenntasögu og mestu bókmennta-
menn landsins og grúskarar hafa ekki heyrt þessa skáldverks getið.
Bræðurnir i Perludalnum fjallar um tvo bræður, þá Böðvar og Björn,
syni Brands bónda i Hvammi i Perludal. Fella þeir báðir hug til stúlk-
unnar Sólrúnar, dóttur Hrings bónda á Hofi. Fer svo að lokum, að ann-
ar bróöirinn nær ástum Sólrúnar og flytur ásamt henni i fjarlægt hérað
og fór búskapur þeirra allur i „ringulreið og óreglu”, eins og greinir i
sögunni. Lýsir sagan siðan lifi þessara persóna.
Yerið velkomin á skíði til
HÚSAVÍKUR
r
A Húsavik er ákjósanlegt skíðaland og
skíðasnjór yfirleitt mikill
Frá Hótel Húsavík er aðeins 200 metrar
í skíðalyfturnar
3 skíðalyftur sem eru opnar og flóðlýstar
frá kl. 10.00 — 22.00 alla virka daga
og frá kl. 10. 00 — 19.00 um helgar
Troðnar göngubrautir
í fallegu umhverfi fyrir þá sem hafa gaman
af skíðagöngu
Skiðakennsla mánudaga til föstudaga kl. 20 — 22
þœgilegar helgarferðir með Flugleiðum
HÚSAVÍKURKAUPSTAÐUR
fi
igjoe
BANDARÍSKIR
LYFTARAR
Lyftigeta:
Alltað2tonn.
Lyftihæð:
Allt að 4 metrar.
LÁGT VERÐ
Fullkomin
viðgerðar
þjónusta
víða um land.
SNÝSTÁ
PUNKTINUM
UAi
Margur er knár þótt
hann sé smár
isvoc
Umboðsverzlun
Laugavegi 40
Símar26707 og26065.
Umboð á Akureyri:
Jón Ingólfssoni, sími (96)22254