Þjóðviljinn - 08.04.1982, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 8. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Leikfélag Keflavíkur
sýnir Saumastofuna
Frá sýningu Leikféiags Keflavikur á Saumastofunni, taliö frá v.:
Unnur Þórhallsdóttir, óskar Nikuiásson og Hrefna Traustadóttir.
Leikfélag Kcflavikur stendur
nú fyrir sýningum á leikritinu
Saumastofunni, eftir Kjartan
Ragnarsson og var frumsýning
föstudaginn 3. apríl.
Það er ekki ráðist á garðinn þar
sem hann er lægstur að taka til
sýningar verk, sem ekki er langt
um liðið siðan Leikfélag Reykja-
vikur sýndi viða um land, m.a.
hér i Keflavik, við afbragðs
undirtektir. Áhorfandi var þvi
ekki laus við að kviða þvi að
samanburður yrði ekki hag-
stæður Leikfélagi Keflavikur.
Allur slikur samanburður er að
visu ósanngjarn og raunar frá-
leitur, en engu að siður kemst
áhorfandi tæpast hjá þvi að gera
ósjálfrátt samanburð á þessum
tveim sýningum.
En aðstandendur þessarar
sýningar þurfa hreint ekki að
bera kinnroða fyrir sina frammi-
stöðu. Ekki ætla ég þó að halda
þvi fram, að þessi sýning sé betri
en sýning Leikfélags Reykjavik-
ur. Slikt væri oflof. En hér tókst,
þrátt fyrir óhagstæðan saman-
burð, að flytja okkur ágæta leik-
list á eftirminnilegan hátt. Meira
verður ekki krafist með nokkurri
sanngirni.
Ég hef oft undrast þolinmæði og
áhuga þess fólks, sem árum
saman fórnar öllum fritima sin-
um og umtalsverðum fjármunum
til þess að flytja okkur leiklist,
sem stundum hefur þvi miður
verið af vanefnum gert. Oft hefur
þessi fórn lika verið þegin með
semingi og stundum sýnt óverð-
skuldað tómlæti. Þeim mun
ánægjulegra er það þegar fram er
boðin jafn ágæt sýning og hér er á
ferðinni.
Þessi sýning er tvimælalaust sú
besta, sem undirritaður hefur séð
hjá Leikfélagi Keflavikur.
Sýning, sem enginn ætti að láta
fram hjá sér fara.
Efni leikritsins er sára einfalt.
Hópur saumakvenna heldur af-
mælisveislu á vinnustað sinum og
hver einstök segir ævisögu sina
og opinberar lifsskoðanir sinar.
Hlutverk eru 9, saumakonurnar 6,
ásamt yfirmanninum, sendlinum
og kynvillingnum Kalla.
Kvenhlutverkin öll voru flutt
með sérstökum ágætum. Þó get
ég ekki stillt mig um að geta sér-
staklega Helgu Gunnólfsdóttur,
sem lék hið sjötuga afmælisbarn
með sérstökum glæsibrag, sem er
þeim mun meira afrek þar sem
þetta er frumraun Helgu á leik-
sviði.
Það verður að segjast eins og
er, að sterkara kynið var veikasti
hlekkurþessarar sýningar. óskar
Nikulásson, sem mun vera nýliði
og Arni ólafsson, sem lengi hefur
verið styrk stoð Leikfélags Kefla-
vikur, sýndu þó báðir góð tilþrif,
en frumsýningarskjálfti spillti
frammistöðu þeirra að nokkru.
Leikstjóri er Þórir Steingrims-
son en þetta mun vera fimmta
verkefni hans hjá Leikfélagi
Keflavikur og verður ekki annað
séð en hann hafi unnið verk sitt af
alúð, sem jafnan fyrr.
Leikritið er öðrum þræði söng-
leikur en flutningur söngtexta
verður áhugamannaleikflokkum
oft erfiður ljár i þúfu. Engra
erfiðleika á þvi sviði verður þó
vart hér. Söngtextar voru prýði-
lega fluttir og má sjálfsagt þakka
það i senn hæfileikum leikara og
söngstjórn Siguróla Geirssonar.
1 leikslok voru leikarar, leik-
stjóri, söngstjóri og höfundur
hylltir lengi og innilega og þeim
færð blóm.
A.A.
PÁSKAVIKUNA
mun Ingimar Eydal leika fyrir matargesti á
Hótel KEA.
Minnum sérstaklega á kvöldverð laugardags-
kvöld 10. apríl. Þá mun Ingimar ásamt fleir-
um leika jass af f ingrum f ram til kl. 24.00.
FJARÐARSIGLING
laugardag 10. apríl.
Efnt verður til 4ra
tíma skemmtisigl-
ingar um Eyjaf jörð.
Pöntunum
móttaka á
KEA.
veitt
Hótel
HÓTEL KEA AKUREYRI
SÍMI96-22 200
Fjármálaráðuneytið
óskar eí'tir að ráða nú þegar i stöðu skrif-
stofumanns. Góð vélritunar- og islensku-
kunnátta áskilin. Umsóknir sendist
fjármálaráðuneytinu fyrir 17. april n.k.
Fjármálaráðuneytið, 2. april 1982.
ÞURÆÐUR
FERÐINNI!
Allar ferðir verða ánægjulegri sé
hægt að haga þeim eftir eigin höfði. Dvelja
t.d. í orlofshúsi í fögru umhverfi og skjót-
ast í göngu- eða ökuferðir. Við bjóðum
marga slíka kosti víða um Evrópu.
Þið veljið lönd og leið. Við leiðbeinum
um akstursleiðir og útvegum flug, bíla-
leigubíla eða flutning á eigin bíl og leigu á
orlofshúsi eða íbúð. Þau eru af ýmsum
stærðum og gerðum, búin eldhúsáhöld-
um, borðbúnaði, rúmfatnaði og víða eru
svalir, sólstétt og fagurt útsýni. Húsin
leigjast í eina viku eða lengur og hefst
leigutímabil alltaf á laugardögum. Verðið
er hagkvæmt vegna samstarfs okkar við
félög bifreiðaeigenda erlendis. Alls staðar
er stutt í þjónustu og verslun. Víðast hvar
eru fjölbreyttir möguleikar til tómstunda-
iðkana allt frá sundi, siglingum og golfi til
veiða og skíðaiðkana.
í vestur-Þýskalandi er framboðið fjöl-
breyttast en einnig er um margt að velja í
Noregi og Danmörku, Frakklandi, Austur-
ríki, Sviss og jafnvel allt suður til Ítalíu.
Biðjið um ferðabækling okkar:
„Þú ræður ferðinni".
•^ÖMOBWt
SÉRSTÚK KJÖR FYRIR FÉLAGA í FÍB.
FERÐASKRIFSTOFA FIB
NÓATÚNI17 SÍMI: 29999