Þjóðviljinn - 08.04.1982, Blaðsíða 25
Fimmtudagur 8. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 25
utvarp • sjomrarp
• Skírdag
kl. 20.30
Halldór
Laxness
áttræður
Þaö hefur vist ekki farið
framhjá mörgum manninum is-
lenskum,að Halldór Laxnesser
áttræður á þessu ári. Útvarp og
sjónvarp hafa bæði látið gera
sérstaka afmælisþætti i tilefni
þessa. útvarpsþættirnir verða
fjórir;sá fyrsti verður fluttur á
skirdag, fimmtudaginn 8. april
og hinir þrir siðan á næstu
fimmtudögum. Fyrsti sjón-
varpsþátturinn verður hins veg-
ar ekki fyrr en sunnudaginn 18.
april og munum við kynna hann
þegar þar að kemur.
Útvarpið:
Fyrir
börninum
páskana
t Morgunstund barnanna á
skirdag og föstudaginn langa
mun Sigurbjörn Einarsson,
fyrrum biskup, segja börnunum
frá atburðum kyrru viku.
Morgunstundin hefst kl. 9.05 að
vanda.
Helga Þ. Stephensen er með
þáttinn sinn Lagið mitt á skir-
dag, en það er óskalagaþáttur
barna. bátturinn hefst kl. 16.20.
A laugardag verður siðan
flutt leikritið „Páskaegg” eftir
Ingibjörgu Þorbergs, en þetta
er barnaleikrit. Leikstjóri er
Klemenz Jónsson, en með helstu
hlutverk fara Fritz Ómar
Eiriksson, Róbert Arnfinnsson,
Herdis Þorvaldsdóttir og
Sigriður Þorvaldsdóttir. Leik-
• Páskadag
kl. 12.50:
A páskadag 11. april kl. 12.50
hefst nýr framhaldsflokkur i út-
varpinu, sem hlotið hefur heitið
„Sekir eða saklausir”. bar
veröur fjallaö um innlend og er-
lend sakamál af ýmsu tagi og
atburði tenda þeim. I fyrsta
þættinum verður fjallað um
hjúskaparvandamál Magnúsar
Sigurðssonar i Bræðratungu og
Fyrsti útvarpsþátturinn heitir
Heimsljós — Konurnar og
skáldið i umsjá Baldvins Hall-
dórssonar og Gunnars Eyjólfs-
sonar. Þar verða fluttir kaflar
úr leikgerð Þorsteins ö.
Stephensen af verkinu en höf-
undur sjálfur tengir þá saman.
Grettir Björnsson leikur á
harmóniku tónlist Jóns Asgeirs-
sonar úr „Húsi skáldsins”.
Herra Sigurbjörn Einarsson,
fyrrum biskup tslands, segir
börnunum frá kyrru viku i
Morgunstund barnanna á skirdag
og föstudaginn langa.
ritið var áður á dagskrá i april
1971, eða á páskum þess árs.
Efnisþráður: Palli hyggur á
skemmtilega páska, enda býst
hann við fallegu páskaeggi.
Foreldrar hans fara að heiman,
og fá unglingsstúlku, Bellu, til
að gæta hans. Þau halda að allt
hljóti að verða i himnalagi, en
Palli hefur sinar grunsemdir.
Þórdisar, konu hans, og deilur
Magnúsar og Arna Magnús-
sonar, prófessors. Allt þetta fólk
hefur Halldór Laxness gert
ódauðlegt i íslandsklukkunni.
Fluttir verða tveir kaflar úr
leikritinu i þættinum.
Gils Guðmundsson gerði
handrit. Flytjendur eru Bryndis
Pétursdóttir, Guðmundur Páls-
son, Björn Karlsson, Rúrik
Haraldsson, Erlingur Gislason,
Margrét Guðmundsdóttir,
Hjalti Rögnvaldsson og Gils
Guðmundsson. Stjórn upptöku
annaðist Baldvin Halldórsson.
Sjónvarp:
Fyrir
börnin um
páskana
Stundin okkarveröur á sinum
stað á dagskrá sjónvarpsins á
páskadag klukkan 18.00. Meðal
efnis verða myndir frá heim-
sókn til Isafjaröar.Nokkur börn
syngja og farið verður upp á
Seljalandsdal og skiðaskóli fyrir
yngstu börnin heimsóttur.
Fyrir utan Stundina er Ridd-
arinn sjónumhryggi á sinum
stað á laugardeginum, Tommi
og Jenni eftir fréttir á mánu-
deginum og Prúöuleikararnir
þar á eftir. Þá verður bangsinn
Paddington sýndur eftir fréttir
á þriðjudeginum. bar með upp-
taliö.
J.C Föstudag
XV kt /7:
Tvær íslensk-
ar kvikmyndir
endursýndar
A föstudaginn langa verða
endursýndar tvær islenskar
myndirá timabilinu frá kl. 17.00
til kl. 18.45. Hér er um að ræða
myndina Mývatnssveit, sem
áður var sýnd 30. júni 1971, og
„Sálin f útlegð er” áður sýnd i
sjónvarpinu 27. október 1974.
Mývatnssveit er einn vinsæl-
asti ferðamannastaður hér-
lendis sakir f jölbreyttrar
náttúrufegurðar. Arið 1970 lét
sjónvarpið gera mynd um þessa
ferðamannavin. Þegar hún var
sýnd sendi sjónvarpið ekki út i
lit og var þvi ekki nema hálf
ánægja af myndinni. En nú
kemur öll ánægjan. Kvik-
myndun annaðist Þrándur
Thoroddsen, tónlistin er eftir
Þorkel Sigurbjörnsson og um-
sjón hafði Magnús Bjarnfreðs-
son með höndum.
„Sálin i útlegð er” var gerð
árið 1974 um Hallgrim Péturs-
Náttúrufegurð Mývatns er
rómuð um allar jarðir.
son. Leiðsögumaður visar hópi
fólks um helstu söguslóðir
skáldsins, svo sem Suðurnes og
Hvalfjarðarströnd, og rekur
æviferil þess eftir tiltækum
heimildum Inn á milli er fléttað
leiknum atriðum úr lifi Hall-
grims.
Höfundar handrits voru þeir
Jökull Jakobsson og Sigurður
Sverrir Pálsson. Kvikmyndun
annaðist Sigurliði Guðmunds-
son og hljóð Jón A. Arason.
Nýr framhaldsþáttur
eftir GilsGuðmundss.
2. páskadag
kl. 20.40
Hjónabandið, óvigð sambúð
og skilnaður, eru viðfangsefni
þáttarins Krukkað i kerfið sem
er á dagskrá útvarps á annan i
páskum kl. 20.40.
Að sögn umsjónarmanna
þáttarins þeirra Lúðviks Geirs-
sonar og Þórðar Yngva
Guðmundssonar, verður i þessu
krukki velt vöngum yfir þvi
hvort skipbrot hjónabandsins
sem sambýlisforms sé fram-
undan, og hvort menn hafi
frekar trú á einhverjum öörum
leiðum i sambúðarmálum, eins
og t.d. óvigðri sambúð.
Þá verður einnig i þættinum
fjallað um hinu miklu fjölgun
lögskilnaða hérlendis á siðustu
árum, en á síöasta ári gaf dóms-
málaráðuneytið leyfi fyrir 560
lögskilnuðum og hafði þeim þá
fjölgaö um rúmt 21% frá þvi ár-
inu á undan.
I Krukkinu verður m.a. rætt
við Ólöfu Pétursdóttur deildar-
stjóra i dómsmálaráðuneytinu
um skilnaðarmál. Spjallað við
Sigriði Dúnu mannfræðing um
breytingar á sambýlisháttum
fólks.
Þá fáum við að heyra viðhorf
tveggja nýgiftra stúlkna og eins
pilts sem hefur búið um nokkurt
skeið i óvigðri sambúð, til
hjónabandsins og sambýlis-
hátta, og að lokum veröur rætt
við Gunnþór Ingason sóknar-
prest i Hafnarfirði um skilnaöi,
upplausn hjónabandsins og
skoðun kirkjunnar manna á
þeim efnum.
Úr myndinni „ismaðurinn kemur”, en hún er byggð á einu fræg-
asta leikriti Eugenes O’Neills.
ísmaðurinn kemur
A föstudaginn langa sýnir
sjónvarpið eitt frægasta leikrit
Eugene O’Neill i leikstjórn
Johns Frankenheimers, en það
er oft sagt um Eugene O’Neill
að hann sé upphafsmaður
alvarlegrar leikritunar i Band-
arikjunum.
1 leikritinu segir af nokkrum
mönnum, sem mæta reglulega á
barinn hans Harrys. Leikurinn
gerist sumarið 1912 og það er
eftirvænting i loftinu, þvi von er
á Hickey (Lee Marvin) sem læt-
ur sig aldrei vanta i afmæli
Harrys. Hickey er örlátur á vin
og mikill gleöimaður og segir
sögur af konu sinni og ismann-
inum svokallaða. Loksins kem-
ur hann, en þetta er ekki sá
sami Hickey og hinir þekktu...
þessi er hættur að drekka og
reynir að fá hina til að horfast ia
ugu viö veruleikann. Eins og
vænta má af hendi Eugene
O’Neill fer siðan fram mikil sál-
ræn krufning, en þvi kynnumst
við i myndinni.
Föstudag
kl. 21.05
Sólsetursbraut
Laugardag
7(y kl. 21.25
Sólsetursbraut ncfnist laugar-
dagskvikmynd sjónvarpsins, en
hún crbandarisk frá árinu 1950.
Ekki skyldu menn örvænta yfir
aldri myndarinnar, þvi hún fær
3 stjörnur í kvikmyndahandbók-
inni okkar (sem er af bestu
gerð) og mjög góða umsögn
fyrir myndatöku, lcik, handrit
o.fl. o.fl'.
Aðalhlutverkin eru ekki i
höndum neinna aukvisa: þar
fara á kostum Gloria Swanson,
William Holden, Eric von Sto-
hreim, Fred Clarks, o.fl. Leik-
stjóri er Billy Wilder.
Efnisþráðurin er þessi i stuttu
máli: Ungur rithöfundur i fjár-
Sólsetursbraut, scm sjónvarpið
sýnir á laugardaginn, er talin
þriggja stjörnu mynd og fær
góða dóma i handbókinni okkar.
hagskröggum fær verkefni hjá
fyrrverandi kvikmyndastjörnu
þöglu myndanna og sest að á
heimili hennar. Kvikmynda-
handbókin segir fyrri partinn
með eindæmum góðan, en
endirinn sé einnig þesslegur, að
ekki megi missa af honum.
Verði ykkur að góðu.
Páskadag
O’ kl. 20.20
íslenskt
sjónvarps
leikrit
Sesselja
Sjónvarpsieikrit islensk vekja
ávallt mikla athygli og ekki sið-
ur umtal. A páskadag vindur
sjónvarpið sér eina ferðina enn I
slika umtalssyrpu, en þá verður
frumsýnt ieikritið Sesselja eftir
Agnar Þórðarson. Það skal tek-
ið fram, að leikritið var áður
sýnt á Litla sviði Þjóðleikhúss-
ins, fyrir tveimur árum og fékk
þá nokkuð góða dóma. Sjón-
varpsgerðin er eftir Pál Stein-
grimsson, leikstjóri er Helgi
Skúlason og leikendur Heiga
Bachmann og Þorsteinn Gunn-
arsson.
Efnisþráður: Leikritið er eins
konar lifsuppgjör hjóna. Hann
er allþekktur og sigldur lista-
maöur, en hún er eiginkona.
Hann hefur verið mjög rikjandi
i hjónabandinu og litið tillit tek-
ið til hennar. Hún virðist láta
sér það lynda, sem veröur til
Þorsteinn Gunnarsson leikur
listamanninn i leikritinu Sess-
elja cftir Agnar Þórðarson. Það
verður flutt i sjónvarpinu kl.
20.20 á páskadag.
þess, aö hann tekur allt frum-
kvæði. Þegar hún hverfur úr
sumarbústað þeirra leitar á
hann sú hugsun, aö hún hafi yf-
irgefið hann eða jafnvel fyrir-
farið sér. Þetta veldur honum
hugarvili.
Systir konunnar kemur til
listamannsins eftir hvarfið. Þær
eru undarlega likar. Uppgjörið
verður við systurina, en sagan
verður enn flóknari. I örvænt-
ingu og andvöku sækja á lista-
manninn ofskynjanir, sem bera
þjóðsagnablæ.