Þjóðviljinn - 08.04.1982, Side 4

Þjóðviljinn - 08.04.1982, Side 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. april 1982 UODVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs hreyfingar og þjóðfrelsis (Jtgefandi: (Jtgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Eióur Bergmann. Ritstjórar: Arni Bergmann, Eínar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Fréttastjóri: Þórunn Sigurðardóttir. Umsjónarmaöur sunnudagsblaðs: Guöjón Friöriksson'. Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir. Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson. Blaðamenn: Auöur Styrkársdóttir, Helgi ólafsson, Magnús H. Gislason. Ólafur Gislason, Óskar Guömundsson, Sígurdór Sig- urdórsson, Sveinn Kristinsson, Valþór Hlööversson. tþróttafréttaritari: Viöir Sigurösson Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guöjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elisson. Handrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson. Auglýsingar:Hiidur Ragnars, Sigriöur H. Sigurbjörnsdóttir. Skrifstofa: Guörún Guövarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Afgreiösla: Bára Siguröardóttir, Kristin Pétursdóttir. Simavarsla: Sigriöur Kristjánsdóttir, Sæunn óladóttir. Húsmóöir: Bergljót Guöjónsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmunds- son. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns- dóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Siðumúla 6, Reykjavik, simi: 8 13 33 Prentun: Blaðaprent hf. Að hafa og vera • Róttækur húmanisti, Erich Fromm, fjallar i bók sinni „Að hafa (eða eiga) og vera” um þær blindgötur sem táknaðar eru með fyrri hluta bókarheitisins að hafa, eiga, sanka að sér. Um kreppu þeirra lifsviðhorfa sem byggja á her- skárri sérgæslu valdbeitingu og ránsskap — allt i nafni fullnægingar á þeim þörfum sem einstakl- ingar hafa komið sér upp án tillits til annarra manna og gert sér að siðaboði. Fromm ræðir lika þær leiðir, sem menn hafa fyrr og siðar prófað út úr þessum villum, og þá um fordæmi þeirra manna sem hann vill kalla meistara. Kristur kemur þar mjög við sögu. Fromm nefnir hann hetju kærleikans, hetju þeirra sem hafna valdi, beittu ekki ofbeldi, vildu ekki eiga neitt. Hann er, segir Fromm, hetjan sem var, gaf, deildi með öðrum. Og hin kristna hetja varð pislarvottur, þvi rétt eins og i hinni gyðinglegu hefð varð ekkert afrek meira en að leggja lif sitt i sölurnar fyrir náungann. Og pislarvotturinn, sá sem er tekinn af lifi fyrir þau sannindi sem hann veit æðst, hann er andstaða hinnar grisku og germönsku hetju, hinnar heiðnu hetju, sem á sér það markmið að sigra, yfirbuga, ræna, eignast stolt, vald og frægð. • Ef menn lita yfir sögu aldanna verður fljót- lega fyrir þeim á kristnu menningarsvæði sem svo er nefnt mikil þverstæða. Lotning er sýnd hetjunni sem var, sem gaf, sem deildi með öðrum, en i raun er farið að allt öðrum fyrir- myndum, allt önnur gildi ráða. Og sagan er eftir þvi af ofbeldisverkum, undirokun, landvinn- ingum, arðráni — og nú siðast af skammsýnum ránsskap i vistarveru mannfólksins, náttúrunni. Það er kannski ekki mikill vandi að skilja hvers vegna svo hefur farið. Hitt liggur ekki i augum uppi, hvers vegna menn halda áfram að ákalla hetju kærleikans, þótt þeir ætli sér alls ekki að fara að dæmi hennar svo neinu nemi. Að visu má segja sem svo, að kristin játning er einkar þægi- leg, það getur verið notalegt að koma sér upp skurðgoði er menn láta annast fyrir sig góðvild, óserpiægm, kærleika — um ieið og þeir afsaka sig með mannlegum ófullkomleika og guðlegum full- komleika. En þessi tvöfeldni blandast svo saman við annað: Þarfir manna fyrir að vera, — ekki eigendur eða valdstjórar, heldur menn með mönnum, menn i samfélagi, menn sem treysta hver öðrum en þurfa ekki sifellt að brynja sig gegn óvinum og keppinautum. • Þessar þarfir, segir Fromm, sem ekki trúir á einfaldar útlistanir á sérdrægni mannlegs eðlis, eru svo djúpstæðar, að menn finna til samvisku- bits, sársauka yfir þvi að þeir lifa án þess kær- leika sem þeir kannski játa trú á. • Og þvi er það, að i okkar heimshluta hefur pislarsagan eins og fléttast inn i vitund manna, þar ber hún og fram,beint og óbeint, spurningar um margt það sem mikilvægast er i sambúð manna, um þá meginstrauma sem birtast i orð- unum að hafa og vera. Mönnum gengur að sönnu misjafnlega vel að heyra þessar spurningar fyrir allskonar gauragangi. En þær minna á það, að þrátt fyrir herfilegt misræmi milli játninga og verka i þjóðfélögum okkar, þá á hver maður þess kost að breyta lifi sinu með róttækum hætti. Og þar með lifi annarra manna i einhverjum mæli. ÁB Þessir þrir koma til með aö berjast um tslandsmeistaratitilinn um páskana. F.v.: Sævar Bjarnason, Jón L. Arnason og Jóhann Hjartarson. Jóhann er iefsta sæti sem stendur. Ljósm.: —eik. Tiltölulega hreinar línur virð- ast komnar i baráttunni um ts- landsmeistaratitilinn i skák i ár. Jóhann Hjartarson, Sævar Bjamason og Jón L. Árnason virðast einoka keppnina um efstu sætin og má mikiö gerast ef einhverjum hinna tekst aö blanda sér i' baráttu þremenn- inganna. Staðan þegar nokkrum skákum er lokið i5 umferðum er þessi: 1. Jóhann Hjartarson 4 1/2 v. 2. - 3. Jón L. Árnason og Sævar Bjarnason 3 v. + 1 bið- skákhvor. 4. Július Friðjónsson 3 v. 5. Björn Þorsteinsson 2 1/2 v. 6. Róbert Harðarson 2 v. + 1 biðskák. 7. Magnús Sólmundar- son 2 v. 8. - 9. Benedikt Jónasson og Elvar Guömundsson 1 1/2 v. + 1 biðskák hvor. 10. Sigurður Danielsson 1 v. ll.Stefán Briem 1/2 v. + 3 biðskákir. 12. Jón Þorsteinsson 1/2 v. + 2 biðskák- ir. 1 Áskorendaflokki er lokið 4 umferðum ogþar er efstur Arn- ór Björnsson meðfullt hiís vinn- inga. 1 Opna flokknum er Tóm- as Björnsson efstur með fullt hús vinninga að loknum 4 um- ferðum. Keppendur i Askor- endaflokki em 20 talsins en 78 i Opna flokknum. AUmikil umræða hefur verið i gangi varðandi aðstöðu kepp- anda i Norræna hiisinu. Sá sem þessar linur ritar er á þeirri skoðun að listahús af ýmsu tagi séu einkar heppileg fyrir skák- viðburði. Norræna húsið er kjörinn vettvangur fyrir skák- mót. Hitt er svo annað mál að í öllum tilvikum þarf að full- nægja ldgmarkskröfum. Þannig þarf að vera gott loft i skáksal, hávaðamengun verður að halda i lágmarki og lýsing verður að vera i góðu lagi.Þetta skortir á i hinum ágæta sal Norræna húss- ins, en þó er þetta atriði sem ætti að vera auðvelt að kippa i liðinn. Það er einum of langt gengið þegar keppendur taka upp á þvi að koma með lampa með sér til keppni eins og Jón L. Árnason gerði i 5. umferð móts- ins. Arangur þeirrar aðgerðar lét ekki á sér standa þvi Jón komst i mikinn ham og vann Magnús Sólmundarson i aðeins 23 leikjum: Hvi'tt: Jón L. Árnason Svart: Magnús Sólmundarson Caro-Kann 1. e4-c6 4. Rxe+Rf6 2. d+d5 5. Rxf6+-gxf6 3. Rd2-dxe4 (Caro-Kann er e.t.v. ágætis- byrjun þegar teflt er við Jón L., en ekki þetta afbrigði. Með hvitu hefur hann unniö marga góða sigra gegn þvi.) 6. c3! (Nákvæmur biðleikur. Hvitur treystir stöðu sina á miðborðinu og biöur átekta. Hann vill sjá hvernig svartur hyggst skipa liði sinu fram). 6. ... Bf5 (Larsen, Speelmaan, Hort og fleiri góöirmenn hefðu leikið 6. - Landsliðsflokkur á Skákþingi Islands: Jóhann, Jón og Sævar endaflokki á Skákþingi Islands en i 2. sæti varð Sigurður Dan- ielsson. Misjafnt höfðust þeir að i upphafi þessa mdts, þvi Sig- urður var án vinninga eftir 4 umferðir. I 5. umferð mætti hann Sævari og lengi vel virtist ekki ætla að verða mikil breyt- ing á gengi þeirra. Langt fram i endatafl hafði Sævar talsverða yfirburði, en svo fór að hæfileiki Sigurðar til að flækja málin urðu Sævari fjötur um fót og hann fékk bókað sitt fyrsta núll á mótstöfluna. berjast h5. Framrás h-peðsins er i mörgum tilvikum nytsöm og getur komið i veg fyrir þá upp- byggingu sem Jón beitir hér.) 7. Rf3-e6 8. g3 (A löngu skálinunni á biskupinn heima. Það hefur reynslan kennt Jóni.) 8. ... Bd6 9. Bg2-Dc7 10. 0-P-Rd7 11. c4-0-0-0 12. Rh4-Bg6 13. C5-Bc7 (13. -Rxc5 15. dxc5-Bxg3 kom tii greina. Hvitur ræðst nú með offorsi að kóngsstöðu svarts.) 14. b+f5 15. De2! (Svarta staðan fer langt i það að vera töpuð eftir þennan leik. Hvitur hótar 16. Bf4og við þvi er ekki margt að gera.) 15. ... Bxh4 (Skárra var 15. -Bf6.) 16. Bf4-e5 17. dxe5! (Svartur er glataöur og hefði i raun getaö gefið skákina. Hann þráast við i nokkra leiki i við- bót.) 17. ...-Bg5 21. b5-Dxc5 18. Bxg5-Hde8 22. Hfcl-Dd4 19. Bf+Rxe5 23. bxc6 20. Habl-De7 — Svartur gafst upp. Sævar Bjarnason hefur verið i góðu formi i vetur. Hann sigraði á Skákþingi Reykjavikur og stóð sig vel bæði á alþjóðlega mótinu og i landskeppni Islend- inga og Svia. Eftir 4 umferðir á skákþinginu haföi hann hlotið 3 vinninga og var með unna bið- skák gegn Benedikt Jónassyni. Sævar sigraði I fyrra i Askor- Hvi'tt: Sigurður Danielsson Svart: Sævar Bjarnason Sikiley jarvörn 1. e4-c5 2. Rf3-e6 3. d4-cxd4 4. Rxd4-Rf6 5. Rc 3-d6 6. Bg5-Rc6 7. Dd2-Be7 8. 0-0-0 -0-0 9. f4-h6 10. Bxf6-Bxf6 11. Rxc6-bxc6 12. Dxd6-Db6 13. e5-Hd8 14. Da3-De3+ 15. Kbl-Hxdl + 16. Rxdl-Dxa3 17. bxa3-Be7 18. a4-Hb8+ 19. Kcl-Ba3+ 20. Kd2-Hb4 21. g3-Hxa4 (Einnig mátti hér reyna 21. - g5.) 22. Bd3-Bb4+ 24. Re3-Bc3?? 23. Ke2-Hxa2 (Mikið meira þarf ekki til. 1 góðri stöðu, með peö yfir missir svartur flugið. Staða sem þessi verður aldrei unnin með neinu offorsi. Einfaldlega 24. -Kf8 ætti að gefa svörtum alla vinnings- möguleika. Nú fær Sigurður sitt tækifæri og hann lætur það ekki úr hendi sleppa.) 25. Hbl!-Hb2 26. Hdl-Kf8? (Best úr þvi sem komið var, var að leika 26. -Hb8 þó hvitur sé i fullu fjöri eftir 27. Bc4-Ba5 28. Hd6 o.s.frv.) 27. Bc4-Ke7 Hal-Bc5 28. Kd3-Bb4 30- Bb3! (Hrókurinn er lokaður inni. Hann virtist eiga nóg af reitum nokkrum leikjum áður.) 40. fxe5-Bg5 41. Rc5-Bc8 30. ...-Kd8 31. Rc4-Hxb3 + 32. cxb3-Kc7 33. Kc3-a6 34. b4-Be7 35. Hdl-Bd7 36. Rd 6-f6 37. Kc 4-g5 38. Rb7-gxf4 39. gxf4-fxe5 42. Hfl-Be7 43. Hf7+-Kd8 44. Re4-Bd7 45. Hh7-Bf8 46. Rf6-Bc8 47. Hh8-Ke7 48. Rh7 — Svartur gafst upp.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.