Þjóðviljinn - 08.04.1982, Síða 8

Þjóðviljinn - 08.04.1982, Síða 8
Gylmir 11.24 8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. april 1982 W GOÐAR WPSKRIFTIRí) Súkkulaðidrykkir Krem fyrir tertur og kökur ^MEÐ MÓNU TERTU HJÚP 1 I líter mjólk 100 ér- tertu-hjúpur, dökkur Hitað saman, gott að láta aðeins sjóða, einnig má drýgja mjólkina með vatni, salt eftir smekk. 2. I líter mjólk 150 gr. tertu-hjúpur, dökkur Hitað á sama hátt og no. 1, en þeyttur rjómi borinn með, eða látinn í hvérn bolla. Bræðið TERTU HJÚP við vægan hita og hrærið stöðugt í á meðan. (Ekki er nauðsyn- legt að nota vatnsbað). SÚKKULÍKI 500 GR. í. 100 gr. smjör 100 gr. tertu-hjúpur brætt og kælt. 4 eggjarauður hrærðar út í, ein í einú og 60 gr. flórsykur, hrært vel, má þeyta. 2. 100.gr tertu-hjúpur 2 eggjarauður 2 matsk. rjómi 2 matsk. fíórsykur Eggjarauður og flórsykur þeytt saman, bráðnum tertuhjúpi og rjóma bætt út í. Súkkulaðibráð. 100 gr. tertu-hjúpur. Brætt varlega, hrært stöðugt í, síðan er 1 matskeið af smjöri (mjúku) hrært saman við (má vera meira), látið volgt á kökuna. Skreytikrem. 100 gr. tertu-hjúpur. Brætt við vægan hita, síðan er 1/4 teskeið af vatni hrært vel saman við. Síðan er þetta látið í sprautu eða sprautupoka, og er þá tilbúið til skreyt- inga, látið ekki bíða. jtiótta SÆLGÆTISGERÐ STAKKAHRAUNI 1 HAFNARFIROI SÍMI 50300 - 50302 ÁBYRGOARTÉKKAR Á ÚTVEGSBANKANN ERU ÖRUGGUR GJALDMKMLL Útgeíandinn sýnir þér skilríki sem sannar heimild hans til útgdíu dbyrgðartékka. Á skírteininu stendur hve hdr tékkinn megi vera. Bankinn ábyrgist innlausnina. ÚTVEGSBANKINN Greinilega bankinn íyrir þig líka. FÍB stofnar ferða- skrifstofu Félag isl. bifreiðaeigenda, sem telur u.þ.b. 10 þúsund félaga, hef- ur stofnað ferðaskrifstofu, sem býður alhliða feröaþjónustu, en sér I lagi mun hún þó sinna fé- lagsmönnum FIB sem fá alveg sérstök vildarkjör á ferðum á vegum skrifstofunnar. Þau góðu kjör byggjast fyrst og fremst á þvi að FIB hefur fengið aðild að griöarlega viðtækri ferðaþjón- ustu samtaka bifreiðaeigenda i Evrópu, sem hafa náð einstak- lega góðum kjörum, hjá bilaleig- um, hótelum og eigendum sumar- húsa á Norðurlöndum og I V-Þýskalandi, og viöar. Arinbjörn Kolbeinsson formað- ur FIB sagði á blaðamannafundi þegar skýrt var frá stofnun ferða- skrifstofunnar, að engin ferða- skrifstofa hér á landi gæti keppt við ferðaskrifstofu FÍB hvað kjör snertir á verði bilaleigubila og sumarhúsa til félaga FIB. Nefndi hann sem dæmi að hægt væri að fá bilaleigubila i Lúxembúrg fyrir 1000 kr. á viku og km. gjald inni- falið. 1 Danmörku kostaði bill frá 1500 kr. i viku, sumarhús i viku með flugfari fram og til baka 3.776 kr. og viðbótarvika rúmar 500 kr. Þetta þýðir, að hjón gætu farið i 2ja vikna ferð og haft bila- leigubil allan tímann með km.gjaldi inniföldu fyrir um það bil 13.000 kr. Þá mun ferðaskrifstofa FIB einnig taka á móti og annast fyr- irgreiðslu útlendra ferðamanna, sem eru félagar eða koma á veg- um ferðaþjónustu erlendra bif- reiðaeigenda. Þá er hægt að fá hjá skrifstofunni allskonar ferða- handbækur og vegakort af Evr- ópu á vægu verði og ýmis erlend ferðarit ókeypis. Gjafirtil Borgar- leikhúss A 85 ára afmælishátið Leikfé- lags Reykjavikur þ. 11. janúar sl. bárust félaginu ýmsar góðar gjafir frá fjölmörgum leiklistar- unnendum ogvelunnurum félags- ins. Frú Guðný Helgadóttir ekkja Brynjólfs Jóhannessonar leikara færði að þessu tilefni húsbygging- arsjóði Leikfélagsins að gjöf 5 þúsund krónur til byggingar Borgarleikhúss i nýjum miðbæ við Kringlumýrarbraut. Að sama tilefni bárust húsbyggingarsjóðn- um að gjöf aðrar 5 þúsund krónur frá börnum þeirra hjóna: önnu Brynjólfsdóttur, Helgu Brynjólfs- dóttur, Kristjönu Brynjólfsdóttur og Birgi Brynjólfssyni. Húsbyggingarsjóður Leikfélags Reykjavikur var stofnaður fyrir tæpum 30 árum að tilhlutan Brynjólfs Jóhannessonar, sem þá var formaður Leikfélagsins. A liðnum árum hefur sjóðurinn ver- ið efldur með ýmsu móti, m.a. með fjaröflunarskemmtunum, sem listamenn Leikfélags Reykjavikur hafa staðið fyrir i Austurbæjarbiói um miðnætur- skeið að loknum venjulegum starfsdegi i Iðnó, svo og með gjöf- um og frjálsum framlögum þeirra, sem hafa látið sér annt um hag Leikfélagsins. Leikfélag Reykjavikur hefur lagt á það mikið kapp, að Borgar- leikhús Reykvikinga verði vigt þ. 18. ágúst 1986 á 200 ára afmæli Reykjavikurborgar. 1 baráttu sinni fyrir byggingu nýs leikhúss i Reykjavik hefur það jafnan verið félaginu styrkur að finna hlýhug og samkennd borgarbúa og ann- arra leikhúsgesta. Leikfélagið þakkar frú Guðnýju Helgadóttur og börnum hennar fyrir tryggð og velvild I garö félagsins.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.