Þjóðviljinn - 08.04.1982, Síða 26
26 SÍÐA — ÞJÓÐViLJlNN Fimmtudagtír 8. april'1982
íslenskt leikhús er mjög háþróað
segir Christo Kratchmarov frá Búlgaríu, sem er aö velja íslenska
leiksýningu á ,,Leikhús þjóöanna” í vor
KOSTABOD
Af sérstökum ástæðum getum við boðið fáeina
FORD ECONOLINE sendibíla af árgerð
1981 á sérstaklega góðu verði og greiðslukjörum.
Möguleikar eru einnig til að taka aðra bíla í
skiptum upp í hluta kaupverðs.
Hafið samband við sölumenn okkar strax, því að
svona tækifæri til að eignast nýjan
amerískan sendibíl bjóðast ekki á hverjum degi.
Sveinn Egi/sson hf.
Skeifan17. Sími 85100
//Það kom mér mjög á
óvart hvað íslenskt leikhús
er háþróað. Þetta er evr-
ópskt leikhús upp á það
besta um leið og það hefur
greinilega langa hefð og á
mikil ítök i þjóðinni. Leik-
hús á íslandi er meira en
list — það er vakning"/
sagði búlgarski leikstjór-
inn Christo Kratchmarov
frá Sofíu/ sem hér er
staddur til að velja
islenska sýningu til
sýningar á „Leikhúsi þjóð-
anna'/ sem haldið verður í
Búlgaríu í sumar.
„Leikhús þjóöanná'er haldið ár-
lega á vegum alþjóöasamtaka
leikhúsfólks í tengslum við
Unesco og er ein stærsta og virt-
asta leiklistarhátiö i heimi. Þar
eru sýndar þær leiksýningar sem
hæst bera i heiminum hverju
sinni, alls um 28—30 sýningar.
Christo er sem sagt hér á
Islandi i þeim erindum aö velja
islenska leiksýningu til sýningar
á hátiöinni i sumar, en einu sinni
áöur hefur islenskri leiksýningu
veriö boöiö aö sýna á „Leikhúsi
þjóðanna”. Þaö var Inuk sem fór
héöan og hlaut þar mikiö lof.
Christo er hér fyrst og fremst til
aö velja á milli tveggja sýninga,
„Ofvitans” hjá LR og „Stundar-
friös” hjá Þjóöleikhúsinu, en sú
sýning er ekki lengur á fjölunum,
en til á myndbandi.
„Þetta er ákaflega erfitt val og
ég er satt aö segja i miklum
vanda. Þaö fer einnig eftir að-
stæðum hvor sýningin kemst úr
landi. Ég hef lika séö fjölda
margar aðrar sýningar sem til
greina koma, þvi hér er óvana-
lega mikið af góöum sýningum,”
sagöi Cristo. „Þið eigið marga af-
bragös leikstjóra og leikritun er
greinilega mjög kraftmikil hér á
landi.”
Við báöum hann aö segja okkur
frá starfi hans i Búlgariu.
„Ég er leikhússtjóri viö leikhús
i Sofia, sem er rikisrekið eins og
öll okkar leikhús. Ég set upp á
hverju ári 2—3 sýningar og kenni
auk þess viö leiklistarháskólann,
sem menntar alla okkar leikhús-
starfsmenn, leikara, leikstjóra
o.s.frv. Auk þess er ég aöalritari
listamannasamtakanna og hef'
mikinn áhuga á að opna sam-
skipti við Bandalag isl. lista-
manna hér á Islandi.”
„Nú eru listamenn i A-Evrópu
sums staðar undir nokkurri
pressu frá yfirvöldum. Eru lista-
menn i Búlgariu frjálsir i störfum
sinum?
„Búlgaria stendur mjög
traustum fótum efnahagslega og
afskipti rikisvaldsins af opin-
berum stofnunum eru mjög tak-
mörkuö. Auövitaö verö ég sem
leikhússtjóri að hafa nokkra sam-
vinnu við yfirvöld, enda hafa þau
ráöiö mig og þau veita fé til starf-
seminnar. En þaö er engin póli-
tisk kreppa i Búlgariu og lista-
menn eru ekki undir eftirliti
kommúnistaflokksins, enda
mikiö af yngra fólki alls ekki i
honum.” sagöi Christo.
Hann kvaöst ennfremur hafa
framlengt dvöl sina hér á landi
um tvo daga til að komast yfir aö
sjá fleiri leiksýningar og væntan-
lega skýrist mjög fljótlega hvaöa
sýning fer héöan. Þess má geta að
hvorki Noregur eöa Danmörk
senda sýningu á „Leikhús þjóö-
anna” aö þessu sinni, en Finnar
Sviar og tslendingar verða full-
trúar Noröurlandaþjóðanna.
þs
SETUR ÞU
STEFNULJÓSIN
TlMANLEGA Á?
«IUÆ
FERÐAR
Útsölumarkaður
Skúmgölu 30
Gallabuxur Báskó'sbolir
Jogging-gallar Samfeslingar
OPIÐ:
Stórkostleg uneys„
verðlœkkun Vinnuskyrtur
laugardag 10. april kl. 9—12
VINNUFATABUÐIN
Laugavegi 76 sími 15425 • Hverfisgötu 26 sími 28550