Þjóðviljinn - 08.04.1982, Blaðsíða 27

Þjóðviljinn - 08.04.1982, Blaðsíða 27
Fimmtudagur 8. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 27 • Leiklist • myndlist • tónlist • kvikmyndir • samkomur ,,Hassið hennar mömmu” verður sýnt þriðjudag eftir páska hjá IR, en á 2. i páskum er „Jói” á fjöiun- um. Ekkert er leikið föstudaginn langa, en á skirdag er Salka Valka á dagskrá. — A myndinni er Kjart- an Ragnarsson i hlutverki sinu i „Hassinu”. Síðasta sýningin á Sögum úr Vínarskógi t kvöld eru allra siðustu for- vöð að sjá hina rómuðu sýningu Þjóðleikhússins á Sögum úr Vinarskógi. Hefst sýningin kl. 20. A skirdagskvöld veröur siö- asta tækifærið til að sjá rómaða sýningu Þjóðleikhússins á Sög- um úr Vinarskógi, frægasta leikriti Odöns von Horváth. Leikstjóri sýningarinnar er Haukur J. Gunnarsson, sem getið hefur sér afar gott orð sem leikstjóri á Noröurlöndunum og setti á sinum tima upp japönsku leiksýninguna KiMsiblóm á Norðurfjalli á Litla sviði bjóð- leikhússins. Leikmynd og bún- ingar eru eftir skoska leik- my ndahönnuðinn Alistair Powell, sem islenskum leikhús- gestum er að góðu kunnur fyrir fyrri verk sin við Þjóöleikhúsið. islensk þýðing leiksins er eftir Þorstein Þorsteinsson, en söng- ljóöin sem sungin eru viö lög Jo- hans Strauss hefur Böövar Guð- mundsson þýtt. „Karlinn í kassanum” Karlinn i kassanum, grallaraleikur Garðaleikhússins verður i Tónabæ á 2. I páskum. Hefst sýningin kl. 20.30 en miðasala opnar kl. 17 og miöapantanir eru i sima 35935. Alit fram aö sýningu má einnig panta miða i sima 46600. Litli leikklúbburinn á ísafirði setur upp: Úr alda- annál eftir Böðvar Guðmundsson Litli leikklúbburinn á tsafirði mun annan dag páska taka til frumsýningar leikrit Böðvars Guðmundssonar, Úr Aldaannál. Verk þetta skrifaði Böövar i vetur sérstaklega fyrir Litlæ leikklúbbinn. Eins og heiti verksins bendir til, sækir Böðvar efnið til ann- ála, þaö byggir á gamalli sögu sem gerðist i Múlaþingi upp úr móðuharðindunum 1784 til 1786, þegar allsleysi og hungur var vel þekkt fyrirbæri. Lýst er þversneiö af mannfélaginu og þeim aðstæðum sem fólk bjó við. barna er á ferðinni glæpa- mál og það er gefin innsýn i hvernig það kemur við lif fólks, ekki aðeins þeirra sem þátt áttu i brotinu. Þarna er einnig fjallað um það sem gerist þegar fólk hefur ekkert aö borða, hversu lágt mannskepnán getur lagst og hvað lagt er i sölurnar fyrir magafylli, eða jafnvel fyrir roð eða tóbak. Þarna er fjallað um heitar til- finningar vinnukonu og um- rennings, prests og sýslu- mannsfrúar, svo og kvensaman sýslumann. 1 verki þessu eru mjög spenn- andi kvenhlutverk og þau gefa mjög breiöa mynd af lifi kon- unnar, þó ekki sé farið aftur til móðuharðinda. Alls vinna 30 meðlimir Litla leikklúbbsins við uppsetningu verksins. Tðnlist er eftir Jónas Tómasson tónskáld, Hilde Helgason hefur annast radd- þjálfun leikhópsins en Jenni Guðmundsdóttir hefur unnið plakat. Leikstjóri er Kári Hall- dór. Sígaunabaróninn sýndur í Gamla bíói Sigaunabaróninn eftir Jóhann Strauss verður á fjölununi I Gamla biói á annan páskadag kl. 20.00. Nú hafa verið alls 37 sýningar á Sigaunabaróninum og er ekk- ert lát á aðsókn. Meö helstu hlutverk fara ölöf Kolbrún Harðardóttir, Garöar Cortes, Anna Júllana Sveins- dóttir og Halldór Vilhelmsson. Hljómsveitarstjóri sýningar- innar er Páll P. Pálsson. Aðgöngumiöasala er i Gamla biói, frá kl. 16.00 daglega. „Svalirnar” hætta Aðeins tvær sýningar eru eftir á leikritinu „Svalirnar” eftir Jean Genet, sem Nemendaleik- húsiö hefur sýnt að undanförnu i Lindarbæ. Sýningarnar verða á þriðjudags- og fimmtudags- kvöld eftir páska og hefjast kl. 20.30. Miöasala er opin á 2. i páskum frá kl. 17 -19 og sýning- ardaga frá kl. 17. Siminn er 21971.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.