Þjóðviljinn - 21.08.1982, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN. Helgin 21.-22. ágúsí 1982
MOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóöfrelsis
(itgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ölafsson.
rritstjórnargrein
Sjávarútvegurinn
• í atvinnuvegatillögum Alþýðubandalagsins er
m.a. gert ráð fyrir róttæku skipulagsátaki i sjávarút-
vegi. Lagt er til að stærð f iskiskipastólsins verði tak-
mörkuð og engin fiskiskip flutt inn í landið á næstu
einum til tveimur árum, en verkef num varðandi við-
hald flotans verði beint til innlendra skipasmíða-
stöðva.
• Alþýðubandlagið vill að verðlagskerfi sjávarút-
vegsins og lög um Fiskveiðasjóð verði endurskoðuð á
næstu þremur mánuðum og miðist endurskoðunin við
að kanna möguleika á arðbærara skipulagi á f járfest-
ingu, veiðum og vinnslu. Skipulag á löndun taki mið af
því að vinnslustöðvar taki ekki við meiri af la en þær
hafa bolmagn til að nýta með arðbærum hætti. Flokk-
urinn vill herða strax matsreglur til þess að tryggja
meiri gæði og bætta meðferð sjávarafla og setja
ströng viðurlög gegn brotum, jafnvel þannig að varði
sviptingu vinnslu- og veiðiréttinda ef út af ber. Á
næstuþremur mánuðum verði fimm milljónum króna
af gengismunarfé varið til f ræðsluherferðar um gæði k
og meðferð sjávarafla. Þáeru í tillögumAlþýðubanda-
lagsins ákvæði er snerta bætta rekstrarafkomu tog-
ara, úrbætur í málum loðnustaðanna, lækkun fjár-
magnskostnaðar fiskiskipa, og úreldingu fiskiskipa.
Landbúnaðurinn
• Alþýðubandalagið leggur til að hefðbundinni bú-
vöruframleiðslu verði sniðinn stakkur eftir innan-
landsneyslu um leið og þróaðar verða nýjar búgreinar
vegna innanlandsmarkaðar og arðbærs útflutnings.
AAótuð verði hin f yrsta áætlun um búrekstur á jörðum
í samræmi við landgæði og markaðsaðstöðu, og á
komandi hausti verði hafist handa um fækkun sauð-
fjár. Stefnt verði að því að draga úr rétti til útflutn-
ingsbóta i áföngum í samræmi við áætlun um fækkun
búf jár og verði útf lutningsbótaréttur af markaður eft-
ir afurðagreinum. Fjármunum sem að óbreyttu hefðu
fariðtil útf lutningsbóta verði að hluta varið til að auð-
velda aðlögun í landbúnaði. í tillögunum er og sagt að
við endurskipulagningu landbúnaðarframleiðslunnar
verði leitast við að verja kjör þeirra bænda sem við
þrengstan hag búa.
Frettastjóri:Þórunn Siguröardóttir.
llmsjónarmaöur sunnudagsblaös: Guöjón Friöriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson.
Blaöamenn: Auöur Styrkársdóttir, Helgi Ólafsson, Magnús H.
Glslason, ólafur Gislason, óskar Guömundsson, Sigurdór Sig-
urdórsson, Sveinn Kristinsson, Valþór Hlööversson.
lþróttafréttaritari: Viöir Sigurösson
Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guöjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Handrita- og prófarkalestur: Elias Mar.
Auglýsingar: Hildur Ragnars, Sigriöur H. Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: Guörún Guövarðardóttir, Jóhannes Haröarson.
Afgreiösla : Bára Siguröardóttir, Kristln Pétursdóttir.
Simavarsla: Sigriöur Kristjánsdóttir, Sæunn óladóttir.
Húsmóöir: Bergljót Guöjónsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmunds-
son.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns-
dóttir.
Útkeyrsla, afgreiösla og auglýsingar: j^J^múla 6, Reykjavik,
sim'i: 8 13 33
Prentun: Blaöaprent hf.
úr aimanakinu
Iðnaðurinn
• í samræmi við ályktun Alþingis og niðurstöðu
starfsskilyrðisnefndar ríkisstjórnarinnar gerir Al-
þýðubandalagið ákveðnar tillögur um jöfnun starfs-
skilyrða atvinnuveganna og ef lingu þess iðnaðar sem
á í samkeppni við innf lutning eða á erlendum mörkuð-
um. Þar er m.a. gert ráð fyrir að verðlagning á inn-
lendum iðnaðarvörum sem eiga í óheftri erlendri
samkeppni verði gefin frjáls, að kjör fjárfestingar-
lánasjóða atvinnuveganna verði gerð sambærileg og
undirbúin stofnun eins atvinnuvegasjóðs. Þá er
ákvæði um tímabundna innborgunarskyldu á vissar
greinar innflutnings, niðurfellingu launaskatts af iðn-
aði og f iskvinnslu, og 3% vörugjald til mótvægis á inn-
fluttarog innlendar samkeppnisvörur, sem m.a. renni
til þróunarstarfsemi og skipulagsbreytinga í atvinnu-
vegunum.
Innflutningsverslunin
• Fyrir utan tímabundna innborgunarskyldu á viss-
ar greinar innf lutnings til þess að draga úr gjaldeyris-
eyðslu leggur Alþýðubandalagið til að ríkisstjórnin
takmarki sérstaklega og stöðvi um sinn erlend vöru-
kaupalán, sem mjög hafa tíðkast. Þá er gert ráð fyrir
að innf lutningsleyf i á stórum en einföldum vöruf lokk-
um verði boðin út og tímabundið innflutningsleyfi
veitt lægstbjóðanda. Einnig er tillaga fram lögð um
lækkun verslunarálagningar í kjölfar gengislækkun-
ar.
— ekh
Æ kúdd gubb
Sviöiö er Laugardalshöll
kvöld eitt fyrir skömmu. Hljóm-
sveit Babatundra eöa hvað hún
nú heitir lék af öllum Hfs og
sálar kröftum og stemmningin
var mikil. A efnisskránni var
Raggae-tónlist og hún ekki af
lakara taginu. Það leiö ekki á
löngu frá þvi ég kom inn fyrir
dyrnar þangaö til ég var farinn
að dilla mér i takt, og skemmta
mér hiö besta. Raggae-tónlistin
er mjög seyöandi og gripur
mann fljótt, ég get imyndaö mér
að þaö sé svipaö aö vera á kjöt-
kveöjuhátiö i Brasiliu samban
tekur mann taki sem ekki er
auðvelt aö losna úr. Svo er alla-
vega aö sjá af þeim myndum
sem ég hef séö þaðan.
Hvaö um það, inni i Laugar-
dalshöll var þaö heillin, og er
mér var litið i kringum mig sá
ég allsstaðar fólk sem var eins
og ég i fjötrum raggae tónfalls-
ins og ýmistdillaöi sér i takt eða
hreinlega dansaöi af öllum lifs
og sálar kröftum. Töluveröur
mannfjöldi var á þessum hljóm-
leikum og yfir salinn aö lita var
hann ein iðandi kös fólks sem
dansaöi af mikilli innlifun,
annaö hvort vib einhvern eöa þá
bara viö sjálft sig. Ég minnist
þess aö ágætur popp-skribent
þessa blaðs kallaöi þetta „mik-
inn samfiling” ef ég man rétt.
Á sviðinu stóðu goðin sjálf.
Babatundra og félagar eða hvaö
þeir nú heita annars. Ljósin i
öllum regnbogans litum blikk-
uðu i takt viö hina seyðandi tóna
og söngur Babatundra sjálfs var
punkturinn yfir i-iö til að gera
þetta allt saman eins gott og
hugsast gat.
Húöaþenjari hljómsveitar-
innar vakti fljótlega athygli
mina. Fyrst er það að trommu-
leikur hefur alla tiö heillaö mig,
og þessi var ekki af verri end-
anum. Svo tók ég eftir þvi aö
maðurinn var augsýnilega eldri
en maður á að venjast meö
menn i hans starfsgrein, aö
undanteknum jassinum aö
sjálfsögöu. Og mér varð hugsað
til hinna fleygu oröa: allt er sjö-
tugum fært, og þarna var
sönnun þess lifandi komin.
Maðurinn var a.m.k. nógu gam-
all til aö vera afi minn af útlitinu
aö dæma. Kominn meö myndar-
legan skalla en leyft þvi sem
eftir var af hárinu aö vaxa
hindrunarlaust og bundið þaö i
tagl að aftan. Hann var klæddur
i T-bol og gallabuxur og haföi
strigaskó á fótum og spilaöi meö
miklum tilburöum og sannri
innlifun.
Þá datt mér i hug hversu
fáránlegt allt tal er um kyn-
slóðabil og hina „óbrúanlegu
gjá” og allt þaö. Ég hef nefni-
lega orðið var viö það aö þegar
dóttir min sem er 14 ára er að
tala um hversu gamall og
lummó maður er orðinn, þá
gleymist þaö oft aö uppáhalds
poppgoöin hennar, t.d. Paul Mc-
Cartney, Mick Jagger ofl. eru
Gunnar
Elísson
skrifar
amk. 10 árum eldri en kallinn.
Og þarna voru unglingarnir að
dansa af mikilli innlifun eftir
takti þessa manns sem var ef til
vill jafnaldri langafa þeirra
Og það var svo sannarlega
kátt I höllinni þetta kvöld.
Ég hef oft þurft að fara á
svona samkomur áður en aldrei
hefur önnur eins stemmning
rikt þar.
Þá tilkynnti söngvarinn að
næsta lag væri tileinkaö og
samið af BOB MARLEY hinum
eina sanna og af mörgum kall-
aður Messias raggae-tónlistar-
innar.
Viö mikinn fögnuð áheyrenda
hófst siðan lagið: Coming In
From The Cold. Ég haföi er
þarna var komiö sögu lokið
myndatökum og hafði komið
mér notalega fyrir úti I sal til að
njóta eins og eins lags áöur en
ég færi heim. Og sem ég sat
þarna fór ég aö láta hugann
reika. Mér varö hugsað til Bob
Marley og þess sem hann stóð
fyrir.
Hversu oft haföi hann ekki
staðið uppi á sviði baðaður ljós-
um með fólkið dansandi fyrir
framan sig. Gleöi og fjör út á viö
en hiö innra mikil vanlíðan og
kvöl meðan hann var að tærast
upp af mariuhana-reykingum,
sem aö lokum drógu hann til
dauða. Hann boöaði mariuhana
sem nokkurskonar trúarbrögö,
þar sem efnið var dýrkað sem
tæki Guðs til hjálpar mann-
inum. Tæki til að komast að og
upplifa tilfinningar og njóta
lifsins á allt annan hátt en unnt
var án þess. Ef til vill var það i
þessum skilningi sem hann
„kom inn úr kuldanum”. Ég fór
að velta þvi fyrir mér hvort
þannig væri ástatt þarna uppi á
sviðinu núna. Hvort öll sú kæti
sem þar virtist rikja væri til
þess gerð að breiða yfir van-
liöan þessara manna sem ef til
vill eru að tærast upp likamlega
og andlega af sömu völdum og
Marley forðum. Var þaö ein-
göngu tóbaksreykur sem um-
lukti sviðið?
Ef ég leit i kringum mig þarna
úti i salnum blasti við allt önnur
mynd en sú sem gaf að lita ofan
frá sviöinu. Rétt hjá mér lá ung-
ur maöur endilangur á gólfinu.
Hann lá á grúfu og i hring um
höfuö hans var stór ælupollur.
Skammt frá honum var annar
piltur I dái, og enn lengra annar
Ég stóð á fætur og gekk nar
sviöinu. Og viti menn hér og þa,
lágu unglingar á gólfinu i vímu-
dái, og aðrir unglingar dansandi
i kringum þá. Uppi við sviðið
gaf að lita ungan mann sem
varð að láta undan miklum
þrýstingi og ældi myndarlega
fyrir fætur tónlistarmannanna.
Enginn virtist taka eftir þessu,
þetta virtist vera eðlilegt. Ég
gekk til sætis mins. Ungi maö-
urinn sem ég fyrst haföi tekið
eftir var aö risa á fætur. Hann
stóö þarna 1 ælunni og hristi sig,
en hvarf siðan á braut.
Rétt þarna hjá voru tvær ung-
ar stúlkur sem dönsuöu af mik-
illi innlifun. önnur þeirra vakti
sérstaka athygli min. Hún dans-
aði berfætt, og hreyfði sig eins
og Isadora Duncan forðum i sin-
um fræga slæöu-dansi, berfætt i
döggvotu grasinu. Og þessi
unga stúlka færði sig um set og
dansaði i ælupolli unga manns-
ins án þess að taka eftir þvi.
Þarna sveif hún um i sinum eig-
in heimi. Aftur og aftur dansaði
hún i ælunni og mér datt i hug
kvikmynd eftir Fellini eða ein-
hver álika. Var þetta hægt? Út
um allt var ælt og spúö, „lik”
hinna „dauðu” voru eins og hrá-
viði út um allt og dansandi fólk
allt um kring. Mér varð illt. Enn
ein fleyg setning kom i huga
mér er ég kom mér burt frá allri
þessari ælu: Æ kúdd gubb!
—gel