Þjóðviljinn - 21.08.1982, Side 15

Þjóðviljinn - 21.08.1982, Side 15
Helgifl 21.-22. ágúst 1982 ÞJ6ÐV1LJINN — StÐA 15 alvörugagnrýnendur í ensku press- unni eru mér nokkuð sammála. Forsaga njósnamáls Glenda Jackson, Georgina Hale og Gary Oldman i hlutverkum sinum i „Summit Conference . ^r0 i|9 W Tilboð óskast i eftirtaldar bifreiðar, er verða til sýnis þriðjudaginn 24. ágúst 1982 kl. 13—16 á birgðastöð Rarik, Egils- stöðum. Subaru4WD station..............árg. 1978 Ford Bronco.........................árg. 1974 Ford Bronco.........................árg. 1974 ARO 4WD torfærubifreið..............árg. 1980 Land Rover diesel...................árg. 1976 Land Rover diesel...................árg. 1973 UAZ 452 torfærubifreið..............árg. 1979 UAZ 452 torfærubifreið..............árg. 1979 UAZ 452 torfærubifreið..............árg. 1968 Allra besti leikurinn var þó í „Another Country“ hjá kornung- um leikara, Rubert Everett. Leikritið er mjög áhugavert, fjallar um stráka í heimavistarskóla (Eat- on), og byggir á ævi tveggja frægra njósnara, Guy Burgess og David Hedley. Rubert Everett leikur Burgess, - leikur hans er ótrúlega blæbrigðaríkur og laus við þann tæknilega kulda sem maður sér stundum hjá annars ágætum bresk- um leikurum. Það er oft eins og að tæknin taki af þeim öll völd, þeir fylgja ekki eftir í leik þeim hraða sem þeir hafa á textanum og fyrir vikið verður túlkunin dauð og ó- spennandi. Rubert þessi er hins vegar svo dynamiskur, að maður gat átt von á hverju sem var og hann hélt manni í spennu frá upp- hafi til enda. Hlutverkið er líka mjög spennandi, glæsilegur og gáf- aður strákur sem verður hommi og síðar njósnari Rússa. Besti vinur hans Hedley, eldheitur sósíalisti verður seinna einnig hommi og tekur þátt í njósnunum. Verkið hefur vakið sérstaka athygli vegna nýrra uppljóstrana um kynhegðun háttvirta persóna í þjónustu drottningar og vakið miklar um- ræður um strákaskólana, þar sem ungum strákum er hrúgað saman, 'cúguðum af gömlum siðaboðskap og úreltum aga. Leikmyndin í þessu verki var hvergi samboðin leiknum og textanum, úrelt natúr- alísk og ljót. Salonika Síðasta nýja leikritið sem ég sá var eftir kornungan höfund, Lou- ise Page, eina af fáum konum sem skrifa leikrit í Bretlandi. Louise hefur verið talsvert hér á landi og tekið miklu ástfóstri við ísland. Lou- ise hefur nýlega fengið verðlaun fyrir leikrit sitt „Salonika" og þykir mjög efnilegur höfundur. Verkið er spennandi og óvenjulegt. Það fjallar um rosknar mæðgur, önnur er 83 ára og hin 63. Það er erfitt að lýsa þessu verki. Það er mjög óvenjulegt og aðeins það að setja á svið ástarsenur á milli tvítugs manns og áttræðrar leikkonu kallar á sterk viðbrögð hjá áhorfendum. Þarna sjáum við lífsviðhorf kyn- slóðanna í nýju ljósi og komumst ■ að raun um að frelsi og fordómar fara ekki eftir aldri. Sýningin var mjög vel leikin og leikmyndin á- hrifamikil og nýstárleg. Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að viðstöddum bjóðendum. Réttur áskilinn til að haína tilboðum, sem ekki teljast viðun- andi. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Rafdeild JL-hússins auglýsir: Nýkomin þýsk útiljós, eldhúsljós og Ijósakrónur. Ótrúlsga hagstanðir grslðsluskilmálar á flastum vöruflokkum. Allt nlður í 20% út- borgun og lánstimi allt •ð • mánuðum. Ath.: Deildin er á 2. hæð í J.L.-húsinu. Oplð f öllum dolldum: mánud. miðvikud. 9—18, fimmtud. 9—20, föstud. 9—22 RÍS KÚLUR FRÁ 29 KR. JIS Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Rafdeild Sími 10600 PLAY0F THEYEAR EUZABETH QUINN ActressoftheYear inaNewPlay ‘I was enthralled by this unusual love story' 0 Telegisph OALBERYTHEATRE ST MARTIN'S LANE LONOON WC2 CAST LIST lF Og loks Shakespeare í Barbican Að lokum tókst mér að ná í miða á hið nýja leikhús RSC, Barbican, sem er í hinni nýju listamiðstöð í tengslum við viðskiptastofnanir og ýmsar aðrar stofnanir í Barbican Centre. Það mætti skrifa langt mál um þetta glæsilega nýja hverfi, þar sem viðskiptastofnanir og lista- stofnanir reyna að lífga starfsemi hverrar annarrar. Mörgum finnst að þarna hafi verið sóað fé að ó- þörfu, en sú staðreynd að það er meira fé eytt í herhljómsveitir en leikhús í Bretlandi sýnir að þessir peningar eru í raun smáaurar. Þarna sá ég nýja Shakespeare sýningu, mjög fallega og vel unna eins og þær gerast bestar hjá RSC. Leikritið „All is well that ends well“ var miklu skemmtilegra en mig minnti eftir að hafa lesið það fyrir áratug. Sýningin var gullfal- leg, en ekki beinlínis nýstárleg. Tíminn var færður fram undir alda- mót án þess að maður skilji hvers vegna. Að öðru leyti var verkið leikið eins og það kemur af skepn- unni, án nokkurra breytinga eða nýsköpunar. Peggy Ashcroft í aðalhlutverkinu var mjög góð og leikstjórn Trevors Nunn smekkleg og vönduð. Að lokum langar mig að benda þeim sem ætla að ferðast til Bret- lands á að vikupakkarnir svoköll- uðu, sem mikið eru auglýstir, reyndust mun betri en ég þorði að vona. Ég fékk miða á hótelpláss og lenti ekki í neinum vandræðum, fékk inni á lúxushóteli í London fyrir litla peninga. Það er full á- stæða til að benda fólki á að nýta sér þennan ágæta ferðamöguleika sem Flugleiðir bjóða upp á. - ÞS

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.