Þjóðviljinn - 21.08.1982, Page 21
Helgin 21.-22. ágúst 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 21
Haldiöykkur fast, já verulega
fast. Fyrirhugaö er að halda
meiri háttar rokkhátið um
næstu helgi á Melavellinum.
Hátiöin mun hefjast kl. 14 á
laugardaginn og standa til kl.
23.30
Alls munu um 20 hljómsveitir
koma fram og hefur aldrei fyrr
né siðar jafn mörgum hljóm-
sveitum verið safnað saman á
einn stað. Hér er um aldeilis
frábært framtak að ræða og
óvist að annað slikt liti dagsins
ljós á komandi árum. Hver
veit? Þetta gæti jafnvel verið
upphafið að einhverslags rokk-
hátið sem yrði haldin segjum
annað hvert ár.
Flestar okkar bestu hljóm-
sveitir munu koma fram auk
fjölda óþekktra hljómsveita
sem litið hefur heyrst i.
Af stærri hljómsveitum sem
koma fram og óþarfi er aö
kynna eru: BARA-Flokkurinn,
Grýlurnar, Fræbbblarnir,
Purrkur Pillnikk, Þrumuvagn-
inn, Vonbrigði, Tappi Tikar-
rass, Q-4-U og Þeyr.
Af öðrum hljómsveitum má
nefna Pungó og Daisy sem er
reykvisk hljómsveit, KOS sem
er ársgömul hljómsveit og hefur
alið mestan sinn aldur i Sviþjóð.
Ekki, sem er alveg splunku-ný
hljómsveit. Bandóðir, sem
leikur einhverslags nýbylgju
funk.
Hljómsveitina skipa þeir Her-
bert Guðmundsson gamal-
reyndur poppari, þá Bodies
menn, Rúnar Guðmundsson,
Mike Pollock og Asgeir tromm-
ara úr Purrkinum. En þeir þrir
siðast nefndu eru þessa dagana
að vinna að sólóplötu Herberts.
DeThorvaldsensTrio Band sem
ku vist vera einhver leyni
hljómsveit. Stockfield Big Nose
Band og Reflex. Lóla, en það er
stjörnuhljómsveit úr Atlavik,
eins mun önnur hljómsveit sem
gerði það gott i Atlavik nú um
Verslunarmannahelgina mæta
og er það hljómsveitin Kvöld-
verður á Nesi frá Neskaupstað.
Sonus Futura og ef til vill 1—3
hljómsveitir frá Isafirði. Er
gjarnan nefnt nafn kvenna-
hljómsveitarinnar Sokka-
bandið.
Nokkrar óvæntar uppákomur
verða og eins plötukynnar á óút-
komnu islensku efni og nýlegu
erlendu efni.
Heljarmikið svið verður reist
yfir hljómsveitirnar og eins
verður hljóðklefi hannaður en
hljóðmaður á þessari hátið
verður Gunnar Smári.
Miöinn kostar 200 kr. og er
innifalinn i honum happdrættis-
miði, einnig ætlar hljóðfæra-
verslun Þorsteins Danielssonar
að verðlauna einn gest með veg-
legum hljómflutningstækjum.
Það sem hleypir miðaverðinu
upp er það að völlurinn tekur
23% af verði hvers aðgöngu-
miða. Þessi prósentutala er
alveg fáránleg, 23% fyrir Mela-
völlinn! Hvenær heimta þeir
gjald fyrir aö horfa á Esjuna?
Ef allt tekst vel og upptökur
verða góðar er ætlunin að gefa
efni tónleikanna út á plötu og er
talaö um tvöfalt albúm, mætti
þess vegna vera þrefalt, ekki
vantar hráefnið.
Ef veðurguðirnir verða
óþægir er vissara að mæta vel
klæddur til leiks. Taka fram
vetrarfötin og rigningar-gallann
en við skulum vona að veður-
guðirnir verði hátiöinni hlið-
hollir og láti okkur njóta sólar
og bliðu þennan laugardag.
Fyrir þá sem vilja vera séðir er
ágætt að nesta sig að heiman en
annars verður veitingasala á
svæðinu fyrir þá sem það vilja.
Nú situr enginn eftir heima og
lýsir frati á veðurguöana ef þvi
er að skipta og leggur sitt að
mörkum til að þessi hátið megi
fara sem allra best fram og
verða okkur öllum sem ánægju-
legust.
Dagskrá hátiðarinnar verður
birt um næstu helgi en ekki var
búið að ganga frá henni þegar
þetta er skrifað.
Skrýtið og
skondið
„Nýtt er mér þetta”, kvað
karl einn, ,,að mér sé borin
óráðvendni til handanna. Það
var, ef ég man rétt, einu sinni i
fyrra, tvisvar árið áður, þrisvar
hitt árið, einu sinni enn, og svo
núna; — og nýtt er mér þetta”.
Kerling lá veik og sendi eftir
presti að þjónusta sig. Prestur
kom og er þá kerling i rúmi
sinu, vel málhress og eigi þungt
haldin. Vill hún þó fyrir hvern
mun fá þjónustuna, og fór það
fram. Prestur tekur að skrifta
henni með áhrifamiklu orðfæri,
svo sem honum var lagið, og
setur hann henni ljóslega fyrir
sjónir, að með þvi einu móti
megi hún vænta náðarinnar, að
hún iðrist synda sinna og biðji
fyrirgefningar á þeim o.s.frv.
Og er kerling heyrir slikt, þykir
henni það hörð kenning, byltir
sér til i rúminu og segir: ,,Ég
sný mér þá uppi horn, ef þú ferð
að jaga mig”.
Kerling nokkur, er mest ævi
sinnar hafði dvalist i sveitum,
fluttist út á Snæfellsnes. Hún
undi þar illa hag sinum og sakn-
aði margs úr sveitinni. Ein-
hverju sinni um kvöldtima
kemur hún út og sér tunglið.
Það var þá fárra nótta og var
mánabert. Verður henni þá að
orðum: „Allt er eins hérna
undir Jökli, tunglið sem annað.
Það er þó munur á að sjá sveita-
tunglið, hvað það er feitt og
bústið, eöa aumingjann þann
arna, sem er skinhoraður. Það
er lika náttúrlegt, þvi að það er
munur á að lifa á mjólkinni og
kjötinu i sveitinni eða á sjóslöp-
unum hérna”.
Hjá Ólafi prófasti Sigurðssyni
i Flatey var eitt sinn kerling, er
Helga hét. Hún var hölt af gigt i
lærinu og átti erfitt með hreyf-
ingar. Einu sinni var hún að
fara ofan stigann af baðstofu-
loftinu, og tók hana sárt i
mjöðmina, svo að hún æjaði hátt
ogmælti: „Æ, æ! Enginn kennir
i brjósti um mig. En það grunar
mig þó, að eitthvað mundi heyr-
ast i hátigninni sjálfri, væri
henni eins illt I mjöðminni og
mér”.
Karl einn missti konu sina, er
Guðrún hét. Hafði lengi fallið
stirt á með þeim. En er hann
kom heim frá jarðarför hennar
og háttaöi i rúmi sinu, mælti
hann: „Nú vantar mig hana
Gunnu mína til þess aö jagast
við”.
Kerling nokkur bar sig upp
fyrir presti sinum eftir embætti
um það, að hann hefði gleymt að
útdeila sér brauðinu. Prestur
mundi að sönnu ekki til, að svo
hefði verið. En til þess að friða
kerlingu, er stóð á þvi fastara en
fótunum, að honum hefði hlaup-
ist yfir sig, kvaðst hann skyldi
bæta henni það, og skyldi hún
koma inn til sin. Fór hún þá inn
með presti o'g gaf prestur henni
væna svartabrauðsköku, og
spurði hvort hún væri nú ekki
vel i haldin og ánægö. Kerling
svaraði: „Ó, jú! blessaðir verið
þér! Langt fram yfir það. Eg
vildi að þér gleymduð þvi allt-
af”.
Síríus
sækir á brattann!