Þjóðviljinn - 21.08.1982, Qupperneq 25

Þjóðviljinn - 21.08.1982, Qupperneq 25
Helgin 21.-22. ágúst 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 25 um helgina Tólf skáld lesa úr verkum sínum á Kjarvalstöðum t tilefni af útkomu timarits um islenskar bókmenntir á ensku, sem þau Siguröur A. Magnússon og Kristjana Gunnarsdóttir gefa út verður efnt til upplesturs á Kjarvalsstöðum i dag, laugardag kl 15.00. Þar verður lesið upp úr timaritinu og auk þess koma 12 af skáldunum sem þar eiga efni fram og lesa úr nýlegum verkum sinum á islensku. Skáldin sem koma fram eru Böðvar Guðmundsson, Einar Bragi, Guðbergur Bergsson, Jó- hann Hjálmarsson, Jón úr Vör, Nina Björk Arnadóttir, Pétur Gunnarsson, Sigurður Pálsson, Steinunn Sigurðardóttir, Thor Vilhjálmsson, Vésteinn Lúðviks- son, Þórarinn Eldjárn og Þor- steinn frá Hamri. —GFr Kristján Valsson opnar sýningu i Djúpinu i dag kl. 14.00. Hann sýnir 30 klippimyndir og er þetta fyrsta einkasýning hans. Sýningin verður opin til inánaöamóta. Dagana 19.-31. ágúst mun Hay Cartwright vera með málverka- sýningu i Eden i Hveragerði. Ray er 34 ára breti fæddur og uppalinn i London en flutti til lslands fyrir tveimur árum og hefur tsland haft mikil áhrif á hann sem sýnir sig i verkum hans. Tók hann þátt i samsýningu i Eden i fyrra, en þetta er fyrsta einkasýning hans, og mun hann sýna 12 oliumálverk og 18 „scrap- erboard”. Roy við eitt verka sinna. bridgc Hart í ári hjá bridgefólki? Olympíumótið í Frakklandi Eitthvað virðist hafa harðnað á dalnum hjá bridgefólki að undan- förnu. Nokkur pör sem ætluðu sér á mótið, hafa nú ákveðið að hætta við, af ýmsu orsökum. Jón Bald., og Valur Sig., ku ekki ætla, hver sem ástæðan er og er þar skarð fyrir skildi. Jakob R. Möller og Guðmundur Hermannss., fara ekki sem par, Sigurður Sverriss., og Þorgeir Eyjólfsson eru hættir saman og fara því ekki á mótið (alla vega ekki Sigurður), Guðmundur Páll er kominn í vinnu (?) og kemst af þeim sökum ekki frá í október á móti Þórarni Sigþórssyni, sem að sjálfsögðuervonsvikinn mjög, haf- andi spilað á Kanarí ’74 í þessu móti. Vonandi bætir Þórarinn úr þessu og fær sér annan félaga í þetta mót (kannski Jakob?). Fleiri pör mætti telja upp, en nú ættu hin- ir sem voru ekki ákveðnir, að drífa í hlutunum og hafa samband við B.Í., og kanna málin, Víst er, að farið verður. Sumarbridge Nú fer að síga á seinni hlutann í Sumarbridge að þessu sinni. Þátt- takan hefur verið mjög jöfn og góð allt sumarið, þetta 44-50 pör á kvöldi. Sl. fimmtudag var spilað í 3 ri- ðlum á Heklu, alls 43 pör. Úrslit urðu þessi: Tekst Sigtryggi Sigurðssyni að sigra i Sumarbridge? a) Kristín Þórðardóttir - Jón Páls- son 260 Steinunn Snorradóttir - Vig- dís Guðjónsdóttir 244 Bergsveinn Gíslason - Óskar Karlsson 242 Sigfús Þórðarson - Kristmann Guðmundsson 232 b) Ragna Ólafsdóttir - Ólafur Valgeirsson 172 Guðmundur Pétursson - Est- her Jakobsdóttir 171 Jakob R. Möller - Jón Bald- ursson 171 Jón Hilmarsson - Þorfinnur Karlsson 171 c) Jón Þorvarðarson - Ásgeir P. Ásbjörnsson 180 Ómar Jónsson - Guðni Sigur- bjarnason 177 Sigurður Sigurjónsson Högni Torfason 172 Friðrik Guðmundsson - Hreinn Hreinsson 170 Meðal í A:120, en 156 í B og C-riðlum Og staða efstu manna er þá þessi: Sigtryggur Sigurðsson 14 stig Jón Þorvarðarson 13 stig Ásgeir P. Ásbjörnsson 11 stig Einar Sigurðsson 10 stig. Alls hafa nú 123 spilarar hlotið stig í Sumarbridge, sem er mjög há tala miðað við þátttökuhlutfall keppenda, því margir hafa aldrei hlotið stig. Umsjón Ólafur Lárusson Að líkindum verður síðasta spilakvöld í Sumarbridge fimmtu- daginn 9. sept. nk., sem þvðir að stigakeppni lýkur fimmtudaginn 2. sept. (þetta eru óstaðfestar dag- setningar með fyrirvara). Að venju verður spilað fimmtu- daginn kemur og hefst spila- mennska uppúr sjö. í síðasta lagi kl. 19.30. Spilað er á Heklu. Bikarkeppnin Lítið hefur heyrst af Bikar- keppninni að undanförnu. Senni- lega verða því spilaðir í dag eða á morgun þeir leikir sem enn eru óút- kljáðir. Fyrirliðar eru minntir á að hafa samband við þáttinn og til- kynnaúrslitsemfyrst. Þaðeröllum í hag að birta fréttir af „leynimóti sém þessu. Omar Stefánsson sýnir í Gallerý Austurstrœti 8 Omar Stefánsson hefur opnað sýningu i Gallerý Austurstræti 8 og sýnir hann þar málverk. Gallerý Austurstræti 8 er eins konar drive-in gall- crý, þar er opið allan sólarhringinn og gestir mega koma með kaffi meö sér ef þeir vilja. Sýningin verður opin til 27. ágúst. Ný sýning í Nýlistasafninu 1 gær opnuðu þeir Þór Vigfússon og Birgir Andrésson, sýningu i Ný- listasafninu, Vatnsstig 3b. Sýningin er opin daglega frá kL 18 til 22. En henni lýkur á sunnudagskvöldið 29. ágúst. Báðir eru þeir framaðir i listinni, bæði hér heima og erlendis. Hafa tekið þátt i samsýningum og haldið einkasýningar hérna heima og i út- löndum. Frá æfingu fyrir tónleikana. Zukofsky-tónleikar í dag ' Enski málarinn Roy Cartwright sýnir í Eden Eins og flestum er kunnugt, stendur nú yfir sjötta Zukofsky-- námskciðið á vegum Tónlistar- skólans i Reykjavik. Laugardaginn 21. ágúst verða aðrir hljómsveitartónleikar nám- skeiðsins haldnir. Þá verður flutt, i fyrsta skipti hér á landi, sinfónia nr. 5 eftir Gustav Mahler. Um 100 manns munu taka þátt i þessum tónleikum, og tekur verkið 75 minútur i flutningi. Flestir þátttakendur á nám- skeiðinu eru islenskir, en auk þess hafa um 20 manns komið er- lendis frá. Þáttakendur eru á aldrinum frá 12 ára. Þessi óvenjustóra hljómsveit hefur æft sex tima á dag i Haga- skóla til undirbúnings þessum tónleikum, og mun árangurinn koma i ljós laugardaginn 21. ágúst kl. 14.00 i Háskólabiói. Að- gangur er ókeypis og öllum heim- ill. Athygli skal vakin á þvi, að enn eru fyrirhugaðir tyennir kamm- ertónleikar i næstu viku og loka- hljómsveitartónleikar munu verða laugardaginn 28. ágúst kl. 14.00 i Háskólabiói þar sem m.a. verður flutt, i fyrsta skipti hér á landi, Vorblót eftir Igor Stravin- sky.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.