Þjóðviljinn - 30.09.1982, Síða 1
DJOÐVIUINN
Gunnar Guttorms
son scgir frá
Kanadaferð í
sumar, þarsem
hann hitti m.a.
Vcstur-íslendinga
að máli
Sjá 9.
september 1982
Fimmtudagur
222. tölublað
47. árgangur
Garðveislan
í kvöld
Kvöldmáltíðin í „Garðveislu“
Guðmundar Steinssonar sem
frumsýnd verður í Þjóð-
leikhúsinu í kvöld. Á mynd-
inni eru frá vinstri Helga Jóns-
dóttir, Sigmundur Örn Arn-
grímsson, Erlingur Gíslason,
Tinna Gunnlaugsdóttir, Sig-
urður Sigurjónsson, Steinunn
Jóhanncsdóttir og Sigurður
Skúlason. Sjá viðtal við
ieikstjórann Maríu Krist-
jánsdóttur.
Mikik óánægjaer
hjáfóstrumog
félagsráðgjöfum
með nýgerðan
sérkjarasamning
Starfsmannafclags
Rey kj avíkurborgar
Hvarer
jafnréttisumræðan
á vegi stödd? Unnur
G. Kristjánsdóttir
skrifar um
jafnréttismálá
sjónarhorni í dag.
Framsóknarmenn
á Vestfjörðum
Fresta ber
byggingu
JJugstöðvar
Kjördæmisþing Framsókn-
armanna á Vestfjörðuni sam-
þykkti fyrir nokkrum vikum
ályktun, þarsem kveðið er á
um að fresta skuli byggingu
flugstöðvar vegna efnahags-
legra áfalla.
Hvorki Tíminn né önnur
málgöng framsóknarmanna
hafa séð ástæðu til að halda
þessari ályktun á lofti. For-
maður flokksins, Steingrímur
Hermannsson, staðfesti þessa
ályktun í viðtali við blaðið í
gær og lýst sig andsnúinn er-
lendum lántökum einsog inál-
um væri nú háttað. Steingrím-
ur lýsti sig einnig fylgjandi því
að flugstöðin yrði minni þegar
þar að kæmi.
Sjá 3.
Dagsbrún í samúðar-
vlnnustöðvun 7. okt.
I dag förum við af stað með ncytendasíðu. Þar er m.a fjallað um sláturog
mismunandi flokka á dilkakjöti
Moksfldveiði
iyrir austan
Vantar víða vinnuafl:
Mjög góð síldveiði hefur verið
„Engin leigu-
skip lestuð eftir
þann dag” segir
Guðmundur J.
Guðmundsson
formaður
Dagsbrúnar
Verkamannafélagið Dags-
brún ákvað á fundi sínum í gær
að grípa til samúðaraðgerða
með Sjómannafélagi Reykja-
víkur vegna deilu þess við út-
gerðir kaupskipaflotans. Munu
Dagsbrúnarmenn ekki afgreiða
leiguskip frá og með 7. október,
hafi samningar þá ekki náðst.
Guðmundur J. Guðntundsson
formaður Dagsbrúnar sagði í við-
tali við Þjóðviljann í gær að þessi
vinnustöðvun gilti um öll leiguskip,
hvort sem þau væru í leigu um
lengri tíma hjá skipafélögunum
eða þau sem kynnu að vera tekin á
leigu nú eftir að verkfall hófst.
Verkfall undirmanna nær ekki til
þessara leiguskipa þar sem þau
sigla flest undir erlendum fánum og
með erlendum áhöfnum.
„Milli Dagsbrúnar og Sjómann-
afélags Reykjavíkur er meira en 50
ára gamall samningur um gagn-
kvæma aðstoð í kjaradeilum og við
viljum leggja okkar lóð á vogaskál-
arnar til hjálpar þessunr félögum
okkar“, sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson. „Hins vegar er um það
samkomulag að ef loka þarf frysti-
húsum í stórum stíl vegna þessa
verkfalls, verður reynt aö sjá til
þess að almennt verkafólk verði
ekki fyrir skakkaföllum vegna
þessara aðgerða."
Er við því að búast að frystihúsin
fari að loka?
„Pað verður auðvitað tíminn
að leiða í ljós en það er segin saga
að ef gripið er til einhverra aðgerða
um tíma af þessu tagi, er eins og
allar frystigeymslur fiskvinnslustö-
ðvanna fyllist skyndilega. Það er jú
talsvert um uppsafnaðan karfa en
ég á ekki von á því að frystihúsin
loki í stórum stíl alveg á næstu dög-
um,“ sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson að lokunr. -v.
síðasta sólarhringinn á innfjörðum
Austurlands og lleiri þúsund tunn-
um af síld var landað á helstu sölt-
unarstöðvunum á Austfjörðum í
gær. |
A Vopnafirði er þegar búið aði
salta í á þriðja þúsund tunnur og í
gær lönduðu þar 12 síldveiðibátarj
samtals um 2000 tunnum. Síldin
veiddist á Bakkaflóa og fyrir mynni
Vopnafjarðar, en gangan virðist
þokast suður á bóginn. Saltað er á
þrernur stöðum á Vopnafirði og
þar eru allir í vinnu sem vettlingi
geta valdið. Mikill skortur er á
vinnuafli, en nú stendur yrir slát-
urtíð, auk þess sem fiskvinnsla er í
frystihúsinu, en þar hófu 6 danskar
stúlkur vinnu í gær.
Börkur NK landaði í gær tæpum
1500 tunnum af ágætri síld á Nes-
kaupstað og hefur þá veitt tæplega
2800 tunnur af síld á tæpri viku, en
það er rúmlega helmingur veiði-
kvótans senr Börkur hefur á vert-
íðinni.
Á Reyðarfiröi er búið að salta
um 1300 tunnur en saltað er á
tveimur plássum og það þriðja að
konrast í gágnið.
í gær var landað um 700 tunnum
af síld á Reyðarfirði og mikil vinna
framundan við söltun.
Fyrsta síldin á þessari vertíð
barst til Fáskrúðsfjarðar í gær og
von var á meiri síld þangað í nótt en
byrjað verður að salta hjá Pólarsíld
í dag. Tæplega 100 manns munu
vinna við síldarsöltun á Fáskrúðs-
firði.
Þá barst einnig fyrsta síldin til
Hafnar í Hornafirði í gær og styttist
í að síldarsöltun komist þar í fullan
gang.
-lg-
Deilunni á
Tungnaársvæöi
að ljúka?
Vinna
hófst
aftur
í gœr
Allir starfsmenn sem verið
hafa í verkfalli á
virkjanasvæðinu við Tungnaá
munu safnast saman tii fundar
í Sultartanga í dag kl. 9.30 og
verður kynnt miðlunartillaga
sem Guðlaugur Þorvaldsson
ríkissáttasemjari lagði fram í
dcilunni í fyrrinótt. Munu
starfsmenn síðan greiða at-
kvæði um tillöguna og liggja
úrslit þeirrar atkvæðagreiðslu
fyrir eftir hádcgi í dag.
Samkvæmt upplýsingum
Þjóðviljans verður um
allverulega breytingu að ræða
á kauptöxtum og sagði einn
samninganefndarmanna í
samtali í gær að hér væri um
verulega leiðréttingu að ræða.
Gildistími samkomúlagsins er
allt frá 1. júlí sl. og fá starfs-
menn 4% launahækkun frá
þeim degi, en þeir sem starfa
áfram á virkjanasvæðinu í vet-
ur fá 6% hækkun.
Verkamannasambandið
aflýsti strax í gær verkfalli á
virkjanasvæðinu við Tungnaá
fyrir sína félaga og sama gerðu
málmiðnaðarmenn fyrir
austan. I lófu því margir vinnu
við Sultartangastíflu og
Hrauneyjarfoss í gær en ef
miðlunartillaga Guðlaugs
Þorvaldssonar verður sam-
þykkt, mun vinna aftur hefj-
ast með eðlilegum hætti við
Tungnaá -v.