Þjóðviljinn - 30.09.1982, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 30.09.1982, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 30. september 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Meirihluti bæjarstjómar í Hafnarfirði: Vill selja Lýsi og mjöl Neitaði eigin fyrirtæki um skuldaábyrgð en, lögðu í staðinn til að það yrði selt Meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, sjálfstæðis- menn og óháðir borgarar, hafa samþykkt gegn at- kvæðum minnihluta bæjarstjórnar að heimila sölu á hlutabréfum bæjarsjóðs í fískimjölsverksmiðjunni Lýsi og Mjöl, en bæjarsjóður og Bæjarútgerð Hafnarfjarðar eiga meirihluta í verksmiðjunni. Þessi tillaga meirihlutans kom fram á fundi bæjarstjórnar á dög- ununt þegar afgreiða átti untsókn stjórnar Lýsis og Mjöls um ábyrgð bæjarsjóðs fyrir 1. miljón kr. láni til að tryggja áframhaldandi rekst- ur fyrirtækisins. Verksmiðjan hef- ur verið lokuð frá því urn miðjan júní í sumar og öllum fiskúrgangi frá fiskverkunarstöðvum í Hafnar- firði yerið ekið í fiskimjölsverk- smiðjur í Reykjavík. ..Eg hef ekki hugmynd um hvað gerist í þessum ntálum. Meirihluti bæjarstjórnar virðist í það minnsta hafa takntarkaðan áhuga á því að verksmiðjan verði rekin. Við óskuðum eftir lánsábyrgð í surnar og neikvætt svar kom eftir tvo mán- uði auk samþykktar unt að selja hlut bæjarins í fyrirtækinu. Hér er búið að leggja tæpar 5 miljónir í endurbætur og ntengunarvarnir á síðustu árum. svo maður á ert'itt nteð að skilja þessar ákvarðanir". sagði Árni Gíslason franrkvæmda- stjóri fyrirtækisins í samtali í gær. Rannveig Traustadóttir bæjar- fulltrúi Alþýðubandalagsins sagði undarlegt, að í fyrsta sinn sent fyrirtækið sækti um aðstoð hjá bæjaryfirvöldum sem ættu sjált' meirihluta þess. væri tækifærið notað til að losa sig við fyrirtækið. Þegar litið væri til þess hver stað- an væri hjá fiskimjölsverksmiðj- unum í landinu um þessar mundir, væri ráðslagið enn undarlegra því beinlínis væri verið að leggja til að gefa fyrirtækið, en ekki selja það. Þar fyrir utan væri brýn nauðsyn á því að koma fyrirtækinu í gang á ný og skylda bæjarstjórnar að leggja sitt af mörkunt til að halda uppi atvinnu í bæjarfélaginu. -Ig. Framsóknarmenn á Vestfjörðum á móti flugstöðvarævintýrinu: Vilja fresta byggfngu efnahagslegra áfalla Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins telur líka svo kostnaðarfreka framkvæmd ekki timabæra -Ég er samþykkur ályktun kjördæmisþingsins á Vestfjörðum um að fresta byggingu tlugstöðvar vegna efnahagslegra áfalla, sagði Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarllokksins er Þjóðviljinn leitaði álits hans á nýjustu uppákomum í flugtstöðvarmálinu. Kjördæmisþing fram- sóknarmanna í Vestljarðarkjördæmi samþykkti á fundi sínum fyrir nokk- rum vikum að fresta skyldi byggingu flugtstöðvar vegna efnahagslegra áfalla. - „Eins og ástandið er núna sé ég ekki hvernig við eigum að geta komið meiri erlendum lántökum fyrir. Eg er þeirrar skoðunar að æskilegt væri að hafa stöðina minni og að Bandaríkjamenn tækju meiri þátt í kostnaðinum. Og að þessu yrði frestað þartil efnahagsaðstæð- ur eru betri. Ég efast um að það sé tímabært að ráðast í svo kostnað- arfreka framkvæmd einsog efna- hagsástandið er nú" Steingrímur lagðiáherslu á að hann vildi að það yrði byggð flugstöð og að Banda- ríkjamenn borguðu hana alveg. Sagðist hann telja það þátt í þeim kostnaði sent fylgir því aö hafa her- inn hér. Taldi hann að hér væri um vegna Hjalti Ragnar Efnahagsmálin: Hjalti og Ragnar í kvöld Hjalti Kristgeirsson og Ragnar Árnason eru frummælendur á fyrsta fundi í fundaröð ABR um efnahagsmál. Fundurinn er í Sókn- arsalnum klukkan hálf níu í kvöld og ber yfirskriftina: Efnahags- útreikningur og ákvörðunartaka í efnahagsmálum. að ræða aðskilnað hers og þjóðlífs. sem væri mikilvægt að kæmi til fra- mkvæmda. Steingrímur sagði að frant- lenging á 20miljón dollara fjáveit- oigu frá Bandaríkjunum hefði enga þýðingu, hvorki af né á. fyrir hann. Hann væri bundinn af sant- þykkt ríkisstjórnarinnar um aó ekki væri ráðist í þessa framkvæmd neina allir stjórnar-flokkarnir væri þessu sammála. Þjv. hafa borist fregnir af því að ályktun framsóknarmanna á Vest- fjörðum uin að fresta skyldi bygg- ingu flugstöövar vegna efnahags- legra áfalla hefði ekki fengist birt í Tímanum af tillitssemi við utanrík- isráðherra. -óg 0 Steingrímur Hermannsson l'or- maður Framsóknarflokksins. Höl'- um ekki ráð á meiri erlendum lán- tökum. Elsa Þórisdóttir sminkar tvo aðallcikarana í „Garðveislu“, þau Krist- björgu Kjeld og Erling Gíslason, fyrir lokaæfinguna í gær. Ljósm.-eik- Sérkjarasamningur Starfsmannaf. Rvíkur: Bvrjunarlaun ióstra lækka Óánægja hjá félagsráðgjöfum A opnum fulltrúaráðslundi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar í fyrrakvöld urðu miklar umræður um nýgerða kjarasamninga félagsins við Reykjavíkurborg og sýndist sitt hverjum. Að sögn nokkurra fulltrúa á fundinum voru flestir hópar nokkuð ónægðir ineð sinn hlut, einkum þar sem í samningnunt var lögð áhersla á að bæta lægstu launin. Hins vegar lýstu aðrir hópar yllr megnri óónægju og virðast líta á að í atkvæða- greiðslu í félaginu munu margar fóstrur og félagsráðgjafar snúast gegn un á samningi Starfsmannafélags Sið- ferðileg aðvörun segir María Kristjáns- dóttir leikstjóri um „Garðveislu”, sem verður frumsýnd í kvöld „Fyrir okkur sem vorum að vinna að þessu verki var þetta fjölmiðla-uppþot mjög undarlcgt og koin okkur á óvart. Og fyrir verkið og höfundinn vægast sagt óviðeigandi,“ sagði María Krist- jánsdóttir, Ieikstjóri nýjasta lcikrits Guðmundar Steinssonar, „Garðveislu“, sem frumsýnt verð- ur í Þjóðlcikhúsinu í kvöld. Eins og vart hefur farið framhjá ntönnum urðu mikil blaðaskrif urn það í vor. að tveir leikarar , sem upphaflega áttu að vera í sýning- unni, voru ekki í henni þegar til kom! Slíkt gerist að vísu rnjög oft að aðrir leikarar leiki hlutverkin en þeir sem upphaflega voru ætlaðir í þau. kentur þar ýmislegt til, og verður slíkt sjaldnast tilefni blaða- skrifa. „Það er kannski rétt að gera þess að umræddir tveir leikarar áttu alls ekki að vera naktir í sýningunni, eins og ýmsir fjölmiðlar héldu fram. Það er nú einu sinni svo að' hluti verskins gerist í Paradís hjá þeim Adam og Evu og það er erfitt að hafa þau kappklædd eins og allir hljóta að skilja. Hins vegar var á santa tíma verið að æfa leikrit hjá Leikfélaginu þar sem tveir aðal- leikararnir eru naktir í sitt hvoru atriðinu, en á það hefur enginn minnst.". „En heldurðu ekki að þið fáið meiri athygli og aðsókn fyrir bragðið?“ „Það getur verið, þótt ég kysi fremur að fólk kæmi vegna verks- ins og boðskapar þess, en ein- hverra æsifrétta sem eru í engu samræmi við það sem höfundur og aðstandendur verksins eru að reyna að koma á framfæri. Þessi skrif hafa yfirskyggt gersamlega það sem höfundurinn vill segja með verkinu og þau skapa rangar væntingar hjá fólki." „Og hvað vill höfundurinn segja?“ „Við geturn sagt að þetta verk sé siðferðileg aðvörun til nútíma- mannsins - hvernig hann lifir og hvert líferni hans getur leitt hann." „Að lokum María, - nú er þetta þín fyrsta uppsctning á stóra svið- inu. Iivcrnig fannst þér að vinna fyrir þetta svið?“ „Mér fannst það betra ef eitthvað er en að vinna á litlu sviði - og stundum var sviðið alls ekki nógu stórt. En þaö mætti sannar- lega búa betur að Þjóðleikhúsi ís- lendinga hvað snertir tækniútbún- að og tækjakost." Frunisýningin hefst kl. 20.00 í kvöld og síðan eru sýningar dag- lega fram á sunnudag. Leikmynd og búninga í sýningunni gerir Þór- unn Sigríður Þorgrímsdóttir, lýs- ingu Ásmundur Karlsson og leikhljóð Gunnar Reynir Sveinsson. þs samkomulaginu. Byrjunarlaun fóstra hjá Reykja- vfkurborg hafa verið 12. launa- tlokkur, 2. þrep og var starfsnám þeirra metið til launa sem jafngilti 1. þrepi launaflokksins. Við ný- gerðan kjarasamning, sem greidd verða atkvæði um síðar í vikunni, missa þær þessi réttindi og byrja í 1. þrepi 12. launaflokksins. Þetta þýðir í raun að byrjunarlaunin lækka unt það bil unt 700 krónur á mánuði og það jafngildir eins mán- aðar launum á ári. Samninganeínd Starfsmannafélagsins fékk hins vegar fram bókun sem íulltrúar launamálanefndar borgarinnar undirrituðu og þar er þvi lýst yfir að hún muni láta kanna launagreiðsl- ur til fóstra í 12. launaflokki hjá ríkinu og ef í Ijós komi að þær fái greidd laun samkvæmt 2. þrepi þess flokks, muni Reykjavíkur- borg tryggja sfnum fóstrum sam- bærileg kjör. Það er því undir túlk- rikisins frá 3. september si. komið hvort byrjunarlaun fóstra hjá borg- inni Iækki eða hvort þeirn verði bættur skaðinn. Launaskrið fóstra samkvæmt ný- gerðum samningi eykst hins vegar stórlega frá því sem áður var og hækka þær eins og aðrir borgar- starfsmenn um einn flokk cftir 3 ár, annan tlokk eftir 6 ár og loks um þann þriðja eftir 9 ára starf. Félagsráðgjafar fóru frani á að byrjunarlaun þeirra hækkuðu úr 16. launaflokki í 21. launaflokk, en þaö fékkst ekki fram. Félagsráð- gjafar hafa haft óbreytta samninga síðustu 8 árin. eða frá 1974 og eru orðnir langþreyttir á því óbreytta ástandi. Þess var og krafist að deildarfulltrúar hækkuðu úr 17. flokki í 24. flokk og yfirfélagsráð- gjafar úr 18. í 27. launaflokk. Ekk- ert af þessu fékkst fram nú. -v. Við þökkum af alhug ríkisstjórn ís- lands, stofnunum, félögum og öllum þeim fjölmörgu einstaklingum nœr og fjœr sem heiðrað hafa minninguKrist- jáns Eldjárns og sýnt okkur hlýhug og vinarþel við fráfall hans. Halldóra Eldjárn og fjölskylda.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.