Þjóðviljinn - 30.09.1982, Blaðsíða 2
2 SIÐA,— ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 30. september 1982
Japan:
r
Utsvar á
róbóta?
Vélmenni (róbótar) hafa á síö-
ustu árum tekið yfir sífeilt fleiri
störf í japönskum iönaöi og víst
er að hlutdeild vélmenna á vinnu-
markaöi í Japan mun stóraukast á
næstu árurn.
Formaður Komeito flokksins á
japanska þinginu hefur nýlega
lagt fram frumvarp sem gerir ráö
fyrir því að iöjuhöldum veröi hér
eftirgert aö greiða fulla skatta og
gjöld til hins opinbera af þessum
gervimönnum.
„Fyrst venjulegir verkamenn
þurfa aö borga skatta til ríkisins,
hvers vegna skyldu þá þessir ólíf-
rænu verkamenn ekki gera þaö
líka", sagöi þingflokksmaöurinn
þegar hann lagði frarn frumvarp
sitt.
Geislavirk
úrgangsefni:
Holtendingar
hætta að
losa í hafið
Á þessu sumri hafa bæöi Bret-
ar og l lollendingar kastað miklu
af geislavirkum úrgangsefnum
frá kjarnorkuverum í Atlantshaf-
iö um 400 mílur n-v af ströndum
Spánar. Pessari losun úrgangs-
efna liefur víöa verið mótmælt.
og Itafa náttúruverndarsamtökin
Greenpeace veriö þar frentst i
flokki. Liösmenn samtakanna
hafa hvaö eftir annaö sett sig i
lífshættu þar sem þeir hafa
freisttiö þess að tefja eða hindra
losunina nteð friðsamlegum
hætti.
Oessi mótmæli hafa nú borið
þann árangur. aö hollenska
stjórnin hefur ákveöiö að hætta
losun geislavirkra úrgangsefna í
hafið, og verður þeim framvegis
komið fyrir á landi. 1 lefur stjórn-
in áform um sérstakt birgða-
geymslusvæöi fyrír geislavirk úr-
gangsefni í norðanverðu landinu.
Búist er viö aö nágrannar þessa
svæöis eigi eftir að mótmæla því
kröftugiega að þeim verði gert að
taka við úrgangnum.
Forðist að ganga út á
akbraut milli kyrrstæðra
bifreiða. Ef þið neyðist til
þess — sýnið þá sér-
staka varúð. Veljið ör-
uggari leiðina þótt hún
sé lengri.
■úsiiitturfatf kj’ít ssmUiuAfí4*
ÍCHiltmiH
Hvtrurxiopes ivrgatus
i/ ts trrtftrsts/fast&Htirt
itAt&f&eA u>.
jtA-tT mv.sA
H»:í tftort* Jedtti**
ÍM eÍM< f 'AÍÍtv ít.4t
fra&re. Aít * trkiMÁtt’St
iiáil ey Um uXíSSU-
ÍMtSt+t&Í.
pHHAAKHWrf
Aqttambtius hSrsutus
Sefgengill-lifir við ár og vötn-með röndóttan feld oghvassar tennur. Dougal Dixon meö eitt af framtíðardýrum sínum.
Vatnanaðra - 5 cm löng með loðfeld sem heldur henni á floti - lifir á
skordýrum.
Dýraríki framtíðarinnar
Stökkskratti - loðið og hvasstennt eyðimerkurdýr
Þegar maðurinn er orðinn útdauður sem tegund á jörðinni getur
náttúran loksins haldiö áfram að þróast óhindrað, segir breski dýra-
fræðingurinn Dougal Dixon, sem hefur sent frá sér bók, sem hann
kallar „Dýrafræði framtíðarinnar”, en þarsetur hann fram hugmyndir
sínar um það hvernig dýrategundirnar muni halda áfrant að þróast á
næstu ármiljónum, og á bókin að lýsadýraríkinu 50 miljónum ára eftir
að homo sapiens dó út.
Dixon byggir hugmyndir sínar
á fræðilegum möguleikum á þró-
un og þeirri túlkun sinni, á þróun-
arkenningu Darwins, „að þróun
sé ferli er leiði til hins betra”. Er
Dixon var að því spurður, hvers
vegna ekki væri í dýrasafni hans
nein sú vera er heföi til að bera
sjáanlega sjálfsvitund svaraði
hann: „Ég geri ekki ráð fyrir þvf
að náttúran endurtaki þau mistök
í annað sinn.” Dixon hefur af
sumum gagnrýnendum verið
gagnrýndur fyrir mannfjand-
samleg viðhorf í bók sinni. Flér
fylgja nokkrar myndir úr dýraríki
framíðarinnar.
ikr txnviiYf
jii+rfé ?&&&«:? fu.-jiTtÍtAeJuu
eút rú/ftoóti.Aí
lk />t,-/e4<.ttto<tito‘ r/fáutau<
itt/'touúi Attsti «***; ■
rCísUáJtM.'t*** <fí.tVUtoíÍ
xtAt<> •.<• ibrpltM t*ykáiá •
■ iOtUrAuwt At ■
fatdti svA iwm** mMr ftr
Ranasvín - líkist blendingi af fíl og Okapi-svíni
SEVESO
6 árum síðar
Eitt mesta mengunarslys í sögu Evröpu gerðist í ítalska bænum
Seveso fyrir 6 árum: við sprengingu í svissneskri cfnaverksmiðju
lagði ský af eiturefninu dioxin yfir bæinn með þeim aflciðingum
að þúsundir húsdýra dóu, tugir ófrískra kvenna misstu fóstur
og 700 íbúar bæjarins voru fluttir
Nú eítir 6 ár er hreinsun enn
ekki lokið í Seveso. en margt er
þó að færast í eðlilegt horf í
bænum.
Yfirvöld segja, að alvarlegasta
afleiðingin hafi verið nokkur
hundruð tilfelli af húðsjúkdómn-
um chloracne, en læknar hafa
einnig bent á að fæðingar van-
skapaðra barna hafa fertúgfald-
ast á milli 1975 og 1980. Þá hafa
læknar bent á að dauðsföll af
völdum brjóstkrabba urðu helm-
ingi fleiri í Seveso árið 1979 en
annars staðar á Ítalíu og dauðs-
föllum sem rekja mátti til hvít-
blæðis fjölgaði um 71% frá 1975-
79.
Flestir íbúar bæjarins telja að
verstu afleiðingar slyssins séu’
þegar komnar fram, og banni við
ræktun matjurta hefur nú víðast
hvar verið aflétt.
Flinir svissnesku eigendur
verksmiðjunnar rufu í fyrsta
skipti í sumar girðinguna, sem
sett var umhverfis verksmiðjuna,
og hefur á undanförnum mánuð-
um verið unnið að því að rífa
verksmiðjuna niður, og á að
brenna hana í sérstaklega
steyptum og niðurgröfnum
steinþróm.
Hreinsun á jarðvegi meðfram
þjóðveginum frá Seveso til Meda
er en ekki lokið, og hefur hann
verið lokaður síðan sprengingin
varð vegna eitrunar. Búist er við
að hreinsuninni ljúki í desember
þannig að hægt verði að opna
veginn, en það verk hefur nú
staðið í 2 ár, og hafa verkamenn-
irnir unnið í loftþéttum vinnuföt-
um, 4 klst. á dag í öryggisskyni.
Þótt bjartsýni ríki nú meðal
íbúa Seveso, þá hafa vísinda-
menn bent á að langvarandi
verkanir af eiturefninu dioxin séu
langt í frá fullkannaðar. Sem
kunnugt er var eiturefni þetta
mikið notað af Bandaríkjaher í
Börn frá Seveso - haldin húðsjúk-
dómnum chlorance - fórnarlömb
eiturefnisins dioxins.
stríðinu í Víetnam. og eru eitur-
verkanirnar enn að koma fram
þar og í Bandaríkjununt á fórnar-
lömbum þessa stórhættulega
efnis.