Þjóðviljinn - 30.09.1982, Page 16
DMVIUINN
Fimmtudagur 30. septembcr 1982
Aöa' tmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Uta.i pess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins í þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt ab ná i af greiöslu blaösins i sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöid. Aða&sími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími aigreiðslu 81663
Á þcssum hluta Freyjugötu, milli Mímisvegar og Njarðargötu, stendur til að gera leik- eða hlaðgötu. Ljósm. -eik-.
Samþykkt hcfur veriö í borgarráði aö loka Freyjugötu fyrir
gegnumakstri á milli Mímisvegar og Njaröargötu. Hefur Borgar-
skipulagi verið falið aö gera tillögu að útfærslu sanrþykktarinnar.
Það var í byrjun júní að íbúar húsanna nr. 28-40 við Freyjugötu
skrifuðu borgaryfirvöldum og óskuðu eftir þessum takmörkunum
á umferð um hana. Umferðarnefnd og skipulagsnefnd hafa sam-
þykkt erindið og í borgarráði fékk það 4 atkvæði en Albert Guð-
mundsson sat hjá. Verkefni Borgarskipulags er að gera grein fyrir
hönnun götunnar sem e.k. hlaðgötu eða leikgötu og beina umferð-
inni á aðrar brautir. -AI
Brutust Inn í um 100 bíla
22 ára gamall maður situr inni vegna málsins
22 ára gamall maður situr nú inni vegna aðildar
sinnar að innbrotum í bíla í Reykjavík, Kópavogi
Garðabæ og Hafnarfirði. Forsaga málsins er sú að að-
fararnótt 16. september var maðurinn handtekinn við
iðju sína ásamt félaga sínum 18 ára gömlum. Voru þeir
staðnir að verki við Flúðasel í Breiðholtinu. Þegar farið
var að kanna málið kom í Ijós að það var mun umfangs-
meira en haldið var í fyrstu og munu þeir tvímenningar
hafa átt hlutdeild í innbrotum í um 100 bíla.
Samkæmt upplýsingum sem
Þjóðviljinn aflaði sér hjá Gísla
Guðmundssyni hjá Rannsóknar-
lögreglu ríkisins mun þeir kumpán-
ar og félagar þeirra aðallega hafa
sóst eftir hljómflutningstækjum þó
í fórunt þeirra hafi einnig fundist 5
talstöðvar og annað það sem verð-
mætt var í bílunum.
Gísli sagði að við innbrotin í bíl-
ana hefðu verið notaðar margvís-
legar aðferðir, lásar hefðu verið
boraðir í gegn og rúður brotnar. I
sumum tilvikum hefðu bílar verið
skildir eftir ólæstir. Gísli sagði að
allmargir hefðu verið yfirheyrðir
vegna þessa'máls, þar af sumir sent
komið hafa við sögu Rannsóknar-
lögreglunnar áður. Hann sagði að
málið væri enn í rannsókn og t.d.
væri ekki fullkannað hversu mikl-
um hluta þýfisins hefði verið komið
í verð.
Gísli sagði að eigendur hljóm-
flutningstækjanna gætu flestir
hverjir vænst þess að fá þau aftur í
hendur. Gæsluvarðhald mannsins
sem situr inni vegna málsins rennur
út á nrorgun. Það hefur verið frarn-
lengt einu sinni. -hól.
Þing breska Verkamannaflokksins:
Burt með handarískar
herstöðvar
Einhliða kjamorkuafvopnun
A þingi Breska verkamannaflokksins í Blackpool í
gær var samþykkt að stefna flokksins í kjarnorkuvíg-
búnaðarmálum fyrir næstu kosningar byggði á einhliða
afvopnun. Þingið samþykkti einnig að næstu stjórn
Verkamannaflokksins bæri að loka öllum bandarískum
herstöðvum á Bretlandi og fjarlægja þær bandarísku
stýriflaugar, sem stjórn íhaldsflokksins hefur samþykkt
að settar verði upp á næsta ári.
Þá lagðist þingið eindregið gegn
þeirri ákvörðun Thatchers, að
koma upp Trident-varnarkerfi í
stað Polaris-kafbátanna.
Þrátt fyrir aðvaranir flokksleið-
toganna var tillaga um þjóðnýtingu
hergagnaiðnaðarins undir eftirliti
verkalýðsfélaganna samþykkt með
naumum meirihluta. Tillaga um að
flokkurinn tæki úrsögn úr NATO á
stefnuskrá sína var hins vegarfelld.
ólg.
0
Kortið sýnir bandarískar lierstöðv-
ar í Bretlandi.
Ráðstefna Kvenna-
framboðsins:
Engin
ákvörðun
tekin um
framboð
tll þlngs
Engin afstaða var tekin til
væntanlegs þingframboðs á
ráðstefnu Kvennaframboðsins
um sl. helgi þarsem hugmyndir
um þingframboð voru ræddar.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarfulltrúi Kvennafram-
boðsins sagði í viðtali við Þjv.
að þeirri umræðu yrði haldið
áfram og afstaða tekin að vel
athuguðu máli.
Á helgarráðstefnunni var
reynslan af starfinu rædd og reifuð
og fyrirhugað vetrarstarf Kvenna-
framboðsins. Ákvarðanirum starf-
ið verða teknar á félagsfundU
laugardaginn 9. október. Á vegum
Kvennaframboðsins er að koma út
blaðið Vera, sem er fyrirhugað að
komi út mánaðarlega.
Áskrlfenda-
getraun
I næsta sunnudagsblaði hefst ný
áskrifendagetraun nteð spurning-
um sem tengdar verða fréttum
blaðsins vikum á undan. Getraunin
verður um hverja helgi og vinning-
ur októbermánaðar er ferð með
Arnarflugi til Amsterdam. Þjóð-
viljinn minnir lesendur á að fylgjast
vel með fréttum vikunnar.
öll vinnsla
á karfa
stöðvuö
16. október
Stjórn Sölumiðstöðvar hráð-
frystihúsanna ákvað í gær að
stöðva alla frystingu á karfa-
flökuin frá og með 16. októbcr
næstkomandi. Stafar þetta af
sölutregðu á karfamörkuðum,
en lítið miðar í samningum við
Sovctmenn um kaup á karfa á
næsta ári.
Frystigeymslur margra hrað-
frystihúsa þola ekki öllu meiri
framleiðslu og vegna stöðvunar
á útskipun vegna verkfalls
undirmanna á kaupskipum,
hefur karfi hlaðist upp þannig
að til vandræða horfir. S.H. ák-
vað einnig á fundi sínum í gær
að stöðva sendingar umbúða
utanum karfaflök til frystihús-
anna strax 1 gær.