Þjóðviljinn - 26.11.1982, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 26. nóvember 1982
síðan
Visindi
r
á Islandi
Fjár-
festing
verð-
bólgu
Þróað var handhægt reiknilík-
an til mats á fjárfestingu þar sem
m.a. tekið er tillit til lána vegna
fjárfestingar, verðbólgu og
skatta. Til grundvallar var lagður
fjárstreymisútreikningur og lögð
áhersla á að fá fram sjóðstöðu
vegna fjárfestingar ár frá ári og fá
þannig yfirlit yfir hvernig fjár-
magn skilar sér aftur. Ennfremur
fæst yfirlit yfir afkastavexti
heildarfjármagns, eiginfjár-
magns fyrir og eftir skatta.
Gætum
tungunnar
Sagt var: Liðin skoruðu sitthvort
markið.
Rétt væri: Liðin skoruðu sitt
markið hvort.
Leiðréttum börn sem flaska á
þessu!
Speki
dagsins
Það er ekki hægt að borða, nema
maður hafi eitthvað að éta.
Gamalt mismæli
611 hreindýr
felld í sumar
Þá hafa allir nema veiðiþjóf-
arnir skilað inn veiðiskýrslum til
menntamálaráðuneytisins um
hreindýraveiðar á liðnu sumri.
Heimilt var að fella alls 864
hreindýr á Austurlandi, en sam-
kvæmt skýrslum hreindýraeftir-
litsmanna voru aðeins 611 dýr
felld.
Flest hreindýr voru felld í Jök-
uldalshreppi, 76, sem ereinu dýri
fleira en kvótinn leyfði. Hins veg-
ar var ekkert hreindýr fellt í Eg-
ilsstaðahreppi samkvæmt skýrsl-
um, en þar mátti fella 20 dýr, og
eins var ekkert dýr fellt í Skeggja-
staðahreppi, þar mátti fella 4; í
Stöðvarhreppi, en þar mátti fella
13; og ekkert hreindýr var fellt í
Hafnarhreppi, en þar mátti fella
6 dýr.
Borgfirðingar skutu næstflest
hreindýr á sumrinu eða 56, og
Norðfirðingar og Fljótsdalsbúar
felldu 55 dýr hvorir um sig.
Þessi hreindýr sluppu, því þau
voru á svonefndu Sædýrasafni í
Hafnarfirði síðast þegar við
vissum.
...ég er klár...
Að loknum sjónvarps-
-viðræðuþættinum með Kjartani
Jóhannssyni formanni Alþýðu-
flokksins var þetta ort:
Ég er
kaldur, ég er knár,
ég er
krata eina von.
Ég er
klókur, ég er klár,
ég er
Kjartan Jóhannsson.
Stjörnu-
speki
skiptir
engu
Frönsk rannsókn á stjörnu-
speki leiðir til þeirrar niðurstöðu
að ekki séu nein tengsl á milli
persónugerðar manna og þess í
hvaða stjörnumerki þeir fæðast.
Stjórnandi rannsóknarinnar,
Michel Cauguelin, segir að niður-
stöðurnar séu óyggjandi.
Rannsóknarhópurinn tók til
skoðunar æviferil 2000 manna og
kvenna, þar á meðal voru íþrótta-
menn, hermenn, leikarar, stjórn-
málamenn og rithöfundar. Voru
æviskeiðin borin saman, með til-
liti til stjörnumerkja viðkom-
andi.
Kjarvalskort
Þá eru menn farnir að finna
lyktina af jólunum. Eitt er það
sem oft vill gleymast, alveg, fram
á síðustu stundu en það er að
senda vinum og kunningjum hér-
lendis sem erlendis stutta jóla-
kveðju.
Okkur bárust hér inn á rit-
stjórnina á dögunum ansi falleg
jólakort sem Offsett-
pretnsmiðjan Litbrá gefur út.
Hér er um að ræða prentanir á
þremur málverkum Kjárvals og
einni krítarmynd sem er sjálfs-
mynd og við birtum hér að ofan.
Hin kortin eru með myndum af
málverkunum „Snjór og gjá“
máluð 1954, „Bleikdalsá“ máluð
1967 og „Fyrstu snjóar“ máluð
1953.
Nýyröi viðurkennt
af íslenskri málnefnd:
Stálþræll
Eftirfarandi orð hefur íslenska
I málnefndin haft til umræðu og
mælt með sem góð og gild í ís-
lensku máli.
Stálþræll, kk., ’vél, sem klipp-
ir, sker og gatar stál. Tillaga frá
G.J. Fossberg hf., vélaverslun.
Tölusetjari, kk., eða tölusetn-
ingarvél, kv., ’vél, sem tolusetur
þ.e. prentar síhækkandi tölur; e.
numerator. Tillaga nefndarinnar
að gefnu tilefni.
Landvörður, kk., ’sá, sem ann-
ast vörslu lands (venjulega
friðaðs), ;E. ranger. Starfsheiti.
Tillaga frá Náttúruverndarráði.
Verkbeinandi, kk., ’sá, sem
fær sjúklinga til að taka sér
eitthvað fyrir hendur eða hafa
j eitthvað fyrir stafni’; d. beskæft-
igelsesvejleder. Starfsheiti. Til-
laga nefndarinnar að gefnu til-
efni.
Nokkrar umræður hafa orðið
meðal jarðfræðinga, verkfræð-
i inga o.fl. um íslenskar þýðingar á
: ensku orðunum pore (smá) hola í
föstu efni’, porous holóttur, al-
settur (smá)-holum’ og poroisty
sá eiginleiki að vera (smá) holótt-
ur’. í bréfi frá Orðanefnd
byggingarverkfræðinga, dags 26.
apríl 1982, var leitað álits máln-
efndar á helstu þýðingum, sem
fram höfðu komið. Nefndin sam-
þykkti á fundi sínum 11. maí sl.
að mæla með orðunum gropa,
kv., fyrir „pore“, gropinn, 10.,
fyrir „porous" og grop, hk., fyrir
i „porosity."
Galloway-
naut
á
maganum
Haldiði það væri munur að fá mynd eitthvað líka þessari á magann.
Reykjavík, höfuðborg íslands,
býður upp á flest það sem hugur-
inn girnist. Nú berast þær fréttir
að sunnan að þar sé búið að koma
á fót „húðflúrunarstofu” og geta
menn loksins látið skreyta á sér
kroppinn.
Dagblaðið - Vísir birti fyrir
skömmu ítarlegt viðtal við mann
nokkurn sem hefur sérhæft sig í
húðflúri og annan sem er búinn
að láta húðflúra sig hátt og lágt.
Það er ekki ónýtt fyrir okkur
'sem í strjálbýlinu búum að geta
látið skreyta okkur næst þegar
leiðin liggur til Reykjavíkur.
Bændur geta t.d. látið húðflúra
Galloway naut á magann á sér til
merkis um áhuga á framförum í
landbúnaði og þeir sem starfa í
sjávarútvegi geta fengið sér
hringorm á magann.
(Úr bændablaðinu
Degi á Akureyri.)