Þjóðviljinn - 26.11.1982, Page 11
Föstudagur 26. nóvember 1982 ÞJóÐVrEJINN— SIÐA 15'
íþróttir
Umsjón:
VíðirSigurðsspn
Kintzmger
UMFG?
l.deildarlið Grindvíkinga í
körfuknattieik hefur rekið banda-
ríska leikmanninn Mike Sailes sem
hefur leikið með liðinu i vetur. í
hans stað hefur heyrst að komi Do-1
uglas Kintzmger, sem var látinn
fara frá Fram fyrr í vetur. Ekki
hefur það þó fengist staðfest enda
stóð til að kappinn léki með Skalla-,
grími úr Borgarnesi.
Þá heyrðist einnig fleygt að
Kintzmger sé að höfða mál á hend-1
ur Fram fyrir brottreksturinn, og
þar með brotna samninga. í samn-
ingnum hafi verið svo kauðalega að i
orði komist að Kintzmger ætti að
vera þjálfari og góður leikmaður
að auki, og Framarar síðan ekki;
talið hann nógu góðan. Hver dæm-
ir um slíkt og hvemig fer það fyrir
dómstólum???!!
-VS
Ársþlng
um helgina
Tvö sérsambönd innan ÍSÍ verða
með ársþing um helgina og verða
þau haldin á sama staðnum, Fé-
lagsheimili Rafmagnsveitu
Reykjavíkur við Elliðaár. Þar
þingar Fimleikasambandi íslands á
morgun, laugardag, kl. 13.30, og
Borðtennissamband Islands á
sunnudag, 28. nóvember, kl. 14.
1. defld í
gang á ný
Keppni í l.deild karla í hand-
knattleik hefst að nýju í kvöld eftir
mánaðarhlé. ÍR og Þróttur leika í
Laugardalshöllinni kl. 20. Á morg-
un, laugardag, mætast tvö efstu lið-
in, KR og FH, í Höllinni kl. 14 og
níundu umferð lýkur á sunnudag.
Pá leika Valur og Víkingur kl. 14
og Fram-Stjarnan kl. 20.
Staðan í l.deild karla er þannig:
FH..............8 6 0 2 217-173 12
KR..............8 6 0 2 195-151 12
Víkingur........8 5 1 2 159-153 11
Stjarnan........8 5 0 3 163-160 10
Þróttur.........8 4 0 4 159-159 8
Valur...........8 3 0 5 154-160 6
Fram............8 2 1 5 175-191 5
(R..............8 0 0 8 136-211 0
Ísland-Frakkland:
Betri leikur og fjög-
urra marka sigur nú
Ahorfendur snéru heldur glaðari
frá Laugardalshöllinni i gærkvöldi
en þeir gerðu í fyrrakvöld, því
leikur íslenska landsliðsins í hand-
knattleik batnaði nokkuð frá því í
fyrri leiknum við Frakka. Ekki áttu
strákarnir okkar þó neinn stórleik í
heiidina séð, en nokkrir góðir kafl-
ar, einkum í seinni hlutanum,
tryggðu þeim öruggan sigur yfir
Frökklum 26-22. Staðan í hálfleik
var 13-11.
Fyrsta mark leiksins gerði Krist-
ján Arason strax á fyrstu mín.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Valur lagði Fram-
ara í f jörugum leik
Valsmenn settu Framara að öll-
um líkindum úr leik í baráttunni
um íslandsmeistaratitilinn i körfu
knattleik með því að sigra þá 103-
93 í Hagaskólanum í gærkvöldi.
Leikurinn var íjörugur og mikil
barátta, sem skilaði sér í tals-
verðum villufjölda og flauti, ein-
kenndi hann. Undir lokin voru
flestir leikmenn úr byrjunarliðun-
um komnir með fjórar eða fimm
villur, Framarar fóru sýnu verr út
úr þeim viðskiptum, enda áttu þeir
ekki möguleika lokakaflann eftir að
hafa verið nálægt því að vinna upp
gott forskot Valsara.
Valur náði strax undirtökunum
og hélt þeim allan tímann. Jafnt var
framan af en undir lok náðu Vals-
menn með Tim Dwyer og Jón
Steingrímsson í fararbroddi 16
stiga forskoti sem þó minnkaði
aðeins fyrir leikhlé, 53-40.
Góður leikur datt nokkuð niður
framan af síðari hálfleik en síðan
lifnaði yfir liðunum á ný. Valur
komst í 76-60 og leikurinn virtist
unninn, enda Þorvaldur Geirsson
og Símon Ólafsson komnir útaf hjá
Fram með 5 villur. Framarar gáfust
ekki upp, minnkuðu muninn niður
í sex stig, 88-82, en þá var mesti
móðurinn farinn af þeim, Viðar
Þorkelsson fékk sína fimmtu villu
og eftirleikurinn var auðveldur
fyrir Val þrátt fyrir gífurlega bar-
áttu Guðmundar Hallgrímssonar
og Jóhannesar Magnússonar.
Valsliðið lék virkilega vel, var
jafnt og heilsteypt, og fallegar flétt-
ur í sókninni galopnuðu staða
Framvörn hvað eftir annað. Tim
Dwyer átti virkilega góðan leik og
Torfi Magnússon og Jón
Steingrímsson voru ekki langt að
baki. Kristján Ágústsson og Leifur
Gústafsson stóðu vel fyrir sínu og
Ríkharður Hrafnkelsson tók Viðar
Þorkelsson algerlega úr sambandi
lengi vel. Dwyer skoraði 34 stig,
Jón 19, Torfi 17, Kristján 15,
Leifur 10 og Ríkharður 8.
Val Brazy var lengi vel allt í öllu
hjá Fram, enda var Viðar í strangri
gæslu. Jóhannes og Guðmundur
voru góðir í síðari hálfleik en það
vantaði einhvern neista í Framliðið
og sérstaklega skorti á baráttuna í
fráköstunum. Brazy skoraði 38
stig, Jóhannes 16, Guðmundur 11,
Símon Ólafsson 10, Viðar og Þorv-
aldur 6 hvor, Jóhann Bjarnason 4
og Ómar Þráinsson tvö.
Dómgæsla Jóns Otta Ólafssonar
og Þráins Skúlasonar var góð fram-
an af en í síðari hálfleik gætti ým-
issa mistaka hjá þeim félögum.
Þeir mega líka gæta þess að menn
geta misst ýmislegt útúr sér í hita
leiksins og það er óþarfi að vera að
rjúka á þá með tæknivíti umsvifa-
laust. Annað mál ef menn halda
áfram að röfla.
Næstu leikir
Njarðvík og Keflavík leika í
kvöld kl. 20, KR og ÍR á morgun
kl. 14 og Valur-Keflavík á mánu-
dagskvöldið.
-VS
Frakkar jöfnuðu fljótlega, en okk-
ar menn höfðu 1-3 marka forystu
mestan hluta fyrri hálfleiks. Ekki
voru menn að gefa sér of langan
tíma í sókninni, og alltof oft misstu
strákarnir boltann klaufalega frá
sér með þeim afleiðingum að
Frakkarnir áttu auðvelt með að
bruna fram og skora. Vamar-
Iieikurinnvar slakurlog markvarsla
nánast engin. Sóknarleikurinn var
öllu skárri (ekki nýtt í íslenskum
handbolta), og þar voru fremstir í
flokki Ólafur Jónsson, sem skoraði
5 mörk í hálfleiknum, og Kristján
Arason, sem þá var rétt að hitna.
Sem sagt. Of mikið af röngum
sendingum í fyrri hálfleik samfara
lélegri vörn og markvörslu.
Síðari hálfleikur byrjaði illa af
okkar hálfu (gömul saga og ný), og
þegar 10 mín. voru liðnar af hálf-
leiknum höfðu Frakkar náð 3
marka forystu 15-18. Þá foru okkar
menn að taka á fyrir alvöru. Krist-
ján (3), Þorgils og Ólafur sáu um
fimm næstu mörk og breyttu
stöðunni í 20-18, og lögðu þannig
grunninn að öruggum sigri íslenska
liðsins 26-22.
Þó Frakkar hafi skorað 11 mörk í
hivorum hálfleika var markvarsla
Kristjáns Sigmundssonar snöggt-
um betri í síðari hálfleik og varn-
arleikurinn b’atnaði til muna seinni
hluta hálfleiksins.
Franska liðið virtist ekki nema í
meðallagi gott, og því eðlileg krafa
að við ynnum þá örugglega. Ekki
var leikur íslenska liðsins mjög
sannfærandi. Of mörg mistök voru
gerð. Of oft brá fyrir kæruleysi og
bráðlæti, og við skulum gera okkur
ljóst að við náum aldrei toppn-
um nema við gerum okkur grein
fyrir því að hándbolti snýst ekki síst
um varnarleik. Slakur vamarleikur
og „óstabíl” markvarsla hefur ein-
kennt landslið okkar frá því við
hófum að leika landsleiki fyrir al-
vöru. Þó íslenska landsliðið sé ekki
mjög sannfærandi þessa dagana,
gæti það boðað betri tíð, þó undar-
legt megi virðast. Hversu oft höf-
um við ekki unnið „glæsta” sigra
gegn heimsins sterkustu þjóðum
hér heima þegar leikirnir skiptu
raunverulega engu máli? Hversu
oft höfum við ekki verið rassskellt-
ir í alvöru-mótum stuttu eftir
„glæsta” sigra þegar öll þjóðin var í
skýjunum? Skammtíma sjónarmið
mega ekki ráða ferðinni. Lands-
liðið er að undirbúa sig fyrir hina
erfiðu B-keppni, og liðið er ekki
fullmótað. Það er margt sem þarf
að laga og það veit Hilmar Björns-
son, landsliðsþjálfari, líklega
manna best. Við skulum gera kröf-
ur til strákanna ÞÁ, en ekki vera að
svekkja okkur á æfingaleikjum á
undirbúningstímabili. Liðið er
mjög efnilegt. Valinn maður í
hverju rúmi, en þegar á hólminn
kemur verða efnilegheitin að vera
fyrir bí og raunveruleg geta að
koma í ljós.
Ólafur Jónsson, Þorgils Óttar og
Kristján Arason voru okkar bestu
menn og skoruðu 19 af mörkum
landsliðsins. Kristján hefur það
fram yfir ýmsar aðrar skyttur liðs-
ins að vera ófeiminn að skjóta á
markið, og vera hæfilega marka-
gráðugur. Mætti segja mér að sam
vmna hans og Þorgiis eigi eftir að
jarðsetja nokkur 1. deildarliðin
áður en keppnistímabilið er á
enda. Bjarni Guðmundsson stóð
sig vel að vanda, og þrátt fyrir 3
mörk gerði Páll Ólafsson of mörg
mistök.
Sænsku dómararnir voru bestu
menn vallarins.
-B