Þjóðviljinn - 26.11.1982, Side 3
Föstudagur 26. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — |SJÐA 3
Iðnaðarbankmn í Garðabæ
jóhann Egilsson útibússtjóri, Margrét Þórðardóttir afgreiðslumaður, Linda Óskarsdóttir afgreiðslumaður,
Sigríður Sigurðardóttir afgreiðslustjóri og Albert Sveinsson skrifstofustjóri.
Iðnaðarbankinn opnar nýtt úti-
bú í Garðabæ í dag og er það á
mótum Vífilstaðavegar og Bæjar-
brautar. Hér er um að ræða sjálf-
stætt útibú sem veitir alla almenna
bankaþjónustu, þar með talin inn-
og útlán, sparisjóðsviðskipti sem
og ávísana- og hlaupareikningsvið-
skipti. Afgreiðslustjóri þessa nýja
útibús Iðnaðarbankans er Sigríður
Sigurðardóttir, en hún hefur gegnt
fulltrúastörfum í útibúi bankans í
Hafnarfirði undanfarin ár.
Fimm ár eru liðin síðan Iðnaðar-
bankinn opnaði útibú, en það var
haustið 1977 á Selfossi.
Fyrirtæki og einstaklingar í
Garðabæ hafa átt mikil og sívax-
andi viðskipti við útibú Iðnaðar-
bankans í Hafnarfirði. Til að sinna
þörfum þeirra enn betur var á-
kveðið að sækja um leyfi til að
opna útibú í Garðabæ.
í Garðabæ er vaxandi atvinnulíf,
einkum iðnaður, og er það stefna
bankans að styðja þann rekstur
sem mestur vöxtur er í, og efla með
i þeim hætti bæjarfélagið í heild.
Útibúið er vel staðsett við vænt-
anlegan miðbæ í Garðabæ og er
það í leiguhúsnæði hjá Pharmaco
h.f.
Sá hluti hússins sem Iðnaðar-
bankinn tók á leigu er með léttum
innréttingum og voru þarfir fatl-
aðra hafðar í huga við hönnun
þeirra. Aðgangur er greiður fyrir
fólk í hjólastólum jafnt innan dyra
sem utan.
Starfsmenn útibúsins verða þrír
til fjórir og mun opnun þess létta
nokkuð á útibúi Iðnaðarbankans í
Hafnarfirði. Yfirstjórn þessara úti-
búa er sameiginleg. Útibússtjóri er
Jóhann Egilsson og skrifstofustjóri
Albert Sveinsson.
í tengslum við opnun þessa nýja
útibús hefur verið efnt til mynda-
samkeppni meðal nemenda
Garðaskóla og Flataskóla, sem á
25 ára afmæli um þessar mundir.
Veitt verða verðlaun fyrir bestu
myndirnar og verða verðlauna-
myndirnar til sýnis í húsakynnum
bankans.
Útibú Iðnaðarbankans í Garða-
bæ er opið á virkum dögumkl.9.15
-16.00 og auk þess á fimmtudögum
milli kl. 17 og 19. Á opnunardaginn
verða kaftiveitingar fyrir alla
Garðbæinga. ___ekh
Óætar kartöflur?
Neytendasamtökin
leggja til að nefnd kanni málið
Stjórn Neytendasamtakanna
hefur lagt til að skipuð verði
nefnd til að kanna hvernig standi
á því að ekki er hægt að koma
kartöflum óskemmdum á borð
neytenda. í mörgum tilfellum séu
neytendum seldar algerlega óæt-
ar kartöflur.
í ályktun stjórnar Neytenda-
samtakanna er þess krafist að
þegar verði gerðar ráðstafanir til
að koma í veg fyrir þetta ófremd-
arástand. Þykir sýnt að sölufyr-
irkomulag kartaflna þarfnist
endurskoðunar og breytinga.
Þá leggur stjórn Neytendasam-
takanna til að kannað verði hvort
ekki sé möguleiki á að taka upp
úrvalsflokk kartaflna.
-•g-
5. þing BHM
Atvinnumál og
skipulagsbreytingar
5. þing Bandalags háskólamanna menntamálum, en hinn framsögu
hefst í dag og stendur fram á |maðurinn, •Sigmundur Stefánsson
laugardag. Verður þar einkum mun fjalla um könnun sem gerð
fjallað um atvinnumál háskóla- hefur verið á þessum málum innan
manna á ísiandi, tillögur um laga- aðildarfélaga BHM.
breytingar BHM verða lagðar
fram, sem m.a. kveða á um aukið Valdimar K. Jónsson fráfarandi
sjálfstæði einstakra ráða innan .formaðurBHMsegiríforystugrein
bandalagsins auk þess sem aðal- BHM blaðsins sem kom út í gær að
stjórn fær útvíkkað valdsvið í stað stærstu breytingarnar í tillögum
fulltrúaráðs. Þá verður kjörin ný Sem fyrir þinginu liggja, séu þær að
stjórn bandalagsins, en fráfarandi stað fulltrúaráðs komi aðalstjórn
formaður þess er Valdimar K. sem eigi að taka virkan þátt í stefiiu-
Jónsson. mótun bandalagsins. Þar eigi að
I framsöguerindi sínu um atvinnu hafa sæti allir formenn banda_
mál, háskólamanna ræðir Halldór lagsfélaga og auk þess verði sjálf-
Guðjónsson kennslustjóri Háskóla stæði ráða innan bandalagsins stór-
Islands um framtíðarhorfur í aukið.
Geðhjálp með
félagsmiðstöð
Félagið Geðhjálp sem er félag fólks með geðræn vandamál, aðstand-
enda þeirra og annarra velunnara hefir nú opnað félagsmiðstöð að Báru-
götu 11 hér í borg.
Fyrst um sinn verður þar opið hús laugardaga og sunnudaga frá kl. 2-6
e.h. Þar er fyrirhugað að fólk geti hist og fengið sér kaffi, setið þar við spil
og tafl o.fl., fengið þarna félagsskap og samlagast lífinu í borginni. Þarna
mun verða hægt að fá upplýsingar um það sem helst er að finna til gagns og
skemmtunar í borginni og nágrenni. í húsnæði þessu er hægt að mynda alls
konar hópa og klúbba, um hinar margvíslegu þarfir og áhugamál.
Kökubasar M.S.-félagsins
M.S.-félag ísland verður með kökubasar í Fáksheimilinu v/
Reykjanesbraut sunnudaginn 28.nóvember kl. 14. Ljúffengar kökur
og ýmsir nytsamlegir hlutir verða á boðstólum á góðum kjörum.
Þetta er stóri vinningurinn
Vinningar í happdrætti Þjóðviljans 1982:
1. Bifreið Daihatsu Charade
2. Húsgögn að eigin vali frá TM-húsgögnum
3. Nordmende litasjónvarp frá Radíóbúðinni
4. Ferð að eigin vali frá
Samvinnuferðum-Landsýn
5. Ferð að eigin vali frá
Samvinnuferðum-Landsýn
6. Ferð að eigin vali frá Úrval
7. Ferð að eigin vali frá Úrval
kr. 128.000
kr. 25.000
kr. 19.170
kr. 15.000
Verðmæti vinninga alls
kr.
kr.
kr.
kr.
15.000
15.000
15.000
232.170
Dregið
verður
1. des.
Gerið skil
sem fyrst
Happdrætti
Þjóðviljans
1982