Þjóðviljinn - 26.11.1982, Side 10
14 SÍÐA — ÞJöÐVILJINN Föstudagur 26. nóvember 1982
Hjá okkur er
alltaf mlkið starfað
Jóhannes Stefánsson
segir Jóhannes Stefánsson 1 Neskaupstað
Gamla kempan Jóhannes Stef-
ánsson í Neskaupstað var einn full-
trúa á flokksráðstefnu Alþýðu-
bandalagsins og við spurðum hann
fyrst um atvinnuástandið á
Austtjörðum, nú þegar flestir
kvarta vegna minnkandi flskafla og
atvinnu?
- Hjá okkur í Neskaupstað hef-
ur verið mikil vinna í haust, enda
hleypti síldin miklu lífi í atvinnu-
málin. Hjá sfldarvinnslunni voru
saltaðar 18.400 tunnur og var hún
hæst sfldarsöltunarstöðva í haust.
Aðstaða til síldarsöltunar í Nes-
kaupstað hefur verið bætt mjög frá
því sem áður var með þessum ár-
angri. Ég veit ekki betur en at-
vinnuástandið hafi verið gott á
Áustfjörðum í haust og þá er sömu
sögu að segja úr Neskaupstað, að
sfldin hefur haft mikið að segja.
Nú, fyrir utan sfldarvinnsluna
erum við með 3 togara í Nes-
kaupstað sem leggja upp hjá frysti-
húsinu en sá fjórði, Beitir veiðir í
salt á útilegu. Við höfum fengið
hrós fyrir gott hráefni til frystingar,
sem kemur til af því að okkar tog-
arar eru ekki úti r.ema 7-8 daga í
hæsta lagi 10 daga og er því stjórn-
að úr landi í samráði við skipstjór-
ana hvenær þeir koma inn til að
landa.
- Er mikið Iíf í félagsstarfi Al-
þýðubandalagsins í Neskaupstað?
- Já, það er alltaf líf í því. Fyrir
utan venjulega félagsfundi erum
við með 30 manna bæjarmálaráð,
sem kemur saman einu sinni í viku
og á þessa fundi mega allir koma og
fólk gerir það.
- Svo er málgagnið ykkar
„Austurland“ unnið í Neskaup-
stað?
- Já, en það er nú málgagn kjör-
dæmisráðsins, þannig að það er
ekki bara blað okkar Norðfirðinga,
en það er rétt að blaðið er unnið
heima. Þetta málgagn er okkur á-
kaflega mikils virði og sem dæmi
get ég sagt þér að í Neskaupstað er
blaðið keypt af nærri því hverri
fjölskyldu. Nú sem stendur annast
5 manna ritnefnd um útgáfu blaðs-
ins en til stendur að ráða sérstakan
ritstjóra að blaðinu innan tíðar.
- Er búið að taka nýja fjórð-
ungssjúkrahúsið í Neskaupstað í
gagnið?
- Já, og búið að ráða þriðja
lækninn að húsinu, þannig að nú er
orðið vel séð fyrir allri heilbrigðis-
þjónustu hjá okkur. Þá langar mig
einnig að nefna það að búið er að
byggja 12 íbúðir fyrir aldraða, sem
eru í beinum tengslum við sjúkra-
húsið, og þaðan getur gamla fólkið
fengið góða þjónustu, bæði fæði og
annað. Þetta er til mikilla bóta og
fólk er ánægt með þetta.
- S.dór
Jóhanna Leopoldsdóttir
Kvíðum
ekki
kosningui
Máleínastaðan sterk
segir Sveinbjörn Jónsson frá Súgandafirði
- Ég efast ekkert um að málefn-
astaða Alþýðubandalagsins er
sterk og þess vegna ætti það ekki að
þurfa að kvíða þingkosningum. Því
jafnvel þótt kjaraskerðingin 1. des-
ember sé engum kærkomin, þá vill
fólk hana frekar en mun stærri skell
síðar og þessu gerir allur almenn-
ingur sér fulla grein fyrir, sagði
Sveinbjörn Jónsson frá Súganda-
firði, er við spurðum hann hvernig
Alþingiskosningar legðust í menn á
Vestfjörðum.
- Það er hinsvegar verra, að það
skuli vera verkafólkið og þá alveg
sérstaklega fólkið í undirstöðu-
greinunum, fiskvinnslunni, sem fær
stærsta skellínn á meðan fólk í
þjónustugreinum, eins og í bönk-
um og tryggingafélögum, svo dæmi
sé tekið fer mun betur útúr þessu,
sagði Sveinbjörn.
- Er kominn kosningaskjálfti í
menn fyrir vestan?
- Sjálfsagt er það, en að vísu má
segja að menn séu enn að sleikja
sárin eftir sveitarstjórnarkosning-
arnar í vor er leið, í mínu byggðar-
lagi. Þessar kosningar voru óvenju
hatramar, sannkölluð innan-
sveitarkrónika, eftir þá miklu
breytingar sem átt hafa sér stað í
atvinnumálunum á Suðureyri. Eins
og alþjóð veit, urðu þar eigenda-
skipti á frystihúsi og togara staðar-
ins og útaf því spunnust afar harðar
deilur, sem enn leifir af.
- Hvernig er atvinnuástandið á
Suðureyri eftir þessar breytingar?
- Það er ekki atvinnuleysi hjá
okkur, en atvinna er samt minni en
þegar mest var, ekki síst vegna
minnkandi afla. Nú, við vonum öll
að þeim sem keyptu frystihúsið og
Sveinbjörn Jónsson
togarann takist að rétta atvinnu-
standið við og ég hef trú á því að það
takist. En eins og ég sagði áðan þá
hefur fiskafli minnkað verulega
undanfarna mánuði og kemur það
harkalega niður á flestum ef ekki
öllum stöðum á Vestfjörðum.
Atvinna minnkar verulega, þótt
ekki komi til verulegs atvinnu-
leysis.
- Nú kvarta margir Vestfirðing-
ar undan dýrum kyndingarkostn-
aði, hvernig eruð þið á Suðureyri
sett í þessum málum?
- Hjá okkur er hitaveita, en að
vísu sú dýrasta á landinu, bæði í
byggingu hennar og kyndikost-
naði. Miðað er við að kyndikost-
naðurinn sé 80% af olíu-
kyndingarkostnaði, en niður-
greiðslur ríkisins á olíu til heimil-
iskyndingar skekkir þetta dæmi
verulega. Það hefur verið reiknað
út að ódýrara væri fyrir fjölmenn
heimili að kynda með olíu en hita-
veitunni hjá okkur vegna niður-
greiðslunnar. En ég er hinsvegar
sannfærður um að ef til lengri tíma
er litið muni hitaveitan verða okk-
ur mjög hagstæð.
- S.dór
Blönduœvintýrið getur
orðið tvíbent
segir Eðvarð Hallgrímsson frá Skagaströnd
- Því miður eru blikur á lofti í
atvinnumálunum hjá okkur á
Skagaströnd sem stendur. Afli fer
minnkandi og nú er ekki útlit fyrir
að þeir línubátar sem lögðu upp á
Skagaströnd í fyrra vetur muni
gera það í vetur, en þeir voru 3.
Aflatregðan hefur orðið til þess að
þeir hafa snúið sér að rækju-
veiðum. Og enda þótt rækjan veiti
mörgum atvinnu, þá missa miklu
fleiri vinnu við það að línuútgerðin
leggst niður, sagði Eðvarð Hall-
grímsson frá Skagaströnd er við
spurðum hann um atvinnuástandið
þar. Eðvarð sagði að nýi togarinn
þeirra Skagstrendinga, Órvar, væri
bara verksmiðjutogari, þar sem
aflinn væri frystur um borð, en á
honum er 26 manna áhöfn. Hann
skapaði því mjög litla vinnu í landi,
nánast aðeins löndun.
- Nú fer Blönduvirkjunar-
aevintýrið að hefjast, hvernig leggst
það í ykkur Skagstri ndinga?
- Ég held að allir séu sammála
um að Blönduvirkjun, eða bygging
hennar muni raska mjög atvinnu-
h'finu nyrðra. Það liggur alveg ljóst
fyrir, að yfir sumarið, þegar mest
er um atvinnu getur !iún hreinlega
orðið hættuleg undirstöðuatvinn-
ugreinunum. Og þó að menn óttist
að svona fari hjá okkur, verður á-
standið sjálfsagt enn verra á Blöndu-
ósi. Því má segja að Blöndu-
virkjun verði okkur tvíbent. Þá
þykir mörgum, sem of lítil umræða
hafi farið fram um það hvað við-
tekur þegar byggingu virkjunar-
innar er lokið. Vissulega skapar
hún möguleika á að koma upp
margskonar iðnaði í Húnavatns-
sýslum, en mér þykir undirbún-
Eðvarð Hallgrímsson
ingur fara hægt af stað, sem og það
hvaða atvinna bíður þess fólks
sem við virkjunina fær vinnu, að
henni lokinni.
- Er ekki búist við að íbúum á
Skagaströnd og Blönduósi fjölgi,
þegar virkjunarframkvæmdir
hefjast?
- Það má fastlega gera ráð fyrir
því, en annars hefur nú íbúurri
Skagastrandar fjölgað, frekar en
hitt. Til að mynda flutti 10 manna
fjölskylda frá Djúpuvík til Skaga-
strtmdar í haust og hafði með sér
bát, sem gerður verður út á rækju.
Nú, á Skagaströnd var gert stórá-
tak í byggingu verkamannabústaða
þegar ráðist var í byggingu 14
íbúða. Átta þeirra voru teknar í
notkun í vor er leið og sex verða
teknar í notkun um næstu áramót.
Því má segja að húsnæðismálin séu
í sæmilegu lagi hjá okkur eins og
er.
- Hvernig hefur þér líkað flokks-
ráðsfundurinn?
- Mér hefur þótt of mikil hrepp-
apólitík ríkja á fundinum. Hrepp-
apólitík virðist fara vaxandi hvar
sem er og minna hugsað um
þjóðarhag. Ég hygg að prófkjör
stjórnmálaflokkanna eigi þar stór-
an þátt í. Frambjóðendur í próf-
kjöri leita í vaxandi mæli til smá
þrýstihópa eftir stuðningi og verða
svo að endurgjalda greiðann þegar
þeir eru komnir á þing og slíkt
verður alltaf á kostnað þjóðarinnar
í heild. Og ég óttast að þetta vaxi
að mun ef kjördæmabreytingin
leiðir til fjölgunar þingmanna
í Reykjavík og Reykjaneskjör-
dæmi.
- S.dór
segir Jóhanna
Leópoldsdóttir
Einn af fulltrúum Vesturlands-
kjördæmis á flokksráðsfundinum
var Jóhanna Leopoldsdóttir,
kaupfélagsstjóri á Vegamótum á
Snæfellsnesi. Hún var fyrst spurð
að því hvort kominn væri kosning-
askjálfti í fólk þar vestra.
- Það er nú kannski of mikið
sagt, en við erum farin að huga að
þeim. Meðal annars hefur verið
samþykkt að viðhafa forval hjá Al-
þýðubandalaginu í Vesturlands-
kjördæmi, sem síðan mun haft til
hliðsjónar við röðun á listann,
forvalið er ekki bindandi. Nú, það
má segja að sæmilega vel hafi verið
starfað í félögunum í kjördæminu,
misjafnlega vel að sjálfsögðu,
þannig er það alltaf, en ef á
heildina er litið hefur verið ágæt-
lega starfað. Þar sem ljóst er að
kosningar eru á næsta leiti, mun
allt starf félaganna eflast rnjög á
næstu vikum, eins og jafnan þegar
kosningar nálgast.
- Og hvernig leggjast kosningar í
ykkur í Vesturlandskjördæmi?
- Við erum ákveðin í að gera
okkar besta og kvíðum þeim ekki. í
Reykjavík gæti staðan orðið erf-
iðari ef mörg framboð koma fram,
eins og virðist blasa við núna.
- Hvernig þykir þér flokks-
ráðsfundurinn hafa tekist?
- Ég er í sjálfu sér ánægð með
hann og svona fúndir eru alltaf ákaf
lega gagnlegir, sér í lagi fyrir fólk
utan af landsbyggðinni. Þá er ég
einnig ánægð með að á fundinum
hafa átt sé stað heiðarleg skoðana-
skipti, mér þætti það verra ef fund-
urinn væri ládeyðu halelúja-
samkoma. Það sem mér þykir mið-
ur er, að þeir flokksmenn, sem flest
tækifæri hafa til að koma skoðun-
um sínum á framfæri, nota of mik-
inn ræðutíma á þessum fundi.
Miklu nær væri að fulltrúar utan af
landi fengju meiri ræðutíma til að
koma sínum sjónarmiðum fram,
enda hafa þeir mun færri tækifæri
til þess en þeir sem mest hafa látið
að sé kveða.
Þá er ég einnig afar ánægð með
miðstjórnarkjörið og ég vona að
miðstjórnin verði meira stefnu-
markandi fyrir flokkinn en hún
hefur verið hingað til. Að lokum
má það svo koma fram, að við í
Vesturlandskjördæmi erum mjög
ánægð með störf ráðherra Alþýðu-
bandalagsins í ríkisstjórn og stönd-
um heilshugar að baki þeim, sagði
Jóhanna að lokum.
- S.dór