Þjóðviljinn - 26.11.1982, Qupperneq 12
16 S\ÐA ~T»JÓÐVILJINN Föstudagur 26. nóvember 1982
AL^VÐUBANDALAGiO
Alþýðubandalagsfélag Selfoss
og nágrennis
Viðtalstímar
Baldur Óskarsson verður með viðtalstíma n.k.
laugardag, 27. nóvember kl. 14 að Kirkjuvegi 7,
Selfossi.
Stjórnin. Baidur. j
Alþýðubandalagið á Akranesi
Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði mánudaginn
29. nóvember í Rein.
Fundarefni:
1) Nefndamál
2) Kynnt og rædd störf byggingarnefndar, skipulagsnefndar og stjórnar
Byggðasafnsins
3) Önnur mál
Félagar fjölmennið Stjórnin
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Greiðum félagsgjöldin
Stjón Alþýðubandalagsins í Reykjavík hvetur alla félagsmenn sem enn
skulda gjaldfallin félagsgjöld að greiða þau sem fyrst.
Alþúðubandalagið í Reykjavík fjármagnar starf sitt einungis með félags-
gjöldum og framlögum félagsmanna sinna. Stöndum því í skilum með
félagsgjöldin og eflum þannig starf félagsins.
Markið er allir skuldlausir um áramót. Stjorn ABR
Alþýðubandalagið á Akureyri
Fundur í bæjarmálaráði verður haldinn n.k. mánudag kl. 20.30 í Lárusar-
húsi.
Stjórnin.
Reuter og
Lindgren
Hjá Máli og menningu er komin
út ný bók fyrir börn og unglinga
sem nefnist Veröld Busters og er
hún eftir danska barnabókahöf-
undinn Bjarne Reuter. Olafur
Haukur Símonarson þýddi bókina.
Veröld Busters er fyrsta bókin
um drenginn Buster Oregon Mort-
ensen, sem er töframaður og hol-
ræsajóðlari og kominn af fjöllista-
mönnum í beinan karllegg. Pabbi
hans er atvinnulaus sjónhverfinga-
maður og afi hans var fallbyssu-
kóngur. Sjálfur kann Buster eitt og
annað fyrir sér.
Pá gefur forlagið út bókina
Leynilögreglumanninn Karl Blóm-
kvist eftir Astrid Lindgren. Þetta
er önnur útgáfa þýðingar Skeggja
Ásbjarnarsonar, en bókin kom
fyrst út á frummálinu 1946, og
nokkrum árum síðar í íslenskri
þýðingu, en hefur verið ófáanleg
um langt skeið.
Siálfstætt folk
les Þjóðviljann
MOÐVIUINN
BLAÐHD SEM
VSTNAÐ ERÍ
Áskriftarsími 81333
„Flóamarkaður ‘ Þjóðviljans
Ný þjónusta við áskrifendur
Á timmtudögum geta áskrifendur Þjóöviljans fengið birtar smáauglýsingar sér
að kostnaðarlausu. Einu skilyrðin eru aö auglýsingarnar séu stuttorðar og að
fyrLrtæki eða stofnanir standi þar ekki að baki. Ef svo er, þá kostar þirtingin
Hringið í síma 81333 ef þið þurfið að selja, kaupa, skipta, leigja, ef ykkur
vantar vinnu, þið hafið týnt einhverju eða fundið eitthvað. Allt þetta og fleira til
a heima á Flóamarkaði Þjóöviljans.
PJOÐVHJINN
Auglýsingasíminn
er 8-13-33
Alþýðubandalagið
Suðurlands-
kjördæmi:
Stjóm-
band
við PLO
Kjördæmisráð Alþýðubanda-
lagsins I Suðurlandskjördæmi á-
lyktar þann 13.11. 82:
„Við krefjumst þess að ríkis-
stjórnin taki þegar í stað upp
stjórnmálasamband við Frelsis-
samtök Palestínuaraba, PLO, og
sýni þannig í verki stuðning sinn
við hina stríðshröktu landflótta
Palestínuþjóð. Jafnframt krefj-’
umst við þess að alþingi íslendinga
og ríkisstjórn taki afdráttarlausa
afstöðu til stríðsreksturs ísraels-
manna í Austurlöndum nær og taki
fyrir öll viðskipti ríkjanna, þangað
til mannúðleg og heiðarleg lausn er
fundin á vanda Palestínuþjóðar-
innar“.
Þrjár íslenskar
ljóðabækur:
hugar-
hægðar...
Bóndinn Jón Jónsson á Fremsta-
felli í Suður-Þingeyjarsýslu sendir
frá sér taktbundinn kveðskap í ög-
uðu formi, hjartslátt sem á upptök
sín í fornbókmenntum eins og
Njálu, en bærist líka í fjárhúsun-
um, á túninu og á heiðinni.
Valtýr Guðmundsson, Sandi, er
höfundur ljóðabókarinnar
VINJAR.
í VINJLJM yrkir hann bæði rím-
uð og órímuð ljóð um samtíð og
fortíð. Náttúran og nánasta um-
hverfi hans er gjöfult yrkisefni,
gróandinn, veðrabrigðin og skepn-
urnar. En Valtýr seilist líka til
liðinna tíma, yrkir um Reyni-
staðarbræður þunga dóma á Lög-
bergi, eyðibýli, ömmu sína og afa.
Skáldið beinir sjónum sínum að
nútímanum í ljóðum um sjónvarp,
rauðsokkur og verðbólguna. Einn-
ig er þar að finna ýmis tækifæris-
ljós.
Árið 1982 eru liðin 100 ár frá
fæðingu Björns Guðmundar
Björnssonar. Björn var fátækur
bóndi á rýrri jörð framan af ævi,
missti fjölskyldu sína og átti við
andstreymi að etja. Björn var
trúmaður, skapstór og tilfinninga-
ríkur, en þótti sanngjarn í félags-
málum. Pótt Björn G. Björnsson
væri alla tíð ljóðelskur, hóf hann
ekki yrkingar fyrr en á miðjum
aldri. Ljóðin í GLÆÐUM koma
hér langflest á prent í fyrsta sinn.
Skáldskapur Björns varð til við orf-
ið og hefilbekkinn, sem sagt „dags-
ins önn.“
Porsteinn frá Hamri og Sigurður
A. Magnússon völdu Ijóðin.
Hefur það
bjargað þer
-----: 9__________
Auglýsing
frá launasjóöi
rithöfunda
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun
fyrir árið 1983 úr Launasjóði rithöfunda sam-
kvæmt lögum nr. 29/1975 og reglugerð gef-
inni út af menntamálaráðuneytinu 19. októ-
ber 1979.
Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa íslenskir
rithöfundar og höfundar fræðirita. Heimilt er
og að greiða laun úr sjóðnum fyrir þýðingar á
íslensku. Starfslaun eru veitt í samræmi við
byrjunarlaun menntaskólakennara skemmst
til tveggja og lengst til níu mánaða í senn.
Höfundur sem sækir um og hlýtur starfslaun í
þrjá mánuði eða lengur skuldbindur sig til að
gegna ekki fastlaunuðu starfi meðan hann
nýtur starfslauna. Slík kvöð fylgir ekki tveggja
mánaða starfslaunum, enda skulu þau ein-
vörðungu veitt vegna verka sem birst hafa
næsta almanaksár á undan.
Skrá um birt ritverk höfundar og verk sem
hann vinnur nú að skal fylgja umsókninni.
Umsóknum ber að skila á sérstökum eyðu-
blöðum sem fást í menntamálaráðuneytinu.
Mikilvægt er að spurningum á eyðublaðinu
sé svarað og verður farið með svörin sem
trúnaðarmál.
Umsóknir skulu sendar fyrir 31. desember
1982 til menntamálaráðuneytisins, Hverfis-
götu 6, Reykjavík.
Reykjavík, 20. nóvember 1982
Stjórn Launasjóðs rithöfunda.
Frá Sjálfsbjörg
Reykjavík og
nágrenni
Félagsfundur verður haldinn laugardaginn
27. nóv. kl. 13.30 í Félagsheimili Kópavogs,
Fannbraut 2. Nánari upplýsingar á skrifstofu
íélagsins í síma 17868.
iit
roskahjálp
Landssamtökin Þroskahjálp efna til ráð-
stefnu um hlutverk heilsugæslustöðva
fyrir þroskahefta laugardaginn 27. nóvem-
ber 1982 kl. 10 -16.30 að Hótel Loftleiðum.
Allt áhugafólk velkomið.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Asparfelli 12 - sími 74544
Óskum eftir fósturheimilum fyrir börn 8-12
ára, helst á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Nánari upplýsingar á Félagsmálastjórn
Reykjavíkurborgar, Asparfelli 12, sími
74544.
• Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garöabæ
önnumst þakrennusmiði og
uppsefningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468