Þjóðviljinn - 26.11.1982, Blaðsíða 15
Föstudagur 26. nóvember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19
RUV <9
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í
mund. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun-
orð: Guðmundur Einarsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Komm-
óðan hennar langömmu" eftir Birgit
Bergkvist Helga Harðardóttir les þýð-
ingu sína (4).
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 „Það er svo margt að minnast á“
Torfi Jónsson sér um þáttinn. Fluttur
verður bókarkafli eftir Vilhjáim S. Vil-
hjálmsson og ljóð eftir séra Sigurð Ein-
arsson.
11.00 íslensk kór- og einsöngslög.
11.30 Frá Norðurlöndum Umsjón: Bor-
gþór Kjæmested.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Á frívaktinni Sigríður Sig-
urðardóttir kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Á bókamarkaðinum Andrés Björns-
son sér um lestur úr nýjum bókum.
Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
15.00 Miðdegistónleikar Fílharmóníu-
sveitin í New York leikur Slavneskan
mars eftir Pjotr Tsjaíkovský; Leonard
Bernstein stj./ Shmuel A^shkenasi og
Sinfóníuhljómsveitin í Vín leika Fiðiu-
konsert nr. 1 í D-dúr eftir Noccoló Pag-
anini; Heribert Esser stj.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.20 Útvarpssaga barnanna: „Leifur
heppni“ eftir Armann Kr. Einarsson.
Höfundurinn lýkur lestri sínum (10).
16.40 Litli barnatíminn Stjórnandi: Gréta
Ólafsdóttir (RÚVAK).
17.00 „Fyrir sunnan“, bókarkafli eftir
Jennu Jensdóttur Höfundurinn les.
17.15 Nýtt undir nálinni. Kristín Björg
Þorsteindóttir kynnir nýútkomnar
hljómplötur.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.40 Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Lög unga fólksins. Hildur Eiríksdótt-'
ir kynnir.
20.40 Frá Zukofsky-námskeiðinu í Reykja-
vík 1982 Sinfóníuhljómsveit Zukofsky-
námskeiðsins leikur; Paul Zukofsky stj.
a. Sinfónía í C-dúr eftir Igor Stravinsky.
b. „Lontano" eftir György Ligeti. c.
„Vorblót" eftir Igor Stravinsky.
21.45 Viðtalsþáttur Vilhjálmur Einarsson
ræðir við Egil Jónasson frystihússtjóra á
Höfn í Hornafirði.
22.35 Kvöldsagan: „Skáldið á Pröm“ eftir
Gunnar M. Magnúss Baldvin Halldórs-
son les (15).
23.00 Kvöldgestir - Þáttur Jónasar Jónas-
sonar. Gestir Jónasar verða Auður
Gunnarsdóttir hótelstjóri á Húsavík og
Áskell Jónsson söngstjóri.
00.50 Fréttir. 01.00 Veðurfregnir.
01.10 Á næturvaktinni - Sigmar B. Hauks-
son - Ása Jóhannesdóttir.
RUV
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Á döfinni Umsjón: Karl Sigtryggs-
son. Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
21.00 Prúðuleikararnir Gesur þáttarins er
bandaríski söngvarinn Mac Davis. Þýð-
andi Þrándur Thoroddsen.
21.35 Kastljós Þáttur um innlend og erlend
málefni. Umsjón: Margrét Heinreks-
dóttir og Sigrún Stefánsdóttir.
22.45 Á glapstigum (Badlands) Bandarísk
bíómynd frá 1973. Leikstjóri: Terrence
Malick. Aðalhlutverk: Martin Sheen,
Sissy Spacek og Warren Oats. Myndin
gerist í Suður-Dakóta og Montana um
1960. Aðalpersónurnar eru ungur skot-
vargur og unglingsstúlka á flótta undan
lögreglu eftir óhugnanlegt manndráp.
Þýðandi Björn Baldursson. Myndin er
alls ekki við hæfi barna.
00.20 Dagskrárlok.
.Martin Sheen í hlutverki ann- Holly sem leikin er af einni bestu leikkonu síðari tíma, Sissy Spacek.
arrar aðalpersonu myndar-
innar, Kit.
Föstudagsmyndin kl. 22.45:
Á glapstigum
Föstudagsmynd sjónvarps-
ins, Á glapstigum (Badlands)
er bandarísk frá árinu 1973.
Myndin gerist í Suður-Dakóta
og Montana og snýst sögu-
þráðurinn um ástir unglings-
stúlku og eilítið eldri unnusta
hennar. Faðir stúlkunnar set-
ur sig upp á móti sambandi
þeirra, en ekkert fær stöðvað
strák og stelpu ef bæði vilja.
Faðirinn fellur í valinn og par-
ið lendir á flótta undan lög-
reglunni. Fleiri morð fylgja í
kjölfarið.
Með aðalnlutverk fara
Martin Sheen, Sissy Spacek,
Warren Oates og Roman Bi-
eri. Leikstjóri er Terrence
Malick.
Kvikmyndahandbókin hef-
ur þessari mynd afbragðsgóða
einkunn eða þrjár stjörnur og
eru í þeim dómi dregin til vitn-
is mikið átorítet á sviði kvik-
myndanna. Hitt er svo annað
mál að fyllsta ástæða er til að
vekja athygli á að myndin er
alls ekki við hæfi barna.
Sjónvarp
kl. 21.00
Prúðu-
leikarar
Gestur Kermits og
Svínku og annarra
umsjónarmanna þessa
þáttar er í kvöld
bandaríski söngvarinn
og lagasmiðurinn Mac
Davis.
___________Útvarp kl. 22.35_____
Skáldið á Þröm
Baldvin Halldórsson les úr bók Gunnars M. Magnús,
sem unnin var úr æviminningum Magnúsar Hjaltasonar
Mörgum mun áreiðanlega
þykja fengur í að hlusta á upp-
lestur Baldvins Halldórs-
sonar á verki Gunnars M.
Magnúss, Skáldið á Þröm.
Líkt og Halldór Laxness sótti
Gunnar efnivið sinn í bók sína
í hina döpru jarðvist al-
þýðuskáldsins Magnúsar
Hjaltasonar sem lést úr innan-
meinum á miðjum aldri.
Skáldið á Þröm er í raun
ævisaga Magnúsar og því ekki
færð í búning skáldsögunnar
eins og Halldór gerði í
Heimsljósi.
Þetta er 15. lestur Baldvins.
Gunnar M. Magnúss rit-
höfundur.
___frá lesendum____
Hugleiðing um landnám
Glúmur
Hólmgeirsson
skrifar:
Alþekkt er að tvennum
augum lítum við fslendingar á
sögu okkar. Ráðandi mun sú
skoðun, og virðist frekast hjá
fræðimönnum, að trúa beri
frásögn Ara fróða, að hér hafi
verið óbyggt land er Norð-
menn námu hér land. Aðrir
draga sögu Ara í efa og telja,
að víða í frásögn hans skíni
það í gegn, að hér hafi verið
mikil byggð áður en norrænir
menn komu.
Það styður þessa skoðun að
ýmislegt hefur fundist, svo
sem fornir peningar o.fl., sem
bendir til eldri búsetu í
landinu. En menjar bygginga
frá eldri búsetu hafa ekki ver-
ið fundnar svo öruggt sé, enda
virðist ekki mikill hugur á því
að leita þeirra.
í Þorskafirði heita Kolla-
búðir. Segir Ari Jöchumsson,
en hann lifði fram á þessa öld,
að hann hafi séð á Kolla-
búðum kringlótt grjótbyrgi og
jafnvel eitt uppi standandi.
En á írlandi voru og eru þau
alþekkt. Aldrei hefur heyrst
að íslenskir fræðimenn hafi
forvitnast um þessar Kolla-
búðir.
En svo er skýrt frá því í
fyrrahaust, 1981, að fundist
hafi í Vestmannaeyjum
hústóft, sem talið var öruggt
að væri eldri en norrænt
landnám, en nánari rannsókn
yrði að bíða næsta sumars. Nú
er það sumar liðið og ekki get-
ið neinna tíðinda af rannsókn
á nefndri hústóft. Hefur allur
áhugi á rannsókn runnið út í
sandinn? Ég man ekki betur
en kona, sem var fyrir nokkr-
um árum að rannsaka gamlar ■
byggingaleyfar í Vestmanna-
eyjum, þættist hafa orðið vör
leyfa af byggingum frá eldri
tíð en norrænu landnámi, og
fengi litlar þakkir fyrir.