Þjóðviljinn - 04.12.1982, Side 11

Þjóðviljinn - 04.12.1982, Side 11
Helgin 4. - 5. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA II Sögufélag ísfirðinga_____________ Ársritið er komið út Ársrit Sögufélags ísfirðinga 1982 er nýlega komið út. Þetta er 25. árgangur og hefst ritið að þessu sinni með minningargrein um Ólaf Þ. Kristjánsson eftir Gils Guðmundsson, en Ólafur var í ritstjórn ársritsins 1964 til ævi- loka og birti þar fjölda greina um söguleg efni og ættfræði. Núver- andi ritstjóri er Steingrímur Jónsson sagnfræðingur, en aðrir í ritstjórn eru þau Eyjólfur Jóns- son, Jón Þ. Þór, Lýður Björnsson og Sigurlaug Bjarnadóttir. Af efni ritsins að þessu sinni má nefna: Fréttabréf af Vesturlandi rituð 1776-1782 af séra Benedikt Páls- syni á Stað á Reykjanesi. Séra Benedikt var bróðir Bjarna land- læknis. Frásögn um surtarbrandsnám í Súgandafirði 1917-18 eftir Sigurð Thoroddsen verkfræðing. Björgunarafrek í Grunnavík- urhreppi, grein Guðrúnar Guðvarðardóttur. Fiskimið Súgfirðinga eftir Kristján Þorvaldsson. Guðmundur Jónsson frá Kaldá og Upphaf vélbátaaldar, hvoru- tveggja eftir Valdimar Þor- valdsson. Sjálfsævisögu Einars Jóns- sonar á Suðureyri. Steingrímur Jónsson skrifar tvær greinar aðra um Arnarnes- vitann og hina um F.A. Löve ljósmyndara, og fylgja henni margar myndir frá Vestfjörðum. Eyjólfur Jónsson segir frá nokkrum dánardögum er ekki finnast í kirkjubókum og dregur fram gamlar vegabótaskýrslur, og fleira er frá honum komið í þetta ársrit. Stutt ágrip um fiskveiðar er endurprentuð grein Ólafs Olaví- usar frá árinu 1771, eitt það fyrsta er skrifað var á íslensku um það efni. Ýmislegt fleira fróðlegt er í þessu ársriti, sem er fjölbreytt að efni. Á kápu er litprentuð mynd af merki Norður-ísafjarðarsýslu og ísafjarðarkaupstaðar er notað var á Alþingishátíð 1930. Og á baksíðu er listi með nöfnum þeim sem notuð voru á Samvinnufé- lagsbátana á ísafirði og leitað er höfundar að þeim nafngjöfum. Ritið færst hjá Sögufélagi ís- firðinga, Pósthólf 43, ísafirði og lausasala er í nokkrum bóka- búðum. Frederik A. Löve í nýútkomnu Ársriti Sögufélags ísfirðinga er sagt frá dönskum Ijósmyndara, sem var búsettur hér á landi á árunum 1871-1887. Hann hét Frederik A. Löve og var mágur Þorsteins Thorsteinssonar yngri (1835-1888) sem verslaði á Vatn- eyri og síðan á ísafirði. Frederik Löve starfaði sem Ijósmyndari í Reykjavík 1871-1872, en setti síðan upp ijósmyndastofu á ísafirði, þá fyrstu er þar var. Munu allvíða vera til myndir eftir hann, og í árs- ritinu eru birtar nokkrar útimynd- ir frá Vestfjörðum sem sumar hafa ekki sést áður. Frederik A. Lövé bjó á ísafirði til 1877 ogferðaðist m.a. umlandið og tók myndir, bæði af fólki og úti- myndir. Eftir það virðist hann hafa Ljósmyncktri áískmá 1871—1887 dvahð eitt ár í Danmörku, en var kominn til Reykjavíkur í árslok 1878 og bjó þar til 1887 er hann fluttist alfarinn til Danmerkur. Efíir að Löve kom til Reykjavíkur virðist hann hafa snúið sér að klæðasölu og í tengslum við hana stofnaði hann klæðskeraverkstæði hið fyrsta á íslandi og fékk danska klæðskera m.a. Andersen, Ander- son, Gránz og Rydén til landsins. ílentust sumir þeirra og eignuðust afkomendur. Löve bjó í Glasgow 1881, en 1882-1887 bjó hann í húsi Sigfúsar Eymundssonar, hins fræga ljós- myndara. Ekki er vitað hvað af glerplötusafni F.A. Löve varð, en hann dó í Danmörku 1929. Þess skal að lokum getið að Fre- derik A. Löve eignaðist son á ísa- firði með Sigríði Sæunni Jónsdótt- ur. Það var Carl Löve, síðar þekkt- ur skipstjóri á ísafirði. Sonur hans er Áskell Löve grasafræðingur, og dóttursonur Carls skipstjóra er Steingrímur Jónsson sagnfræðing- ur ritstjóri Ársrits Sögufélags ls- firðinga, en hann er einmitt höf- undur greinarinnar í ársritinu. - GFr. Vatneyri um 1880. Þessi mynd hefur ekki komið fram í dagsljósið fyrr en nú, en áður var haldið að elsta myndin af Vatneyri væri frá 1898. Þingeyri um 1880. Hi-Fi ^GRAND PRIXl AWARD ★ Á AudioVídéo Grand Prix sigurvegari í 3 ár Ertu að spá í gylliboð eða gæði? Kröfuhörðustu gagnrýnendur um allan heim eru sammála um að NAD eru hágæða hljómflutningstæki á ótrúlega lágu verði. „NAD á engan keppinaut í nálægum veröflokkum. Þaö er því auðvelt aö mæla með „NAD“ Hi-RAnswears NAD i B_ ÍÍ Éft 9 „NAD hefur bestu mögulegu „sound“ eiginleika af öllum útvarpsmögnurum í skaplegum verðflokkum“ Popular Hi-Fi „Flataratíönissviö á Dolby stillingu hefur Vart Sést “ Audio Magazine HELO-SAUNA Höfum ávallt fyrirliggjandi saunaofna og klefa á mjög hag- stæðu verði. Helo I stærð 162x205x201 cm. Innifalið í verði er klefi með ofni, bekkjum, lofti. grindum á gólfi, höfuðpúða, Ijósi og full eingangaður. Verð 24.000,- Helo III. Stærð 205x205x201 cm. Innifalið í verði sama og með Helo 1. Verð kr. 27.500.- Stakir ofnar 4.5 kw ofn kr., 5.573,- 6,0 kw kw ofn kr. 5.793,- 7.5 kw ofn kr., 6.315,- BENCO, Bolholti 4, sími 21945 Kristileg aiþjóðleg ungmennaskipti ICYE óska eftir starfskrafti í hálft starf sem er fólgið í almennum skrifstofustöfum. Góð enskukunnátta og vald á erlendum bréfaskriftum nauðsyn. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur rennur út 5. des. Umsóknir sendist á afgreiðslu Þjóðvilj- ans merkt „ICYE“.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.