Þjóðviljinn - 18.12.1982, Síða 11
Helgin 18. - 19. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Jóla-
skemmtun
á Hlemmi
í dag verSur haldin jólaskemmt-
un með ýmsum uppákomum í bið-
skýlinu á Hlemmi og hefst hún
klukkan 14.30. Það eru allir þcir
sem viðskipti reka á Hlemmi sem
standa að þessari skemmtun, sem
mun standa um það bil klukku-
stund.
Olga Guðrún
undirritar
hjá M ogM
í dag kl. 4-6 undirritar Olga
Guðrún Árnadóttir nýja skáldsögu
sína, Vegurinn heim, í Bókabúð
Máls og menningar.
Sérhannaðar
hátalara-
snúrur
í fréttatilkynningu frá fyrirtæk-
inu ;,Steini“ segir að á markaðinn
séu komnar sérhannaðar hátalara-
snúrur, „Monster Cable“ sem eru
samansettar úr 1000 til 2000
þráðum úr hreinum kopar og skili
þær 99% af tóni frá magnara til
hátalara í stað 86% í hæsta lagi,
með þeim snúrum sem notaðar
hafa verið til þessa. Fyrir bragðið
er minni hætta á að magnarinn
brenni yfir.
Leiðrétting
í bókmenntaskrifi á 13. síðu
blaðsins í gær féll niður nafn höf-
undar greinarinnar um „Bókina
um Ragnar í Smára“. Það var Hall-
dór B. Runólfsson sem hana skrif-
aði. I músíkumsögn á bls. 11 var
Jón Viðar Sigurðsson sagður Jóns-
son og er hann beðinn velvirðingar
á því.
Fyrstu sex ár barnsins
Mismunandi tekjur sveitarfélaganna
Tekjurnar ákvarðist
eftir tekjuþörfinni
IÐUNN hefur gefið út bókina
Barnið okkar. Fyrstu sex árin. Ilöf-
undur er Penelope Leach, breskur
sálfræðingur. Sigurður Thorlacius
læknir og Jón Sig. Karlsson sál-
fræðingur þýddu. I bókinni er mik-
ill fjöldi mynda.
Barnið okkar skiptist í sex aðal-
kafla þar sem þroska barnsins er
fylgt frá fæðingu og fram á forskóla-
aldur. í hverjum kafla er fjallað
um margbreytileg atriði sem varða
andlega og líkamlega líðan barns-
ins og samskipti þess við foreldrana
á þessu skeiði: líkamsþroska,
heilsufar, svefn, grát, máltöku,
leik, nám, aðlögun að umhverfinu
yfirleitt. Aftast er rækilegur upp-
flettikafli með hagnýtum ábend-
ingum. Myndir eru rúmlega fimm
hundruð, teikningar, ljósmyndir
og línurit.
segir Þórður Skúlason
,J>að verður að segjast eins og er
að sveitarfélögin eru í vítahring
þegar um er að ræða tekjustofna
þeirra. Þannig hefur ástandið verið
um árabil að þau sveitarfélög sem
mesta hafa tekjuþörfina fá minnst-
ar tekjurnar'*, sagði Þórður Skúla-
son sveitarstjóri á Hvammstanga.
„Okkur sveitarstjórnarmönnum
úti á landi hefur alltaf þótt óréttlátt
að reglur um fasteignamat og
álagningu fasteignagjalda skuli
vera hagstæðari sveitarfélögunum
á höfuðborgarsvæðinu. Þar hafa
menn í gegnum árin slegið sig til
riddara og lagt mun minna á en við
úti á landi, enda þótt það skili sér
engan veginn í lægri fasteigna-
gjöldum á íbúa svæðisins. Nýjasta
dæmið um þann leik eru yfirlýsing-
ar Sjálfstæðismanna í borgarstjórn
Reykjavíkur að þeir ætli að lækka
álagninguna í ár“, sagði Þórður
ennfremur.
„ Að mínu mati er það grundvall-
arskylda stjórnar Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga oe þeirra sem
með tekjumálin fara, að sjá til þess
að tekjurnar verði ákveðnar eftir
. .þörfinni á hverjum stað. Það er
sveitarstjóri
heila málið. í dag er ástandið þann-
ig að litlu sveitarfélögin fá hlutfalls-
lega mun lægri tekjur en þau stóru
og geta því ekki annað nema eins
og einu stóru verkefni í einu. Þjón-
ustan verður því minni og fjárhags-
aðstaðan erfiðari. Ég vil að lokurn
ítreka það sjónarmið að sveitarfé-
lögin sjálf taki um það ákvarðanir
hverjar tekjur þeirra skuli vera
hverju sinni. Það hlýtur að fara
best á því“, sagði Þórður Skúlason
að lokurn. - v.
KALDAL
LTÓSMYNDIR
ER KOMIN
Þetta er fyrsta bókin í bókaflokki um
íslenskar ljósmyndir og ljósmyndara
sem Ljósmyndasafnið hf. og Lögberg
bókaforlag gefa út.
Við hæfi þótti að helga fyrstu bókina
Jóni Kaldal, einum merkasta portrett
myndasmiði þjóðarinnar á þessari öld.
Mannamyndir Kaldals hlutu alþjóð-
legt lof á fjölda samsýninga sem honum
var jafnan boðið til þátttöku vítt og
breitt um veröldina, allt frá Kaup-
mannahöfn til Hong Kong og frá Berlín
til Brasilíu. Gull-, silfur- og bronsmeda-
líum rigndi yfir Kaldal úr öllum heims-
hornum fyrir afburða andlitsmyndir.
Thor Vilhjálmsson rithöfundur ritar
inngang að bókinni þar sem hann rekur
æviferil Jóns Kaldal og fjallar um list
hans. Bókina prýða 66 ljósmyndir auk
mynda í inngangi. Allar ljósmyndimar
eru gerðar eftir frummyndum lista-
mannsins. Bókin er prentuð í duotone.
Þetta er ekki aðeins vegleg jólagjöf
heldur einstæð gjöf við hverskonar
tækifæri.
A j Uógberg Bókaforlag
\°i- Þingholtsstræti 3, simi:21960
fo