Þjóðviljinn - 18.12.1982, Side 21
Helgin 18. - 19. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21
Minning
Byggingahappdrœtti SATT ’82
ída Pétursdóttir Bjarnason
Verðlaunagetraun - seðill 4.
Dregið út vikulega úr réttum svörum (Á fimmtudögum).
Rétt svör þurfa að hafa borist innan 10 daga frá birtingu hvers seðils.
Veistu svörin við þessum spurningum?????
1. Hvenær hófust maraþontónleikarnir í Tónabæ?
2. Hvert er markmiðið með maraþontónleikunum?
3. Hvað komust margar hljómsveitir í úrslit
í músíktilraunakeppni hjá SATT og Tónabæ?
4. Hvaða hljómsveit hlaut fyrsta sæti í úrslitunum
í maraþontilraunakeppninni?
Fyllið út í reitina hér fyrir neðan; nafn sendanda, heimilisfang, stað,
símanúmer. Utanáskriftin er: Gallery Lækjartorg Hafnarstræti 22 Rvík.
sími 15310. Látið 45 kr. fylgja með og við sendum um hæl 1 miða í
Byggingahappdrætti SATT (dregið 23. des.) ATH: Rétt svör þurfa
að berast innan 10 daga frá birtingu seðilsins en þá verður dregið
úr réttum lausnum. ^
Síðasti seðillinn
NAFN
HEIMILI-
STAÐUR-
SÍMI --
ATH: Utanáskrift: Gallery Læjartorg Hafnarstræti 22 Rvík. sími
15310
ATH: Þú mátt senda inn eins marga seðla og þú vilt. Kr. 45 þurfa að
fylgja hverjum seðli og þú færð jafnmarga miða í Byggingahappdrætti
SATT senda um hæl.
Jólagji
í ár er
íslensk
hljómplata
+ miði í
bygginga-
happdrætti
Vinningar í boði í verðlaunagetrauninni:
1. verðlaun IWAMA kassagítar - Frá versl. Tónkvísl kr. 1.970
2.-5. 5 stk. nýjar íslenskar hljómplötur: Bergþóra Árnadóttir/Bergmál
útg. Þor. Ríó Tríó/Best af öllu útg. Fálkinn h/f. Jarðlingar/Ljós-lifandi
útg. Bílaleigan Vík. Þorsteinn Magnússon/Líf útg. Gramm. Sonus
Futurae/Þeir sletta skyrinu...útg. Hljóðriti, dreif. Skífan. Verðmæti
u.þ.b. kr. 1.500.-
Heildarverðmæti getraunavinninga samtals kr. 8.600.
ÚRSLIT GETRAUNASEÐILS 1
VINNINGSHAFAR
1. Verðlaún KAWAI kassagítar frá hljóðfærav/ Rín verðmæti kr.2580
Sigríður Brynjólfsdóttir Melabraut 19 Garði
2.-5 Ingibjörg Kruger Skólagerði 34 Kópav.
Hanna Bryndís Þórisdóttir Fornósi 12 Sauðárkróki
Heiðar Bergur Heiðarsson Holtsgötu 37 RVK
Sigurður H.Sigurðsson Garðavegi 10 Hvammstanga
vel virtur af Dalabændum, sem sjá
má er þeir báru hann til skiptis fár-
sjúkan frá Sauðafelli til læknis í
Borgarnesi.
ída var sett til mennta. Hún var
við nám í Kvennaskólanum á
Blöndósi frá 1907-1909. Árið 1914
útskrifaðist hún frá Kennaraskóla
íslands og stundaði farkennslu víða
um land, en þó aðallega á Vest-
fjörðum. Árið 1923 sótti hún kenn-
aranámskeið í Askov í Danmörku,
og ári seinna kenndi hún við barna-
skólann á Þingeyri við Dýrafjörð.
Næsta ár var hún skipuð í starfið.
og ílengdist á Þingeyri um 30 ára
skeið.
ída var sérstaklega fríð sínum og
skipti fallega litum. Hún var mikil
fræðikona, víðlesin og ljóðelsk, en
vandlát hvort væru góðar eða lakar
bókmenntir. Að afla sér þekkingar
var viska í hennar augum. Þó að
ída hafi verið fíngerð og dul í skapi,
þá var hún mjög vönd að virðingu
sinni, og gat verið hörð ef því var
að skipta. Hún keypti lítið hús á
Þingeyri og ól þar upp sjálf dreng-
inn sinn, Ulfar Hilding, sem var
augasteinn móður sinnar, og
reyndist hann henni góður sonur.
Það var lærdómsríkt fyrir mig að
kynnast slíkri konu sem ída var, og
ég sem tengdadóttir hennar dáðist
að hennar sérstæðu greind og til-
svörum. Slíkra vitsmuna og sniðug-
heita hafði ég ekki þekkt til áður.
ída flutti frá Þingeyri til Reykja-
víkur og bjó í fáein ár á Brekkulæk
1. Þaðan flutti hún til okkar í
Garðabæinn, og dvaldist þar til
89 ára aldurs. Eftir það dvaldist
hún á Sólvangi, þar sem hún naut
góðrar umönnunar og hjúkrunar
þar til hún lést, 93 ára að aldri.
Nú eru leiðarlokin.
Eins og við lítum í bækur og
sjáurn myndir og letur, svo lítur
Guð í hjartað. Það vissi ída, og
einnig komst hún að raun um, að
ellin og eigið hyggjuvit voru bæði
þegar til kastanna kont „á sama
bekk".
Án Guds náðar er allt vorl traust
óstödugt, veikt og hjálparlaust.
H.P.
Drottinn blessi minningu hennar.
Ásdís Erlingsdóttir
Á morgun verður til moldar bor-
in frá Fossvogskirkju elskuleg
amma mín, ída. Við áttum margar
ánægjustundirsaman. Þegar égbjó
við Sundlaugaveg, var enginn
góður dagur liðinn fyrr en ég hafði
lallað til ömmu að Brekkulæk 1,
þar sem hún bjó. Hún tók alltaf vel
á móti mér og gátum við setið heilu
stundirnar saman. ída amma mín
var fróð kona og átti auðvelt með
að segja lítilli hnátu sérstakar og
skemmtilegar sögur.
Hún kenndi mér að lesa og var
alltaf jafn áhugasöm við að halda
mér við bókina. „Mennt er máttur"
sagði hún, enda var hennar aðal
áhugamál að lesa góðar bækur og
átti hún mikið af þeim. Ef hún tók
sér eitthvað fyrir hendur, var það (
vel gert. Öll hennar fallega handa- ;
vinna sýnir það. ída amma mín var I
virðuleg og stolt kona með brún
gáfuleg augu sem voru full af skiln-
ingi. Ekki var henni gjarnt á að
flíka tilfinningum sínum en rök- j
hyggjumanneskja var hún mikil. i
Með þessum fáum orðunt kveð I
ég ídu ömmu mína en mun alltaf j
minnast hennar með söknuði og i
virðingu.
Peta
Ég vil af alhug þakka alla þá vinsemd og virðingu, sem
vinir mínir og kunningjar hafa sýnt mér með góðum
kveðjum og óskum og gjöfum í tilefni af sjötugsafmæli
mínu 4. september s.l.
Einkum vil ég þakka sýslunefnd Skagafjarðarsýslu,
stjórn Kaupfélags Skagfirðinga, stjórn Fiskiðju
Sauðárkróks og stjórn Sjúkrahúss Skagfirðinga, svo
og starfsfólki mínu í sýsluskrifstofu og lögreglu
héraðsins, fyrir sérstaka virðingu og vinsemd mér
sýnda.
Ég flyt yður öllum kæra kveðju og bestu óskir um
farsæla framtíð, gleðileg jól og heillaríkt komandi ár.
Jóhann Salberg Guðmundsson.
Draumur
Tónlistarmannsins
VINNINGAR í BYGGINGAHAPPDRÆTTI SATT:
(Dregiö 23. des. 82)
1. Renault 9 kr. 135.000,-
2. Fiat Panda 3. Kenwood og AR kr. 95.000-
hljómtækjasamstæða 4-5. Úttekt í hljóðfæraversl Rin & kr. 46.000.-
Tónkvísl að upph kr. 20.000 - samt. kr. 40.000-
6. Kenwood ferðatæki ásamt tösku kr. 19.500-
7. Kenwood hljómtækjasett í bílinn 8-27. Úttekt í Gallery Læjartorgi og kr. 19.500,-
Skífunni-íslenskar hljómplöfur (að upph. kr. 1.000.-) kr. 20.000,-
(Ath. verömæti vinninga miðað við apríl 1982)
Verðmæti vinninga alls kr. 375.000 -
Á morgun 20. desember verður
jarðsungin frá Fossvogskapellu Ida
Pétursdóttir Bjarnason.
ída var dóttir Hildar Amalíu
Karólínu Sigurðardóttur og Péturs
Magnúsar Bjarnasonar. Móðir
Hildar hét Sæunn, og var hún dótt-
ir sr. Þorleifs Jónssonar, prófasts í
Hvammi í Dölum, og konu hans
Þorbjargar Hálfdánardóttur prests
á Mosfelii. Systir Sæunnar hét Jó-
hanna Kristín, sem giftist Hákoni
Bjarnasyni, kaupmanni á Bíldu-
dal. Jóhanna Kristín var móðir
Lárusar H., Ágústs og Ingibjarg-
ar Bjarnason fyrrverandi alþingis-
konu og skólastjóra Kvenna-
skólans í Reykjavík. Pétur Magn-
ús, faðir ídu, var sonur Stefáns
Bjarnasonar, sýslumanns m.a.á
ísafirði, og konu hans Karen Emil-
ie Bjarnason.
ída ólst upp hjá þeim ágætis-
hjónum Sigmundi Grímssyni og
Steinunni Jónsdóttur á Skarfsstöð-
um í Dölum. En Steinunn lést árið
1900, þegar ída var 11 ára. Seinni
kona Sigmundar hét Sigurbjörg
Jónsdóttir.
ída sagði mér að hún hafi átt
góða assku. Hún minnist oft á æsku-
vinkonur sínar, m.a. Steinunni
Þorgilsdóttur sem var á líkum aldri
og hún, en afi Steinunnar var fóst-
urfaðir ídu. Einnig minntist hún
með sérstökum hlýhug á föður-
bróður sinn, Björn heitinn Bjarna-
son, sýslumann á Sauðafelli, en
hann reyndist frænku sinni einkar
vel. Hann gerði sér far um að hitta
hana ef leið lá urn, og hann gaf
henni gullpening þegar hún fermd-
ist. Eitt sinn sagði hann við ídu:
ída mín! Mundu, að þér liggja stór-
ar ættir. Þetta átti að vera hvetj-
andi, og ábending til hennar að
standa sig vel í lífinu. Björn heitinn
gerði sér ekki ntanna mun og var
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma
ída Pétursdóttir Bjarnason
Mávanesi 2, Garðabæ
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu mánudaginn 20.
desember kl. 3 e.h.
Úlfar Hildingur Nathanaelsson
Sigríöur ída Úlfarsd. Mahanti
Úlfhildur Sigríður Úlfarsdóttir
Petrína Sæunn Úlfarsdóttir
Þorsteinn Erlingur Úlfarsson
Ólafur Helgi Úlfarsson
og barnabarnabörn
Ásdís Erlingsdóttir
Dr. Jogesh C. Mahanti
Ólöf Pálína Úlfarsdóttir
Björn Logi Björnsson
Erlingur Pétur Ulfarsson
Helga Gunnarsdóttir
Þökkum auösýnda samúð viö andlát og útför
Kristjönu Bjarnadóttur
frá Stakkhamri
Börn, tengdabörn og barnabörn.