Þjóðviljinn - 24.12.1982, Side 7
Föstudagur 24. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Áhrit
myndbanda
ábörn
og ungiinga
ofbeldismynda þar sem ofbeldið er framið
einungis ofbeldisins vegna og í þriðj a lagi er
algengt að það sé fegrað með einhverjum
hætti, sett fram í hetjubúning og túlkað
með jákvæðum hætti, þannig að áhorfand-
inn fær samúð með helsta fólkinu sem
myrðir og meiðir á báða bóga. En fyrst og
fremst er það ofbeldið með raunveruleika-
blæ sem virðist vera hættulegast fyrir áhorf-
endurna11.
Þessi tegund mynda er ný af nálinni eða
hvað? Ekki voru Dracúla og Frankenstein
skapaðar eftir þessum formúlum?
„Nei, þeir félagar og ýmsir aðrir voru af
gamla skólanum. Eldri hryllingsmyndir
voru yfirleitt tiltölulega meinlausar og um-
fram allt óraunverulegar, þannig að áhorf-|
andinn átti nokkuð auðvelt með að skiija á
milli draums og veruleika. Sama er að segja1
með ýmiss konar teiknimyndapersónur
eins og t.d. Tomma og Jenna. Þar er ofbeldi
vissulega til staðar, en það er ekkert sem
bendir til að það hafi mikil og djúpstæð
áhrif á krakkana sem horfa á. Þau gera sér
allan tímann grein fyrir því, að þetta eru
bara teiknimyndapersónur, dregnar upp
með blýanti'*.
Greinileg
stéttaskipting
Urðuð þið varir við einhverja ákveðna
stéttaskiptingu í sænsku könnuninni?
Horfðu krakkar úr einni starfsstétt meira á
t.d. myndbönd en aðrir?
„Það kom afar vel í lj ós að áhugi stráka úr
verkalýðsstétt, var meiri en annarra. Einn-
ig var einkennandi að þeim sem mest
horfðu á myndbönd, þessum harða ca. 15%
kjarna, sem horfði á allt upp í margar
myndir á dag, gekk yfirleitt illa í skólanum.
Það var alveg ákveðin fylgni á milli slæmra
einkunna og mikillar setu fyrir framan sjón-
varpstækið. Nú er erfitt að greina á milli
orsaka og afleiðinga í þessu, en vegna þess
hve nýlega myndbandavæðingin hélt inn-
reið sína er áhrifanna á frammistöðu ung-
linganna í skóla lítið farið að gæta. En víde-
óið bætist við sem nýr þáttur sem lokar
leiðum fyrir krakka sem standa sig illa í
námi“.
Frumskógarlögmálin ráða
„Þessi ofboðslega sprenging sem hefur
verið hér á íslandi hvað myndbandavæðing-
una varðar er ekkert íslenskt sérfyrirbrigði.
Svona hefur þetta verið allt í kringum okk-
ur og þar er reynslan sú að vídeóið er komið
til að vera - þetta er ekki stundarfyrirbrigði
sem gengur yfir. Hins vegar sýnir reynslan
okkur að áhuginn dvín og sjónvarpsglápið
verður ekki eins ofboðslegt þegar frá dreg-
ur. Um leið aukast kröfur áhorfendanna
um betri gæði og meiri fjölbreytni í rnynd-
vali. Þess vegna held ég að stór hluti af
soranum sem núer til reiðu í myndbanda-
leigunum hverfi smám saman og að
leigjendur verði vandaðri að virðingu sinni.
Það breytir ekki því, að löggjafinn á íslandi
hlýtur að koma inn í myndina fyrr en síðar;
en geri hann það ekki, uppskerum við
margvísleg skaðvænleg áhrif hjá
óhörðnuðum unglingum sem eytt hafa ailt
of stórum hluta frítímans við að horfa á
ómanneskjulegar myndir sem á skjánum
kunna að birtast11, sagði dr. Elías Héðins-
son félagsfræðingur að síðustu.
-v.
Kór Langholtskirkju_________________________
Flytur Jóla-
óratoríuBachs
Nú eigum við þess kost í fyrsta
sinn hér á landi að heyra Jólaórat-
oríu J.S. Bachs flutta óstytta. Svo
er Kór Langholtskirkju fyrir að
þakka. Hann flytur þctta
heimsfræga tónverk í Langholts-
kirkju dagana 28. og 29. des. nk.
en vegna þess hve verkið er langt
verður flutningi þess skipt á tvo
daga. Báðir tónleikarnir hefjast kl.
20,30.
Einsöngvarar með kórnum eru
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Sol-
veig M. Björling, Michael Coldt-
horpe og Halldór Vilhelmsson.
Kammersveit annast undirleik en
konsertmeistari er Michael Shelt-
on. Stjórnandi er Jón Stefánsson.
Sala aðgöngumiða er hafin og fer
hún fram í Langholtskirkju, Tón-
verkamiðstöðinni Freyjugötu og
hjá Guðmundi Hermannssyni úr-
smið Lækjargötu 2.
Jólaóratorían verður flutt í hinu
nýja kirkjuskipi Langholtskirkju.
Eins og áður hefur verið frá skýrt
hér í blaðinu efndi Kór Langholts-
kirkju til svonefndra „Hitatón-
leika“ nú í öndverðum desemb-
ermánuði. Tilgangurinn með þeim
var að safna fé til þess að kosta
ORKUBÚ VESTFJARÐA
Orkubú Vestfjarða óskar eftir tilboðum í efni
vegna 66 kV háspennulínu frá Mjólkárvirkjun
til Tálknafjarðar.
Útboðsgögn 101: Pressure treated wood
poles.
Verkið felst í að afhenda 620 fúavarða tré-
staura.
Útboðsgögn 102: Conductors and stay wire.
Verkið felst í að afhenda 150 km af álblöndu-
leiðara og 15 km af stálvír.
Afhending efnis skal vera 1. maí 1983.
Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 18. janúar
1983.
Útboðsgögn 101, kl. 11:00.
Útboðsgögn 102, kl. 14:00.
Tilboðum skal skilatil Línuhönnunar hf, verk-
fræðistofu, Ármúla 11, 105 Reykjavík fyrir
opnunartíma og verða þar opnuð að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess
óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Orkubús
Vestfjarða, Stakkanesi 1,400 ísafirði og hjá
Línuhönnum hf, verkfræðistofu Ármúla 11,
105 Reykjavík frá og með miðvikudeginum
22. desember 1982 og greiðist kr. 100 fyrir
eintakið.
Bach
hitalögn í kirkjuna. Inn komu 210
þús. kr. og hefur kórinn nú afhent
upphæðina' gjaldkera sóknar-
nefndarinnar. Síðan hefur bráða-
birgðahitalögn verið komið uppí
kirkjunni.
-mhg