Þjóðviljinn - 24.12.1982, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 24. desember 1982
Okkur þótti við hæfi að helga þetta aðfanga-
dagsblað Pjóðviljans friðarmálum. Það er verðugt
umhugsunarefni, nú um hátíðirnar, að valdsmenn
heimsins, sem nú ráða yfir kjarnorkusprengjum er
að sprengjumætti samsvara einni miljón Hiro-
shima-sprengjum, skuli áforma að stórauka þetta
vopnaforðabúr sitt.
„Tilkoma kjarnorkunnar hefur breytt öllu nema
hugsunarhætti okkar, og því stefnum við á vit
meiri hörmunga en saga okkar kann frá að
greina“, sagði Albert Einstein. Það er sögulegt
hlutverk friðarhreyfinganna í heiminum að breyta
hugsunarhættinum og stöðva vitfirringuna. Lesum
hvað sérfróðir menn hafa um málin að segja.
Edward M. Kennedy og Mark O. Hatfield:
Stöðvun kjamcffkuvígbúnaðar
Nýlega kom út í íslenskri þýöingu hjá
Máli og menningu bókin Stöðvun
kjarnorkuvígbúnaðar eftir
bandarísku
öldungardeildarþingmenninaEdward
Kennedy og Mark O. Hatfield. Bókin
er einskonar greinargerð með tillögu
þeirri sem þeir hafa lagt fyrir
Bandaríkjaþing og nýtur þar mikils og
vaxandi stuðnings. Bókin hefur
jafnframt orðið eins konar stefnurit
hinnar öflugu og sívaxandi
friðarhreyfingar í Bandaríkjunum, en
styrkur hennar sýndi sig best í síðustu
áfangakosningum til þingsins þar sem
fylgjendurtillögunnarreyndustí
miklum meirihluta kjósenda í þeim
ríkjum Bandaríkjanna þar sem kosið
var sérstaklega um þessa tillögu.
Þjóðviljinn birtir hér kafla úr bókinni í
þýðingu þeirra Jóns Guðna
Kristjánssonar, Tómasar Einarssonar
og Þrastar Haraldssonar.
Inngangsorð bókarinnar
Þann 10. mars 1982 kynntum við
þingsályktunartillögu þar sem hvatt var til
gagnkvæmrar og sannanlegrar
kjarnorkuvopnastöðvunar Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna. í kjölfar hennar skyldu
svo fylgja viðræður um verulega fækkun
kjarnorkuvoþna. í Fulltrúadeildinni var
tillagan borin fram af Edward J. Markey og
Silvio O. Conte frá Massachusetts og
Jonathan B. Bingham frá New York. Þegar
þetta er ritað hafa meira en 190 þingmenn
lýst sig fylgjandi tillögunni. Kennedy-
Hatfield tillagan hefur nú þegar haft þau
áhrif að þjóðin er sér meðvitaðri um þau
örlagaríku mál sem kjarnorkuvopnaeftirlit
og kj arnorkustríð eru. En í raun og veru er
ályktunin afleiðing af grasrótarhreyfingu
sem nær þvert yfir Bandaríkin.
A blaðamannafundinum þar sem tillagan
var kynnt stóðu við hlið okkar fulltrúar frá
þeirri hreyfingu sem berst fyrir stöðvun,
kirkjuleiðtogarog
vopnaeftirlitssérfræðingar sem gera sér
ljóst hversu brýnt er að leitað verði nýrra
leiða til að stöðva sívaxandi
kjarnorkuvígbúnaðarkapphlaup. Mikill
fjöldi einstaklinga og samtaka af ýmsum
toga hafa lýst yfir stuðningi við Kennedy-
Hatfield tillöguna, þótt ekki tengist þeir
allir þessu máli beint. Meðlimir þeirra
samtaka sem berj ast fyrir óspj allaðri
náttúru skilja t.d. að þeirra óskir og vonir
geta ekki orðið að veruleika í
kjarnorkuauðn. Forseti Landssambands
kvenna gerir sér ljóst að þarna er um að
ræða mál sem mestu skiptir fyrir allar
lifandi verur. Stuðningur almennings við
kjarnorkustöðvun hefurfarið hraðvaxandi
um allt landið. Hundruð borgarafunda hafa
ályktað þar um; borgarráð og
löggjafarsamkomur einstakra ríkja hafa
ályktað á svipaðan veg. f Kaliforníu verður
kosið um þetta í nóvember nk. og í ýmsum
öðrum ríkjum vinnur grasrótarhreyfingin
að því að koma þessu á kjörseðilinn.
Kennedy-Hatfield tillagan er eina
tillagan sem liggur fyrir þinginu og hefur
stuðning Fjóöarsamtakanna fyrir
kjarnorkustöðvun. Orðalag hennar er
hliðstætt því sem nefndirnar fyrir
kjarnorkustöðvun í Massachusetts og
Kaliforníu létu frá sér fara. Tillagan er skýrt
og ákveðið ávarp sem sérhver þegn getur
lesiðogsvarað.Textinnerauðskiljanlegur
og ótvíræður:
Þar sem mikilvægasta verkefni okkar í
dag er að koma í veg fyrir að
kjarnorkustyrjöld brjótist út, hvort sem er
fy rir slysni eða af ásettu ráði;
Þarsem kjarnorkuvopnakapphlaupið
eykur háskalega hættuna á gjöreyðingu
sem yrði hinsta styrjöld mannkyns; og
Þar sem þörf er stöðvunar sem fylgt væri
eftir með verulegri fækkun kjarnaodda,
eldflauga og annarra árásartækja til að
stöðva kjarnorkuvopnakapphlaupið og
draga úr hættunni á kjarnorkustríði;
Alykta Öldungadeild og Fulltrúadeild
Bandaríkjanna á sameinuðu Þjóðþingi;
1. Að í þágu eftirlits með langdrægum
vopnum skuli Bandaríkin og Sovétríkin nú
þegar:
a. stöðva kjarnorkuvopnakapphlaupið
algjörlega.
b. ákvarða hvenær og hvernig
framkvæmd skuli gagnkvæm og sannanleg
stöðvun er nái til tilrauna, framleiðslu og
frekari dreifingar kjarnodda, eldflauga og
annarra árásartækja og
c. athuga sérstaklega þá gerð vopna sem
fyrir hefur verið komið og ætla mætti að
gerðu stöðvun erfiðari en ella.
2. í kjölfar þessarar stöðvunar skulu
Bandaríkin og Sovétríkin gagnkvæmt og
sannanlega fækka verulega kjarnaoddum,
eldflaugum og öðrum árásartækjum. Miða
skal við árlegan hundraðshluta eða aðra
árangursríka tilhögun þannig að stöðugleiki
aukist.
Allan þann tíma sem við höfum starfað
að stjórnmálum höfum við báðir tekið þátt í
baráttunni fyrir vopnaeftirliti. Viö höfum
rætt það við bæði bandaríska og sovéska
forseta og barist fyrir því í
Öldungadeildinni. Kennedy-Hatfield
tillagan er síðasta skrefið í þessum stöðugu
tilraunum. Þessi bók er ekki aðeins hugsuð
sem innlegg í baráttunni fyrir
kjarnorkustöðvun, heldur einnig fyrir þá
þegna sem þátt taka í baráttunni. í bókinni
eru ræddar áhættur og afleiðingar af
kjarnorkustríði, takmarkaður árangur af
vopnaeftirliti og hvernig það hefur
misheppnast og hvernig barist skuli fyrir
kjarnorkustöðvun. í níunda kafla er svarað
þeim fimmtíu spurningum sem mestu
skipta varðandi stöðvun. í þessari bók
getur lesandi séð hvað muni gerast á hans
heimaslóðum ef til kjarnorkustríðs kemur
og hann getur komist að því hvað hann geti
gert til þess að koma í veg fyrir það. Það er
margt ógnvekjandi í þessari bók, en það er
líka margt sem vonir vekur. Hættan er
mikil, en möguleikinn á friðsamlegri þróun
er jafnmikill. Það er trú okkar að þessi bók
geti að minnsta kosti lagt þeirri þróun
svolítið lið.
Washington, D.C.
12. apríl 1982,
Edward M. Kennedy
Mark O. Hatfield