Þjóðviljinn - 24.12.1982, Síða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 24. desember 1982
Kjarnorkuoddar í langdrægum
landeldflaugum (ICBM). Sovétríkin hafa
nú 5540 odda og Bandaríkin 2152.
(Heimild: Center for Defence
Information, CDÍ)
„Svo viröist sem Reagan for-
seti og ráðgjafar hans búi sig
undir kjarnorkustyrjöld viö So-
vétríkin. “
Þessi orð voru niðurstaða ný-
iegrar skýrslu frá bandarísku
rannsóknarstofnuninni Center
for Defence Information, þar
sem fjallað var um áform stjórn-
arinnar varðandi endurnýjun
langdrægra vopna.
Aform sovéskra stjórnvalda eru ekki
eins þekkt, en fyrrv. yfirmaður sænsku
rannsóknarstöðvarinnar SIPRI, Frank
Barnaby, hefur dregið þá ályktun af sínum
athugunum, að „allt bendi til að Sovétríkin
fylgi Bandaríkjunum í þróuninni á þeirri
stefnu er miði að því að há kjarnorkustyrj-
öld“. Það eru hin nýju sovésku vopn ergefa
þetta til kynna.
Fjölgun kjarnorku-
vopna
Bæði stórveldin munu á næstu árum
fjölga stórlega í birgðum sínum af
kjarnorkusprengjuoddum fyrir langdrægar
eídflaugar. Núverandi fjöldi sprengjuodda
sést í töflunni hér til hliðar, en SIPRI hefur
ályktað að Bandaríkin muni á árinu 1985
hafa komið^ér upp 12.599 sprengjuoddum
til þessa hluta vopnabúrsins og að Sovét-
ríkin muni þá verða komin upp í 12.136
sprengjuodda.
Framtíðaráform Bandaríkjanna eru bet-
ur þekkt, því framtíðarfjárveitingar til her-
mála eru ræddar fyrir opnum tjöldum á
bandaríska þinginu.
Þannig hefur Cenierfor Defence Inform-
ation komist að þeirri niðurstöðu, að
Bandaríkin áformi að framleiða 17.065-
17.545 nýja kjarnorkusprengjuodda íöll sín
langdrægu og meðaldrægu skotvopn á ár-
unum 1982-1989. Mest af þessu á að fara í
langdrægu eldflaugarnar.
Aðrir sérfræðingar hafa komist að þeirri
niðurstöðu fyrir samtökin Arms Control
Association að þessi tala verði mun hærri,
eða allt að 37.000 sprngjuoddar í langdræg
og meðaldræg skotvopn. Þá er ekki tekið
með í reikninginn að eitthvað af eldri vopn-
um verður tekið úr notkun.
Kjarnorkuoddar um borð í langdrægum
kafbátum. Sovétríkin eiga 1970 odda og
Bandaríkin 4744. (Heimild: CDI)
Magn og
„gœði“
Þessar tölur gefa einhverja hugmynd um
það hvert vígbúnaðarkapphlaupið stefnir,
en það sem skiptir máli er þó ekki bara
magnið, heldur ekki síður eyðileggingar-
máttur og „stríðshæfni" þessara nýju
vopna.
Alþjóðlega rannsóknarstofnunin SIPRI í
Stokkhólmi hefur gert rannsókn á væntan-
legri tækniþróun í vopnaframleiðslunni og
komist að þeirri niðurstöðu, að „jafnvægið
á milli stórveldanna tveggja hvað varðar
Kjarnorkuoddar um borð í langdrægum
sprengjuflugvélum. Sovétríkin eiga 290
og Bandaríkin eiga 2640 odda. (Heimild:
CDI)
langdræg flugskeyti með kjarnorkuvopn
verði sífellt óstöðugra.“
Ástæðan liggur í vaxandi ótta um að hin
nýju vopn verðu notuð til skyndiárásar -
sem líka mætti kalla forskotshögg - en þá
yrði skotmarkið vopnabúr og stjórnstöðvar
andstæðingsins.
Það verður ekki nauðsynlegt að eyði-
leggja að fullu og öllu vopnabúr andstæð-
ingsins til þess að koma í veg fyrir að hann
geti svarað árás. Samkvæmt þessu er gengið
út frá því að „forskotshöggið“ nái til það
stórs hluta vopnabúrsins, að ekki taki því
að endurgjalda árásina, því andsvarið yrði
svo öflugt að það myndi þurrka þann sem
Heildarfjöldi kjarnorkusprengjuodda í
langdrægum vopnum: Bandaríkin eiga
9536 sprengjur og Sovétríkin 7800.
(Heimiid: CDI) (Hver eldflaug á
myndinni táknar 20 sprengjuodda) Ath.
að þessi samanburður, sem er
Sovétríkjunum greinilega í óhag nær
ekki til meðaldrægra eldflauga.
upphaflega varð fyrir árás út af landakort-
inu. Því myndi sá er fyrst yrði fyrir árás játa
ósigur sinn.
Forskotshöggið
Það er í meira lagi umdeilanlegt, hvort
leiðtogar stórveldanna mundi bregðast við
með þessum hætti ef til árásar kæmi. Og
jafnvel þótt bæði stórveldin óttist nú þegar
slíkt „forskot“, þá leikur vafi á að núver-
andi langdræg vopn geti greitt slíkt „for-
skotshögg“ sem hér um ræðir. Tæknileg
vandamál gra allar fræðilegar bollalegg-
ingar um slíkt vafasamar.
Bandaríkin hafa alltaf verið leiðandi
hvað fjölda langdrægra kjarnorkuvopna
snertir. Hin mikla aukning
Bandaríkjanna á árunum 1970-75 stafar
af því að þá hófu Bandaríkin framleiðslu
svokallaðra MIRV-vopna, en það eru
eldflaugar sem borið geta marga
sjálfstýrandi sprengjuodda. Sovétríkin
hófu smíði slíkra vopna 5 árum síðar eða
1975.
Hins vegar er vitað að þau vopn, sem nú
er verið að undirbúa smíði á munu leysa
mörg þessara „tæknilegu vandamála“, og
þar með verður óttinn við „forskotshöggið“
raunverulegri og þýðingarmeiri. Hann gæti
til dæmis leitt til þess að Sovétríkin myndu
skjóta sínum eldflaugum við kreppuað-
stæður eða meðan á hefðbundinni styrjöld
stæði, þar sem varnarkerfið segði, að
kjarnorkuárás væri á leiðinni.
Varnarkerfin hafa áður brugðist, og þau
eru reyndar ein megin ástæða þess að
SIPRI dregur þá ályktun að jafnvægið á
milli stórveldanna eigi eftir að verða sífellt
óstöðugra í framtíðinni. ólg Inf.
Kapphlaup til heljar
Fjölskylduskemmtun
að deginum
Verð kr. 75.-
Unglingaskemmtun
um kvöldið
fyrir13ára og eldri
14.00-14.15
Höllin opnuð - innganga
14.15-15.00
Stuðmenn spila og sprella
15.00-15.45
Skemmtidagskrá
Syngjandi Grýla
Danssýning
Katla María
Kór frá Keflavík
Verðkr. 100.-
21.00-01.00
Stuðmenn sjá um fjörið.
.tvVAHf//, tiMi.
15.45-16.30
Stuðmenn spila og sprella
í annaðsinn
16.30-17.15
Skemmtidagskrá endurtekin
17.15-18.00
Stuðmenn spila og sprella
í þriðjasinn
Auk þess verður hátíðarstemming í Höllinni með fljúgandi
Leppalúða sem dreifir sætindum, míní Tívolí, furðudýrum, jólasveinum,
púkum og álfum, gengið í kringum jólatré, og margt, margt fleira
gert sér til gamans.