Þjóðviljinn - 25.02.1983, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 25. febrúar 1983
Bridge
Spil 30 var slemmu „sving" og aftur til
Jóns Hjalta, sem haföi nú tekiö 17 impa
forystu í leiknum. Næsta spil vakti mikinn
fiöring meöal áhorfenda: S gefur / NS á
hættu:
Norður
S AKD5
H AK108542
T A
L 4
Vestur Austur
S G97 S 1043
H D7 H G963
T K954 T D72
L Kd96 L A107
Suöur
S 862
H -
T G10863
L G8532
Þegar spilið birtist á skerminum sást aö
Sigurður og Valur höfðu neytt færis til hins
ýtrasta:
Suöur Vestur Noröur Austur
pass pass 1 L pass
1 T pass 2 H pass
2 Gr. pass 3 S pass
4 S pass 6 S pass/hr.
Lokasögn noröurs, sem í fljótu bragöi
sýnist mjög djörf, er í rauninni sjálfsögö ef
vel er aö gáð. Þó þekki ég ekki hvort 2
grönd suðurs neita fjórum spilum í spaða,
en býst tæpast viö aö svo sé. Hvaö um þaö
xxxx - Gxx - xxx i spaða, í versta falli
virðist slemman 50%, ef suöur á síðast
talda spaöann.
Það kom því I raun ekki á óvart, aö Jón-
Símon fetuöu nákvæmlega sömu leið i
slemmuna.
I leik Ólafs-Egils „fann" vestur tígul-
opnun á hrökin og afleiðingin eftir þvi.
Noröur doblaði og Jón Alfreðs. í austur
fann náðarstunguna: 1-H! Úttekt náöist
ekki. Á hinu borðinu valdi suður að sítja i
doblinu. Vafasöm, en þó réttlætanleg á-
kvöröun. 300 til N/S.
Skák
Karpov að tafli - 102
Þeir Semion Furman og Efim Geller,
aöalþjálfarar og aðstoðarmenn Karpovs I
einvíginu viö Spasskí höföu greinilega lagt
til málanna að Karpov gerbreytti byrjana-
kerfi sínu. Karpov sagði síðar að þegar
áskorendaeinvigin hófust hafi hann orðið
þess áskynja að byrjanirnar voru fáar og
ekki ýkja hættulegar. Hann breytti því til
þegar einvígið við Spasskí hófst. Þegar i 2.
einvígísskák beitti hann byrjun fátæka
mannsíns, Caro — Kann vörn. Niöurstaöan
varö jafntefli eftir 17 leiki. 3. skák var lista-
vel tefld af beggja hálfu...
8
7
6
5
4
3
2
1
Karpov - Spasskí
29. ... Rf5!
(Fantaleikur. Eftir 30. ex(5 e4! er staöan
mjög óljós. Líkt og Capablanca og Fischer
sniðgengur Karpov óljósar flækjur og
leikur...)
30. Bxg5! Rd4
31. bxc5 Rxc5
32. Hb6 Bf6
33. Hh1 + ! Kg7
(III nauðsyn. Hvítur vinnur létt eftir 33. - Kg8
34. Hxd6!)
34. Bh6+ Kg8
35. Bxf8 Hxf8
36. Hxd6 Kg7
37. Bd1!
- og Karpov með skiptamun yfir, vann
stuttu síðar og jafnaði metin. Þess má geta
að reglur kváðu á um að sá ynni einvígið er
fyrr sigraði í fjórum skákum.
Félag
forrœðislausra
feðra stofnað
„Sérlega
ráð-
gefandi
samkoma”
Hinn 8. mars 1843 kom út kon-
unglegur úrskurður um endur-
reisn Alþingis, samkvæmt fyrir-
hcitum, sem um það höfðu verið
gefin 20. maí 1840. Dönsku stctt-
aþingin höfðu fjallað um málið og
voru einkum þrjú atriði, sem þar
var ágreiningur um:
1. Hvort gefa ætti tilskipunina út
sem bráðabirgðalög, sem
Alþingi gæti breytt ef það kysi
er það kæmi saman í fyrsta
sinn.
Hvort íslenska skyldi ein-
göngu töluð á þinginu.
Hvort umræður skyldu fara
fram í heyranda hljóði eða
ekki.
Niðurstaða þessara bollalegg- .
inga varð þessi:
Að tilskipunin yrði ekki gefin
út sem bráðabirgðalög heldur
sem endanleg ákvörðun, sem
mætti þó síðar breyta ef ástæða
þætti til.
—■- ^
2.
3.
Þannig var umhorfs á Hólavallatúni um 1840. Myllan í baksýn.
Að íslenska skyldi töluð á þing-
inu en konungsfulltrúa þó heim-
ilt, ef hann þyrfti þess með, að
nota dönskuna. Heimilt væri
honum og að fá sér aðstoðar-
mann, sem hjálpaði honum til
að skilja íslenskuna.
Að umræður færu ekki fram í
heyranda hljóði. Fyrir þeirri á-
kvörðun voru færð þau rök, að
áheyrendur myndu aldrei verða
nema fáir og nógsamlega væri
komið til móts við þá, sem fylgj-
ast vildu með þingstörfum, að
gefa þingtíðindin út á prenti.
Samtímis úrskurðinum var gef-
in út konungleg tilskipun „um
skipun sérlegrar ráðgefandi sam-
komu fyrir ísland, er á að nefnast
Alþingi". Fól hún í sér fyrirmæli
um tölu þingmanna, kosningarétt
og kjörgengi, kjördæmaskipun
og kjörfundahald, störf þingsins,
kosningu embættismanna þess og
nefnda, meðferð mála, atkvæða-
greiðslur o.fl. Voru lög þessi í öll-
um meginatriðum sniðin eftir
lögunum um dönsku „Umdæm-
astöndin".
Ekkert jafnrétti meðan brotið er á
karlmönnum þegar deilt er um yfirráðarétt,
segir einn stofnenda,
Kristinn Grétar Jónasson
Þó að jafnréttisumræða seinni
tíma hafi að mestu leyti beint at-
hygli sinni að stöðu konunnar í
samfélaginu, þá hafa ýmis öhnur
mál sem tengjast réttlætiskröfum
karla fengið kröftuga umræðu.
Karlmenn hafa þolað að gengið
sé á þeirra hlut þegar til kasta
kemur vegna hjónaskilnaðar eða
sambandsslita. Þegar barist er, í
þess orðs fyllstu merkingu, um
umráðarétt yfir börnum, er stað-
an harla ójöfn. Samkvæmt upp-
lýsingum Hagstofunnar hafa
börn farið til mæðra í nær 99%
tilvika þegar um skilnað er að
ræða. Þær tölur spanna yfir tíma-
bilið 1961-’81, en tölur yfir árið
1982 eru ekki handbærar. f þeim
undantekningartilvikum, sem
konur fá ekki umráðarétt yfir
börnum sínum, er það yfirleitt af
ástæðum tengdum geðrænum
kvillum ellegar ef um eiturlyfja-
sjúklinga er að ræða. Þess ber
auðvitað að geta að lángoftast
tekst samkomulag um þetta at-
riði, en ef um ósætti er að ræða
getur slíkt haft hinar verstu af-
leiðingar.
Nokkrir einstaklingar, sem
hafa í hyggju að stofna félagsskap
sem þeir nefna Félag forræðis-
lausra feðra, vilja meina, að langt
sé í land í átt til jafnræðis í þessum
efnum. Ekki einasta fái konan
nær undantekningarlaust forræði
barna sinna, heldur er því í
sumum tilvika svo farið, að um-
gengnisréttur er mjög af skorun
skammti. Stundum gefst feðrum
enginn kostur á að hitta börn sín
og dómar hafa fallið sem meina
feðrum aðgang að börnum
sínum.
í tilkynningu sem stofnendur
hinna fyrirhuguðu samtaka FFF,
hafa sent frá sér, segir að til-
gangur félagsskaparins sé „... að
ná fram þeim rétti sem karlmenn
hafi hingað til ekki haft ... því
fram að þessu hefur ætíð verið
gengið á rétt karlmanna".
Jafnrétti ekki hér
meðan brotið er
á karlmönnum
Einn aðalhvatamaður að
stofnun samtakanna FFF er
Kristinn Grétar Jónasson. Hann
hefur persónulega reynslu af
þessum málum og sú reynsla varð
m.a. til þess að hann fór að beina
kröftum sínum til þess að stofna
samtök sem bætt gætu stöðu karl-
manna. Hann var spurður hvað
unnið væri með slíkum sam-
tökum:
„Þegar ég fór af stað með þess-
ár hugmyndir mínar, mestmegnis
af éigin þrjósku, þá taldi ég ein-
faldlega að með því að koma á fót
félagi, sem berðist fyrir auknum
réttindum karla á þessu sviði, þá
væri mun meira gagn gert, heldur
en að hver væri að puða í sínu
horni. Upphaflega skrifaði ég í
DV og óskaði eftir félagsskap, og
stóð ekki á viðbrögðum. Ég hygg
að þeir séu í kringum 20 sem
standa að stofnun þessara sam-
taka, en það er þó auðvitað ekki
nema lítið brot af þeim stóra hópi
karla sem eiga rétt sinn að sækja.
Stofnfundurinn verður haldinn
19. mars næstkomandi.“
- Nú ert þú einn aðalhvata-
maður að stofnun félagsins. Hvað
kemur til að þú leggur á þessa
braut?
„Það munu vera tvö ár frá því
að ég skildi við fyrrverandi konu
mína. Við áttum tvö börn saman,
en einnig átti hún tvö börn frá
fyrra hjónabandi. Ég fór fram á
að fá forræði allra barnanna,
bæði okkar og hennar, og má
kannski segja að það hafi verið
mín mistök í þessum málum. Ég
lagði það til grundvallar þegar ég
fór fram á að fá forræði allra
Kristinn Grétar Jónsson: „Spurning um jafnrétti“
barnanna, að þeim sem konan
átti úr fyrra hjónabandi hefði ég
gengið í föður stað að einu og öllu
leyti. Faðir þeirra kom aldrei til
að heimsækja þau. í kjölfar þess-
arar málaleitanar færðist mikil
harka í þessi mál. Umráðaréttur-
inn var dæmdur konunni í vil, og í
eitt ár fékk ég ekki að sjá börnin,
jafnvel þótt ég fengi í hendurnar
hreinan og kláran lögfræðiúr-
skurð. Þetta viðkvæma deilumál
kom svo til kasta Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar, en
menn geta auðveldlega séð í
hendi sér hvílíkur aðstöðumunur
það er þegar annar aðilinn fer
með börnin í viðtal en hinn ekki.
Þegar spurt er um hvar barnið
eða börnin vilja vera eru satt að
segja allar líkur á að þau svari
fylginaut sínum, föður eða móð-
ur, í vil. Þessi mál breyttust svo til
betri vegar og nú er fyrirkomu-
lagið þannig að ég fæ að sjá börn-
in á milli kl. 13 og 19 annan hvern
sunnudag."
- Er mikið um það að feður
hafi ekki umgengnisrétt við börn
sín?
„Margir þeir sem hafa verið í
óvígðri sambúð fá ekki að um-
gangast börn sín og hvað forræði
varðar þá er sjaldnast nokkur
spurning um það hver fær barnið.
Því má ekki gleyma að um ára-
mótin 1981 - ’82 var lögum breytt
og eiga þau lög að bæta rétt karl-
manna, en ég get ekki séð að þau
hafi 'í reynd breytt svo miklu.
Rétturinn er allur konunnar
megin.“
Kristinn Grétar sagði í lok
samtalsins að Félag forræðis-
lausra feðra væri samtök sem
væru til þess að koma á réttlæti og
jafnrétti sem svo margir berðust
fyrir í íslensku þjóðfélagi. Hann
kvaðst vonast eftir sem bestum
undirtektum við stofnun fé-
lagsins.
Stofnfundurinn verður sem
áður segir þann 19. mars næst-
komandi, en fundarstaður verður
auglýstur síðar.
- hól.