Þjóðviljinn - 25.02.1983, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 25.02.1983, Blaðsíða 15
Föstudagur 25. febrúar 19831 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19 RUV 9 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í mund. 7.25 Leikfimi. 9.05 Morgunstund barnanna: „Vefurinn hennar Karlottu“ eftir E.B.White Ragn- ar Þorsteinsson þýddi. Geirlaug Þor- valdsdóttir les (6). 9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir 10.30 „Mér eru fornu minnin kær“ Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli sér um þáttinn (RÚVAK). 11.00 íslensk kór- og einsöngslög 11.30 Frá Norðurlöndum Umsjónarmað- ur: Borgþór Kjærnested. Lesari: Hrafn Hallgrímsson. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Á frívaktinni Margrét Guð- mundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 „Vegurinn að brúnni“ eftir Stefán Jónsson Þórhallur Sigurðsson les (10). 15.00 Miðdegistónleikar Erick Friedman og Sinfóníuhljómsveitin í Chicago leika Inngang og Rondó capriccioso fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Camille Saint- Saéns; Walter Hendl stj./Lazar Berman leikur á píanó Mefistovals nr. 1 eftir Franz Liszt/Arnold van Mill syngur at- riði úr óperum eftir Otto Nicolai og Al- bert Lortzing með kór og hljómsveit undir stjórn Roberts Wagners. 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.20 Utvarpssaga barnanna: „Leitin að Ljúdmílu fögru“ eftir Alexander Puskin 16.40 Litli barnatíminn Stjórnandi: Gréta Ólafsdóttir (RÚVAK). 17.00 Með á nótunum Létt tónlist og leiðbeiningar til vegfarenda. Umsjónar- menn: Ragnheiður Davíðsdóttir og Tryggvi Jakobsson. 17.30 Nýtt undir nálinni Kristín Björg Þor- steinsdóttir kynnir nýútkomnar hljóm- plötur. Tilkynningar. 20.10 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor- oddsen kynnir. 20.40 Kvöldtónleikar a. Sellósónata nr. 1 í B-dúr op. 45 eftir Felix Mendelssohn. Paul Tortelier og Maria de la Pau leika. b. Oktett í B-dúr op. 156 eftir Franz Lachner. Consortium classicum kamm erflokkurinn leikur. 21.40 Viðtal Vilhjálmur Einarsson ræðir við Sigríði Sigurðardóttir, Berunesi, Berufirði. j22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Lestur Passíusálma I (23). 122.40 Kynlegir kvistir X. og síðasti þáttur - „Kraftaverkið“ Ævar R. Kvaran flytur frásöguþátt um Jón biskup Ög- mundsson. 23.10 Kvöldgestir - Þáttur Jónasar Jónas- sonar 01.10 Ánæturvaktinni-SigmarB. Hauks- son - Ásta Jóhannesdóttir. JB 17.45 ísland - Spánn Bein útsending urn gervihnött frá heimsmeistarakeppninni í handknattleik í Hollandi. 19.15 Hlé 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig- tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir. 20.50 Skonrokk Dægurlagaþáttur í umsjón Eddu Andrésdóttur. 21.45 Kastljós Þáttur um innlend og erlend málefni. Umsjónarmenn: Bogi Ágústs- son og Ólafur Sigurðsson. 22.20 Annarra fé (L’argent des autres) Ný frönsk bíómynd. bamahorn Er ekki unnt aö fœra umrœðu- þættina fram? Sjónvarpsáhugamaður skrifar: Eg er ekki einn af þeim, sem tek undir það, að Sjónvarpið sé lélegt. Og ég held næstum að það mundi vera nokkuð sama hvernig það væri, ein- hverjir mundu alltaf nöldra út í það samt. Sumt fólk er nefnilega haid- ið þeirri undarlegu áráttu, að þurfa alltaf að finna að öllum sköpuðum hlutum, sem aðrir gera. Mikil lifandis ósköp held ég að heimurinn og mannílfið væri nú „gott og fagurt og indælt“ ef þetta fólk fengi að móta það eftir sínum hug- myndum, eða haldið þið það ekki? Auðvitað má sitt hvað að sumu efni Sjónvarpsins finna og einum líkar þetta vel en öðrum hitt og einum þykir eitt slæmt, öðrum annað. Það er svo margt sinnið sem skinnið. Og nú ætla ég að koma með eina aðfinnslu, ekki um efni heldur niðurröðun þess í dagskránni. Hér á ég við unt- - ræðuþætti eins og t.d. Á hrað- bergi. Þetta eru oft góðir þætt- ir þó að misgóðir séu auðvit- að. Ég held að margir, ekki síst eldra fólk, vilji gjarnan fylgjast með þeim. En því þarf að hafa þá seinasta á dag- skránni? Þeim lýkur ekki fyrr en á þeim tíma þegar ýmsir vilja vera gengnir til náða, einkum gamla fólkið. Hversvegna má ekki skipta á þeim og ein- hverri kvikmyndinni? Færa hana aftur en þáttinn fram? Sú breyting kæmi sér áreiðan- llega vel fyrir marga og mundi vera vel þegin. Vera má að á þessu séu einhverjir örðug- leikar og væri þá gott að fá vitneskju um í hverju þeir væru fólgnir. Ég vil svo bara bæta því við, að þátturinn með Svavari var góður, Ingvi Hrafn er að vísu þannig á svipinn að engu er líkara en hann sé alltaf stólp- areiður. Hann þyrfti að reyna að vera ofurlítið hýrari. Og mikið kenndi ég í brjósti um aumingja stúlkuna af Morg- unblaðinu. Hún hefur sjálf- sagt verið talin eiga eitthvert erindi í þennan þátt - en hvert var það? Aí?sr() Þá í3 L6“"Rí V ,, ' I V' Þórður og Dögg Við fórum niður í ísaksskóla sl. fímmtudag og hittum þar nokkra krakka að máli. Sá fyrsti sem lenti í klónum á okkur sagðist heita Þórður og vera 5 ára. Hann var að byggja hús úr kubbum en það er það skemmtileg- asta sem hann gerir í skólanum. Hon- um fínnst líka mjög gaman að vefa og sýndi hann okkur vef sem hann gerði í vetur og bar hann svo sannarlega handbragð ungs og upprcnnandi listamanns. Næst hittum við að máli unga dís sem sagðist heita Dögg, hún var að teikna í vinnubókina sína. Hún sagði ekki margt, frekar hlédræg- eins og yngismey sæmir, en við fengum þó að glugga í vinnubókina hennar. Þar var mikið um fallegar teikningar, lit- skrúðugar með afbrigðum. Við þökk- uðum Dögg fyrir spjallið og lögðum leið okkar inn í leikfimisalinn. HHjv Lína Hún Ásthildur Linnet sem á heima á Hverfisgötu 23 í Hafnarfirði sendi okkur þessa ágætu mynd sem er, eins og allir sjá, af Línu langsokk. Kann- ski hefur Ásthildur farið á sýninguna í Þjóðleikhúsinu og þá fengið hug- myndina! Við þökkum Ásthildi kær- lega fyrir og hvetjum alla krakka til að senda okkur efni. m&T^o rí Fólkið á leið til bankastjórans! Hann Arnór Eyþórsson sem á heima á Hallveigarstíg 6 í Reykjavík og er 6 ára gamall sendi okkur þessa ágætu mynd. Þar má sjá fólkið á leið til bankastjórans sem situr við afar stórt skrifborð og á bak við hann er svo aðstoðarbankastjórinn og fylgist vel með. Takk fyrir, Arnór. Fólkið á leið til bankastjórans og þarf að ganga upp brattan stiga eins og venjulega. Mynd: Arnór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.