Þjóðviljinn - 25.02.1983, Side 11
„Stefnuleysi íflugmálum kemur í veg
fyrir það” segir Kristján Friðjónsson
„Það viðhald sem enn fer fram
erlendis er einungis á DC-8 vél
félagsins en aðeins ein slík er nú í
rekstri hjá okkur. Tvær áttur sem
við eigum eru nú í leigu og leigu-
takarnir sjá sjálfir urn viðhaldið.
Það er ýmislegt sem liggur að
baki því að viðhald á DC-8 er
ekki mögulegt hérlendis. Þar
kemur bæði til að aðstaða til þess
á Keflavíkurflugvelli er slæm og
sú DC-8 vél sem við erum nú með
í gangi hefur endastöðvar í
Bandaríkjunum og í Luxemburg.
Hún stoppar aldrei hér.“
- En hafa Flugleiðir í hyggju
að skapa þá aðstöðu hér á landi
sem þarf til að hægt sé að fram-
kvæma skoðun og viðhald á DC-8
vélunum hér?
„Það er nefnd í gangi sem er að
athuga það hvort hægt sé að flytja
viðhaldið heim. En það stefnu-
leysi í flugmálum, sem hér ríkir,
gerir það að verkum að við erum
mjög efins í því hvort það sé raun-
hæft. Við vitum ekkert nema
Arnarflugi verði afhent á silfur-
fati einhver af okkar flugleiðum á
morgun. Flugleiðir geta ekki far-
ið að leggja út í miljóna fjárfest-
ingar í flugskýlum og öðru meðan
staðan í flugmálum er eins ótrygg
og nú er. Það tekur mörg ár að
byggja upp þá aðstöðu sem við
þurfum til viðhalds DC-8 vél-
anna.“
- Er þá ekki réttast að koma
hér upp sameiginlegri viðhald-
saðstöðu fyrir flugfélögin sam-
eiginlega?
„Jú auðvitað er það hagkvæm-
ast að gera það. Og þar yrði ekki
bara um að ræða vélar Flugleiða
og Arnarflugs heldur Landhelgis-
gæslunnar og vélar Flugmála-
stofnunar einnig", sagði Kristján
Friðjónsson.
„Viðframkvæmum nú þeg-
ar aliar skoðanir á öllum
okkar minni flugvélum og
Boeing-þotunum hérá
landi“sagði Kristján
Friðjónsson deildarstjóri
tæknideildar Flugleiða þeg-
ar Þjóðviljinn spurði hann
um skoðanir og viðhald á
vélum félagsins hér innan-
lands. Einsog kunnugter
leggja flugvirkjar mikla
áherslu á að allt viðhald á
íslenskum flugvélum verði
fært inn í landið en það hef-
ur farið að mestu leyti fram
erlendis á stærri flugvéium
Flugleiða undanfarin ár.
Kristján Friðjónsson deildarstjóri tæknideildar Flugleiða.
Ljósm. - eik.
Allt viðhald
s
til Islands?
Hér má sjá einn af starfsmönnum viðhaldsdcildarinn-
ar skoða hæðarmæli. Borðið sem hann vinnur við er
útbúið lofthreinsitækjum þannig að það hreinsar loft-
ið sem er í herberginu og nær því rykhlutfallinu úr
100.000 rykögnum í rúmfeti niður í 10.000 rykagnir í
rúmfeti. Ljósm. - kjv.
Til að komast inn í viðgerðarherbergin þarf að fara í
gegnum tvennar dyr sem ekki er hægt að opna sam-
tímis. 1 herbergjunum er stöðugur yfirþrýstingur
þannig að ekkert „utanaðkoinandi" loft kemst inn um
dyrnar. Til þess að opna dyrnar er stigið á pcdalann
sem sést á gólfinu.
Föstudagur 25. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
9. fulltrúafundur Landssamtaka
Klúbbanna Öruggur akstur hófst í gær:
Eitt banaslys
kostar þjóðar-
búið 1,7 milj.
— var meðal þess sem kom fram á fundinum
Landssamtök Klúbbanna Ör-
uggur akstur hófu í gær 9. fulltrúa-
fund sinn í salarkyiuium Samvinnu-
trygginga að Ármúla 3. Fundur-
inn stóð fram á kvöld, og verður
haldið áfram í dag. Var hann upp-
byggður með erindum, starfi
stjórnar og fyrirspurnum. Meðal
gesta var saingöngumálaráðhcrra,
Steingrímur Hermannsson, en
hann flutti crindi á fundinum og
fjallaði það um vegagerð í landinu
og hina svokölluðu langtímaáætlun
í vegagerð sem samþykkt var frá
Alþingi árið 1981. 1. heiðursfélagi
Samtakanna var kjörinn, Baldur
Þ. Kristjánsson, en hann hefur um
langt skeið starfað ötullega að upp-
byggingu þeirra.
Auk samgöngumálaráðherra
flutti erindi á fundinum í gær Davíð
Gunnarsson framkvæmdastjóri, og
bar erindi hans yfirskriftina Hvað
kosta umferðaslysin? Þáð kom
frant í máli Davíðs að banaslys t'
umferðinni er sjöundi mesti bana-
valdurinn á íslandi og eru þá inni í
myndinni allir algengustu sjúk-
dóntar s.s. hjartasjúkdómar og
krabbamein. Hann sagði að kostn-
aður þjóðarbúsins vegna banaslysa
í umferðinni væri að meðaltali 1,7
miljón á slys og enn meiri væri
kostnaöurinn ef um slys væri að
ræða sem leiddi viðkomandi aðila
til ævarandi örkumla. Kostnaðar
þjóðarbúsins vegna slysa af þeirri
tegund var ntjög nálægt 4 miljón-
um. Sagði Davíð að slys í umferð-
inni í fyrra myndu kosta þjóðina
unt 440 miljónir. Öll fjárfesting til
varnar gegn slysum væri því ntjög
arðbær. Davíð sagði að erfitt væri
að rneta hið fjárhagslega tjón sem
verður vegna umferðarslysa og ekki
væri tekið inn í dæmið það tjón sem
aldrei verður rnetið til fjár, ómæld-
ar þjáningar þeirrjt sem í slysum
lenda og aðstandenda þeirra.
Steingrímur Hermannsson gerði
m.a. að umtalsefni langtímaáætlun
í vegagerð sem gert er ráð fyrir að
spanni yfir 12 ára tímabil. Ljóst
væri að mikið hefði unnist á síðustu
árum og benti hann m.a. á að 60%
bundins slitlags á vegum landsins
hefði verið lagt á síðustu þrem-
árum. Nú er búið að leggja bundið
slitlag á um 650 kílómetra, en í lok
áætlunarinnar er gert ráð fyrir að
bundið slitlag á vegum verði um
1750 kílómetrar.
Auk Davíðs og Steingríms tóku
til máls Ómar Ragnarsson frétta-
maður, sent talaði um þjóðvega.
akstur og Óskar Ólason yfirlögreglu-
þjónn sem ræddi um umferðina í
dag. Þá voru fyrirspurnir, kosið í
nefndir, skýrsla stjórnar lögð fram
o.s.frv. Var m.a. kosið í nefnd sem
sinnir störfum fyrir Island vegna
Norræna umferðaröryggisársins.
Störfum fulltrúafundarins verð-
ur haldið áfrani í dag.
Syæðamótin hafin
Ólafur Lárusson
skrifar um
bridge
Reykjanesmótið í sveitakeppni
hófst um síðustu helgi. Mótið er
jafnframt undankeppni fyrir ís-
landsmótið í sveitakcppni. Áðeins 7
sveitir mættu til leiks, sem að lík-
indum er lélegasta þátttaka á
landinu í svæðakeppni.
Lokið er 5 umferðum af 7, og er
staða efstu sveita þessi:
1. Sv. Ármanns J. Lárussonar 66 st.
2. sv.SigurðarVilhjálmss. 61 st.
3. sv.FriðþjófsEinarssonar 60 st.
4. sv. Aðalsteins Jörgcnsen 55 st.
2 sveitir komast áfram í íslands-
mót. Spiluð eru 16 spil milli sveita,
allir v/alla. Keppni lýkur á laugar-
daginn nk. Keppnisstjóri er Ólafur
Lárusson.
Frá Bridgesambandi
Suðurlands.
Suðurlandsmót í sveitakeppni
fór fram á Hvolsvelli helgina 11,-
13. febrúar sl., með þátttöku 15
sveita. Mótið var mjög jafnt og
spennandi allan tímann og það var
ekki fyrr en í síðustu umferðinni
sem úrslitin réðust.
Lokastaða mótsins var þessi:
stig.
1. Sv. Gunnars Þórðarsonar, B.S .. 231
(Gunnar Þórðarson, Kristján M.
Gunnarsson, Valgarð Blöndal og
Auðunn Hermannsson.)
2. Sv. LeifÖsterby, B.S........224
(Leif Österby, Brynjólfur Gestsson,
Halldór Magnússon og Haraldur
Gestsson.)
3. Sv. SigfúsarÞórðarsonar, B.S. 214
(Sigfús Þórðarson, Kristmann Guð-
mundsson, Kristján Jónsson, Jónas
Magnússon).
4. Sv. Hermanns Þ. Erlingss. B.M.L.
190
5. Sv. Runólfs Jónssonar, B.H...168
6. Sveit Hrannars Erlingss. B.S.164
Það urðu því sveitir Gunnars
Þórðarsonar og Leifs Österby sem
unnu sér rétt til þátttöku á Islands-
móti.
Spilastjóri var Guðmundur Kr.
Sigurðsson.
Frá Bridgefélagi
Suðurnesja
Nú stendur yfir 24 para
barometer-tvímenningskeppni hjá
félaginu. Félagsstarfið hefur verið
með miklum blóma þetta keppnis-
tímabilið, og mörg ný andlit hafa
sést grípa í spil. Félagið heimsækir
Bridgedeild Skagfirðinga á þriðju-
dag (í gær) til árlegrar keppni. En
eftir 1. kvöldið í barometer, er
staða efstu para þessi:
1. Arnór-Sigurhans 71 stig
2. Magnús-Karl 68 stig
3. Elías- Kolbeinn 50 stig
4. Magnús-Sigurjón 36 stig
5. Guðmundur-Snorri 34 stig
6. Sigurður-Jón Frím. 27 stig.
Frá Bridgefélagi
Hafnarfjarðar
Úrslit í Butler-tvímennings-
keppni félagsins urðu: Ásgeir P.
Ásbjörnsson-Friðþjófur Einars-
son 208, Guðbr. Sigurbergsson-
Kristófer Magnússon 203, Georg
Sverrisson-Kristján Blöndal 187,
Bjarni Jóhannss.-Magnús Jó-
hannsson 186.
Sl. mánudag hófst svo einmenn-
ingskeppni félagsins sem jafnframt
er firmakeppni.
Frá Bridgefélagi
Kópavogs
Fyrir síðustu umferð í aðal-
sveitakeppni félagsins var staða
efstu sveita þessi:
1. sveit Stcfáns Pálssonar 124stig
2. svcit FriðjónsÞóhallssonar 105stig
3. sveit Sigurðar Vilhjálmss. 96stig
4. sveit Ármanns J. Lárussonar
91 stig.
Fimmtudaginn í næstu viku hefst
. svo Barómeter-tvímenningskeppni
félagsins. Skráning er þegar hafin
en reiknað er með a.rn.k. 30 pörum
til keppni.