Þjóðviljinn - 25.02.1983, Síða 12
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN ' Föstudagur 25. febrúar 1983
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Stjórn Neytendafélags Reykjavíkur
og nágrennis:
Alþýðubandalagsfélögin í Keflavík
og Njarðvíkum - Áríðandi félagsfundur
Alþýðubandalagsfélögin í Keflavík og Njarðvíkum halda sameiginlegan
félagsfundföstudagjnn 25. febrúarkl. 20.30 íhúsi Stangaveiðifélagsins við
Suðurgötu, Keflavík.
Kynnt verður tillaga að framboðslista Alþýðubandalagsins í Reykjanes-
kjördæmi í komandi kosningum.
Svavar Gestsson og Einar Karl Haraldsson mæta á fundinn og kynna
hugmyndir laga- og skipulagsnefndar og að breyttu skipulagi og nýjum
starfsháttum Alþýðubandalagsins. - Félagar fjölmennum. - Stjórnirnar
Vantar samræmi í
afgreiðslutíma og
matvörur í sjoppur
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins
á Reykjanesi
Fundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Reykjanesi verður haldinn
laugardaginn 26. febrúar nk. kl. 14.00 í Þinghóli.
Dagskrá: 1. Tillaga kjörnefndar um framboð í komandi alþingiskosning-
um. 2. Kosningaundirbúningur. -Stjórnin.
Almennir fundir á Norðurlandi vestra
Alþýðubandalagið boðar til almennra funda í Félagsheimilinu á Hvamms-
tanga n.k. laugardag 26/2 kl. 16:00, í Félagsheimilinu á Blönduósi n.k.
sunnudag 27/2 kl. 16:00.
Frummælendur: Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra og Þórður Skúlason,
sveitarstj óri. -Alþýðubandalagið.
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði, Garðabæ
og á Seltjarnarnesi
Stjórn Neytcndafélags Reykja-
víkur og nágrennis samþykkti eftir-
farandi ályktun á fundi sínum 21/2
1983:
Stjórn Neytendafélags Reykja-
víkur og nágrennis vekur athygli á
því, að með núverandi afgreiðslu-
I tíma verslana í Reykjavík, einkum
matvöruverslana, hefur skapast
verulegt ósamræmi afgreiðslutíma
verslana höfuðborgarsvæðisins.
Að loknum almennum afgreiðslu-
tíma þurfa íbúar fjölmennasta
sveitarfélags landsins að leita í ná-
grannabyggðarlögin eftir nauð-
þurftum.
Það er skoðun NRON að stjórn-
ir sveitarfélaga eigi ekki að hafa
önnur afskipti af afgreiðslutíma
verslana en þau, er varðar gerð
rammareglna. Að öðru leyti skal
við það miðað, að afgreiðslutíminn
sé sem frjálsastur.
Nú eru í gildi úreltar reglur um
söluvarning í söluturnum (sjopp-
um). Skiptir í því sambandi engu
þótt matvöruverslun reki sölulúgu.
Henni er bannað að versla með
matvöru um lúguna, eftir að al-
mennum afgreiðslutíma verslana
lýkur. Virðist við það miðað að
helst skuli ekki selja aðrar vörur í
söluturnunum en þær sem kenna
má við óhollustu. Þetta er með öllu
óþolandi og greinilega sniðið að
hagsmunum annarra en neytenda.
Svo fremi sem söluturn fullnægir
öllum skilyrðum sem heilbrigðisyf-
irvöld setja, á hann að hafa leyfi til
þess að selja hvers konar ma-
tvörur.
MFA og
verkalýðsfélögin
í Borgarnesi:
Námskeið
um fram-
komu í
Árshátíð
Árshátíð Alþýðubandalagsfélaganna í Hafnarfirði, Garðabæ og á Sel-
tjarnarnesi verður haldin á Garðaholti laugardaginn 26. febrúar n.k.
Húsið opnar kl. 19 og þá veittur kokkteill. Heitur matur og þorramatur.
Margt góðra gesta mætir, m.a. Helgi Seljan og Elsa Kristjánsdóttir.
Gunnar Guttormsson og Sigrún Jóhannesdóttir skemmta með söng og
gítarleik. Miðaverð kr. 425.- Vínveitingar á staðnum. Hljómsveit Rúts
Hannessonar leikur fyrir dansi. Mikið fjör! Rútuferð að loknum dansleik.
Hafið samband við einhver eftirtalinna: Brynja Grétarsdóttir s: 53642,
Helga Gestsdóttir s: 53703, Jón Backmann s: 45914, Sæunn Eiríksdóttir s:
21859. Nánar auglýst síðar. - Árshátíðarnefndin.
Alþýðubandalagið Kópavogi
Bæjarmálaráð heldur fund í Þinghóli laugardaginn 26. febrúar kl. 10
árdegis.
Fundarefni:
1) Fjárhagsáætlun
2) Önnur mál Stjórnin.
Héraðsbúar-Austfírðingar
Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra verður
með framsögn á almennum fundi um Alusuisse-
málið í Valaskjálf Egilsstöðum sunnudaginn
27. febrúar kl. 16.00.
Aliir velkomnir. - Alþýðubandalagið.
Fra Æskulýðsnefnd AB.
Umræður um Alþýðubandalagið og stöðu
ungs fólks innan þess
Æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins efnir til fundar urn ofanskráð
efni sunnudaginn 27. febrúar, kl. 16.00 í Rein á AKRANESI.
Stjórn Æskulýðsnefndar mætir á fundinn.
AÍlt ungt stuðningsfólk Alþýðubandalagsins er velkomiö.
Opinn umræðufundur
Æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins heldur opinn umræðufund
fimmtudaginn 3. mars n.k., kl. 20.30 í Iðnaðarmannahúsinu Hall-
veigarstíg 1, Reykjavík.
Til hvers er
vísitölukerfið?
Frummælendur:
Svavar Gestsson, félagsmálaráð-
herra.
Björn Arnórsson, hagfræðingur
BSRB.
Eftir framsöguerindi verða hringborðsumræður með frummæl-
endum og fundargestum.
Ungir sósíalistar eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Allt áhugafólk velkomið.
ÆSKULÝÐSNEFND ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Flutningur í nýju flokksmiðstöðina
Sjálfboðaliðar óskast á morgun
Sjálfboðaliðar eru beðnir að koma að Grettisgötu 3, kl. 13 á morgun,
laugardag. Þá hefjast flutningar úr núverandi húsnæði í hina nýju flokks-
miðstöð við Hverfisgötu.
Munið að margar hendur vinna létt verk.
Leiðréttmg
Þau leiðu mistök urðu í opnu sérritsins um sjávarútvegsmál í gær að
rangur myndatexti fylgdi myndinni af fiskpakkningum Iceland Seafood.
Textinn átti að fylgja litlu lituðu myndinni á miðri opnu. Biðjumst við
velvirðingar á þessum mistökum.
sjónvarpi
Dagana 26.-27. febrúar mun
verða haldið námskeið í Borgarnesi
á vegum MFA og Verkalýðsfélags
Borgarness og Verslunarmannafé-
lags Borgarness. Rætt verður um
sjónvarpið og mun Magnús Bjarn-
freðsson þjálfa menn í framkomu í
sjónvarpi.
Þetta er 20. námskeiðið sem
haldið er í samvinnu MFA og stétt-
arfélaganna í Borgarnesi og hafa
um 200 manns sótt þau en þau hafa
verið öllum opin. Þar hafa menn
fjallað um ólíklegustu mál svo sem
hópefli, framsögn, hlutverk trún-
aðarmanns á vinnustað og félags-
málin almennt. Þá var í fyrra haldið
námskeið í samvinnu við Borgar-
nesdeild neytendasamtakanna.
Námskeiðið nú verður haldið í
félagsheimili verkalýðsfélaganna,
Snorrabúð og er hámark þátttak-
enda 20. _ v
Laga- og
skipulagsnefnd
Alþýðubandalagsins
Laga- og skipulagsnefnd
Alþýðubandalagsins efnir til
kynningarfunda á „Yfirlýsingu
Alþýðubandalagsins“ og
„Opinni hugmyndaskrá um nýtt
skipulag Alþýðubandalagsins“.
Á fundinum verður fjallað um
þær tillögur sem fram hafa
komið um nýtt skipulag og
starfshætti bandalagsins og rætt
um forsendur fyrir einingu
vinstri manna og leiðir til þess að
skapa nýja samfylkingu í
íslenskum stjórnmálum.
Á næstunni verða m.a. þessir
fundir haldnir:
t\ða
dV
Kefla vík/Nj arðvík
Föstudaginn 25. febrúar í húsi Stanga-
veiðifélagsins við Suðurgötu í Keflavík
kl. 20.30
Svavar Gestsson formaður Alþýðu-
bandalagsins og Einar Karl Haraldsson
formaður skipulagsnefndar mæta á
fundinn
Kópavogur
Miðvikudaginn 2. mars í Þinghóli kl.
20.30.
Engilbert Guðmundsson, ritstjórnar-
fulltrúi og Steingrímur Sigfússon
jarðfræðingur úr framkvæmdahópi
laga- og skipulagsnefndar o.fl. mæta á
fundinn.
Selfoss
Laugardaginn 5. mars kl. 15 í Tryggva-
skála.
Laga- og skipulagsnefnd sem sama dag
heldur fund sinn á Selfossi mætir í kaffi-
rabbi með félögum á Selfossi og í ná-
grenni.
Svavar Gestsson
Einar Karl Har-
aldsson
Engilbert
mundsson
Guð-
Steingrímur Sig-
fússon
HANDBÓKí UMRÆÐU
OPIN HUGMYNDASKRÁ
UM NÝTT SKIPULAG
ALÞ ÝÐUBANDALA GSINS
I ISLENSKUM STJÓRNMÁLUMi
™9i
islensha lelð
Nýjarleidir
I skipulegi og
sterfshinum