Þjóðviljinn - 25.02.1983, Page 16
DIODVIUINN
Föstudagur 25. febrúar 1983
Aðaisími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess
tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum
sínum: Ritstjórn 81382,81482og 81527. umbrot 81285. Ijósmvndir 81257.
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgrciðslu blaðsins í síma 81663.
Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og ertt blaðamenn þar á vakt öll
kvöld.
Aðalsimi Kvöldsími Helgarsími
81333 81348 afgrelöslu 81663
890 aldraðir bíða eftir íbúð hjá borginni
Verra ástand en nokkru slnnl
Næsta bygging eftir 3-4 ár!
Biðlistar aldraðra eftir leiguíbúð
eða plássi á dvalarheimilum
Reykjavíkurborgar hafa aldrci ver-
ið lengri. Um miðjan febrúar beið
761 einstaklingur eftir húsnæði og
115 hjón. Hafa rúmlega 100 cin-
staklingar bæst við listann frá því í
nóvember s.l. og 15 hjón. Af þeim
hópi sem nú bíður eru 130 manns
86 ára og eldri og 27 eru 91 árs og
eldri.
„Þetta er verra ástand en við höf-
um áður séð og engin ný úrræði í
sjónmáli", sagði Adda Bára Sigfús-
dóttir, sem sæti á í framkvæmda-
nefnd bygginga í þágu aldraðra. „í
fyrsta sinn frá 1975 er engin fram-
kvæmd í gangi á vegum nefndar-
innar, enda var það fyrsta verk
borgarstjóra að loknurn kosning-
um að leggjast á bygginganefndar-
teikningar að dvalar- og hjúkrunar-
heimili í Seljahlíðum, sem nefndin
hafði undirbúið á síðasta kjörtíma-
bili og hefjast átti handa við s.l.
haust.“
„Það sem síðan hefur gerst er að
boðuð hefur verið stefnubreyting,
- nú á að byggja söluíbúðir í stað
leiguíbúða og fjárframlag til þess-
ara verkefna hefur verið skorið
niður um helming,“ sagði hún.
Adda sagði að Seljahlíðarnar
yrðu í fyrsta lagi boðnar út á miðju
þessu ári úr því sem komið er og
Sagðist hún smeyk um að fjár-
veitingar til að drífa bygginguna
áfram yrðu rýrar. íbúðir fyrir aldr-
aða eru nú við Lönguhlíð, Dal-
braut, á Droplaugarstöðum, Furu-
gerði og Norðurbrún.
-ÁI
„Cannibal
Holocaust”
ISVIDEO
boðín
dómssátt?
Kæra Þjóðviljans á fyrirtækið
„ÍSVÍDEO“ fyrir drcilmgu á hinni
alræmdu ofbeldis- og hryllings-
mynd „Cannibal Holocaust" er nú
komin úr höndum embættismanna
ríkissaksóknara, en nú er um einn
og hálfur mánuður síðan Þjóðvilj-
inn gerði uppvíst að „ÍSVIDEO“
hefði myndspóluna til dreilingar.
Mál fyrirtækisins hefur farið
marga hringi í kerfinu. Eftir að
ríkissaksóknari fékk gögn í hendur
fór spólan til RLR, síðan aftur til
saksóknara og nú hefur saksóknari
sent frá sér greinargerð til saka-
dóms Kópavogs sem mun ákveða
síðustu aðgerðir.
í bréfi frá ríkissaksóknara til sak-
adóms stendur, að það sé skoðun
embættisins að myndin „Cannibal
Holocaust", sýning á henni og
dreifing, varði við 210. grein al-
mennra hegningarlaga. Ríkissak-
sóknari gerir það að tillögu sinni
að aðstandendum vídeóleigunnar
verði boðið upp á dómssátt, tií
greiðslu hæfilegrar sektar og að
títtnefnd spóluskömm verði gerð
upptæk.
Það er þó sakadóms Kópavogs
i að ákveða næstu aðgerðir í málinu,
en að sögn Sigríðar Ingvarsdóttur
dómarafulltrúa verður lagt sjálf-
stætt mat á mál þetta af hálfu emb-
ættis sakadóms Kópavogs.
Þess má að lokum geta að fyrir-
tækið „ÍSVIDEO" starfar enn í
sömu sjoppunni og áður, við versl-
unina Kaupgarð í Kópavogi.
- hól.
Forstjóri á Litla-
Hrauni
Gústaf
fékk
stöðuna
Dóms- og kirkjumálaráðherra,
Friðjón Þórðarson, hefur skipað
Gústaf Lilliendahl í stöðu forstjóra
Vinnuhælisins að Litla Hrauni frá
15. maí næstkomandi.
Gústaf tekur við starfi Helga
Gunnarssonar sem sagði upp störf-
um fyrir nokkru.
Gústaf er sem stendur verkstjóri
í tjóna- og tryggingardeild Eim-
skipafélags íslands.
- hól.
Bráðabirgðalögin
Komin í
nefnd
Bráðabirgðalögin „gömlu“ voru
til umræðu í efri deild alþingis í
gær.
Vegna breytinga sem gerðar
voru á frumvarpinu í neðri deild
þurfti málið að koma aftur til einn-
ar umræðu og nefndar öðru sinni í
efri deild. Eftir fjöruga umræðu
var málinu vísað til fjárhags- og
viðskiptanefndar, sem heldur fund
um bráðabirgðalögin í dag.
-óg
Rafmagns-
hækkanir
að sliga
þjóðina
Greinilega þyngra
fyrir með innheimtu
en verið hefur, segir
Ólafur H. Ólafsson
hjá Orkubúi
Vestfjarða
Þær miklu verðhækkanir á raf-
magni sem orðið hafa á síðustu
mánuðum og eru bcin afleiðing af
orkugjöf okkar íslendinga til Isal,
eru nú farnar að segja alvarlega til
sín.
í útvarpinu dynja auglýsingar
um lokun á rafmagni, séu reikning-
ar ekki greiddir. Ólafur Helgi
Ólafsson, fjármálastjóri Orkubús
Vestfjarða, sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær, að greinilega
væri þyngra fyrir með innheimtu
orkureikninga en verið hefði. Ætti
þetta bæði við hjá einstaklingum
og fyrirtækjum.
Ólafur sagði að Orkubú Vest-
fjarða hefði reynt að fylgja eftir
innheimtu raforkureikninga þann-
ig að sem minnst safnist upp af
skuldum, sem svo yrði enn erfiðara
að innheimta.
Kristján Jónsson, forstjóri RA-
RIK, sagði í gær að greinilega væri
að þyngjast fyrir með innheimtu
víða um land. Nefndi hann að mörg
útgerðarfyrirtæki stæðu illa hvað
jtetta varðar, sem og einstaklingar
líka.
Þess má geta að raforkuverð
Landsvirkjunar hækkaði um 119%
árið 1982, þ.e. heildsöluverð. Það
hefur verið reiknað út, að ef raf-
orkuverðið til ísal væri þrefaldað,
eins og sanngjarnt er talið, þá
myndi heildsöluverð á rafmagni
innanlands lækka um 50%. Hún er
því æði dýr raforkugjöfin okkar til
álhringsins.
-S.dór
í næstu viku verður Alþýðubandalagið að flytja
skrifstofur sínar af Grettisgötu 3 og því ríður nú á að
vel verði unnið um helgina. Hér sýnir Sigurjón Péturs-
son þeim Birgi Stefánssyni, Svavari Gestssyni og Er-
lingi Sigurðarsyni hluta af nýja húsnæðinu við Hverf-
isgötu 105. Ljósm. -eik.
Fiársöfnim hafin
Sjálfboðaliðar óskast um helgina
Þessa dagana eru að berast til
ýmissa stuðningsmanna Alþýðu-
bandalagsins gíróseðlar, þar sem
óskað er framlags í Sigfúsarsjóð,
sem fjármagnar bygingu og inn-
réttingar í nýju flokksmiðstöðinni,
Hverfisgötu 105. Sigurjón Péturs-
son, sem hefur umsjón með fram-
kvæmdum á Hverfisgötunni og
fjársöfnuninni, sagði í gær að við-
tökur væru enn sem komið er mjög
góðar og verkinu miðaði vel.
„Alþýðubandalagiö verður að
rýma skrifstofurnar að Grettisgötu
3 í næstu viku“, sagði Sigurjón,
„þannig að nú ríður okkur á að
halda áfrant á Hverfisgötunni. Við
höfum leitað eftir sjálfboða-
liðsvinnu undanfarnar helgar og
það hefur gengið bærilega, en núna
um næstu helgi verður meira en
nóg að gera bæði við hreinsun og
málningarvinnu."
Sem fyrr segir er þessa dagana
verið að senda út gíróseðla í
Reykjavík, en flokksfélögin á
hverjum stað taka einnig við fram-
lögum í bygginguna. Þá eru þeir
sem eru aflögufærir hvattir til að
hafa samband við Sigurjón Péturs-
son á skrifstofu Alþýðubandalags-
ins sími 17500 og eins þeir sem hafa
lausa stund um helgina. -ÁI