Þjóðviljinn - 11.03.1983, Síða 3
Föstudagur 11. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Frá orðum til athafna:
Verða aðlldarfélög sameinuð?
Skiptar skoðanir á ráðstefnu sveitar-
stjórnarmanna og ráðuneytis í gær
Ríflega 100 sveitarstjórnarmenn víðs vegar að af landinu sátu í gær
ráðstefnu á vegum Félagsmálaráðuneytisins og Sambands ísl. sveitarfc-
laga. Umræðuefnið var gamalkunnugt: samcining sveitarfélaganna.
Fremst á þessari mynd sitja Logi Kristjánsson, Neskaupstað, Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, félagsmálaráðu-
neyti og Baldur Andresson, Skipulagi ríkisins. Ljósm. -eik.
Svavar Gestsson félagsmálaráð-
herravsagði m.a. að verulegur hluti
sveitarfélaganna í landinu væri of
lítill til að geta veitt þá þjónustu
sem talin er lágmarksþjónusta nú á
dögum. Hann sagði að félagsmála-
ráðuneytið leitaði nú eftir sam-
starfi við sveitarstjórnarmenn um
að frambúðarstefna yrði mörkuð í
þessu efni. Nóg hefði verið talað og
skoðað, nú yrðu menn að spyrja sig
hvert ætti að vera næsta skrefið.
Svavar lagði áherslu á að þunga-
miðja umræðu um sameiningu
sveitarfélaga væri maðurinn sjálf-
ur, þjónusta við hann og umgengni
hans við umhverfi sitt. Ráð-
stefnunni væri ætlað að þoka okkur
nær valddreifingu og lýðræði og því
væri farið fram á ábendingar sveit-
arstjórnarmanna og svör við til-
teknum spurningum.
Björn Friðfinnsson formaður
Sambands ísl. sveitarfélaga minnti
á að í Grágás er gert ráð fyrir því að
í hverjum hreppi skyldu fæst vera
20 þingfararkaupsgildir bændur,
sem jafngildir að mati fræðimanna
um 400 íbúum hið fæsta. Þessi
ákvæði eru um 1000 ára gömul og
voru áréttuð 1583 þegar sýslu-
mönnum var heimilað að sameina
hreppi til að ná þessu marki. Arið
1703 voru 163 sveitarfélög í landinu
en í dag eru þau 224. 166 sveitarfé-
lög hafa 400 íbúa eða færri, - 118
hafa færri en 200 og 16 hreppar
hafa færri en 50 íbúa.
Nefnd sem skipuð var 1966 lagði
til að sveitarfélögunum yrði fækk-
að í 66 með frjálsum samningum
þeirra í milli. Björn sagði að þrúnin
síðan hefði verið ákaflega hæg, -
aðeins Hnífsdalur hefur sameinast
ísafjarðarkaupstað og nýlega sam-
þykktu íbúar að sameina Dyrhóla-
hrepp og Hvammshrepp í
V-Skaf taf ellssýslu.
Ömtin tekin upp á ný?
Björn benti á að hér á landi örl-
aði nú þegar á þróun til þriðja
stjórnsýslustigsins, þ.e. settar hafa
verið á stofn svæðisnefndir t.d. í
málefnum þroskaheftra og heil-
brigðiseftirlits. Hann sagðist telja
þetta varhugaverða þróun sem
aðeins mætti komast hjá eftir
tveimurleiðum: með því að styrkja
sveitarfélögin með sameiningu eða
með því að taka upp þriðja stjórn-
sýslustigið með lýðræðislega kjörn-
um fulltrúum og eigin tekjustofn-
um. Hér kæmi til greina að styrkja
sýslurnar eða lögfesta landshluta-
samtökin en einnig mætti athuga
þann möguleika að ömtin yrðu
tekin upp á nýjan leik, en saga
þeirra hófst 1688 og þau voru lögð
niður 1907.
Björn sagðist sjálfur vera hlynn t -
ur tveimur stjórnsýslustigum, -
ríki og sveifarfélögum, en slíkt væri
ekki mögulegt nema með styrkingu
sveitarfélaganna, og sameiningu
þeirra.
Umræður voru mjög líflegar og
lauk ráðstefnunni á sjötta tímanum
í gær. Fjallað var um 16 tilteknar
spurningar í umræðuhópum og
mun fulltrúaráð Sambands ísl.
sveitarfélaga fjalla um niðurstöður
og ábendingar sem fram komu á
næsta fundi sínum. M.a. var spurt
hver lágmarksíbúafjöldi svietarfé-
lags þurfi að vera til að það geti
veitt eðlilega þjónustu, - hvort
samvinna geti kornið í stað samein-
ingar, - hvort binda eigi í lögum að
tiltekin sveitarfélög skuli samein-
uð, t.d. innan 10 ára, - hvaða
stuðningur sé nauðsynlegur af
ríkisins hálfu til að auðvelda sam-
einingu sveitarfélaga, - hvort
þriðja stjórnsýslustigið eða
„svæðafyrirkomulag” geti komið í
hennar stað.
Sýslumannsembættið
á ísafirði
9 sóttu um
Umsóknarfrestur um embætti
sýslumanns og bæjarfógeta á ísa-
firði rann út fyrir skömmu. Um-
sækjendur voru þessir:
Barði Þórhallsson, bæjarfógeti,
Finnbogi Alexandersson, fulltrúi,
Freyr Ófeigsson, héraðsdómari,
Guðmundur Kristjánsson, aðal-
fulltrúi, Guðmundur Sigurjóns-
son, aðalfulltrúi, Hlöðver Kjart-
ansson, fulltrúi, Ingvar Björnsson,
héraðsdómslögmaður, Már Pét-
ursson, héraðsdómari og Pétur Kr.
Hafstein, fulltrúi.
Konur
ráða
ríkjum
í Samvinnubankanum
/
á Artúnshöfða
Það hefur vakið athygli og
ánægju að í nýju útibúi Samvinnu-
bankans á Ártúnshöfða eru starfs-
mennirnir eingöngu konur.
Er þetta þriðja útibú bankans í
Reykjavík og er til húsa að Höfða-
bakka 9. Útibússtjóri er Ingileif
Örnólfsdóttir en hún hefur starfað
hjá aðalbankanum sl. 8 ár og er
fyrsta konan, sem tekur við útibús-
stjórastarfi hjá Samvinnubankan-
um. Aðrirstarfsmenn útibúsinseru
Kristbjörg Sigurfinnsdóttir og
Guðrún Yrsa Sigurðardóttir.
Þetta nýja útibú er fyrst og
fremst ætlað til hagræðis þeim
viðskiptavinum bankans, sem búa
og starfa á Ártúnshöfða, í Árbæj-
arhverfi og í Mosfellssveit. Símar
útibúsins eru 82020 og 82021.
-mhg
Ljúkum framkvæmdum við flokksmiðstöðina:
Nýtt átak í fjársöfnun
Gerum klárt fyrir kosningar
Haukur Már Haraldsson mun fara
um landið og tala við þá sem enn
hafa ekki fengið tækifæri til að vera
með í að Ijúka góðu verki
Haukur Már Haraldsson, fyrr-
um blaðafulltrúi ASÍ hefur verið
ráðinn til þess að fara í fjársöfnun á
vegum Sigfúsarsjóðs vegna upp-
byggingar flokksmiðstöðvar Al-
þýðubandalagsins við Hverfisgötu.
Sigurjón Pétursson, sem hefur
umsjón með framkvæmdum að
Hverfisgötu 105 sagði í gær að
smám sanran væri öll starfsemi
flokksins að flytja þar inn. Fyrsti
fundurinn var haldinn þar í gær-
kvöld en enn vantar nrikið uppá að
húsnæðið sé fullgert og fullbúið
nauðsynlegum húsbúnaði.
Sigurjón sagði að fjársöfnunin
hefði gengið vel. Gerð hefði verið
áætlun unt söfnun í kjördæmunum
og þar sem farið hefði verið um,
hefði safnast ívið meira en sú áætl-
un gerði ráð fyrir. Menn væru því
bjartsýnir á að takast myndi að ná
endum saman og ljúka fram-
kvæmdum á sex vikum. Ekki hefði
verið leitað til manna á mörgum
landssvæðum og hefði Haukur Már
nú verið fenginn til þess verks.
Hvatti hann til þess að menn tækju
honum vel þannig að þessi marki
yrði náð. -ÁI
1. Helgi Seljan alþingismaður
2. Hjörleifur Guttormsson ráð- 3. Sveinn Jónsson verkfræðingur
herra
Alþýðubandalagið Austurlandi
4.
Þorbjörg Arnórsdóttir kennari
Framboðslistinn ákveðinn
Framboðsliti Alþýðubandalagsins í Austurlandskjör-
dæmi hefur verið ákveðinn. Skýrir málgagn flokksins
Austuriand svo frá að listinn hafl verið samþykktur á
kjördæmisráðsfundi á Egilsstöðum sl. sunnudag. List-
inn er skipaður þessu fólki:
1. Helgi Seljan alþingismaður Reyðarfirði, 2. Hjör-
leifur Guttormsson ráðherra, Neskaupstað, 3. Sveinn
Jónsson verkfræðingur Egilsstöðum, 4. Þorbjörg Arn-
órsdóttir kennari, Hala Suðursveit, 5. Guðrún Gunn-
laugsdóttir húsmóðir, Eskifirði, 6. Guðmundur Wium
bóndi, Vopnafirði, 7. Guðrún Kristjánsdóttir læknir,
Djúpavogi, 8. Anna Þóra Pétursdóttir póstaf-
greiðslumaður, Fáskrúðsfirði, 9. Jóhanna Gísladóttir
húsmóðir, Seyðisfirði og 10. Magni Kristjánsson, skip-
stjóri Neskaupstað.
-v.