Þjóðviljinn - 11.03.1983, Side 15
I
Föstudagur 11. mars 19831 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
RUV ©
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í
mund. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun-
orð: Málfríður Finnbogadóttir talar.
9.05 Morgunstund barnanna: „Vefurinn
hennar Karlottu“ eftir E.B. White
Ragnar Þorsteinsson þýddi. Geirlaug
Þorvaldsdóttir les (16).
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 „Mér eru fornu minnin kær“ Einar
Kristjánsson frá Hermundarfelli sér um
þáttinn (RÚVAK).
11.00 íslensk kór- og einsöngslög.
11.30 Frá Norðurlöndum Umsjónarmað-
ur: Borgþór Kjærnested.
13.00 Á frívaktinni Margrét Guðmunds-
dóttir kynnir óskalög sjómanna.
14.30 „Vegurinn að brúnni“ eftir Stefán
Jónsson Þórhallur Sigurðsson les (20).
15.00 Miðdegistónleikar Lamoureux-
hljómsveitin í París leikur Ungverska
rapsódíu nr. 2 eftir Franz Liszt; Roberto
Benzi stj. / Itzhak Perlman og Fílharm-
óníusveitin í Lundúnum leika Fiðlu-
konsert nr. 1 í fís-moll op. 14 eftir Hen-
ryk Wieniawski; Seiji Ozawa stj.
16.20 Útvarpssaga barnanna: „Hvítu
skipin“ eftir Johannes Heggland Ingólf-
ur Jónsson frá Prestbakka þýddi. Anna
Margrét Björnsdóttir byrjar lesturinn.
16.40 Litli barnatíminn Stjórnandi: Dóm-
hildur Sigurðardóttir (RÚVAK).
17.00 Með á nótunum Létt tónlist og
leiðbeiningar til vegfarenda. Umsjónar-
maður: Ragnheiður Davíðsdóttir og
Tryggvi Jakobsson.
17.30 Nýtt undir nálinni Kristín Björg Þor-
steinsdóttir kynnir nýútkomnar hljóm-
plötur. Tilkynningar.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor-
oddsen kynnir.
20.40 Kvöldtónleikar: Norsk tónlist a. Pí-
anósónata op. 91 eftir Christian Sind-
ing. Kjell Bækkelund leikur. b. Oktet
op. 3 eftir Johan Svendsen. Arve Tell-
efsen, Leif Jörgensen, Trond Öyen,
Peter Hindar, Johannes Hindar, Sven
Nyhus, Levi Hindar og Hans Christian
Hauge leika.
21.40 Viðtal Þórarinn Björnsson ræðir við
Ragnar Helgason á Kópaskeri; síðari
hluti. (Áður útv. í júlí 1982).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Lestur Passíusálma
(35).
22.40 „Um vináttu“ eftir Cicero Kjartan
Ragnarsson lýkur lestri þýðingar sinnar
(6).
23.05 Kvöldgestir - Þáttur Jónasar Jónas-
sonar.
00.50 Fréttir. 01.00 Veðurfregnir.
01.10 A næturvaktinni Sigmar B. Hauks-
son - Ása Jóhannesdóttir.
RUV
Ó, þetta er dýrlegt mál
(eöa hitt þó heldur)
Einar Örn Stefánsson,
fréttamaður hjá útvarpinu, er
enn að senda mér tilskipanir
um notkun á íslensku máli, sjá
Þjv. 8. mars sl. Þótt mér sé
meinilla við að eyða dýrmætu
plássi lesenda, finnst mér ég
ekki komast hjá því að láta
eftirfarandi lítilræði frá mér
fara. Helst í þeirri von að fá
ekki fleiri sendingar.
Einar Örn spyr mig hvort ég
hafi hugleitt hvar hún endi sú
viðleitni mín að kalla hlutina
sínum rétfu nöfnum. Ég held,
að viðleitnin endi í málfari,
sem sé bæði málfræðilega rétt
og lýsi veruleikanum vel. Það
er hvorki málfræðilega rétt að
segja „hún“ um blaðamann né
lýsir orðið blaðamaður konu.
Ég er alin upp við stranga mál-
fræðigæslu og því finnst mér í
hæsta máta óviðkunnanlegt
að segja „hún“ um hann. Eg
aðhyllist þó fremur málgæslu
sem miðar að rökréttu málfari
en hinu að standa eilífan vörð
um „rétt“ tungutak. Þannig
finnst mér miklu voðalegra að
segja „Lokaðu hurðinni“ .eða
„Eg var boðin í veisluna"
heldur en að lauma út úr sér
þágufallssýki, t.d. mér hlakk-
ar til.
Og af því að hið rökræna í
málinu er mér ofarlega í sinni
get ég vart annað en gapað af
undrun yfir þessari setningu
þinni: „Ef til vill sérðu af þess-
um dæmum, hvílíkar ógöngur
þú kemst í, ef þú ætlar að
halda uppteknum hætti - og
vera jafnframt sjálfri þér sam-
kvæm í skrifum."
Einar Örn. Tungumálið
okkar er lifandi, frjósamt og
eilífum breytingum undirorp-
ið. Ég held að það geti aldrei
komist í ógöngur. Tungumál-
ið er það sem við tölum hverju
sinni - og ekkert annað. Það
er tæki til þess að tjá hugar-
heirn okkar. eins og hann er
hverju sinni. Ef eitthvað
kernst í ógöngur, þá erum það
við - aldrei tungumálið.
Jafnréttiskonur tóku upp á
því fyrir svona 10 áruin að
karlkenna sig. Ég lield, að það
hafi verið nauðsynlegt þá,
raunar bráðnauðsynlegt.
Fyrir þeirra baráttu verð ég
ævinlega þakklát, því ég veit
að ég hef meiri möguleika en
þær vegna þeirra baráttu. En
ekkert stendur i stað. Og nú
finnst mér kominn tími til að
konur tygi sig á enn einn
brattann og það er menningin
sjálf sem klifið er á í þetta
sinnið. Það sem var jafnréttis-
spor í gær kann að vera mis-
vísandi í dag. En þótt við
breygjum af leið lendurn við
aldrei á sama stað. Sem betur
fer.
Ég vil skjóta því að þér, að
þú ættir að kynna þér betur
enska tungu. Énskan er nefni-
lega þannig uppbyggð að hún
er kynlaus að kalla. Orðin
„She is a journalist" þurfa því
alls ekki að þýða „Hún er
blaðamaður", eins og þú vilt
vera láta. Journalisti er kyn-
laust heiti og getur því allt eins
þýtt „blaðakona". Það fer
bara eftir viðtakandanum og
málinu sem þýtt er á.
Og svona í lokin vil ég geta
,þess, að mér finnst orð eins og
ráðfrú, háseta, skólastýra,
forseta og fleira í þeim dúr
hreint ekki ljót. Ekki ætla ég
þó að taka það að mér að
hreinsa tungutak annarra. Þar
skilur á með okkur.En blaða-
kona mun ég kalla mig áfram,.
hvað sem aðrir gera.
Auður Styrkársdóttir,
blaðakona.
barnahorn
Kannski er snjórinn búinn í bili í Stykkishólmi en hún Óla 5 ára og Nönnu sem er 7 ára, þar sem þau eru að spjalla
Jenný sem á heima að Áskinn 3 þar í bæ teiknar þessa mynd við snjókarlinn og eru bæði með þessa líka fínu sleða í,
af snjókarlinum. Jenný er 8 ára. Svo hefur hún líka teiknað eftirdragi.Takk fyrir, Jenný.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
20.50 Skonrokk Dægurlagaþáttur í umsjón
Þorgeirs Ástvaldssonar.
21.20 Kastljós Þáttur um innlend og erlend
málefni. Umsjónarmenn: Margrét
Heinreksdóttir og Sigurveig Jónsdóttir.
22.20 Örlagabraut (Zwischengleis) Ný
þýsk bíómynd. Leikstjóri Wolfgang
Staudte. Aðalhlutverk: Mel Ferrer,
Pola Kinski og Martin Lútge. Vetrardag
einn árið 1961 gengur þrítug kona út af
brú í grennd við Múnchen. Hún hefur
afráðið að stytta sér aldur. Að baki þess-
arar ákvörðunar liggur raunasaga sem
myndin rekur. Hún hefst árið 1945 þeg-
ar söguhetjan, þá 15 ára aðaldri, flýr
ásamt móður sinni og bróður undan
sókn Rauða hersins til Vestur-
Þýskalands. Þýðandi Veturliði
Guðnason.
00.10 Dagskrárlok
Skrýtlur
frá
Þórdísi
Siggi: Ósköp er bróðir þinn lítill.
Óli. Já, en hann er nú bara hálfbróður
minn.
Veistu hvers vegna Akurnesingar hafa
alltaf háa fætur á barnarúmunum?
Já, þeir heyra betur ef börnin detta
framúr þeim.
Elín Helena 6 ára gerði þessa mynd,
sem auðvitað er af stígvélaða kettin-
um og kónginum í ævintýrinu sem
þið öll þekkið. Og við í Barnahorninu
þökkum Elínu Helenu kærlega fyrir.
Snjókarl í Stykkishólmi