Þjóðviljinn - 26.03.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 26.-27. mars 1983
skráargatift
Pað
er líklega ekki vinsælt að bendla
konur í framboði við eiginmenn
sína, en þó getur skráargatið ekki
setið á strák sínum í sambandi við
eiginkonur tveggja þekktra manna
sem báðir hafa töluvert komið við
sögu í pólitík. Önnur er Kristín
Halldórsdóttir, efsta konan á lista
kvennaframboðs í Reykjanesi.
Hún er eiginkona Jónasar Krist-
jánssonar ritstjóra Dagblaðsins &
Vísi's. Hin er Jónína Leósdóttir,
sem er í fjórða sæti á lista Vilmund-
ar í Reykjavík. Hún er kona Jón
Orms Halldórssonar aðstoðar-
manns forsætisráðherra. En til þess
að ekki hallist á má benda á einn
karlkynsframbjóðanda í Reykja-
vík. Það er Jón Baldvin Hannibals-
son. Hann er giftur Bryndísi
Schram.
Jónas: Á konu Jón Ormur:
■ slagnum. Á líka konu
Eftir
hinn óvænta sigur Karvcls Pálma-
sonar yfir Sighvati Björgvinssyni í
prófkjöri krata á Vestfjörðum varð
þessi vísa til:
Kom á óvart krataval,
kusu landsfrægt hanagal.
Stendur enn um strönd og dal
slóðin eftir Hannibal.
Hatrömm
átök eiga sér nú stað innan Fram-
sóknarflokksins í Norðurlands-
kjördæmi vestra vegna „göngu-
mannaframboðsins" þar, og gengur
þetta svo langt að menn talast ekki
við. Ekki minnkuðu átökin þegar
„göngumenn" fengu listabókstaf-
ina BB. Páll Pétursson alþingis-
maður gengur nú berserksgang og
öll kosningabarátta B-listamanna
virðist ganga út á það að berja á
BB-mönnum. Á þriðjudaginn var
héldu þingmennirnir Páll Péturs-
son og Stefán Guðmundsson fjöl-
mennan fund á Blönduósi og þar
var saman komið einvalalið Páls úr
Karvel: Slóðin Páll: To Be
eftir Hannibal or not to BB
sveitunum í kring, en aðeins 10
manns af Blönduósi og flestir
þeirra úr öðrum flokkum sem
komu vegna forvitni. Fundurinn
stóð fram á nótt og fór að mestu
leyti í það að skamma BB-menn.
Frá þeim voru hins vegar aðeins 2
útsendarar og þögðu þeir þunnu
hljóði, en annar sat og skrifaði allt
niður sem Páll sagði. Fór það
greinilega mjög mikið í taugarnar á
Páli. Spennan á fundinum var slík
að engu líkara var en heimsstyrjöld
vofði yfir.
Grínistar
eiga nú góða daga og m.a.s. gamli
Spegillinn er að koma út á ný. B og
BB-menn fyrir norðan kitla t.d.
hláturtaugar margra. Sagt er að
Pálsmenn fari um kjördæmið og
hafi yfir fræga setningu úr Hamlet,
að vísu dálítið breytta: „To B or
not to BB“.
Eykon: Egill Skúli:
Pálmamenn Meðal
vilja fella hann umsækjenda?
Stuðningsmenn
Pálma Jónssonar ráðherra í
Norðurlandi vestra eru svo reiðir
út í Eykon og hans lið, að þeir tala
um að skipuleggja sig í að kjósa
BB-listann og G-listann í komandi
kosningum, bara til þess að fella
Eykon. Kvíða Sjálfstæðismenn
mjög komandi kosningafundum,
þar sem átök þessara hópa muni
koma upp á yfirborðið.
Umsóknarfrestur
um stöðu framkvæmdastjóra
Landsvirkjunar er runninn út og
sóttu 5 kappar um hana og þar af
óskaði einn nafnleyndar. Þeir sem
sóttu um voru Gísli Júlíusson
deildarverkfræðingur, Halldór
Jónatansson aðstoðarfram-
kvæmdastjóri, Jóhann Már Marí-
usson yfirverkfræðingur, allir hjá
Landsvirkjun og Kári Einarsson
forstöðumaður RARIK. Getgátur
eru uppi um það að sá fimmti, sem
óskaði nafnleyndar, sé enginn ann-
ar en Egill Skúli Ingibergsson fyrrv.
borgarstjóri, en hann er nú atvinn-
ulaus eftir að honum var sagt upp
hjá Kísilmálmverksmiðjunm á
Reyðarfirði. Egill Skúli starfaði
áður en hann vgrð borgarstjóri við
góðan orðstír hjá Landsvirkjun.
Töluvert
bakslag er nú komið í söfnunarher-
ferð SAÁ og er það ekki síst vegna
Sígild húsgögn SíS9ha9
íburðarmikil húsgögn í sígildum
stíl.
Grindin er úr lituðum aski.
Hægt að velja um leðuráklæði og tau.
Með TM-húsgögnum býðst úrval fylgihluta.
Ath
Opið milli kl.14 og 17
um helgar.
TM. HÚSGÖGN
Verslanir að:
Siðumúla 4, simi 31900 Siðumúla 30, sinii 86822
þess hvernig staðið er áð henni.
Þegar mest gekk á að hringja út til
fólks lamaðist símakerfið í Ármúla
og Síðumúla vegna álags og fengu
m.a. dagblöðin að kenna á því. Þá
þykir frekjugangurinn nokkuð
mikill, enda fá þeir sem hringja út
100 krónur fy rir hvert j á sem þeir fá
og mun það fé vera utan við þær 5
miljónir króna sem Frjálst framtak
fékk fyrir að taka að sér söfnunina.
Viðtöl við Björgólf Guðmundsson
og aðra framámenn í SÁÁ hafa
líka gengið fram af mönnum og
eins þykir dómsmálaráðuneytið
hafa gengið á rétt annarra samtaka
með því að veita SÁÁ ótakmark-
aðan tíma til að safna þessu fé, en
venjan hefur verið sú að deila söfn-
unardögum niður á einstök félaga-
samtök svo að mörg félög séu ekki
með fjáröflun á sama tíma. Hefur
herferð SÁÁ því bitnað á öðrum
þjóðþrifafyrirtækjum sem hafa
þurft að safna til starfsemi sinnar
undanfarnar vikur.
Listi
„sjálfstæðra sjálfstæðismanna"
með Sigurlaugu Bjarnadóttur í
’broddi fyíkingar sótti um að fá list-
ann merktan bókstöfunum DD,
en þvi var hafnað af kjörstjórn sem
gaf honum stafinn T í staðinn. Gár-
ungarnir segja nú að listinn sé
DDT.
Jón
Baldvin Hannibalsson skoraði á
Albert Guðmundsson í kappræðu-
fund um daginn og mátti Al-
bert hafa 3 aðstoðarmenn með sér
á fundinn. Heldur þykir nú samt
leggjast lítið fyrir kappann Jón að
ráðast svona á garðinn þar sem
hann er lægstur.
Bandalag
jafnaðarmanna átti í hinum mestu
brösum að koma saman lista í
Norðurlandi vestra á dögunum.
Daginn áður en skila átti listanum
var verið að hringja í hina og þessa
og biðja menn að taka 1. eða 2.
sætið á listanum. Gekk þetta svo
langt að frambjóðendur annarra
flokka voru beðnir að taka þessi
sæti. Loks fékkst fólk í þessi sæti og
var víða hlegið þegar sást hver
skipar 1. sætið. En erfiðleikunum
var ekki lokið, því að það var ekki
fyrr en á síðustu mínútu skiladags-
ins að tókst að fá nógu marga
stuðningsmenn við listann eða 50,
svo hann væri löglegur. Höfðu
nafnasafnarar ekki nægan tíma til
að fara á milli manna og urðu þess í
stað að hringja í fólk og skrifa niður
nöfn þess Síðan varð kjörstjórn að
fá staðfestingu á þessu með sktyt-
um frá viðkomandi þegar farið var
yfir listana, þarjsem fólk hafði ekki
skrifað á þá með eigin hendi.
Björgólfur: Sigurlaug:
Herferðin DDT-listinn
gengur fram af
mönnum
Leikarar Leikfélags Akureyrar áamt Flosa Ólafssyni sem leikstýrir „Spé-
koppum“.
Leikfélag Akureyrar
frumsýnir á þriöjudagskvöld
„Spékoppar”
eftir Feydeau í leikstjórn Flosa Ölafssonar
Einn frægasti gamanleikur fars-
ahöfundarins góðkunna Georges
Feydeau „Un purge bébé“ eða
„Látið krakkann laxera“ hefur
hlotið nafnið „Spékoppar“ í upp-
færslu Leikfélags Akureyrar undir
leikstjórn Fiosa Ólafssonar, verður
frumsýndur á Akureyri n.k.
þriðjudagskvöld.
Leikritið gerist í Frakklandi á
heimili postulíns-framleiðandans
Fóvens, sem hefur fundið upp nýja
gerð af hlandkoppum úr högg-
heldu postulíni. Þessa koppa
hyggst hann reyna að selja franska
hernum. f því skyni býður hann
yfirmanni úr hermálaráðuneytinu í
mat ásamt eiginkonu sinni og
frænda, sem hún er í dularfullu
sambandi við. En óstýrilát eigin-
kona Flóvens og illa uppalinn son-
ur hans setja strik í reikninginn.
Leikarar í sýningunni eru þau
Sunna Borg, Þráinn Karlsson,
Marinó Þorsteinsson, Gunnar Ingi
Gunnsteinsson, Ragnheiður
Tryggvadóttir, Kristjana Jónsdótt-
ir og Theódór Jónsson.
Leikmynd gerði Jón Þórisson og
lýsingu annast Viðar Garðarsson.
Flosi Ólafsson leikstýrir og Ragn-
heiður Tryggvadóttir er aðstoðar-
maður hans.
Ýmsir farsar eftir Feydeau hafa
áður verið sýndir hérlendis og má
meðal þeirra nefna „Fló á skinni“
hjá Leikfélagi Reykjavíkur og sýn-
ingar Þjóðleikhússins á „Hvað
varstu að gera í nótt?“, „Vert’ ekki
nakin á vappi“ og „Hótel Paradís“.
Þetta er hins vegar fyrsta uppfærsla
Leikfélags Akureyrar á verki eftir
Feydeau.
-Ig-