Þjóðviljinn - 26.03.1983, Blaðsíða 20
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 26.-27. mars 1983
dægurmál (sígiid?)
Lifandi tónlist í
Klúbbnum í kvöld:
Q4U
Þeysarar
Lifandi tónlist verður á boð-
stólum í Klúbbnum í kvöld frá kl.
21 til miðnættis, en að henni lok-
inni verður v'enj ulegt dansiball og
-drykkja. í kvöld (laugardag)
gefst fólki tækifæri til að sjá og
heyra hljómsveitirnar Q4U og
Þey á jarðhæð en í kjallara verður
sýnd vídeó-upptaka frá Músiktil-
raunum ’82, sem Satt stóð fyrir í
haust, eins og reyndar þessu lif-
andi músikkvöldi í Klúbbnum í
kvöld.
Satt hyggst gangast fyrir fleiri
svona „lifandi" kvöldum á
veitingahúsum borgarinnar í
framtíðinni, ef vel mælist fyrir, og
er hugsunin á bak við þau sú að
fólki gefist kostur á að fara á
hljómleika fyrri part kvölds, en
síðan heim í háttinn, eða haldið á
næturgöltur þar eða annarsstað-
ar... Hins vegar ætti engum að
leiðast framan af í Klúbbnum í
kvöld.
A.
Leiðrétting
Mér urðu á slæm mistök þegar
ég var að fjalla um tónleika á Hó-
tel Borg þann 10. þessa mánaðar.
Ég fór rangt með nafn hljóm-
sveitarinnar Hazk, kallaði hana
Hasl. Eru hljómsveitarmeðlimir
og aðrir hér með beðnir afsökun-
ar á þessum mistökum.
JVS
Echo and the Bunnymen
koma hingað í sumar!
Gleðileg tíðindi bárust mér til
rna í seinustu viku. Það er búið
ganga frá komu bresku hljóm-
útarinnar Echo and the Bunn-
íen hingað til lands. Hljóm-
;itin mun halda hér tvenna tón-
ka í Austurbæjarbíói annan
Þetta verða fyrstu tónleikar
hljómsveitarinnar um á þriggja
vikna hljómleikaferðalagi henn-
ar um Evrópu. Þetta er sannköll-
uð draumasending því hljóm-
sveitin er í hópi bestu hljómsveita
Breta um þessar mundir. Það má
kannski segja að það sé tími til
kominn að þeir sveinar láti sjá sig
hérna því annað slagið hafa
sprottið upp sögusagnir þess eðlis
að þeir væru væntanlegir innan
skamms.
Hljómsveitin hefur lengi verið
áfjáð í að koma hingað og því
með góðu móti hægt að fullyrða
að þeir slái tvær flugur í einu
höggi með komu sinni. Annars
vegar með því að láta drauma
sína rætast um að halda tónleika á
íslandi og hins vegar að svala þor-
sta þeirra fjölmörgu sem beðið
hafa komu þeirra hingað. Nánar
verður fjallað um komu þeirra fé-
Echo and Ihe Bunnvmcn halda tvenna tón-
leika í Austurbæjarbíói annan júlí. Hér
sjást þeir við Gullfoss.
laga þegar líða tekur að stóru
stundinni.
JVS
fullsæmt af og höfðar þar að auki
til jafnaldra hennar, hippa og
blómabarna (MF er fædd 1946).
Með þessa sérstöðu Broken Eng-
lish í huga held ég að ekki sé of-
sagt að A Child’s Adventure sé
með tærnar a.m.k. þar sem sú
fyrrnefnda hefur ilina. Dangero-
us Acquaintanccs er hins vegar
síst þeirra þó góð sé.
Hér í lokin er smásýnishorn af
textagerð MF, Running for Our
Lives (Barry Reynolds, Mari-
anne Faithful, Wally Badarou):
Move along staying close to the wall
Looking over your shoulder
just in time
A void the light, close your eyes
And put your hand in mine.
And put your hand in mine.
Are we in danger, or is it
that you think we might be.
But 1 think Vd like
to get out of here,
This place it frightens me,
This place it frightens me.
Running for our lives
At least we’re pretending we are.
Running for our lives,
We never get very far,
We never get very far,
We never get very far.
Stop pretending this
is a child’s adventure,
The only way I can take it
ls playing the game.
Be quiet, there's a gate ahead.
Do you think we can make it?
Will it be different, or just the same?
How long can we keep escaping,
How long can we keep escaping.
How long can we keep escaping
lnto another prison.
Move along staying close to the wall
Looking over your shoulder just in time
Avoid the light, close your eyes
And put your hand in mine
And put your hand in mine.
A.
LOKSINS!, hrópum við trygg-
ir aðdáendur Maríönnu Faithful,
með öndina ■ hálsinum eftir að
hafa beðið á annað ár eftir breið-
skífu frá þeirri ágætu konu. En
nú er hún komin: A Child’s
Adventure.
Að vísu létti hún okkur biðina
með tveim tveggja laga plötum á
árinu 1982: Broken English (long
version - löng útgáfa)/Sister
Morphine - aldeilis frábær plata,
einkum og sér í lagi síðara lagið
(því til sönnunar get ég sagt ykk-
ur að það var spilað í partýi hér í
bæ um daginn í samfleytt 2
klukkutíma) hin tveggja laga
platan er (eða var, því að hún fæst
ekki nú, a.m.k. í bili) Running
for Our Lives/ Over Here (No
Time for Justice). Það fyrrnefnda
er líka að finna á A Child’s
Adventure, en það síðarnefnda
notaði Barry Reynolds á sóló-
plötu sinni. Hann hefur leikið á
gítar með Marianne Faithful (og
Grace Jones) á öllum plötum
hennar frá og með Broken Eng-
lish (1979), og samið mörg lög
með henni. Trommuleikarinn
Terry Stannard hefur verið með
Marianne jafnlengi, en auk þess-
ara tveggja kappa eru með henni
á A Child’s Adventure reggei-
kapparnir Wally Badarou á
hljómborð og Mikey Chung á gít-
ar, á bassa leikur Fernando
Saunders, Rafael de Jesus sér um
ýmsan áslátt og loks leikur sam-
býlismaður Maríönnu, Ben Bri-
erley, sem er í hljómsveitinni Vi-
brators, á kassagítar og syngur
bakraddir ásamt Barry
Reynolds.
I heild sinni er A Child’s
Adventure með rólegra yfirbragð
Soft Cell komnir
á kreik á ný.
Man nokkur eftir Iaginu „Ta-
inted Love“ sem var eitt vinsæl-
asta lag ársins 1981. Flytjendur
þessa lags er dúetinn Soft Cell
sem þeir David Ball og Marc Al-
mond skipa. Þetta lag skaut þeim
upp á stjörnuhimininn þar sem
þeir hafa dvalið síðan.
Þeir félagar hittust á listaskóla í
Leeds og hófu sinni feril þar.
Þeim varð lítið ágengt á frægðar-
brautinni uns þeir hljóðrituðu
lagið „Tainted Love“ sem „soul“
söngkonan Gloria Jones söng
upphaflega.
I fyrstu miðaðist tónlist þeirra
fyrst og fremst við diskótekin en
eftir því sem tímar liðu fóru þeir
að spila tónlist sem átti ekki eins
upp á pallborðið hjá diskótekur-
um.
Nýjasta plata þeirra félaga,
The Art of Falling Apart, ber
þetta mark. Þeir flytja áheyrilega
tónlist sem venst nokkuð vel. Það
er varla hægt að setja tónlist
þeirra á bás með „fútúristum",
eina viðlíkingin sem mér kemur
til hugar á þessari stundu er dú-
ettinn O. M. D.
Þeir félagar skipta þannig með
sér verkum að Mark Almond sér
um sönginn en David Ball allan
hljóðfæraleik. David notar mikið
wniajun
Sif
Jón Viöar
Andrea
Mark Almond (t.h.) og David Ball.
hljóðgervla og hljómborð og
forðast alla „prógrameringu” á
hljóðgervlum eins og Humane
League gera mikið af.
Textar þeirra félaga eru nokk-
uð sorglegir, annars eru þeir
áheyrilegir og það má Mark Al-
mond eiga að hann syngur mjög
skýrt, miklu skýrar en gengur og
gerist.
The Art of Falling Apart er
sæmilegasta plata, allavega ættu
þeir sem hafa gaman af „raf-
magnstónlist" að finna hér
eitthvað við sitt hæfi.
JVS
Marianne Faithful syngur eins og áður um þungan róður í lífsbaráttunni og margir komast að af eigin raun.
Marianne Faithful/A Child’s Adventure:
Að eiga fótum
fjör að launa
er enginn
barnaleikur...
Én nú er öldin önnur og röddin
í Maríönnu líka.. a.m.k., áttund
neðar en þá, enda ekkert mjó-
róma þjóðlagavæl á ferðinni
lengur. Á A Child’s Adventure
syngur Marianne Faithful með
sinni hrjúfu rödd sallafína texta
Róleg tífsreynsluljóð
með þungri undiröldu
en tvær fyrri breiðskífur Marí-
önnu, Broken English og Danger-
ous Acquaintances (1981), en
undiraldan er þung og kraftmikil
og kemur þar hvort tveggja til
hljóðfæraleikur og textagerð.
Það fyrrnefnda er algjörlega
pottþétt og toppmaður í hverju
rúmi. Þó langar mig að nefna sér-
staklega hut Wallys Badarou sem
t.d. töfrar e.k. sekkjapípur út úr
hljómborðum sínum í laginu Ire-
land, og kassagítar Bens Brierley
setur sérstakan og þjóðlagalegan
blæ á þessa plötu og minnir okkur
á fyrstu skref Maríönnu Faithful
á söngferlinum, fyrir 19 árum.
sem flestir eru eftir hana sjálfa
við góð lög, flest eftir Barry
Reynolds, og útkoman verður
e.k. blúsað nýbylgjurokk með
þjóðlagaívafi (hm...).
Sjálfsagt telst Broken English
besta breiðskífa MF og verður að
öllum líkindum erfitt - og jafnvel
ekki mögulegt - fyrir hana að
koma með aðra sem þykir betri,
því að Broken English kom eins
og velkomin þruma úr heiðskíru
lofti á sínum tíma: Manneskja
sem flestir voru búnir að gleyma
og enn fleiri bjuggust ekki við
neinu af kom með plötu sem
hvaða pönkfrík sem er gæti verið