Þjóðviljinn - 26.03.1983, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 26.03.1983, Blaðsíða 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 26.-27. mars 1983 UOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastióri: Guðrún Guðmundsdóttir. i Ritstjorar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Olafsson. Umsjónarmaöur Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, . Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. Utlit og hönnun: Helga Garðarsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson, Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson. Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir. Karen Jónsdóttir Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúía 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent h.f. r itst jór nargrci n úr aimanakinu Stjörnustríð Reagans • Morgunblaðið slær því upp með allmiklum fögnuði í gær, að Reagan Bandaríkjaforseti hefur haldið ræðu þar sem hann boðar vígvæðingu geimsins. Stórtækur maður Reagan - og nægja honum ekki lengur heimshöfin, þurrlendið né heldur andrúmsloftið. Áform forsetans eru næsta reyfaraleg enda kennd við vísindaskáldsögu í ýmsum viðbrögðum manna. Pau lúta að því að koma upp í geimnum vopnakerfum, byggðum á örgeislatækni, og eiga þau að geta skotið niður á flugi eldflaugar andstæðingsins. Reagan segir kampakátur, að slík kerfi muni gera kjarnorkuvopn úrelt. • Það væri kannski dulítil ljósglæta í ræðu þessari ef þetta væri satt: að kjarnorkuvopn yrðu úrelt. En í fyrsta lagi er hér um framtíðarsöng að ræða um óendanlega flókna tækni og munu fáir treysta sér til að spá um framkvæmdir. I annan stað hefur það ekki gerst til þessa, að stórvirk vopn séu leyst af hólmi með vopnum sem séu hættuminni. í þriðja lagi og það skiptir mestu fyrir samtíðina - áætlanir Reagans í þessum málum eru ekki til neins annars fallnar en herða enn vígbúnaðar- kapphlaupið. Því fáir munu búast við því, að hitt risa- veldið leggi niður hernaðarskottið andspænis vísinda- og hrollvekju Reagans - eins og fyrri daginn mun það vitna til hennar sem röksemdar fyrir því að Sovétmenn að sínu leyti fjölgi eldflaugum og verji miklu fé og mannafla til að elta Bandaríkjamenn í vígbúnaði í geimnum. • Sá vítahringur sem í dag er í tengdur við meðaldrægar eldflaugar og skyld vopnakerfi mun endurtekinn „á hærra plani“ eins og það heitir. Allra síst eru slík áform til þess fallin að greiða fyrir starfi þeirra samninga- manna, sem falið hefur verið að reyna að grisja eld- flaugaskóginn eða að minnsta kosti koma í veg fyrir að hann þéttist. • Sem betur fer sýnast flestir minna hrifnir en Morgun- blaðið af stjörnustríðsáformum Reagans - vísinda- menn og stjórnmálamenn tala um þau sem gagnslaus og hættuleg. En þau eru því miður í takt við margt annað í málflutningi núverandi Bandaríkjastjórnar, sem hefur lagt allt kapp á að halda áfram þeirri meinloku að til þess að afvopnast þurfi menn fyrst að vígbúast enn rækilegar. _áb. Spurt eftir samstöðu • Svo getur virst sem óralangt sé frá geimvígbúnaði til kosningaplaggs vinstriflokks hér á landi. En allir hlutir eru með nokkrum hætti tengdir saman. • í samstarfsgrundvelli þeim sem Alþýðubandalagið hefur sent frá sér, eru til tekin þau atriði sem flokkurinn telur brýnt að ná lágmarkssamstöðu um einmitt við þær aðstæður, þegar vopn eru skekin af meiri móð en oft áður. Það er boðið upp á samstöðu við önnur stjórn- málaöfl um frystingu vígbúnaðar sem við íslenskar að- stæður þýðir, að stöðvuð verði öll endurnýjun á vígbún- aði, tæknibúnaði og annarri hernaðaraðstöðu Nató á íslandi og hætt við framkvæmdir í Helguvík. Ennfrem- ur að bannað verði með lögum að geyma og flytja kjarnorkuvopn um ísland, lofthelgi landsins og fisk- veiðilögsögu um leið og Alþingi álykti um aðild Islands að kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum. • Þetta er, eins og fram er tekið, samstarfsgrundvöllur en ekki sjálf stefna Alþýðubandalagsins. Sem mun að sjálfsögðu fagna sérhverjum þeim sem vill ganga lengra og leggja niður þá herstöð sem hér er og þau umsvif, sem á dögunum höfðu m.a. nærri því valdið stórslysi á íslenskri farþegaflugvél. -áb. En það er meira blóð í kúnni. í bæklingi, sem SÁÁ dreifði með gjafabréfunum, er því heitið að skilvísum styrktarmönnum verði sýnt þakklæti með því að draga út 10 bréf í hvert sinn og afhenda eiganda hvers um sig verðlaun að verðmæti 100.000 krónur. Þetta verði gert fimm sinnum fyrir hvert bréf þannig að 5 miljónir króna geta þannig runnið til „skilvísra þátttakenda í þessu þjóðarátaki með SÁÁ gegn meininu mesta“, eins og segir í kynningarpésanum. Hvað fer þá til sjúkrastöðvar- Atak íþágu hverra? Frjáls féiagasamtök hafa fyrir löngu sýnt það og sannað hér á landi sem annars staðar að þau eru þess megnug að lyfta Grettis- taki ef vel er að verki staðið. Líknarfélögin, sem hér hafa starf- að um áratugskeið eru óbrotgjarn minnisvarði um mátt hinna mörgu og hverju hann getur áorkað. ÖII byggja þessi samtök á samvinnu þúsundanna; samhjálp og sjálfboðaliðastörf eru ein- kunnarorðin í starfi þeirra. Eitt slíkra kraftaverkafélaga eru Samtök áhugamanna um á- fengisvandamálið - SÁÁ. Þar eru nú um 10.000 félagsmenn úr öll- um starfsstéttum þjóðfélagsins og ótölulegur fjöidi manna hefur allt frá því samtökin voru stofnuð af framsýni og stórhug fyrir 5 árum, lagt hönd á plóginn og orð- ið mörgum áfengissjúklingnum að liði. Þessar þúsundir einstak- linga hafa lagt lið með fjár- stuðningi og ómældri vinnu þar sem að verkalokum hefur einung- is verið spurt urn árangur en ekki umbun. Nú virðist hins vegar hafa orðið breyting á. Fyrir skömmu hleypti SÁÁ af stokkunum umfangsmestu fjár- söfnun sem ráðist hefur verið í hér á landi. Ætlunin er að byggja glæsilega sjúkrastöð að Stór- höfða við Grafarvog í Reykjavík og til þess að endar nái saman vilja forráðamenn söfnunarinnar ná í sjóðinn um 25 miljónum króna. Til samanburðar má geta þess að 13.7 miljónir söfnuðust í „Þjóðarátaki gegn krabba- meini“, en það var stærsta átakið sem gert hafði verið í þessum efn- um þangað til. Allir góðir menn vona einlæg- lega að þetta framtak SÁÁ gangi að óskum en það eru dimmuský á himni sem óneitanlega varpa skugga á vettvanginn. Samkvæmt upplýsingum framkvæmdastjóra söfnunarinnar nýlega hefur hún gengið vel, að hans mati, og þeg- ar safnast rúmlega 12 miljónir- Valþór Hlöðverssori^ skrifar króna. En hvað skyldi SAA fá í sinn hlut? Hvað mikið af þessum miklu fjármunum, sem jafngilda um 100 árslaunum Dagsbrúnar- verkamanna, koma til með að renna til byggingarinnar inn við Grafarvog? Hvert fara peningar þeirra 6-700 einstaklinga, sem hingað til hafa gefið í söfnunina? Svarið er því miður hrollvekj- andi. Þjóðviljinn vakti á því at- hygli fyrstur íslenskra blaða fyrir nokkrum vikum að Frjálst fram- tak hf. hefði tekið að sér að skipu- leggja og stýra fjársöfnun SÁÁ. Þar kom fram, sem síðar hefur verið staðfest annars staðar einn- ig, að 5 miljónir króna færu í til- kostnað. Þar með.er tæpur helm- ingur þess fjár sem fólk hefur þegar látið af hendi rakna, runnið í vasa bísnissmanna og annarra, sem hafa framfæri sitt af þéssu líknarstarfi. Frjálst framtak hf. fær í sinn hlut amk 1 miljón króna, en samningurinn við fyrir- tækið var á þann veg að það fékk ákveðna greiðslu strax og síðan 8% af öllu sem safnaðist inn þeg- ar komið væri yfir 12 miljón króna markið. Það þýðir að Magnús Hreggviðsson fram- kvæmdastjóri Frjáls framtaks tekur í sinn bfsnissvasa 80.000 krónur af hverri þeirri miljón sem launamenn í landinu koma til með að láta af hendi rakna í söfn- un SÁÁ næstu vikur og mánuði. Þetta heitir víst að gera „góðan díl“ á mállísku viðskipta- heimsins. innar? Lunginn af söfnunarfénu, sem þúsundir manna hafa staðið í trú um að væri til hjálpar áfengis- sjúklingum, rennur í kostnaðar- hítina. Af viðtölum við fram- kvæmdastjóra hinna ýmsu fjár- safnana á liðnum misserum, og birtust í Tímanum nú í vikunni, kemur sú athyglisverða staðreynd upp á yfirborðið að kostnaður við SÁÁ söfnunina fer margfalt fram úr því sem nokkru sinni hefur tíðkast. Rúmlega 20% söfnunarfjár SÁÁ fer í kostnað, en til viðbótar koma svo þær 5 miljónir í happdrættinu, sem áður var minnst á. Tilkostn- aður Þjóðarátaksins gegn krabbameininu reyndist vera innan við 4% og kostnaður við safnanir Hjálparstofnunar kirkj- unnar hefur verið á bilinu 2-13% og afar sjaldan farið yfir 7% af söfnunarfé. Hvað er að gerast hér? SÁÁ telur um 10.000 félaga. Var ekki hægt að virkja þennan hóp, tí- unda hvern vinnandi mann í landinu? Eða er ef til vill hér að unnið í anda þeirrar hugsjónar tiltekins stjórnmálaflokks • í landinu að enginn árangur náist í starfi nema aur komi fyrir? Að peningarnir séu sá eini prímus mótor, sem geti knúið gull- kvörnina? Með þessari fjársöfnun SÁÁ, sem er hrundið af stað í góðri meiningu til styrktar góðum mál- stað, hafa orðið vatnaskil í þróun hinna frjálsu líknarsamtaka, sem á var minnst í upphafi þessa greinarkorns. í stað þess að byggja á frjálsum framlögum sjálfboðaliða eru harðsvíraðir bísnissmenn ráðnir í það þokka- verk að hafa fé af fólki undir yfir- skini líknar við þraut, en fáránlega stór hluti þess fjár sem menn láta af hendi rakna lendir í kostnaðar- hítinni. Var þetta nauðsynlegt? - Spyr sá sem ekki veit. -v.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.