Þjóðviljinn - 26.03.1983, Síða 7
CSQráwi! .TS-.DÍ Á2ybK Vf/J-i JiVáAVí - AfJÍ^ <'
Helgin 26.-27. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Hver eru brýnustu verkefni á sviði nátt
úruverndar í nánustu framtíð?
Stutt ávörp flytja:
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir mann-
fræðingur.
Jón Gauti Jónsson framkvæmdastjóri Nátt-
úruverndarráðs.
Birna Bjarnleifsdóttir leiðsögumaður.
Sigrún Helgadóttir í stjórn Landverndar.
Sveinn Aðalsteinsson formaður félags land-
varða.
Almennar umræður.
Lokaorð:
Kristín Einarsdóttir lífeðlisfræðingur.
Fundarstjóri: Guðrún Ólafsdóttir lektor.
Fjölmennum, þetta eru mál sem varða okkur
öll.
Samtök um Kvennalista.
Fjórum
mánuöum
eftir frœga
aðgerö:
Barney Clark heitir sjúklingur
sem nú hefur lifað með gervihjarta
í um það bil fjóra mánuði. Hann er
sagður mjög stoltur af því að vera
fyrsti maðurinn sem slík tilraun er
gerð með.
En því fer tjarri að Barney Clark
líði vel í venjulegum skilningi.
Hann getur ekki hreyft sig nema að
hersing af læknum og hjúkrunar-
liði fylgi honum og gæti þess að
ckkert fari úr skorðum. Nýrun eru
í ólagi og hann getur varla talað af
því að honum er hjálpað með gervi-
öndun.
Barney Clark missti snemma
föður sinn og átti erfiða æsku.
Hann var í bandaríska hernum á
stríðsárunum og tókst með miklu
erfiði og ítrustu sparsemi að fleyta
sér gegnum tannlæknanám. Hann
var semsagt orðinn „sjálfskapað-
ur” maður á uppleið í þjóðfélag-
inu. Hann var með allan hugann
við að hafa sem flesta sjúklinga og
Tannlæknirinn Barney Clark stígur í fæturna í fyrsta sinn eftir aðgerðina.
Dr. De Vries, sem setti í hann plasthjartað, styður hann.
Fyrsti maðurinn
með gervihjarta
Samtök um kvennalista halda opinn fund um
náttúruverndarmál á Hótel Borg í dag,
laugardag, 26. mars kl. 14.
græða sem mest fé. Hann drakk
ekki, stundaði golf og fótbolía og
honum fannst hann jafnan vera
stálhraustur. Kona hans, Una Loy,
segir að helsti galli manns síns hafi
verið sá, að hann gat aldrei setið
kyrr. Hann gat ekki einu sinni toll-
að stundarkorn fyrir framan sjón-
varp. Hann tók sér aldrei sumarfrí.
Hjartarýrnun
Það kom Unu því mjög á óvart
þegar Barney Clark tilkynnti henni
allt í einu árið 1977, að nú hefði
hann safnað nógu fé og nú gæti
hann sest í helgan stein. Hann var
ekki nema 56 ára gamall. En hann
hafði um skeið dulið konu sína þess
að blýþung þreyta sækti á sig, hvað
sem hann annars tæki sér fyrir
hendur. Hann vissi enn ekki hvað
var að, en gerði ráð fyrir að hann
hefði blátt áfram ofreynt sig og ætti
að draga af því réttar ályktanir
meðan tími væri til.
Um tveggja ára skeið reyndi
Clark að haltra á eftir vinum sínum
á golfvellinum. En fyrir þrem árum
var hann afar illa farinn, öskugrár í
framan reyndar. Þá var því slegið
föstu að hann gengi með „kardíom-
yopatíu” en sá sjúkdómur er í því
fólginn að hjartavöðvinn eyðist
smám saman og án þess aftur verði
snúið. Leyndardómsfullur vírus er
talinn bera ábyrgð á þeim
ósköpum.
Áöur en ég dey
Barney Clark er mórmóni, og
menn eru ekki vanir að efast um
framhaldslíf í þeirri kirkju. Hann
var því í sjálfu sér ekki andvígur að
deyja. En hann gat þess stundum
við konu sína, að sér fyndist það
óþolandi hvernig dauða hans bæri
að höndum.
Síðan frétti hann um tilraunir
. sem læknar í Salt Lake City, höfuð-
borg heimaríkis hans, Utah, feng-
ust við, en þeir höfðu sett plast-
hjarta í kindur og kálfa. Hann gaf
sig fram við lækna í Háskólasjúkra-
húsinu í borginni og bað þá fyrst að
segja sér allt hið versta sem fyrir
hann gæti komið. Læknar röktu
það samviskusamlega hve erfið að-
gerðin væri og hve óvíst um árang-
ur, en svo fór að Barney Clark á-
kvað að verða fyrsti maðurinn með
gervihjarta: hann gæti þá gert eitt-
hvað nytsamlegt, einnig deyjandi.
Aðgerðin tókst vel til þess að
gera. En það var ekki fyrr en 70
dögum eftir uppskurð, að Barney
Clark tók fyrstu skrefin og mestall-
an tímann verður hann að liggja á
gjörgæsludeild. í hvert skipti sem
hann yfirgefur deildina fylgja hon-
um margir aðstoðarmenn sem fyrr
segir. Sumir ýta áfram stjórntæk-
inu sem stýrir starfi hjartans, aðrir
hylki með háþrýstilofti sem dælir
blóðinu úr hjartahólfum hans. Enn
aðrir gæta hjólastólsins sent Batn-
IBÉK
WfÁ
Ml
H
GRÁFELDUR
ÞINGHOLTSSTRÆTI 2
ey Clark er venjulega í og svo þess,
að slöngur og íeiðslur sem tengja
sjúklinginn við appírötin fari ekki
úrskeiðis.
Til eru þeir sem efast um svo
dýrar og fyrirhafnarmiklar aðgerð-
ir - einkum með tilliti til þess að
víða er látið hjá líða að bjarga
mannslífum enda þótt litlu þurfi til
að kosta. Aðrir mæla þessu í mót
með tilvísun til þess, að með tilraun
af þessu tagi sé brautin rudd fyrir
miklar framtíðarframfarir á sviði
hjartalækninga.
- áb tók saman.
^ Laus embætti sem
forseti íslands veitir:
Eftirtalin embætti héraösdýralækna eru laus
til umsóknar:
Embætti héraösdýralæknis í Baröastrandar-
umdæmi.
Embætti héraösdýralæknis í Kirkjubæjar-
klaustursumdæmi.
Embætti héraösdýralæknis í Strandaum-
dæmi.
Embættin veröa veitt frá 1. júní nk.
Umsóknir sendist landbúnaöarráöuneytinu,
Arnarhvoli, og er umsóknarfresturtil 30. apríl
nk.
Landbúnaðarráðuneytið, 23. mars 1983.