Þjóðviljinn - 26.03.1983, Side 11

Þjóðviljinn - 26.03.1983, Side 11
Helgin 26.-27. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 Ekkertvenjulegar myndir! Þrjár þriggja metra háar andlitsmyndir af ungum mönnum sem búið er að mála í framan með akríllitum. Nei ekki bara andlitið, hárið líka og fötin, allt nema augun. Spegil sálarinnar. Þettaeru ungirmenn með sálir, krómgult hár, svört hálsbindi í rauðum jökkum. Og þessar myndir eru núna á veggjum Visual Arts gallerísins í SoHo, neðarlega á Manhattan. Myndlistarmaðurinn á bak við þessi verk er Jón Óskar, en hann og Hulda Hákonardóttir eru við myndlistarnám íThe School of Visual Arts og sonurinn Burkni er í átta ára deild í P.S. tvenní nææææn... grunnskóla númertuttugu og níu í New York borg. Jón Óskar var alveg til í að ræða stundarkorn við mig um þessar myndir og aðrar. - Þegar ég sá þessar myndir fannst mér þær vera um það hvernig það er að vera ungur karlmaður með ámálaða karlímynd. - Þær koma inn á það, en fyrst og fremst eru þær pæling í pólitískum plakötum. Ef þú skoðar plaköt sem eru byggð á andlits- myndum einhverra foringja þá er sama hvort þau eru frá Rússnesku byltingunni, Hitlerstímanum í Þýskalandi eða pólitísk plaköt úr samtímanum, það er ætíð sama yfirbragðið á andlitunum. Mennirnir eru upphafnir í hlutverki leiðtogans. Auk þess eru andlitsmyndir mjög grípandi, maður gengur ekki auðveldlega fram hjá þeim. Þegar svona myndir líta beint fram, þá erum við ekki lengur áhorfendur heldur þátttakendur, samanber gömlu her- kvaðningarplakötin sem „elta“ mann, sama hvar maður stendur. - Ert þú ekki að taka vissa afstöðu til stjórnmála með því að byggja þessar mynd- ir á pólitískum plakötum? - Stjórnmál er nokkuð sem allir hljóta að velta fyrir sér. Fyrirbrigðið sem slíkt heillar mig en þegar kemur að flokkunum, þá er ég dottinn út af. Það er enginn marktækur munur á flokkunum, sama hver er, heima á íslandi eða hér úti. Þetta er bara skítkast. Þótt ég hrífist kannski af einhverjum stjórn- málamanni, þá er eins og flokksmaskínurn- ar móti alla í sama mót, fólk koðnar niður í kerfinu. - Eru það ekki bara steypumót karlveld- isins? - Ég hugsa þetta nú ekki þannig. - Þetta eru ekki fyrstu andlitsmyndirnar sem þú gerir? - Nei, ég gerði myndröð í fyrra sem ég byggði á myndum úr fjölskyldumyndaal- búminu heima. Það er eins ogþannig albúm séu ekki bara myndir heldur hluti af manni sjálfum. Maður er endalaust að skoða myndirnar í því og þær hafa mismunandi áhrif eftir því á hvaða aldri maður er. Svona albúm geymir á vissan hátt fortíð manns og viðmiðun. Meðvitað eða ómeðvitað mælir maður sig við fólkið á myndunum. Ég valdi ljósmyndir af frændum mínum og notaði þær sem grunn í myndröð. Þetta er eins konar naflaskoðun. Ég valdi myndir af þeim þegar þeir voru á líkum aldri og ég er nú á. Þeir voru svona, og svona er ég og svo framvegis. - Og síðan fórstu að fást við myndir byggðar á trúarlegum myndum? - Já, trúarleg verk eiga eitthvað sam- eiginlegt með pólitískum myndum, það skín sami heilagleikinn út úr andlitunum. Annars var þessi myndaröð mín gerð þann- ig að ég valdi sextán trúarlegar myndir, til dæmis málverk af Fjallræðunni, og valdi þrjár manneskjur á hverri. mynd. Síðan fékk ég þrjú módel til að setja sig í þær stellingar sem þessar þrjár manneskjur voru í á trúarlegu myndunum. Módelin vöru í bláum skyrtum með blátt hár, svört hálsbindi, í svörtum buxum. Ég tók kvik- mynd af þessum uppstillingum í Hafnar- fjarðarhrauninu, - það virkar svo einskis- mannslandslegt. Síðan lét ég stækka upp einstaka ramma af kvikmyndafilmunni og hugmyndin var að þegar ég sýndi ljósmynd- irnar þá myndu mennirnir í bláu skyrtunum sitja í stólum sem væru festir á vegg í gallerí- inu. Ég kallaði verkið „Mission Blue“. Þetta eru menn sem sveipa sig táknum sem þeir ef til vill skilja ekki og boða trú sem þeir vita mest lítið fyrir hvað stendur. Þeir eru tilbúnir til að standa og falla fyrir hug- sjón sem þeir kannski skilja ekki. I________________________________________ - Heyrðu, varst þú ekki í hlutverki Krists í myndunum? - Myndirnar fjalla ekki um Krist sem slíkan heldur leit að sjálfum sér eða leit að sjálfsímynd. Ég er að mála mig í hin og þessi hlutverk. Hvað hentar mér og hvað hentar mér ekki er málið. Sennilega virka þau vandamál sem mín kynslóð ér að fást við sem léttvæg fyrir þær kynslóðir sem hafa lifað virkilegan skort. - Áttu við að við höfum efni á að fást við tilfinningavandamál í myndum? - Ja, þótt okkur finnist Lánasjóðurinn oft leika okkur grátt þá held ég að þegar þessi kynslóð kemst á það skeið að hún fer að keppast við æfisagnaritun, þa verði kafl- inn um námsárin erlendis ekki fyrst og fremst um blankheitin. - Ertu búinn að selja einhverja af mynd- unum á sýningunni? - Nei. Það hefur aldrei hvarflað að mér að maður festi bara myndirnar sínar á gall- eríveggi hér og fari svo sjálfkrafa að taka á móti peningum. Kerfið er flóknara en það. Til að selja myndir þarf að hafa sambönd, fólk á bakvið sig. Og galleríeigendur eru á varðbergi gagnvart fólki sem er enn í skóla. Annars er það mjög áberandi í New York að skólafólk sem kemur hingað er ekki ein- göngu komið til að stunda nám í sinni grein, það er líka komið til að „meika“ það. Það er sama hvort þú ert í myndlistarnámi eða viðskiptafræði. Hjá flestum er markmiðið ekki að vinna sér inn fjárhæðir sem hægt er að lifa sæmilegu lífi af, heldur eru það æfin- týralegar upphæðir sem fólk er að spá í. - Er það ekki bara annað hvort eða fyrir þetta fólk? Er þetta ekki eðlilegt markmið í borg þar sem allt snýst um peninga? - Þú einfaldar málið of mikið. Þótt fjöldi myndlistarmanna sé mikill hér og öfgarnar miklar þá má setja myndlistarmenn í sölu- legu tilliti í þrjá flokka. í fyrsta flokknum eru þeir sem eru bæði ríkir og frægir en þeir eru langfæstir. Miklu fleiri eru þeir sem lifa sæmilega á sinni list og svo eru þeir sem lifa engan veginn á myndverkum sínum og verða að hafa lifibrauð sitt af öðrum störf- urn. Ef ég ætti að stunda nám hér með því hugarfari að reyna með einhverju móti að troða mér upp í þennan toppsöluklassa þá mundi ég hreinlega hrökkva uppaf. Ég verð að fá að einbeita mér að því að gera myndir sem skipta sjálfan mig máli. Ég get ekki verið að elta hinar og þessar stefnur. Það skiptir mig höfuðmáli að vera sjálfum mér samkvæmur í minni myndgerð. Ékki svo að skilja að ég vilji ekki reyna að sjá fyrir mér með myndgerð. Ég verð bara að vona að það sem ég er að gera smelli inn á markað- inn. - Á seinustu önn varstu í listasögutímum hjá Donald Kuspit, sem er helsti talsmaður ný-expressionismans. Hann hefur ekki haft þau áhrif á þig að þú færir að mála með hamagangi? - Nei. Expressionisminn er mín uppá- haldsstefna, sérstaklega hvað varðar kvik- myndir. En ný-expressionisminn snýst oft urn „aðferð" að mínu mati, - og þegar það verður aðalmálið nenni ég ekki lengur.. þegar engin sannfæring er til staðar. Þessu er öfugt farið í rokktónlist. Ef eitthvað er Expressionismi þá er það breskt rokk undanfarin 6-7 ár. Og hvers vegna skyldi það vera? Vegna þess að það er eitthvað meira en bara stæll, það er þörf. Hins vegar vil ég ekki alhæfa of mikið í þessu sam- bandi. Stefnur sem siíkar eiga ekki að geta verið slæmar, þetta er miklu fremur spurn- ing um einstaklinga og það eru góðir menn innan um. Við eigum nokkra góða menn heima á íslandi sem eru á þessari línu. Hér er fjöldinn allur af ungu myndlistarfólki sem reynir að aðlaga sig markaðnum og málar af krafti ný-expressionisk málverk af því að þau seljast grimmt í dag. En þegar þetta fólk verður búið að ná sæmilegu valdi á þessu tjáningarformi þá verður stefnan farin úr tísku og eftir eru andleg blankheit. Þessi stefna er nú þegar orðin hálf þreytt hér. Æ þessi markaðsmál eru svo flókin. Svona stefnur eru hreinlega settar af stað af galleríeigendum og listfræðingum eða ein- hverjum gúrúum. Galleríeigendur nota umtalsverðar fjárhæðir til að gera vissa myndlistarmenn marktæka og verkin þeirra að góðri söluvöru. - En hvað með kaupendur? Heldurðu að yfirstéttln hér sé ekki sá aðili sem endanlega ræður því hvað skiptir máli í myndlist? - Blessuð vertu, hún treystir bæði galier- íeigendum og gagnrýnendum betur en sjálfri sér í mati á myndlist. Til dæmis segir aðal galleríeigandinn hér, Leo Castelli, að hann geti ekki lengur sýnt verk ungra myndlistarmanna í sínum galleríum því kaupendur koma þangað einungis til að kaupa verk eftir þá myndlistarmenn sem hann hefur gert að skotheldri söluvöru, verk eftir Rauschenberg, Johns og Warhol. - Það stendur núna yfir sýning í Fíladelf- íu sem talsvert hefur verið skrifað um. Hún gengur út á að sýna fram á að yngsta kyn- slóð myndlistarmanna beri þess stórlega merki að hún sé alin upp við fjölmiðla. Til dæmis sýnir Sherrie nokkur Levine Ijós- myndir sem hún hefur tekið af verkum Ernst Ludwig Kirchners í myndlistarbók- um. Getur þú skrifað undir svona hug- myndir? - Ég hlýt að skrifa undir þetta því ég vinn mikið í þessum dúr. Margar mynda minna eru einfaldlega Ijósmyndir eða endurgerð á öðrum myndum. Ég er hins vegar ósam- mála því að við berum þess stórlega merki að vera alin upp við fjölmiðla. Hvað mig varðar þá finnst mér það örvandi og ætti ekki að vera verri myndlistarmaður fyrir vikið. Það er nú orðið svo erfitt að segja hvað er eftir hvern og skiptir ekki máli finnst mér. Listamenn eiga að stela öllu steini léttara því þeir stela jú bara því sem þeim finnst gott. Þetta er enn ein aðferðin. Ég sæki minn innblástur ekki í myndlistar- söguna. Myndlist um myndlist er ansi lok- aður hringur. Hins vegar er ég auðvitað eins og aðrir myndlistarmenn af minni kyn- slóð undir sterkum áhrifum af fyrri tíma myndlist og öðrum listgreinum. Tónlist og bókmenntir hafa sterk áhrif á mig, sterkari en myndlist held ég. - Nú er móðir þín, Ragnheiður Jónsdótt- ir, einn af virtustu myndlistarmönnum heima. Særir það þitt karlmannlega stolt að standa í skugga hennar eða ertu montinn af henni? - Ég er mjög montinn af henni og for- eldrum mínum báðum. Þau hafa verið minn besti skóli í myndlist. Ég hef verið með þeim í galleríum frá því að ég var smábarn og haft gott af, þótt ég hafi ekki kunnað að meta það fyrr en síðar meir. - Nú ert þú búinn að taka fyrir bæði geistlega og veraldlega valdamcnn í mynd- um þínum, er þá nokkuð eftir? - Ég er rétt að byrja. Eftir því sem maður sekkur dýpra niður í ákveðið verkefni því meir tekur það mann. Varðandi þessar and- litsmyndir þá finnst mér frekar að ég sé enn í startholunum heldur en kominn að leiðar- enda. New York, í byrjun febrúar ’83. Svala Sigurleifs- dóttir rœðir við Jón Oskar myndlistar- mann í New York Myndlistarmaðurinn ásamt verkum sínum í Visual Arts gall- eríinu í Soho á Manhattan.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.