Þjóðviljinn - 26.03.1983, Page 15
Helgin 26.-27. niars 1983 'þJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Sören Pilmark og Birthe Neumann í Marx og Coca Cola eftir Nils Schou
bækur. Hann skrifar ævinlega lið-
lega, þótt manni þyki honum ekki
alltaf liggja jafnmikið á hjarta.
Nýtt leikrit hans, Sangen om
sengen, var frumsýnt rétt fyrir jól á
litla sviði Konunglega leikhússins,
Grábrödrescenen. Verkið segir frá
lífi hjóna sem hafa verið gift í 18 ár
og gerist í miðpunkti tilveru þeirra,
risastóru hjónarúmi sem næstum
fyllir sviðið. Þarna sjáum við svip-
myndir úr samlífi hjónanna og
samskiptum þeirra við foreldrana.
Kynslóðaskiptin eru Rifbjerg ofar-
lega í huga, sú mótun sem einstak-
lingar verða fyrir frá foreldrum sín-
um og tilraunir þeirra til að skapa
sér sjálfstæða tilveru í samræmi við
breyttar aðstæður. Raddir foreldr-
anna verða þó aldrei þaggaðar nið-
ur - verkið endar með því að for-
eldrarnir, hoppa upp í rúmið til
hjónanna.
Þetta er ekki neitt mikilsháttar
verk, en tungutakið er lipurt og
fyndnin leikandi. Rifbjerg er
glöggskyggn á samtíð sína og nær
frábæru sambandi við áhorfendur,
t.d. í meðferð sinni á kynlífsum-
ræðu, sem Danir hafa verið á kafi í
undanfarið. Eiginmaðurinn geng-
ur mjög á konu sína með spurning-
ar um hvort það sé nú nógu gott og
hvernig henni þyki það best, en
verður öldungis klumsa þegar hún
beinir sams konar spurningum til
hans - það er aðeins kynlíf kvenna
sem getur verið vandamál.
Umfjöllun Rifbjergs er mjög
dönsk - hann fer léttum höndum
um efnið og forðast að kafa í sálar-
djúpin eða lýsa raunverulegum
kvölum. En þetta var ánægjuleg
sýning, ekki síst vegna framúrskar-
andi leiks þeirra Kirsten Olesen og
Ole Ernst í aðalhlutverkum.
Að verða undir
í Fiolteatret er um þessar mund-
ir verið að sýna verk sem heitir
Dæmið hann! og er eftir.Anders
Ahnfeldt-Rönne og Keld Appel.
Þetta leikhns tekur yfirleitt félags-
leg og pólitísk mál til umfjöllunar í
sýningum sínum, og hér er fjallað
um þekkt dómsmál og harðri gagn-
rýni beint gegn aðferðum lögreglu
og dómstóla. Árið 1976 var ungur
maður, Jacob Brölling, dæmdur
fyrir að nauðga og myrða konu.
Jacob þessi var atvinnulaus ein-
feldningur, málhaltur og dálítið
undarlegur, og átti engan að nema
bróður sinn. Eftir langvarandi yfir-
heyrslur játaði hann á sig nauðgun-
ina og morðið, en nokkrum dögum
síðar dró hann játninguna til baka.
Þrátt fyrir margvísleg mistök í
málsmeðferðinni og ýmsan vitnis-
burð sem benti eindregið til þess að
Jacob gæti ekki verið mörðinginn,
var hann engu að síður dæmdur
sekur á grundvelli játningar þeirrar
sem hann dró sjálfur til baka. Hann
situr enn í fangelsi og ítrekaðar til-
raunir til þess að fá mál hans tekið
upp hafa engan árangur borið.
Sagan í Dæmið hann! er tilbún-
ingur, en hún styðst í flestum at-
riðum við mál Jacobs Brölling.
Leikritið sýnir hvernig dálítið ein-
kennilegur einstæðingur og utan-
garðsmaður verður sjálfkrafa að
fórnarlambi lögreglu, sem er undir
þrýstingi að leysa málið sem fyrst,
og samfélags sem trúir öllu illu upp
á mann sem passar ekki inn í það.
Slíkan mann er auðvelt að brjóta
niður og fá til að játa hvað sem er,
og gagnrýnislaust dómsvald lætur
sér slíka játningu nægja til þess að
dæma manninn sekan.
Þetta leikrit er áróðursverk í
þeim skilningi að megintilgangur
þess er að fletta ofan af ákveðinni
tegund rangsleitni í samfélaginu og
það lætur ekki í ljós neinn efa eða
tvíræðni í því sambandi. Þetta
dregur óneitanlega úr dramatisku
gildi þess, en það er vel skrifað og
segir sína sögu á áhrifaríkan hátt,
þó að lausn morðgátunnar í lokin
sé ekki nema mátulega sannfær-
andi. Góður leikur og hreinleg
sviðsetning skapa hér sterka sýn-
ingu sem lætur engan ósnortinn.
Hér er á ferðinni góð samfélagsleg
nytjalist.
Að lokum
Þessi samtíningur gefur varla til-
efni til þess að draga almennar á-
lyktanir um stöðu danskrar leikrit-
unar um þessar mundir, en óhætt
mun þó að halda því fram að þar
hafi undanfarið ríkt nokkur gróska
og mikil fjölbreytni, þó að engin
þau verk hafi komið fram sem
menn geta orðið sammála um að
séu stórvirki. En ég held að full
ástæða sé til þess að gefa dönsku
leikhúslífi gaum, það hefur verið í
örum vexti undanfarið og býr við
vaxandi aðsókn. Við slík skilyrði
getur ýmislegt gerst.
Sverrir Hólmarsson
Aðgerðir til að draga úr innflutningi
/
Afangaskýrsla komin
í ræðu Hjörleifs Guttormssonar við setningu ársþings félags
íslenskra iðnrekenda kom fram að Tómas Árnason viðskiptaráð-
herra dró fulltrúa sinn út úr nefnd, sem vann að aðgerðum til að
draga úr viðskiptahalla. Hjörleifur sagði orðrétt:
„Á vegum ríkisstjórnarinnar
hafa verið unnar tillögur um fjöl-
þættar aðgerðir til að draga úr
'viðskiptahalla og styrkja sam-
keppnisstöðu innlendra atvinnu-
greina með aðgerðum, sem sam-
rýmast alþjóðlegum skuldbinding-
um íslendinga um utanríkisvið-
skipti. Hver stjórnaraðili tilnefndi
sérfróða aðila til að efna í slíkar
tillögur, og áfangaálit hefur nú ver-
ið lagt fyrir ríkisstjórn.
Það er hinsvegar táknrænt að sá
stjórnaraðili sem ber ábyrgð á
utanríkisviðskiptum hætti starfi að
þessum málum í miðjum klíðum og
dró fulltrúa sinn til baka. Sami aðili
gerir svo hástemmdar samþykktir á
flokksþingum um hömlur gegn inn-
flutningi."
-eng.
Fyrirpáska
ferNóí
í hörku samkeppní
við haenumar!
Páskaeggin frá Nóa og Síríus, - eggin hans Nóa,
hafa ýmislegt fram yfir þau „páskaegg" sem hænumar
em að kreista úr sér þessa dagana. Eggin hans Nóa fást í 6 stærðum,
þau em fagurlega skreytt og búin til úr hreinu súkkulaði.
Þau hafa líka mun fjölbreyttara innihald en egg keppinautarins,
t.d. brjóstsykur, karamellur, konfekt, súkkulaðírúsínur og kropp,
að ógleymdum málshættinum.
Þrátt fyrir þessa kosti mælum við ekki með eggjunum
hans Nóa í bakstur, ofan á brauð eða með beikoni!
Eggin hans Nóa eru gómsaet, - og úr hreínu súkkulaði!
JMa M Mm