Þjóðviljinn - 26.03.1983, Side 24
5S AGK - WrUíVGOl^ rí -.dí nigisH
24 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 26.-27. mars 1983
Um síðustu helgi ilaug ég til ís-
afjarðar og það er ávallt nokkuð
sérstök lífsreynsla að fljúga þang-"
að að vetrarlagi. Mér leist ekki
sérlega vel á blikuna þegar ég reif
mig á lappir kl. 7 á föstudegi. Úti
var snjóaveður, gekk á með
byljum.
Mæting kl. 8. Á Hring-
brautinni var skafrenningur og
stundum svo dimmt að varla sá í
næsta bíl. Éa huesaði með mér að
tæplega yrði flogið í dag. Á flug-
vellinum virtist þó allt með
felldu. ísafjarðarskiltið var uppi
og tekið við farangri. Ég fékk
mér kaffisopa og horfði sljóum
augum á syfjaðaferðalanga.
Svo var tilkynnt frestun á flugi
til Vestmannaeyja og farþegar
beðnir að athuga málið kl. 11.
Það verður ekkert flogið til Isa-
fjarðar heldur, flaug í gegnum
daufan hugann en ég hafði ekki
rænu á að spyrja neins.
Svo kom skyndilega tilkynn-
Farþegar til Isafjarðar...
ing: Farþegar til ísafjarðar eru
beðnir að gera svo vel að ganga út
í Keflavíkurrútuna!
Keflavíkurrútuna! Það var
lóðið. Vegir vestur liggja til allra
átta. í rútunni hitti ég gamlan
nemanda minn sem býr í Kefla-
vík. Hann var nýkominn til
Reykjavíkur frá Keflavík og
skildi nú eftir bílinn sinn á
Reykjavíkurflugvelli til þess að
fara með rútunni til Keflavíkur
aftur. Svo yrði sjálfsagt ekkert
flogið og þá yrði hann að fara
aftur til Reykjavíkur til þess að ná
í bílinn sinn til þess að komast til
Keflavíkur á ný. Ferðalag hans
þennan morgun yrði þá yfir 200
kílómetrar án þess að komast
nokkuð nær takmarkinu.
Rútan silaðist eftir Keflavík-
urveginum og fólk dottaði eða
yrti einsatkvæðisorðum hvert á
annað. Ósköp var þetta eitthvað
tómlegur morgun - kaldur og
ónotalegur.
Á Keflavíkurflugvelli fóru allir
inn á kaffiteríuna nema Þorvald-
ur Garðar sem sat út í rútu og las
Moggann sinn. Flestir fengu sér
morgunmat. Skyldi vera flogið til
ísafjarðar í dag? Drykklöng
stund leið og ég var búinn með
tvo kaffibolla og kominn langt
með tvo vindla þegar rödd barst
úr hátalarakerfinu: Farþegar til
ísafjarðar beðnir að gera svo vel
að fara í rútuna!
Jahá. Það er nefnilega það. Til
Reykjavíkur aftur? Eða átti
kannski að freista þess að koma
okkur landleiðina vestur? Hinar
verstu hugsanir vöknuðu í garð
Flugleiða, en þær voru ástæðu-
lausar því rútan fór beina leið að
Fokker sem kúrði úti á vellinum
innan um stríðstól Kanans. Svo
var stigið um borð.
Flugvélin var lengi að undirbúa
flugtak og öllum var hrollkalt um
borð. M.a. sá ég út um gluggann
að sprautað var vökva á skrúfurn-
ar. Sennilega til varnar gegn ís-
ingarhættu, hugsaði ég með mér
og fór um mig. í loftið fór vélin
loks um 11-leytið og stefndi vest-
ur í sortann. Á miðri leið grillti í
Stykkishólm en síðan vissi maður
vart af sér fyrr en flugið var lækk-
að og sá í öldur ísafjarðardjúps
undir vélinni. Hún lækkaði stöð-
ugt flugið og beygði loks inn fyrir
Arnarnesið. Ekki sá inn Skutuls-
fjörð fyrir svörtum éljavegg.
Ég vissi að inn Skutulsfjörð
verður að fljúga sjónflug og flug-
völlurinn er háskalega nærri snar-
bröttum fjallshlíðum. Ég tók því
þann kost að lygna aftur augun-
um og þegar ég leit næst upp var
vélin lent á ísafjarðarflugvelli -
eins og ekkert hefði í skorist.
Á sunnudag skaust ég til baka
suður á smárellu - þegar rofaði
aðeins til. Frá því ferðalagi segi
ég ekki.
- Guðjón
sunnudagskrossgátan
Nr. 364
7 2 i— v— 5“ (d 7- 2 ? 22 )0 tt 8 TJí 3
71 V )¥■ / KT 2 1 )0 1 (0 22 13 ) )H
n 22 ¥ / JS' \3 22 3 )H )b Ke 18 2 V 9
)? 20 22 21 22 22 & w lí, )¥ 22 J5~ 22
2j 1 23 12 22 2H /o 23 H 22 /r 2 H- 10
) 23 12 1> 22 10 23 25- 8 2!o i 22 Zb 22 )2
2b >FÓ zu s? 2(p 22 )¥- 22 8 12 H )(p 22 23
)Z 1 2¥ /V 21 22 u )2 2 18 V zt 12 22 22
22 9 2¥ 1Ý ■ l 1 V )5~ I ÍÍL <?> ) /0
;/ )¥ 22 21 8 )Z í H- 32 18 1 ‘2 Up
2(p )¥ 12 2? 3 )2 23 )8 * 22 28 17- H
9 12 7 V 1? JH 17- 1H 22 H l(? 29 13 22 22
Us> 22 2¥ 6 /5" 22 lg 30 30 CY' V )<b 30 H 17- 12
AÁBDDEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝþÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá karl-
. mannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj-
ans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 364". Skilafrest-
ur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send vinningshafa.
// 21 8 <£> cíc L / 5 /8 8
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnr er sá að
finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp, því
með því eru gefnir stafir í allmörgur orðum. Það eru því eðlilegustu
vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem
tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í þessari
krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða og
breiðum, t.d. getur aldrei a komið í stað á og öfugt.
Verðlaunin
Verðlaun fyrir krossgátu nr.
360 hlaut Margrét Péturs-
dóttir, Vesturgötu 61, Akra-
nesi. Þau eru hljómplatan
Lífsjátning með Guðmundu
Elíasdóttur. Lausnarorðið
var Hvíteygla
Verðlaunin að þessu sinni er
leikritið Oresteia eftir
Æskilos í þýðingu Helga
Hálfdanarsonar,en það kom
út hjá AB fyrir skömmu.