Þjóðviljinn - 26.03.1983, Síða 30
30SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN' Helgin '26;J-27.’ mars 1983 ‘‘
Tillögur minnihlutans koma til framkvæmda:
Börn og aldraö fólk
borgar minna í strœtó
Dugir þó skammt upp í stórfelldar álögur
r
á þessa hópa, sagði Guðrún Agústsdóttir
Eftir helgina koma til framkvæmda breytingar á fargjöldum
SVR þannig að ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem njóta tekjutrygg-
ingar, fá nú keypt afsláttarkort eins og þeir sem eru orðnir
sjötugir. Þá mega fullorðnir nú taka með sér fleiri en eitt barn
undir fjögurra ára aldri í strætó án þess að bórga fyrir. Tillögur
um þetta voru annars vegar bornar fram í félagsmálaráði af
þeim Guðrún Ágústsdóttur og Guðrúnu Jónsdóttir og hins veg-
ar í stjórn SVR af þeim Helgu Thorberg og Guðrúnu Ágústs-
dóttur.
„Hér er um að ræða réttinda-
mál fyrir tiltölulega fámennan
hóp Reykvíkinga og þessar
breytingar skipta sáralitlu máli
varðandi fjárhag SVR“, sagði
Guðrún Agústsdóttir í gær.
„Enda er það trúlega ástæðan til
þess að þær voru samþykktar víð
gerð fjárhagsáætlunar.“
„Þessar breytingar vega hins
vegar ekkert upp á móti þeim
gegndarlausu hækkunum á al-
mennum fargjöldum sem meiri-
hluti borgarstjórnar hefur dembt
yfir farþega SVR enda eru þessar
tillögur báðar fluttar löngu áður
en okkur óraði fyrir því að afslátt-
arkort yrðu tekin úr umferð í
Reykjavík um miðjan janúar“,
sagði hún. Aðrar tillögur, sem
við höfum flutt eftir það hafa ekki
fengið jákvæðar undirtektir, svo
sem þær að skólabörn á aldrinum
13-15 ára þurfi ekki að borga fullt
fargjald eða að tekin verði upp
sala mánaðarkorta.
-ÁI
Herstöðva-
anstæðingar
Útifundur
við
þing-
húsið
30.
mars
30. mars n.k. eru 34 ár frá því
meirihluti alþingismanna greiddi
því atkvæði að ísland gerðist aðili
að hernaðarbandalaginu Nató. Af
því tilefni hafa samtök herstöðvar-
andstæðinga boðað til útifundar
fyrir framan alþingishúsið mið-
vikudaginn 30. mars kl. 17.30.
Stutt ávörp flytja Arnþór Helga-
son, Ólafur Ragnar Grímsson og
Þórhildur Þorleifsdóttir. Fundar-
stjóri verður Njörður P. Njarðvík.
—óg
Þeir keyra álinu
til útskipunar
í Hafnarfirði
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins
kynnir starfssemi sína:
Jarðslagi í skreið
veldur miklu tj óni
,Jarðslagi í skreið er orðið eitt
aðalvandamálið sem skreiðarfram-
leiðendur eiga nú við að stríða,“
sagði Björn Dagbjartsson forstjóri
Rannsóknastofnunar fískiðnaðar-
ins á blaðamannafundi sem Rann-
sóknastofnun efndi til í gær. Þar
var starfsemin kynnt þó einkum
þau verkefni sem ný eru hjá Rann-
sóknastofnun fískiðnaðarins.
Jarðslagi í skreið er galli sem kem-
ur fram í skreiðinni við sérstakar
aðstæður. Þar spilar inn í rakastig
físksins og rakastig lofts. Myglug-
róður vex utan á skreiðinni, rauður
eða svartur og sá svarti sérlega
slæmur og veldur því að skreiðin
fellur um gæðaflokk og er óseljan-
leg á bestu skreiðamörkuðum í ít-
alíu.
Starfsemi Rannsóknastofnunar
fiskiönaðarins beinist um þessar
mundir m.a. í þá átt stemma stigu
við þessari þróun. Gallinn er sér-
staklega tíður hjá skreiðaverkend-
um í Grímsey, en er algerlega ó-
þekkt fyrirbæri þar sem skreið er
verkuð innanhúss.
Á kynningarfundinum í gær var
einnig rætt um niðurstöðu rann-
sókna á verkun fisks um borð í
fiskiskipaflotanum og þá einkum
þeim aðferðum sem beitt er við
blóðgun og slægingu. Við blóðgun
og slægingu er helst notast við tvær
aðferðir sem eru mismunandi tíma-
frekar. Önnur þ.e. sú fyrirhafnar-
minni byggist á blóðgun og slæg-
ingu samtímis sem í sumum tilvik-
um hefur í för með sér skemmdir á
fiskinum fyrr en ef fiskurinn er
blóðgaður og slægður í tvennu lagi.
í þeim tilvikum sem gallar komi
fram er um blóðgalla að ræða en
talið er að slíkir gallar fyrirfinnist
ekki ef fiskurinn er tekinn lifandi til
aðgerðar.
Þá var á fundinum rætt um los og
sprungur sem kom í ljós eftir salt-
fiskverkun og hefur valdið miklum
erfiðleikum, námskeiðahald um
gæðamat, verkun og flokkun grá-
Húðu og vinnslu vannýttra fiski-
stofna. Hvað varðar vinnslu á van-
nýttum fiskistofnum beinast augu
manna helst til kolmuna, en talið er
að íslendingar ættu með góðu móti
að geta veitt um 100 þús. tonn af
kolmuna árlega og þá á tímabilinu
júlí - mars. Aflaverðmæti í kring-
um 600 miljónir króna. Fram-
leiðsla á kolmunahraðfiski erþegar
hafin hjá einu fyrirtæki á landinu.
-hól.
Aðalfundur Flugleiða
segir Guðbjartur Sigurðsson
í flutningadeild
Á bryggjunni í Straumsvík
hittum við Guðbjart Sigurðs-
son verkamann í flutningadeild
álversins.
Aðspurður sagðist hann vera
í yfirvinnubanni eins og aðrir
verkamenn úr Hlíf. Yfirvinnu-
bannið beinist gegn uppsögn-
um á mönnum sem unnið hafa
hér í 3-4 ár og eru því ekki
lausráðnir að okkar mati.
Annars höfum við á flutning-
adeildinni ekki verið ánægðir
með þetta, því við vinnum hér í
dagvinnu og erum ekki á vökt-
um. Yfirvinnubannið kemur
illa niður á okkur, því þeir
keyra álinu til Hafnarfjarðar og
skipa því þar út í stað þess að
skipa því út hér. Við erum því
óhressir út af þessu öllu saman.
Stjórnin endurkjörin
Stjórn Flugleiða var öll
endurkjörin á aðalfundi félags-
ins í gær, en úr henni áttu að
ganga Örn O. Johnson, Krist-
jana Milla Thorsteinsson, Óttar
Möller og Sigurður Helgason.
Auk þeirra sitja í stjórninni:
Kristinn Olsen, Grétar Br. Krist-
jánsson, Halldór H. Jónsson, Kári
Einarsson, tilnefndur af samgöng-
uráðuneyti og Rúnar B. Jóhanns-
son tilnefndur af fjármálaráðherra.
Örn O. Johnsen hefur verið stjórn-
arformaður félagsins og er búist við
að stjórnin muni endurkjósa hann
sem slíkan á næsta fundi sínum.
Varastjórn var einnig endur-
kjörin en hana skipa Olafur Ó.
Johnson, Einar Árnason og Jó-
hannes Markússon.
Á aðalfundinum var felld tillaga
frá Kristjönu Millu Thorsteinsson,
um að aðalmenn í stjórn réðu því
hvaða varamaður sæti fyrir þá.
Aðeins 16% studdu tillöguna en
60% vildu hafa óbreytta skipan,
þ.e. að varamenn kæmu inn í
þeirra röð sem þeir eru kjörnir.