Þjóðviljinn - 21.04.1983, Side 5
Fimmtudagur 21. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Nýtt hefti Réttar:
X
Notið vald ykkar
á laugardaginn
Forðið að fram-
tíðin verði mótuð
eftir stefnu
Thatchers óg
Reagans.
„Undirlægjuháttur borgara-
flokkanna í hermálinu og ál-
málinu er orðinn stórhættulegur
sjálfstæði íslands og hagsmun-
um íslenskrar þjóðar. Aðeins
stórsigur Alþýðubandalagsins
með róttæka sósíalistíska
þjóðfrelsisstefnuskrá getur
hrætt afturhaldsflokkana frá
því að skríða saman í verka-
lýðsfjandsamlegustu landráða-
stjórn sem ísland hefur þjáðst
undir.“ Svo segir m.a. í leiðara
Réttar, en 1. hefti þess árgangs
er nú nýkomið út.
í leiðaranum fjallar ritstjóri
Réttar, Einar Olgeirsson, um kosn-
ingarnar sem nú standa fyrir dyrum
og vekur athygli á því sem vænta
má ef flokkar stórkaupmanna,
verslunar- og hermangara sigra í
þeim: „í fyrsta lagi ætlar þetta
afturhald að afnema öll félagsleg
réttindi alþýðu: Gróðalögmálið
eitt á að drottna, - allt frá strætis-
vögnum til sjúkrahúsa á að bera
sig. í öðru lagi boðar afturhaldið að
ríkisfyrirtæki skuli tekin af almenn-
ingi og afhent „einstaklingum" þ.e.
þægum bröskurum með réttan pól-
itískan lit. í þriðja lagi skulu
bandaríska hervaldinu opnaðar all-
ar gáttir til nýtingar íslands sem
vopnahreiðurs og árásarstöðvar, er
stofnar lífi þjóðarinnar í hættu. 1
fjórða lagi er auðséð, ekki hvað síst
af því hvílíkan undirlægjuhátt
borgaraflokkarnir sýna gagnvart
álhringnum, að þeir ætla sér að of-
urselja ísland meir og meir í járn-
klær erlendra auðhringa en leggja
því þyngri byrði á herðar alþýðu
1s%su
KR HEFIIÐ luUUlll
VERÐUR FRAMTIÐIN MOTUD
SAMKVÆMT ÞEIRRA STEFNU?
ATVINNULEYSI. LAUNAMISRETTI OG
AFNÁM FELAGSLEGRA RETTINDA?
ÞITT ER VALDIÐ NÚ í APRÍL!
eins og nú þegar sést með raf-
magnsverðið," segir þar.
í þetta fyrsta hefti 66. árgangs
Réttar ritar Ásmundur Hilmarsson
grein er nefnist: „Launamanna-
sjóðir á íslandi?“, Páll Bergþórsson
ritar greinina: „Frumskógar og
stjórnmál," og birt er samantekt
Margrétar Jónsdóttur, frétta-
rflanns „Um skóga í heiminum",
sem flutt var í útvarp 11. j anúar s. 1.
Þá er Guðmundar Vigfússonar,
fyrrum borgarfulltrúa minnst, Ein-
ar Olgeirsson ritar „Veröldin einni
öld eftir andlát Marx“, „Ætlar
Bandaríkjastjórn að gereyða
mannkyninu til að útiýma komm-
únismanum?" og „Alhringurinn
arðrænir ísland". Þá eru birt nokk-
ur ljóð eftir Mauritz Nylund auk
annars éfnis.
Afgreiðsla Réttar er í Síðumúla
6, og geta menn gerst áskrifendur
með því að hringja í síma Þjóðvilj-
ans, 81333.
„,„a
jetöa1
OOút <
* ■. *&#**■«
0qV\e\9a
•\bo'
d\t\ev
* 3<3<
Jaoe
ýoó'
^vjótóe
Moats'
Soe^ee'°c\qt\övt^a
■ feC-—
WVatv
|Síi\oW
kWs»nS'
Þinghóll /sumardaginn fyrsta
SUMARGLEÐI
-Lislans
verður haldin í Þinghól, Hamraborg 11 í Kópavogi
á sumardaginn fyrsta, kl. 3-6
Dagskrá gleðinnar:
Stutt ávörp: Geir Gunnarsson
Elsa Kristjánsdóttir
Upplestur: Jón Júlíusson
Valdemar Lárusson
Eva og Heiðrún sjáAim barnahornið
Kaffi og kökur á boðstólum.
Söngur og spil:
Kjartan Ragnarsson
Hanna María
Sönghópurinn
Raddbandið
Veislustjóri er Aðalsteinn Bergdal
Allir velkomnir.
Gelr
Elsa
Jón
v~\M
Valdemar
Sönghópurlnn Raddbandlð
Hanna Marfa A&alstelnn Hel&rún
Kjartan