Þjóðviljinn - 21.04.1983, Page 10

Þjóðviljinn - 21.04.1983, Page 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 21. apríl 1983 Dagana 9. og 10. apríl sl. var haldin í Glasgow í Skotlandi ráð- stefna, sem bar heitið „Confer^nce on Nuclear-free North Atlantic" (ráðstefna um kjarnorkulaust N- Atlantshaf). CND-samtökin í Skotlandi stóðu fyrir ráðstefnunni, en hún var haldin að frumkvæði dr. Ólafs Ragnars Grímssonar, sem hefur átt mikinn þátt í að stuðla að samskiptum íslenskra friðarsinna við erlendar friðarhreyfingar. Ráðstefnuna sóttu fulltrúar frá CND og END á Bretlandseyjum, og fulltrúar friðarhreyfinga í Dan- mörku, Finnlandi, Noregi og Sví- þjóð. Tveir íslendingar sóttu ráðstefnuna, þeir Erling Ólafsson og Vigfús Geirdal og við báðum þá að segja okkur undan og ofan af ráðstefnunni. Á ráðstefnunni var fjallað um nokkra málaflokka, þ.á.m. hern- aðaruppbyggingu í N-Atlantshafi, friðarfræðslu eða aðgerðir friðar- baráttu án ofbeldis og læknisfræði- legar upplýsingar um áhrif geisla- virkni. Haldinn var opinn fundur athyglinni að auknum vígbúnaði í N-Atlantshafi og stefna að friðlýs- ingu þess. Einnig var lýst yfir vilja til samstarfs við friðarhreyfingar handan Atlantshafsins, Kanada og Bandaríkin, og Grænland og Fær- eyjar og einnig þær þjóðir sem að- gang eiga að Norðursjó. Þá var einnig lýst yfir vilja til sameigin- legra aðgerða og gagnkvæms stuðnings friðarhreyfinga í hverju landi. Þá var samþykkt að þessu sam- starfi bæri að halda áfram og var kosin 4ra manna nefnd til að undir- búa ráðstefnu um sama mál að ári. Vigfús Geirdal er einn fjórmenn- inganna og sagði hann áætlað að ráðstefnan yrði haldin annað hvort í Noregi eða á íslandi. „Áhrifin sem við urðum fyrir af ráðstefnunni er mjög míkill,“ sögðu þeir Erling og Vigfús. „Sú mýta hefur skapast hér að við séum að vinna eitthvað sérstakt - að eng- ar þjóðir eigi við sama vanda að glíma og við og að friðarbaráttan í Evrópu snúist um eitthvað annað en herstöðvar. Þetta er alrangt. Þarna sést kjarnorkuherstöðin Holy Loch í Clydefirði. Smábærinn Sandbank sést bakatil. (Ljósm. VG) / Erling Olafsson og Vigfús Geirdal: „Vandinn er allsstaðar hinn sami” Hrikalegar áætlanir um vígbúnað í N-Atlantshafi vekja ugg „Það þarf ckki nema eitt slys til þcss.að leggja lífsafkomu okkar í rúst,“ Erlingur Olafsson og Vigfús Geirdal komu reynslunni ríkari af ráðstefnu í Glasgow. (Ljósm. - eik -) Erling Ólafsson fyrir miðri mynd í hópi ráðstefnugesta í Glasgow. (Ljósm. VG) SÖLUSKATTUR Viöurlög falla á söluskatt fyrir marsmánuö 1983, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan eru viður- lögin 5% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. maí. Fjármálaráðuneytið, 18. apríl 1983. fyrir almenning í tengslum við ráðstefnuna og var aðalræðumaður þar John Cox, varaformaður END ■' Bretlandi. Vigfús Geirdal skýrði frá friðar- baráttunni á íslandi á opna fundin- um og rakti sögu og starf her- stöðvaandstæðinga. Vigfús lagði þar áherslu á menningararfleifð okkar og þá staðreynd, að vera er- lends herliðs á íslandi væri í sjálfu sér ógnun við sjálfstæði og tilveru þjóðarinnar, en jafnframt hefði koma AWÁCS-vélanna orðið til að vekja okkur rækilega til umhugsunar um það, í hvílíkri hættu við værum sem skotmark í kjarnorkustyrjöld og hvílík ógnun herstöðvarnar héi; væru við heimsfriðinn. Það var mál Erlings að reynsla íslenskra herstöðvaandstæðinga hafi haft töluverð áhrif á aðra ráðstefnugesti. Einkum vildu Skotar og Irar fá meiri upplýsingar, en bandarískar herstöðvar eru nú þegar í Skotlandi og í Clyde-firði eru þrjár kjarnorkuherstöðvar þar sem kafbátar sigla út og inn með kjarnorkuflaugar. Þeir Erling og Vigfús heimsóttu reyndar smábæ- inn Sandbank og skoðuðu Holy Loch kafbátastöðina, sem þar stendur svo að segja inni í miðju þorpi. Sögðu þeir þetta vera ó- gleymanlega sjón og hindra bæri með öllum ráðum að fá slíkan ó- fögnuð hingað til lands. Heimildir úr bandaríska varn- armálaráðuneytinu herma, að hug- myndir séu uppi um að setja 3.000 stýriflaugar í N-Atlantshafið í ná- inni framtíð. Þá herma sömu heim- ildir að áætlanir séu einnig uppi um að setja stýriflaugar á land, hugs- anlega á Grænlandi, íslandi eða í Skotlandi. Eldflaugum þessum er ætlað að koma í veg fyrir gagnárás sovéská flotans. Þeir Erling og Vigfús sögðu að friðarrannsóknarmenn teldu, að þessar áætlanir kynnu að skapa þvílíkan þrýsting á Sovétríkin, að þaukysújafnvel að verða fyrri til að hefja kjarnorkustríð, vitandi vits að þ au myndu tapa því stríði, bara til að gera ósigurinn minni - því slíkir yrðu yfirburðir Bandaríkja- manna ef þessar áætlanir standast. Sameiginleg stefnuyfirlýsing Á ráðstefnunni snerist umræðan smám saman að vánni á N- Atlantshafi og nauðsyninni á friðun þess og nauðsyninni á því, að allar þjóðir við N-Atlantshaf taki höndum saman í friðarbarátt- unni, einnig Grænlendingar og Færeyingar, en þeir hafa ekki enn sem komið er tekið þátt í erlendu Vandinn er alls staðar hinn sami og friðarstarfi. Ráðstefnunni lauk við verðum að taka höndum saman með sameiginlegri stefnuyfirlýs- við aðra friðarsinna, hvar sem er í tngu þeírra friðarhreyfinga, sem heiminum.“ þarna áttu fulltrúa, ufn að beina — ast * AUGLÝSING M RÆKJUVEIÐAR VIÐ ELDEY Þeir skipstjórar og útgerðarmenn rækjubáta, sem hyggjast stunda rækjuveiðar á Eldeyjar- svæðinu í sumar þurfa að sækja um veiðileyfi til sjávarútvegsráðuneytisins fyrir 27. apríl nk. Umsóknir, sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina þegar tekin verður af- staða til umsókna um veiðileyfi. Sjávarútvegsráðuneytið 18. apríl 1983. AÐALFUNDUR Málarafélags Reykjavíkur verður haldinn að Lágmúla 5 fimmtudaginn 28. apríl kl. 20. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál. Stjórnin. XVII Norðurlandaþing um málefni vangef- inna verður haldið í Stavanger í Noregi 10.-12. ágúst nk. Umsóknarfrestur er til 1. maí. Dagskrá þingsins og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Styrktarfélags vangefinna, Há- teigsvegi 6 og hjá Landssamtökunum Þroskahjálp, Nóatúni 17. Þar eru einnig gefn- ar nánari upplýsingar, svo og hjá Sigríði Ingi- marsdóttur í síma 34941. Landssamtökin Þroskahjálp, Styrktarfélag vangefinna.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.