Þjóðviljinn - 21.04.1983, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 21. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
„Mérfannst ég auðvitað
alastuppviðeðlilegar
aðstæður og það er ekki fyrr en
í seinni tíð að ég geri mér grein
fyrir, að þettavar að mörgu leyti
nokkuð óvenjuleg uppeldi. Mér
finnstsvonaeftiráað hyggjaað
þetta hafi verið gott - við nutum
bæði öryggis og blíðu, en
móðurímynd mín var alls ekki
þessi hefðbundna kvenímynd,
heldurþvertámóti. Þarvarekki
fyrr en ég fór að fara að heiman
að það var farið að halda því að
mér að konur gætu ekki þetta
eða hitt“.
Jóhanna Leópoldsdóttir skipar
þriðja sætið á framboðslista Al-
þýðubandalagsins í Vesturlands-
kjördæmi. Jóhanna átti nokkuð
óvenjulega barnæsku miðað við
okkur hin - hún ólst upp við
Hreðavatnsskála sem var allt í
senn: heimili fjölskyldu hennar og
vinnustaður foreldranna, en þeir
eru Olga Sigurðardóttir og
Leópold Jóhannesson.
„Við vorum mjög sjaldan færri
en tíu við matarborðið og við
krakkarnir fórum snemma að
hj álpa til. Ég held að þetta hafi gert
okkur sjálfstæðari en kannski
gengur og gerist og svo einnig hitt,
allt í lagi, hún hefði gert þetta áður!
En hún hélt líka að ég væri komin á
steypirinn.
En fólkið er búið að fá nóg eftir
þessa hrakninga og nú er ekki lagt '
af stað með mig ef mikil ófærð er.
Og það er kannski von að fólk vilji
fara varlega: tveir frambjóðenda
Framsóknarflokksins hafa velt bíl-
um sínium og nýlega munaði litlu
um frambjóðanda Bandalags jafn-
aðarmanna“.
Kosningabaráttan
erfiö fyrir
fjölskyldurnar
„Mér hefur fundist kosningabar-
áttan ganga vel, en ég er reyndar
nýgræðingur í baráttunni og hef því
kannski ekki beina viðmiðun, þótt
ég hafi tekið þátt í rniklu félags-
starfi. Fundarformið á hinum sam-
eiginlegu fundum er einstefnu-
miðlun, en um þetta hefur orðið
s;imkomulag vegna ófærðarinnar.
Þetta er jafn óskemmtilegt fyrir
frambjóðendur og fyrir kjósendur,
en kemur ekki til af góðu.
Kosningabaráttan tekur líka
mikinn tíma og það segir sig sjálft
að eitthvað verður að sitja á hakan-
um. Hjá mér hefur það verið mað-
urinn minn, fjölskylda og vinir. Því
er tekið sem gefnu, að konur sæni
/
Útibússtjórinn að Vegamótum í Miklaholtshreppi á tali við Svavar Halldórsson, sölumann Sambandsins í
Holtagörðum, en Jóhanna hefur samband vikulega við SÍS vegna starfsins. (Ljósm. -eik)
Eg er engin súperkona
Lítil stund milli stríða hjá Jóhönnu Leópoldsdóttur,
útibússtjóra, verðandi móður og frambjóðanda á Vesturlandi
í kosningabaráttunni gefst lítill tími til að huga að einkamálum, þótt
aðkallandi séu. Jóhanna notaði þann stutta tíma, sem hún átti í Reykjavík
kringum síðustu helgi, til að kaupa barnarúm. (Ljósm. -eik).
að einkaþarfirnar sátu ekki í fyrir-
rúmi - við kipptum okkur ekki upp
við smámuni, en þeir hafa reynst
mörgum fjötur um fót“.
Frá Nýja Sjálandi
til Vegamóta
Jóhanna fór í heimavistarskóla
að Varmalandi níu ára gömul og
síðan í Reykholt. Eftir það tók
Samvinnuskólinn við.
Jóhanna fór síðan sem skipti-
nemi alla leið til Nýja Sjálands.
„Nei, ég er ekki eini íslendingurinn
sem hefur dvalið þarna. Steingrím-
ur Sigfússon, efsti maður á lista AB
(Norðurlandi eystra, hafði t.d. ver-
ið þarna tveimur árum áður og
hann kom þarna út smátíma meðan
ég var þar. Þannig kynntumst við.“
Jóhanna bjó fyrst um tíma með
fjölskyldu á Nýja Sjálandi en síðar í
sambýli með tíu öðrum ung-
mennum víðs vegar að af jarðar-
kringlunni. Hún segir þetta hafa
verið ómetanlega reynslu. „Ég fór
þarna ein og varð að standa fyrir
mínu óstudd. Það var ákaflega
þroskandi. Þarna var dásamlegt að
vera og ég ber hlýhug til Nýja Sjá-
lands síðan. Gróðurríkið og lofts-
lagið þarna er eins og himnaríki á
jörðu“.
Sem arfleið af skiptinemaför-l
inni er Jóhanna nú með tvö ung-
menni undir sínum verndarvæng.
Annað þeirra er sænsk stúlka, sem
vinnur að Sólheimum í Grímsnesi,
og hitt er drengur frá Costa Rica,
og vinnur hann í salfiski í Ólafsvík.
Eftir dvölina á Nýja Sjálandi
dvaldi Jóhanna eitt ár í Reykjavík
og tók síðan við starfi útibússtjóra
að Vegamótum í Miklaholts-
hreppi.
„Jú, það er því miður óvenju-
legt, að kona gegni slíku starfí“,
svarar Jóhanna spurningu minni.
Ég spyr einnig hvernig henni hafi
verið tekið í starfinu. „Mér finnst
erfitt að skilgreina hvenær ég hef
sjálf goldið kynferðisins - það er
einhvern veginn auðveldara að
finna dæmin annars staðar. Því er
ekki að neita að þetta þótti óvenju-
legt, en mér hefur verið tekið vel.
Kannski má helst benda á mótlæti í
því, að sambýlismanni mínum hef-
ur verið vorkennt óspart!
Annars get ég nefnt eitt dæmi
þarseméggalt kynferðisins, enþað
var þegar ég sótti um að vera
sveitarstjóri í Grundarfirði - ég
hefði orðið fyrsta konan til að
gegna slíku embætti. Framsóknar-
menn höfnuðu mér og þegar ég fór
í viðtal að eigin ósk var mér helst
fundið það til foráttu að hafa aldrei
migið í saltan sjó! Einnig var ég
spurð hvers vegna mér dytti í hug
að sækja urn svona starf nýskriðin
úr skóla, en þó vissu menn að ný-
útskrifaðir strákar hafa tekið að
sér slík störf oftsinnis.“
Kosningabarátta
og meöganga
Jóhanna gengur með fyrsta barn
sitt ogsambýlismannsins, Kristjáns
Gestssonar, rafvirkja. Ég spyr
hvort ekki sé erfitt í slagnum undir
þessum kringumstæðum.
„Ég var hrædd um það sjálf að
geta ekki staðið mig sem skyldi og
leist ekkert á. En samherjar mínir
hvöttu mig til að taka þátt í barátt-
unni og sögðust kæra sig kollótta
þótt ég gæti ekki verið í öllu.
Ég viðurkenni að þetta þykir
óvenjulegt, en það er bara vegna
þess að fólk er ekki vant þessu.
Eftir á að hyggja er ég fegin að ég
fór út í þetta, því allt fordæmi í
þessum efnum er gott. Ég minnist
þess líka, að mamma sagði við mig
þegar ég var að barma mér áður en
ég ákvað að taka þátt í síðari um-
ferð forvalsins, að það væri ekki
hægt að hætta öllu út af einu barni.
Og það er alveg rétt - konur eiga
ekki að hætta að hugsa eða taka
þátt í tilverunni þegar svona stend-
ur á, ef kraftar og heilsa leyfa.
Hugsaðu þér konurnar áður
fyrr, og marga hverja núna, sem
urðu að sinna öllu með hóp barna í
pilsfaldinum, eitt á handlegg og
annað á leiðinni. Það er meiri þörf
að vorkenna þeim heldur en kon-
um eins og mér.
Ég hef ekki mætt öðru en vin-
semd og tillitssemi í minn garð.
Karlar sýna ófrískum konum ótrú-
lega tillitssemi og umhyggj u og pól-
itískir andstæðingar mínir verða
bljúgir í minn garð. Þeir ná því ör-
ugglega upp síðar! Samstarfsfólk
mitt hefur einnig sýnt mér mikla
hjálpsemi, og ég kann því bestu
þakkir fyrir.“
Ætlaöi að
hita skærin
Kosningabaráttunni hafa fylgt
mikil fundarhöld og Jóhanna hefur
ekkert dregið af sér á því sviði.
Mikil ófærð hefur verið á Vestur-
landi og erfitt að komast á fundina.
Síðastliðinn sunnudag t.d. voru
þau Jóhanna, Skúli Alexandersson
og fleiri frambjóðendur sjö og hálf-
an tíma að komast frá Hellissandi í
Borgarnes.
„Jú, ég get sagt margar ófærðar-
sögur“, segir Jóhanna. „Laugar-
daginn fyrir páska lagði ég af stað
úr Grundarfirði klukkan fimm
ásamt fleira fólki, þar á meðal
Guðmundi J. og Elínu Torfadótt-
ur. Um hálftvö um nóttina fékk ég
inni að Grund í Kolbeinsstaða-
hreppi eftir að hafa dottað á öxl
Elínar mestan part kvölds. Rútan
varð að fara aðra leið en þessa
venjulegu suður og því varð ég
þarna eftir. Heim til mín kom ég
ekki fyrr en eftir hádegi á páskadag
og fór maðurinn minn með mig á
snjósleða síðasta spölinn.
Svona hrakningar vekja ugg í
brjóstum flestra annarra en mín.
Húsfreyjan að Grund sagði mér
um morguninn að hún hefði verið
að hugsa um að hita skærin um
nóttina - en bætti við að það væri
sig við nokkra vanrækslu og sinni
öllum heimilisstörfum ef makar
þeirra eru í félagsstarfi. Auðvitað
horfir þetta eins við öllum mökum,
karl eða kvenkyns. En ég held, að
körlum gangi yfirleitt verr að sætta
sig við þetta. Það hefur tekið
manninn minn nokkur ár að sætta
sig við þetta, en aðalatriðið er að
það hefur tekist.
Ég get ekki betur séð en að ég
uppfylli flestar þær kröfur, sem
gerðar eru til nútímakvenna. Ég er
í ábyrgðarstarfi, geng með barn og
starfa í pólitík. En ég er engin súp-
erkona, og-því hljóta t.d. heimilis-
störfin að lenda á öðrum þessar
vikurnar.
Svört framtíð ef
íhaldsöflin ráða
Ég spyr Jóhönnu hvernig kosn-
ingabaráttan og framtíðin leggist í
hana.
„Mér finnst okkur Alþýðu-
bandalagsfólki hafa verið vel
tekið“, segir Jóhanna. „Málflutn-
ingur okkar í álmálinu t.d. hefur
mikinn skilning og fólk sér að þar
stöndum við vel. En það er ekki
nóg að sýna skilning - fólk þarf
einnig að kjósa okkur ef við eigum
að geta komið baráttumálum okk-
ar í höfn.
í mínu kjördæmi eru ósköp hóg-
værir cg Ijúfir sjálfstæðismenn í
framboði. En þetta eru bara ekki
rhennirnir sem ráða flokknum - og
það er urn þá sem sagt er, að verði
aðeins notaður til að draga vagn
Verslunarráðsins. Það er því vill-
andi að kjósa þessa menn, þótt
myndarlegir og vænir séu, því at-
kvæðin sem þeir fá, teljast Versl-
unarráði í hag.
Það verður hræðilegt ef við töp-
urn miklu og íhaldsöflin og stefna
þeirra verður ofan á. Frá mínum
bæjardyrum séð er fyrst og fremst
tekist á um stefnur í pólitíkinni.
Við skulum vona að okkar stefna
sigri“.
N
r ’ Sveitarstjóri
Starf sveitarstjóra á Blönduósi er laust til umsóknar.
Umsóknir skulu sendar skrifstofu Blönduósshrepps,
Hnjúkabyggð 33 fyrir 10. maí nk. Nánari upplýsingar
veitir undirritaður í síma 95-4181.
Sveitarstjóri Blönduósshrepps.