Þjóðviljinn - 21.04.1983, Qupperneq 19

Þjóðviljinn - 21.04.1983, Qupperneq 19
Fimmtudagur 21. aprfl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 ða þannig Samtökin Ný sjónarmið íhuga nú að fá leikarann víðkunna Yul Brynner til að rétta landssöfnuninni fyrir ísal hjálparhönd. ísal-söfnunin gengur treglega Kemur Yul Brynner ? Okkurfinnst söfnunin hafa gengiö fremur treglega til þessa og teljum að ómaklega hafi veriö aö henni veist, sagöi JónOddsson hæstaréttarlögmaður í viðtali við Þjóöviljann á þriðjudaginn, en Jón er umsjónarmaöur gíróreiknings landssöfnunar samtakanna Ný sjónarmið til hjálpar Islenska álfélaginu hf. Ég veit ekki nákvæmlega livað safnaðist mikið á fundinum í Há- skólabíói í gærkvöldi, en fyrir fund- inn voru komnar á reikninginn um 1400 krónur, sem jafngildir 18000 kílówattstundum fyrir Isal. Til tals hefur komið að leita til sérfræðinga við framkvæmd söfn- unarinnar og er hugsanlegt að við munum fara fram á aðstoð Frjáls framtaks til þess að gera þetta átak sem myndarlegast. Þá hefur einnig komið til tals að fá erlenda leikara til að rétta söfn- uninni hjálparhönd, og hafa þeir Yul Brynner og Larry Hachman sem leikur JR íDallas verið nefndir í því sambandi. Slíkt yrði þó ekki gert nema í samráði við Frjálst fram- tak, sagði Jón Oddsson hrl. Við höfum orðið varir við nokk- urn mótbyr í söfnuninni í kjölfar meiðandi ummæla sem höfð hafa verið um söfnunina. Þá hefur einn- ig örlað á því að gert væri grín að þessu, og lítum við það alvarlegum augum, þar sem við teljum okkur hafa gert ýtarlega grein fyrir þeim miklu erfiðleikum sem nú steðja að þessu þjóðþrifafyrirtæki. Hefur jafnvel komið til tals að við færum í meiðyrðamál vegna þessara niðrandi ummæla. - Eru það einhverjir tilgreindir aðilar sem þið hafið þar í huga? - Já það er t.d. Árni Björnsson þjóðháttafræðingur sem veittist mjög ómaklega af samtökum okk- ar og söfnuninni í útvarpserindi „um daginn og veginn“. Þá hefur einnig verið birt af okkur vægast sagt ósmekkleg mynd í blöðum, og eru fordæmi þess að menn hafi unnið meiðyrðamál af minna til- efni. - Hvaða á söfnunin að standa lengi? - Upphaflega var ákveðið að stöfnunin stæði út aprílmánuð, en ég veit ekki hvort við getum sam- visku okkar stöðvað hana þá, þar sem komið hefur í ljós á síðustu dögum að þarfir ísal eru jafnvel enn brýnni en við höfðum talið. Er sorglegt að fólk skuli ekki hafa sýnt málinu meiri skilning en raun ber vitni. - Eru auglýsingar söfnunarinnar kostaðar af söfnunarfénu? - Allt innkomið fé fer á lokaðan gíróreikning okkar númer 78300-5. Við því hefur ekki verið hróflað ennþá. Auglýsingar söfnunarinnar hafa verið greiddar af samtökunum Ný sjónarmið. Um endanlegt upp- gjör söfnunarinnar hefur hins veg- ar ekki verið ákveðið ennþá, né heldur hvenær söfnunarféð verður afhent ísal. - Ég vil að lokum livetja alla ís- lendinga til að taka söfnun okkar af rausn og skilningi, svo að við get- um sýnt umheiminum að þegar býðurþjóðarsómi,þá á ísland eina sál, eins og skáldið sagði. Gíró- númer landssöfnunarinnar fyrir ísal hf. er 78300-5. -ólg. Lágmark að löggjafarvaldið verði skilið frá framkvæmda- valdinu, segir Lýðmundur Skrum hjá Bandalagi jafnaðarmanna Frá Hinu íslenska Tófuvinafélagi: Stjórnmálaályktun vegna alþingiskosninga 23. apríl. Um nærfellt þriggja ára skeið hefur Hið íslenzka Tófuvinafélag stundað markvissa neðanjarðar- starfsemi, haft sig lítt í frammi op- inberlega en látið þeim mun meira að sér kveða í grasrótinni sjálfri. Árangurinn hefur orðið sá að al- gjör umskipti eiga sér nú stað í ís- lenskum landbúnaði. í ellefu aldir hafa bændur landsins stundað sömu framleiðsluna og neytt þjóðina til að éta sama lambakjötið og lepja sömu mysuna. Og þrátt fyrir öra tækniþróun í landbúnaði á undanförnum áratugum hefur markmiðið verið óbreytt, kjöt og mysa. Það hefur nú gerst að bústólpar þjóðarinnar hafa breytt um bú- skaparháttu. Skera þeir nú sauðfé sitt niður við trog sem hvurn annan ó- fénað, en líta þess í stað vonar- augum til tófunnar, að hún færi þeim björg í bú. Bændur binda all- ar vonir við tófurækt og þykir H.Í.T. því einsætt að kreppa land- búnaðarins sé gengin yfir og björg- un efnahagslífsins sé á næstu grösum. Stjórn H.Í.T. álítur að enda þótt tófurækt hafi aldrei verið markmið félagsins þá sé hún merki mikillar vitundarvakningar. Augljóst er að það meginviðhorf H.Í.T. að tófan sé ekki skaðvaldur í landinu heldur' bjargvættur gegn alhliða þjóðfé- lagskreppu og efnahagsvanda, sem er að ryðja sér til rúms. Enda þótt bændur vorir hafi þeg- ar eygt ljósið verður eigi hið sama sagt um stjórnmálamenn þjóðar- innar. Þaðan eru kveðjurnar allar fyrir neðan belti. Þeir hafa ekkert lært og engu gleymt. Þeir styðja enn óbreytta landbúnaðarstefnu. Hin pólitíska kreppa á Alþingi er fullkomin. Þar ríða húsum gömlu, úreltu viðhorfin gagnvart tófunni þrátt fyrir andblæ nýrra tíma. Það sýnir sama fornaldarhugs- unarháttinn að í hugmyndum og umræðum stjórnmálamanna um stjórnarskrármálið er hvergi vikið að meginhagsmunamáli þjóðarinn- ar: Málefni tófunnar, frumbyggja íslands, skipa þar engan sess. Að vel gaumgæfðu máli treystir stjórnH.Í.T. sérekkiaðmælameð einstökum frambjóðendum stjórn- málaflokkanna. Hins vegar hvetur H.Í.T. kjósendur til að styðja hvern þann trambjóðanda, sem kynni enn að öðlast kjark til að beita sér fyrir friðun tófunnar og fyrir setningu nýrrar refsilöggjafar gegn hverjum þeim, sem áreitir eða truflar tófur á einn eða annan hátt. Ef enginn hefur þrek til að taka á þessum málum af fullri alvöru og drengskap treystir H.Í.T. sér ekki til að hvetja hinn breiða alþýðu- fjölda til að styðja neinn fram- bjóðanda. Að óbreyttu hvetjum við því félaga H.Í.T. og annað þroskað fólk til að sitja heima á kjördegi. Biðlund hins íslenska tófuvinar er á þrotum. Ef stjórnmálamenn þjóðarinnar sjá ekki að sér innan tíðar neyðumst við til að verða við þeim fjölda áskorana, sem dunið hafa á okkur að undanförnu; að taka beinan þátt í skollaleik stjórn- málanna og bjóða fram við næstu alþingiskosningar í öllum kjör- dæmum landsins og á hálendinu einnig. Og má öllum vera ljóst að í refskák stjórnmálanna skýtur okk- ur enginn ref fyrir rass, Með refum skal land byggja en refaskyttum eyða. I apríl 1983 Stjórn H.Í.T. Lýðmundur Skrum: Við heimtum frjálsa samninga á milli bænda og búfénaðar. Krefst aðskilnaðar verðlagseftirlitsins Þetta er fráleitt kerfi, sagði Lýðmundur Skrunt hjá Banda- lagi jafnaðarmanna er blaðið inn- ti hann eftir áliti bandalagsins á niðurgreiðslu á búvörum. Dæmi- gert fyrir samtryggingu flokk- anna. Ekkcrt nema aðskilnaður á löggjafar- og framkvæntdavaldi gctur komið í veg fyrir óeðlilegar niðurgreiðslur á búvöru, sagði Lýðmundur: - Það myndi strax verða skárra ef framleiðendur fengju að á- kveða verð á búvöru með frjáls- um hætti. Frjáls vcrðlagsákvörð- un er býsna þýðingarmikil. Hins- vegar mætti ákveða verð á bú- vöru með frjálsum samningum á milli bænda og búfénaðar. Það væri í áttina, ef siðspillingin minnkaði. En það er algjört lág- mark að forsætisráðherra verði kosinn beinni kosningu þrisvar til fjórum sinnunr. Þá yrðu sko ekki vandræði með niðurgreiðslu á búvöru, sagði Lýðnrundur að lokum. Ólöf Myrra lítur niður á pólitíkina af hinum kvenlega sjónarhóli. Kvenleg sjónarmið fái að njóta sín segir Ólöf Myrra hjá Kvennalistanum Við viljum að kvenleg sjónarmið fái að njóta sín, sagði Olöf Myrra Pálmundsdóttir skrifstofustjóri, efsti maður á lista Kvennalistans, þegar blaðið spurði hana í gær um afstöðuna til niðurgreiðslu á bú- vörum. - En, sagði Ólöf, listinn hefur ekki mótað afstöðu sína til málsins: Mín persónulega afstaða er al- veg ljós. Ég tel hiklaust að líta eigi á málið frá kvenlegum sjónarhóli. Hagsýn húsmóðir þarf ekki að vera í neinum vafa um þetta mál. Reynsluheimur hennar er ótví- ræður. Mér er alveg sama hvort niðurgreiðslur verða auknar eða minnkaðar, já eða standa í stað. En haflð þið ekkcrt rætt þetta mál hjá Samtökum kvennalista? Jú að sjálfsögðu höfum við rætt þetta mál. Við erum flestar á þeirri skoðun, að það sé rétt að líta á stöðu konunnar í þjóðfélaginu. Og það er ekki nóg að hafa jafnréttis- sjónarmið í huga heldur verður að líta á niðurgreiðslur á búvöru sem hluta af kúgunarmynstri karla í aldanna rás. Þetta er rökrétt fram- hald. Þess vegna erum við heldur ekkert að setja fram einhvern val- kost við þessar niðurgreiðslur. Bara ef kvenleg sjónarmið fá að njóta sín. En kvennalistinn hefur ekkert mótað neina aðra sérstaka afstöðu til þessa máls. - Mér finnst nú líka alveg dæmi- gert fyrir karlrembuþjóðfélagið að vera að spyrja mig útí þetta mál. Sjálfur geturðu haft afstöðu til niðurgreiðslu á búvöru, sagði Ólöf Myrra að lokum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.