Þjóðviljinn - 21.04.1983, Qupperneq 20
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 21. aprfl 1983
Gler-
skúlptúr í
Gallery
Langbrók
Brynhildur Þorgeirsdóttir opn-
ar sýningu á glerskúlptúrum í
Galleri Landbrók, Amtmannsstíg
1 Reykjavík, laugardaginn 23.
apríl kl. 16.
Brynhildur lauk námi frá
Myndlista- og handíðaskóianum
1978. Hún hélt utan til náms í
glergerð við glerdeild Gerrit Rie-
tveld Academie, Amsterdam
1979-80, og var um tíma í Orre-
fors glerskólanum, Svíþjóð. 1980
fór hún til Bandaríkjanna og var í
2 ár í „Master of Fine Art Prog-
ram“ við glerdeild The California
College of Art and Crafts Oak-
land, undir leiðsögn professor
Marvin Lipofsky.
Sumarið 1982 stundaði hún
nám í Pilshuck glerskólanum,
Washington og hlaut þar viður-
kenningu „the Corning price“
sem The Corning Glass Museum,
New York fylki veitir.
Þetta er fyrsta einkasýning
Brynhildar, en áður hefur hún
tekið þátt í samsýningum í Hol-
landi, Bandaríkjunum og hér á
landi á „Gullströndin andar“.
Á sýningunni í Langbrók eru
verk unnin á árunum 1980-1981.
Sýningin er opin virka daga kl.
12-18 og laugardaga kl. 14-18 og
lýkur 6. maí.
Sumardaginn fyrsta
Pólýfón-
kórinn
með
kaffisölu
Pólýfónkórinn efnir til kaffisölu
á Hótel Sögu Súlnasal á sumar-
daginn fyrsta, fimmtudaginn 21.
apríl n.k. Auk kaffiveitinganna
verður hlutavelta með fjölmörg-
um ágætisvinningum.
Að sjálfsögðu verða einnig
skemmtiatriði við allra hæfi, kór-
söngur, einsöngur, tvísöngur og
hljóðfæraleikur.
Meðal þeirra sem þarna koma
fram verða: Ásta Thorstensen
alt, Ásdís Gísladóttir, sopran,
Elsa Waage sopran, Friðbjörn G.
Jónsson, sem syngur lög Sigfúsar
Halldórssonar við undirleik höf-
undar, tvær ungar stúlkur leika
og syngja í léttum dúr og Josef
Fung leikur á gítar. Fjölskylda
Hjálmtýs Hjálmtýssonar mun
syngja, en dóttirin í fjölskyldunni
er betur þekkt undir nafninu
Diddú. Þá mun hljómsveitin
KOS leika lauflétta tónlist.
Stjórn Borgarbókasafnsins ásamt borgarbókaverði. F.v.: Elín Pálmadóttir, Elfa Björk Guðmundsdóttir
borgarbókavörður, Bessý Jóhannsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir. „Hingað kemst enginn karlmaður inn,“
sögðu stjórnarmeðlimir. Varamenn í stjórn safnsins eru þeir Arthur Morthens og Haraldur Blöndai. -
Ljósm. - Atli.
Borgarbókasafnið
sextíu
ára
Segja má að um þessar mundir
eigi Borgarbókasafn Reykjavíkur
tvöfaldan afmælisdag. Þann 19.
apríl síðastliðinn eða í fyrradag
voru 60 ár liðin frá því að Borgar-
bókasafn Reykjavíkur tók til
starfa, en 19. apríl árið 1923 bar
einnig upp á sumardaginn fyrsta.
Rekja má stofnun safnsins til sölu
íslensku togaranna árið 1927.
Bæjarstjórn Reykjavíkur ákvað þá
að þremur hundraðshlutum af
andvirði sölunnar yrði varið í þágu
alþýðu Reykjavíkur, þess fólks sem
atvinnu hafði af fiskveiðum með
einum eða öðrum hætti. Af því fé
sem hlaust af sölu og rann til bæjar-
búa var ákveðið að 11 þúsund
krónur hrykkju til stofnunar al-
þýðubókasafhs í Reykjavík. I reglu-
gerð safnsins sem staðfest var í
bæjarstjórn 1. mars 1923 segir að
tilgangur safnsins sé að efla al-
menna menntun með því fyrst og
frcmst að gefa fólki kost á að lesa
góðar bækur. Fyrsta ár safnsins
var bókakostur um citt þúsund
eintök.
Hét
Alþýðubókasafn
Reykjavíkur
Fyrsta kastið starfaði safnið
undir heitinu Alþýðubókasafn
Reykjavíkur og var til húsa að
Skólavörðustíg 3. Það hús er nú
horfið. 1928 flutti safnið að Ing-
ólfsstræti 12 og var þar til 1952.
Árið 1936 var nafni safnsins breytt í
núverandi nafn þess, Borgarbóka-
safn Reykjavíkur. Hið gamla og
fallega hús sem nú geymir aðal-
Skrifstofuhúsnæði Borgarbókasafns Reykjavíkur að Þingholtsstræti 27 er
í næsta námunda við Esjuberg hið fallega aðalsafnhús. Þarna er einnig
aðstaða fyrir flokkunar- og skráningardeild og aðfangadeild. Að auki
hefur borgarbókavörður skrifstofu sína í þessu húsi. Ljósm. - Atli.
starfsemi safnsins, Esjuberg, var
upphaflega íbúðarhús byggt 1916.
Esjuberg er furðulítið hús, aðeins
120 fermetrar að grunnfleti og er
vinnuaðstaða erfið í húsinu og er
orðið mjög brýnt að fá nýtt aðal-
safn. Fyrir 16 árum var ákveðið að
byggja nýtt aðalsafn en enn hefur
ekkert orðið úr framkvæmdum.
Borgarbókasafn Reykjavíkur er
dreift víðsvegar um Reykjavík.
Utibúin er þrjú talsins og að auki
tveir bókabílar. Aðsókn að bóka-
bílunum var mikil í fyrstu, en dreg-
ið hefur nokkuð úr henni. Útibú
var opnað 1973 á neðri hæð kirkju-
byggingar Bústaðakirkju, útibú að
Hofsvallagötu 16 var opnað 1936.
Það er orðið alltof lítið og óhent-
ugt, en Vesturbæingum er hlýtt til
safnsins enda hefur það þjónað
þeim lengi og vel. I Sólheimum tók
útibú til starfa árið 1963 og er það
hið eina sem sérstaklega hefur ver-
ið byggt sem bókasafn. í Félags- og
menningarmiðstöðinni í Gerðu-
bergi í Breiðholti er verið að koma
upp stóru útibúi. Bókasafnið fær til
sinna umráða 1/3 hluta menningar-
miðstöðvarinnar eða u.þ.b. eitt
þúsund fermetra. Þá má nefna að
Hljóðbókasafn Borgarbókasafns-
ins og Blindrafélagsins hefur starf-
að um langt skeið, en nú stendur
yfir uppstokkun á starfsemi hljóð-
bókasafnsins þannig að það fellur
undir Blindra bókasafn Islands.
bókasafn íslands.
Yfir 300 þúsund
bækur
í Borgarbókasafni Reykjavíkur
eru nú um 323 þúsund bækur.
Borgarbókasafnið hefur allt öðru
hlutverki að gegna heldur en
Landsbókasafnið sem varðveitir
allar bækur sem koma út á íslenskri
tungu og setur strangar hömlur við
útlánum. Bækur slitna og í fyrra
voru um 10 þúsund bindi afskrifuð.
Útlánum á síðasta ári fækkaði tals-
vert og er talið að myndabanda-
væðing þjóðarinnar hafi þar átt
stóran hlut að máli. Starfsmenn
Borgarspítalans eru um 60.
-hól.
Rúna og
SÖB sýna
verk sín
Á morgun kl. 6 opna þau Sigurð-
ur Örn Brynjólfsson og Sigrún
Guðjónsdóttir samsýningu í
húsnæði Alþýðubandalagsins í
Hafnarfirði, Skálanum, Strand-
götu 1. Sigurður Örn sýnir
teikningar en Rúna keramiklág-
myndir. Sýningin er opin til 1. maí.
Kosningadagmn 23.apríler sýning-
in opin frá 10-22 og verða kaffi-
veitingar á staðnum.
Sigrún Guðjónsdóttir
Sigurður Örn Brynjólfsson
Framkvæmda-
stjórn Hjarta-
verndar svarar
yfirlýsingu heimilis-
lækna um gagnleysi
hóprannsókna
Órökstudd
og ósönn
ummæli
„Það er skoðun sérfræðinga
Rannsóknarstöðvar Hjartavernd-
ar um ummæli um gagnleysi þess-
ara skoðana, sem eru órökstudd,
séu ósönn og ósæmandi“, segir í at-
hugasemd frá Framkvæmdastjórn
Hjartaverndar, vegna fréttar frá
félagi íslenskra heimilslækna fyrir
skömmu um að umfangsmiklar
hóprannsóknir eins og þær, sem
Hjartavernd stendur fyrir, komi
ekki að neinum notum.
í athugasemdinni frá Hjarta-
vernd segir að frá því rannsóknar-
stöðin tók til starfa haustið 1967
hafi verið í gangi og sé enn, um-
fangsmikil faraldsfræðileg hóp-
rannsókn þar sem tilgangurin sé að
finna byrjunarstig hjarta og æða-
s'júkdóma og ýmissa annara sjúk-
dóma.
Að því er varðar íslendinga hafi
upplýsingar af þessu tagi verið
mjög takmarkaðar áður en hóp-
rannsóknin hófst en nú liggi hins
vegar fyrir margvíslegar niðurstöð-
ur úr hóprannsókn Hjartaverndar
sem birtar hafa verið í um 90 vís-
indalegum ritgerðum og greinum í
innlendum og erlendum læknis-
fræðiritum, auk fræðslugreina fyrir
almenriing.
Annar þátturinn í starfsemi
Rannsóknarstöðvarinnar sé sér-
fræðileg þjónusta við fólk sem
þangað er vísað af læknum. Á síð-
ustu 5 árum hefur milli 1000 og
1400 einstaklingum verið vísað ár-
lega til rannsóknar á Rannsóknar-
stöðina.
Skátar í Reykjavík
Fjölbreytt
hátíð
Reykjavíkurskátar munu halda
sumardaginn fyrsta hátíðlegan. Að
þessu sinni verður horfið til gam-
alla hefða, því skátarmunu fýlkja
til hátíðarmessu í Háskólabíói.
Gangan leggur af stað kl. 9.45
frá nýju skátamiðstöðinni við
Snorrabraut, gengið verður niður
Laugaveg, Læjargötu, Skothúsveg
og Hringbraut að Háskólabíói, en
þar mun séra Guðmundur Óskar
Ólafsson þjóna fyrir altari,skát-
akór syngur og undirleik annast
Smári Ólafsson.
Síðar urn daginn mun skátafé-
lagið Dalbúar halda útihátíð Árm-
annsvelii, skátafélagið Garðbúar
verður með útihátíð við Hæðar-
garð. Skátafélagið Skjöldur verður
með fjölskylduskemmtun í skáta-
heimilinu við Sólheima, en á öllum
þessum stöðum verður ýmislegt til
skemmtunar fyrir þá yngri sem og
eldri borgarbúa. Skátafélagið Ár-
búar munu skemmta sjúklingum á
Landspítalanum.
Fyrirlestur í
Háskólanum
Höskuldur Þráinsson prófessor
og Kristján Árnason lektor flytja
opinberan fyrirlestur á vegum
heimspekideildar Háskóla íslands
laugardaginn 23. apríl 1983 kl. 14 í
stofu 201 í Árnagarði.
Fyrirlesturinn fjallar um málfar
Vestur-Skaftfellinga og er fimmti
fyrirlesturinn í röð fyrirlestra um
rannsóknir á vegum heimspeki-
deildar á vormisseri 1983.
Öllum er heimill aðgangur.