Þjóðviljinn - 21.04.1983, Síða 21

Þjóðviljinn - 21.04.1983, Síða 21
Fimmtudagur 21. aprfl 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 21 ' Nokkrir sópranar syngja af einbeitingu - Ljósm. -kjv. V orvítamín í Hamrahlíð Það er margt um að vera í Ham- rahlíðarskólanum í dag, sumar- daginn fyrsta. Tveir kórar skólans, Hamrahlíðarkórinn og Kór Mennt- askólans við Hamrahlíð standa fyrir kaffisölu í skólanum frá kl. 14 og verður gestum og gangandi boðið upp á alls konar tónlistar- uppákomur. Kórarnir munu halda alls þrenna tónleika, kl. 14.30., 16.30. og 18.00. og verða þeir hver með sína efnisskrá. Á söngskrá kóranna er m.a. íslensk tónlist, þjóðleg og samin verk, þjóðlög frá ýmsum löndum, Zigeunerlieder eða Si- gaunaljóð eftir Brahms og slóvak- ískar þjóðvísur eftir Béla Bartók svo að nokkuð sé nefnt. Kórfélagar munu troða upp með margskonar atriði svo sem karlakór, einsöng, hljóðfæraleik, rag-time tónlist verður flutt, Magnús Ástvaldsson mun kveða stemmur og síðast en ekki síst verður gestum boðið upp á kennslu í írskum þjóðdönsum. í tilefni dagsins munu gestir geta keypt blóm og kökur á staðnum og einnig verður hlutavelta. Einn gestur mun detta í lukkupottinn með klukkustundar millibiti og fá fyrir það verðlaun. Barnagæsla verður á staðnum. Stúdentaleikhúsið með uppákomu í Tjarnarbíó Vísir að barnaleikhúsi Á sumardaginn fyrsta ætlar Stúdentaleikhúsið að standa fyrir uppákomu í Tjarnarbíói frá kl. 15- 18 síðdegis. Allir eru velkomnir ekki síst barnafólk með börnin sín, því hug- myndin er að koma upp vísi að barnaleikhúsi þar sem börnin sjálf eru aðalþátttakendur í leiknum. Ef vel tekst til á sumardaginn fyrsta verður vonandi framhald á þessu, að sögn forráðamanna Stúdenta- leikhússins. Aðgangur að skemmtuninni í Tjarnarbíó er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Víst er að margt óvænt verður á dag- skránni. Sumardagurinn fyrsti: Hátíðahöld í Kópavogi Fjölbreytt hátíðahöld verða í Kópavogi á sumardaginn fyrsta. Kl. 11 verður skátamessa í Kópa- vogskirkju en áður verður safnast saman við Víghólaskóla kl. 10.30 og gengið upp í kirkju. Eftir hádegið verður safnast saman við Digranesskóla kl. 13.30, ganga leggur af stað kl. 14.00 og verður gengið niður Álfhólsveg upp Meltröð og inn á Víghóla- skólalóðina að sunnanverðu þar sem skemmtun fer fram. Dagskrá þar verður með þessum hætti: Ávarp flytur Rannveig Guð- mundsdóttir forseti bæjarstjórnar. Kynnir er Sigurður Lyngdal. Barnakór Kársnes- og Þinghóls- skóla syngur nokkur lög. Leikbrúðuland verður á staðnum. Diskótekið Dísa verður til staðar eftir skemmtiatriðin og sér um fjör- ið fyrir krakkana. Reykjavík og Kópavogur: Garðyrkjuskóli ríkisins með opið hús Garðyrkjuskóli ríkisins er 44 ára á sumardaginn fyrsta og hafa nem- endur í samráði við skólayfirvöld ákveðið að hafa skólann opinn öll- urn landsmönnum frá kl. 10-22. þann dag. Kynningarstarfsemi verður á staðnum, einnig stendur fólki til boða að skoða hinn sér- stæða 800 nv gróðurskála skólans, þar sem allt stendur nú í fullum blórna og hagnýtar upplýsingar um ræktun standa til boða. Einnig verður til sölu fjölbreytt úrval af pottplöntum og nýtt grænmeti á Nemendur Garðyrkjuskóla ríkisins opna skólann á sumardaginn fyrsta, fyrir öllum þeim scm áhuga hafa á vægu verði, auk tveggja garðhúsa, verður kaffi og meðlæti. Ferðir sem nemendur hafa smíðað. Selt verða frá B.S.Í. Sumargleði G-listans Það er ekki amalegt í miðri kosn- ingahríðinni að geta gert sér dag- amun á sumardaginn fyrsta, - hitt félagana og frambjóðendur og spjallað saman yfir kaffibolla. Klukkan 15 í dag verður opið hús í kosningamiðstöðinni, Hverfisgötu 105, Reykjavík og á sama tíma í Þinghóli, Hamraborg 1, Kópavogi. í Reykjavík mun Guðrún Helga- dóttir spjalla við gesti og Kolbeinn Bjarnason leika á flautu. í Kópavogi munu þeir Geir Gunnarsson og Elsa Kristjánsdótt- ir spjalla við gesti og flutt verða fjölbreytt skemmtiatriði. Upplagt tækifæri fyrir fjölskylduna alla til að bregða sér af bæ! Opið hús á kjördag A kjördag verður kosningamið- fresti. Opna húsið verður á jarð- stöðin við Hverfisgötu opin allan hæðinni en kosningastarfið á skrif- daginn og frá kl. 15-22 verður stofunum, efstu hæð. Nánar aug- skemmtidagskrá á klukkustundar- 'ýst á laugardag. Utankjörfundarkosningin: Opiö frá 2-6 í dag Nú fer hver að verða síðastur til að kjósa utan kjörfundar ef tryggt á að vera að atkvæðið komist til skila út um land. í dag, suntardaginn fyrsta, eru utankjörfundarstaðir opnir einsog ásunnudögum, hér í Reykjavík kl. 14-18 og kosið er í Miðbæjarskólanum gamla. Ármúla 20 Sími 84630 ÁRFELLSSKiLRÚM FYRIR SUMARIÐ Mismunandi möguleikar í uppstillingu, sérstaklega gert ráð fyrir innbyggðri raflögn. s É R T I L B O Ð Þií getur ýörbreytt hámiliþimi með síalrúmumj fixmdriðwn og skápwn jrá ÁrfedL hf. Hafið samband strax. Henta á milli veggja i op, 190 cm, til 250 cm. Húsgögn í úrvali — sófasett, borðstofusett Kristaivörur og fleira. OPIÐ LAUGARDA.3 TIL KL. 4. ARMULA 20 - SIMAFi ö 30 og 84635

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.