Þjóðviljinn - 07.05.1983, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 07.05.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN skráargatriö Sjálfstœðismenn í borgarstjórn þykjast nú vera búnir að ná sér niðri á Áslaugu Brynjólfsdóttur fræðslustjóra Reykjavíkur en hún var skipuð í þá stöðu í fyrra gegn þeirra vilja. Þeir hafa ákveðið að leggja niður fræðsluskrifstofuna í Reykjavík og setja upp svokallaða skóla- nefnd í staðinn og verður Sigur- jón Fjeldsted formaður hennar (hann sótti um embætti fræðslu- stjóra). Áslaug verður þá fram- vegis sem einhvers konar eftirlits- maður menntamálaráðuneytisins með skólahaldi íborginni. Þessar breytingar verða frá og með 1. ágúst n.k. Svo hljótt hefur þessi ákvörðun hins vegar farið til þessa að hún hefur ekki verið kynnt í neinum nefndum né held- urstarfsmönnum fræðslusknfstof- unnar. Hér er því um eins konar leiftursókn að ræða. Það vaktí athygli á kosninganóttina hversu seint fyrstu tölur úr Reykjaneskjördæmi komu eða ekki fyrr en á 2. tímanum um nóttina. Skýring cr nú fengin á þessu eða svo segja gárungarnir. Hafnfirðingar voru nefnilega svo lengi að veiða atkvæðin upp um rifurnar á kjörkössunum. Einnig vakti athygii að rétt fyrir kosning- ar var ný fjölþykktarolía frá Áslaug: Ýtt til hliðar Olíufélaginu ESSÓ auglýst stíft í fjölmiðlum. Nefnist hún X-D9. Þetta hefði ekki þótt einkennilegt sem dulinn kosningaáróður -frá Shell en skrýtnara frá framsókn- arolíuféiaginu. Nú þykjast menn sjá skýringu á þessu. SÍS- forkólfarnir hafi verið að gefa undir fótinn með nýja hægri sam- steypustjórn íhalds og framsókn- ar. Eða svo segja gárungarnir. Nú eru menn búnir að sjá út starf fyrir þá þingmenn Framsóknar sem duttu út af þingi og munu detta út af þingi eftir næstu kosn- ingar. Þeir ráða sig auðvitað til starfa hjá Dreifbýlismiðstöðinni Sigurjón: Settur yfir sem nú auglýsir að hún taki að sér að útvega kjóla og spindilbolta fyrir bændur og búalið. Þeir muni þá fást við svipuð störf og áður og ekki verða svo mikil breyting á högum þeirra. Þótt undarlegt megi virðast er eitthvert blómlegasta félagið í Reykjavík um þessar mundir Ættíræðifélagið. Það hélt aðal- fund á miðvikudaginn og þar var mætt á 2. hundrað manns en fé- lagarnir eru komnir hátt í 300. Það vakti eftirtekt á fundinum að meirihluti fundarmanna var upgt fólk og konur. Fyrirspurn í borgarstjórn um atvinnumál unglinga - Enn hefur ekki verið kannað sérstaklcga hvernig horfur eru á atvinnu fyrir skólafólk nú í vor, sagði borgarstjórinn Davíð Odds- son í svari við fyrirspurn frá Sigur- jóni Péturssyni í borgarstjórn á fimmtudaginn. Sigurjón Pétursson vakti athygli á því að á hverju vori hefði fyrri meirihluti borgarstjórnar lagt sér- staka áherslu á að útvega öllu skólafólki atvinnu í Reykjavík. Til þessa verkefnis hefði í tíð fyrri meirihluta verið úthlutað aukafjár- magni fyrir unglinga 16 ára og eldri. Hins vegar er starfandi Vinnuskóli Reykjavíkur fyrir ung- linga 14 til 16 ára sem starfar á hverju sumri nú einsog endranær. í svari borgarstjórans Davíðs Oddssonar kom fram að ekki hefði enn verið veitt aukafjármagni til þessa verkefnis þ.e. fyrir unglinga frá 16 ára aldri en þau mál yrðu grannt skoðuð um mánaðamótin. Að öðru leyti flutti borgarstjórinn langt mál um efnahagsástandið og ríkisstjórnina sem hann fann flest til foráttu. Þótti það fremur langt og einkennilegt svar við einfaldri fyrirspurn um atvinnuhorfur skóla- fólks. -óg Horfurnar óljósar sagði Davíð við fyrirspum Sigurjóns íslandsmeistaramót verður haldið í BROADWAY sunnudaginn 15. maí ’83. Keppnin hefst kl. 10 f.h. og lýk- urkl. 17. „Galadinner" um kvöldið. Miðapantanir í síma 27667. 5 efstu í hvorri iðngrein fá rétt til keppni á Norðurlandamóti. Erlendir dómarar. Fjölmenniðogsjáið skemmtilega keppni. Samband hárgreiöslu- og hárskerameistara. Adda Bára Sigfíisdóttir í borgarstjóm Tillaga um friðun hússins Aðalstræti 10 Samþykkt að vísa tillögunni til borgarráðs Þegar tillaga Alþýðubanda- lagsins um að leyfi til spilatækjareksturs í Aðalstræti 10 yrði ekki endurnýjað, hafði verið samþykkt í borgarstjórn í fyrrakvöld, flutti Adda Bára til- lögu um að húsið yrði friðað. Benti hún á að samkvæmt þjóðminjalögum væri heimilt að friða hús sem þessi - og myndi það verða í svonefndúm B-flokki. Væri sjálfsagt að borgarstjórn notfærði þessa heimild í lögum. í máli sínu benti Adda Bára Sigfúsdóttir á, að vel gæti komið til greina að leita samráðs við forsvarsmenn iðnaðar- ins til að.endurbyggja þetta hús, sem í sjálfu sér væri meðal elstu minja um íslenskan iðnað. Davíð Oddsson borga/stjóri Sjálfstæðisflokksins lýsti sig algjör- lega sammála þessum viðhorfum en lagði til að tillögunni yrði vísað til borgarráðs til frekari skoðunar áður en til samþykktar kæmi. Var það gert með öllum greiddum at- Adda Bára Sigfúsdóttir. Kemur vel til álita, að samtök iðnaðarins og Reykjavíkurborgar standi fyrir uppbyggingu Innréttingahússins í Aðalstræti. kvæðum einsog í það hið fyrra sinnið. -óg Aðalstræti 10 Leyfi til reksturs spilatækja verður ekki endurnýjað Samþykkt einróma í borgarstjórn Tillaga Alþýðubandalagsins um að framlengja ekki leyfi til hand- hafa þess um spilatækjarekstur í Aðalstræti 10 var samþykkt sam- hljóða í borgarstjórn í fyrrakvöld. Leyfi þetta var veitt til fjögurra ára fyrir þremur árum - og rennur því út í ágúst á næst ári. Þar með er komið I veg fyrir að spilabúla geti verið starfrækt í Aðalstræti 10, (Innréttingahúsi Skúla Magnús- sonar) eftir þann tíma. Adda Bára Sigfúsdóttir sagði það sérstakt metnaðarmál fyrir Reykvíkinga að losna við ófögn- uðinn úr þessu húsi og því væri það meðal ráða, að borgarstjórn sam- þykkti strax að endurnýja ekki leyfið sem er fyrir þessum rekstri, þegar það rennur út í ágúst á næsta ári. Davið Oddsson borgarstjóri Sj álfstæðisflokksins tók heils hugar undir málflutning Öddu Báru og gerðu borgarfulltrúar aðrir góðan róm að þessu máli og samþykktu að endurnýja ekki leyfið með öll- um greiddum atkvæðum. —óg Hljómplata frá Siglfirðingum:__ „Með kveðju til þín” Nýlega kom út tveggja laga hljómplata méð Stubba og Stuð- körlunum frá Siglufirði. Þetta er fyrsta hljómplata hljómsveitarinn- ar, en á henni eru lögin „Með kveðju til þín“ og „Ég er táningur.“ Bæði lögin ásamt textum eru eftir Leó Ólason, en hann átti einnig lagið „Eftir ballið“, sem Miðalda- menn gáfu út á smáskífu 1980, og komst í úrslit söngvakeppni sjón- varpsins sama ár. Hljómplata Stubba og Stuðkarl- anna var fyrst kynnt í Grímsey um páskana og seldist þar í 20 ein- tökum. Það gæti allt eins verið heimsmet, eða í það minnsta ís- landsmet, því að í Grímsey eru u.þ.b. 30 heimili eða um hundrað manns... Hljómsveitina skipa: Kristbjörn Bjarnason söngur/raddir, Leó R. Ólason hljómborð, Lárus Ingi Guðmundsson gítar og Viðar Jó- hannsson bassi. Aðstoð veittu Við- ar Eðvarðsson saxófónn og Guðný Jónsdóttir rödd. Upptaka fór fram í stúdíóinu Bimbó á Akureyri, út- gefandi er Sigluvík sf. myndbanda- leiga og Skífan sér um dreifingu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.